Alþýðublaðið - 22.07.1972, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 22.07.1972, Blaðsíða 3
Þau moka ofan af fortíðinni Aðalmokararnir i Aðal- strætinu, þeir Helgi Pétursson og Agúst Atlason úr Riotrióinu, gáfu sér varla tima til að leggjast fram á graftólin, meðan við smelltum af þeim mydn. Og svo var asinn mikill, að við náðum ekki nöfnunum á ungmeyjunum, sem myndina prýða. Vonandi tekst þeim við hljóðfall haka og skóflu að finna hinn sanna tón fortiðarinnar við Aðalstræti. MANNALEIFAR SLÆÐAST UPP Það er á fleiri stöðum grúskað i jörð við Aðalstræti en i „bæjar- stæði Ingólfs”. Nýlega byrjuðu framkvæmdir við endurbyggingu garðsins á horni Aðalstrætis og Kirkjustræt- is, og þar hefur ýmislegt merki- legt komið i ljós siðustu dagana, enda var þarna fyrrum kirkju- garður Reykvikinga. í gær fundu verkamenn, sem þarna vinna, neðrigóm úr manni. Var gómurinn farinn að láta á sjá, en þær tennur sem voru eftir i gómnum voru heillegar. Gómur- inn lá mjög grunnt i jörðu, aðeins um fet frá yfirborðinu. Fyrir nokkrum dögum fannst lærleggur á þessum sömu slóð- um, og er búist við að fleira eigi eftir að finnast við gröftinn þarna. EINAR UNDIR RITAR I DAG En hörð átök inn- an ríkis- stjórnar Einar Agústsson, utanrikisráð- herra, undirskrifar viðskipta- samning við Efnