Alþýðublaðið - 14.07.1972, Síða 12
Alþýóubankinn hf
ykkar hagur/okkar metnatur
KOPAVOGS APOTEK
Opiö öll kvöld til kl. 7.
Laugardaga til kl. 2.
Sunnudaga milli kl. 1 og 3.
Það héldu víst f lestir að sagan væri að verða
öll/ — Fischer, ísland og einvígið gætu vart
fengið miklu meira rými á forsíðum heims-
blaðanna. En,,hinn óútreiknanlegi Fischer",
eins og ein erlend f réttastofan komst að orði í
gær, sá til þess að annað varð uppi á teningn-
um. -
Undanfarna viku hefur ísland verið í fréttum
f jölmiðla um allan heim, og eftir að bandariski
stórmeistarinn mætti ekki til leiks á tilsettum
SCNDIBIL ASTÖÐIN Hf
tíma má segja að hann hafi fyrst öðlast frægd
að marki í heimalandi sínu. En sú frægð hefur
verið á allan máta, og siðustu daga hefur mjög
farið að bera á því að landar hans væru mis-
jafnlega hrifnir af tiltækjum hans.
Þessi teiknimynd er úr bandaríska stórblað-
inu Los Angeles Times, og i texta undir henni
er dómarinn látinn segja: „Fischer virðist þá
lokstilbúinn, eigum við að byrja skákina herra
Spasski?"
SKAKIN SEM ALDREI VAR TEFLD
Fischer lét ekki sjá sig i Laug-
ardalshöllinni i gærdag, þegar
tefla átti 2. skák einvigisins um
heimsmeistaratitilinn.
Boris Spasski gekk inn á svið-
ið skömmu fyrir kl. 5 og settist
við taflborðið. Dómararnir, Lot-
har Schmidt og Guðmundur
Arniaugsson báru saman klukk-
urnar og á slaginu 5 setti yfir-
dómarinn skákklukkuna af stað.
Spasski beið rólegur i nokkrar
minútur, en stóð siðan upp og
hvarf aö tjaldabaki.
Þannig . leið klukkutimi. A
slaginu 6 gekk Schmidt fram á
sviðið og las 5. grein laganna
um einvigið, sem hljóðar svo:
Ef keppandi mætir meira en
einni kiukkustundu of seint til
leiks, tapar hann þeim leik.
Samkvæmt þessu hefur Robert
Fischer tapað annarri skákinni i
einviginu og standa þvi leikar
2:0 fyrir heimsmeistarann.
Næsta skák verður tefld á
sunnudag”.
Eftir að fyrstu skák einvigis-
ins var lokið i fyrrakvöld með
sigri heimsmeistarans, boðaði
yfirdómari, Lothar Schmidt, til
fundar með forystumönnum
einvigisins, svo og Chester Fox,
einkarétthafa á kvikmyndun á
einviginu og lögfræðingi hans,
og fulltrúum Iðntækni, sem séð
hafa um tæknilegan undirbún-
ing einvigisins.
Það eina, sem gerðist á þess-
um fundi var, að ákveðið var að
reyna að koma á fundi með lög-
fræðingi Fox og Fischer, en sá
siðarnefndi hafði sitthvað að at-
huga við staðsetningu kvik-
myndavéla kring um sviðið.
Siðdegis i gær hafði hins veg-
ar ekki tekizt að hafa uppi á
Fischer til að ræða við hann um
þessar lagfæringar.
Þegar sýnt var, að ekki tækist
að ná persónulegu sambandi við
Fischer, ritaði lögfræðingur
Fox, Richard Stein, bréf til
Fischers, sem komið var til
hans. Lögfræðingurinn gerði
nánar grein fyrir þessu bréfi á
blaðamannafundi, sem haldinn
var i Laugardalshöllinni á sjö-
unda timanum i gær, þar sem
tugir erlendra og innlendra
fréttamanna biðu eftir nánari
fregnum.
Fundurinn hófst með þvi að
Schmidt yfirdómari áréttaði
það, sem hann hafði áður sagt
um stöðuna á mótinu og þá einn-
ig, að i næstu umferð hefði
Spasski hvitt. Hann lýsti þvi yf-
ir, að samkvæmt reglunum yrði
að biða, unz 13 umferðir væru
liðnar hjá, tefldar eða ótefldar,
til þess að hægt væri að ákveða,
hvor hefði unnið keppnina.
Varðandi aðfinnslur Fischers
sagði dómarinn, að hann hefði
ekki fylgt reglu nr. 12 um að
koma slikum aðfinnslum á
framfæri skriflega innan til
skilins tima.
Lögfræðingur rétthafa kvik-
myndunar á einviginu,
Richard Stein lýsti aðdraganda
þess, að hann var beðinn að
ræða við Fischer um lagfæring-
ar og þá jafnframt, að þeir fé-
lagar hefðu frá upphafi verið
reiðubúnir að hlusta á hverjar
þær óskir, sem fram kæmu um
það, að haga myndatökum i
samræmi við óskir keppenda.
Hann las bréfiö, sem hann sendi
Fischer um þetta efni, þar sem
hann áréttar þann tilgang allrar
myndatöku á mótinu, að búa til
fyrsta flokks myndir af skákein-
viginu og veita fjölmiðlum
hvarvetna i heiminum aðgang
að þeim.
t bréfinu höfðar lögfræðingur-
inn til tengsla þeirra allra við
fósturjörðina Ameriku og segir
að lokum: ,,Sem þjóðhetja
Ameriku verður þú að leyfa
miljónum Amerikumanna að
taka þátt i þessari reynslu með
þér, bæði vegna skáklistarinnar
og vegna fólks um heim allan”.
Bréfi þessu svaraði Fischer
ekki orði.
Lögfræðingurinn skýrði frá
þvi, að þegar hálf klukkustund
var liðin frá þvi að skákin átti að
hefjast i gærdag, heföi lögfræð-
ingur Fischers hringt til sin frá
New York og lagt til sem mála-
miðlun, að allar vélar yrðu fjar-
lægöar frá sviðinu á meðan á
þessum leik stæði, ef það gæti
orðið tii þess að Fischer mætti
til leiks. Skemmst frá að segja,
fulltrúum Fischers tókst ekki að
ræða þetta mál við hann á þess-
ari örlagaklukkustundu fyrir 2.
skákina.
Það var dauft hljóðið i mörg-
um hinna erlendu gesta, sem
biðu óþreyjufullir i Laugardals-
höliinni i gær eftir að áskorand-
inn, Robert Fischer, mætti til
leiks. „Verst að þetta skuli vera
Amerikani”, andvarpaði ung
bandarisk stúlka. Sumir reyndu
að geta sér þess til, hvilikum
fjárhæðum yrði á glæ kastað, ef
keppnin færi út um þúfur.
Daði Agústsson, sá, er séð
hefur um lýsinguna á sviðinu
sagði, að Spasski hefði aldrei
fundið neitt að lýsingunni, en
P’ischer hefði verið heldur
ósamkvæmur sjálfum sér i að-
finnslunum. Fyrst hefði hann
talið 1800 LUX (ljóseiningar) of
litið, en skömmu siðar fannst
honum 200 LUX of mikið. Kvað
Daði þetta i fullu samræmi við
duttlunga Fischers i Buenos
Aires um árið, en þá hafði hann
allt á hornum sér fyrstu 7 skák-
„Hann hafði ekkert út á
áhorfendur að setja, þeir komu
mjög prúðmannlega fram”,
sagði Fred Cramer, einn af tals-
mönnum Fischers i gærkvöldi.
„En sjónvarpsmyndavélarnar
trufluðu hann i fyrstu skákinni
og hann var búinn að mótmæla
þvi að þær væru þarna. Hann
sagðist myndu ekki tefla fyrr en
það væri búið að fjarlægja þær,
og þess vegna tefldi hann ekki”.
„En verður hann fáanlegur tii
irnar út af lýsingunni. Þá lýstu
þeir fyrir 8. skákina nákvæm-
lega eins og þeir lýstu fyrir þá
fyrstu — og eftir það var
Fischer harðánægður með lýs-
inguna!
Blaðafulltrúi Skáksambands-
ins, Freysteinn Jóhannsson,
sagði i gær, að búið væri að fjar-
lægja tvær fremstu sætaraðirn-
ar að ósk Fischers. Takmörk
væru að sjálfsögðu fyrir þvi, hve
langt væri hægt að ganga i þvi
efni, að minnka tekjumöguleik-
ana á sjálfu einviginu, aðgangs-
eyririnn væri núþaðfé.sem
Skáksambandið treysti á, til að
mæta öllum sinum útgjöldum.
Aðspurður um hávaða, sem
Framhald á bls. 4
að tefla ef myndavélarnar
vcrða fjarlægðar?”
„Að sjáifsögðu mætir hann
um leið og búið er að ganga að
kröfum hans um algert næði”.
„Jafnvel þótt skákin hafi ver-
ið dæmd af honum?”
„Ég heid að hann muni ekki
sætta sig við að skákin verði
dæmd af honum þar sem ekki
var búið að ganga að kröfum
hans”.
SLAGURINN STENDUR UM
KVIKMYNDAVÉLARNAR
Robert Fischer sagði Friðrik
Olafssyni í gærdag, að hann
hefði ekki lengur neinn áhuga á
að keppa um heimsmeistara-
titilinn i skák og hefði raunar
misst áhugann fyrir fullum sex
mánuðum.
Þetta kom fram i útvarpsvið-
tali, sem Arni Gunnarsson
fréttamaður átti við Friðrik i
gærkvöldi.
Hinn islenzki stórmeistari var
gerður út frá Laugardalshöll og
til Loftleiðahótelsins á sjötta
timanum i gær, ef honum mætti
auðnast að tala um fyrir meist-
aranum. Hann kom að herbergi
hans læstu en fékk þó inngöngu
eftir að hafa kynnt sig og tjáð
Fischer, að hann kæmi til hans
sem skákmaður en ekki i um-
boði eins eða neins.
Það var mjög að skilja á
Friðrik, að hann efaðist um að
Fischer gengi heill til skógar.
Þegar Arni spurði hann álits um
heilsufar Bandarikjamannsins
og hvort hann teldi ef til vill að
Fischer væri sjúkur, svaraði
Friðrik: „Það er ljóst, að það er
ekki fjarri þvi lagi”.
Sömu ályktun sýnist raunar
mega draga af svari Guðmund-
ar G. Þórarinssonar, formanns
Skáksambands tslands, þegar
Árni ræddi við hann i sama
fréttatíma og spurði, hvort
Fischer hefði enn komið með
aðfinnslur. Guðmundur upplýsti
þá, að auk lýsingarvandamála
og hinna margumtöluðu kvik-
myndavéla hefði bandariski
skáksnillingurinn nú kvartað
yfir þvi, að einn reiturinn i
skákborðinu i Laugardalshöll
væri ekki alveg eins og hinir.
Guðmundur bætti þvi við, að
fjögur skákborð hefðu raunar
verið smiðuö til þess að þóknast
Fischer, sem þó hefði aldrei
gefið sér tima til að lita á þau!
Friðrik Ölafsson upplýsti i út-
varpsspjalli sinu við Arna
Gunnarsson, að eftir að hann
hefði náð fundi Fischers hefði
sér samt fljótlega orðið ljóst, að
Bandarikjamanninum yrði ekki
þokað frá þeirri ákvörðun sinni
að mæta ekki til leiks. Hann var
ekki eðlilegur, sagði Friðrik,
„ekki rólegur”. Og Fischer
„gusaði þvi útúr sér” sem hann
hafði að segja, „fremur en tal-
aði”.
Áöur en Friðrik kvaddi
Fischer, gerði séra Lombardy,
ráðgjafi og vinur stórmeistar-
ans, „örþrifatilraun” til þess að
fá hann til að fara inn i Laugar-
dalshöll og hefja taflið.
En árangurslaust, eins og öll-
um er nú kunnugt.
Arni spurði Friðrik að lokum,
Dr Euwe, forseti Alþjóða-
skáksantbandsins lýsti þvi yfir
við fréttamenn I Hollandi i gær,
að Skáksamband tslands hefði
ekki haft samband við sig um
hvort hann teldi að lengra yröi
nú gengið til móts við
,duttlunga” Roberts Fischers.
Friðrik svaraði, að margir
mundu nú segja, að „þegar væri
nóg komið”.
atburði síðustu daga, en að
sjálfsögðu væri hann reiðubúinn
til að leggja orði i belg, yrði þess
óskað.
EUWE DYDST TIL AD
LEGGIA ORÐ í DELG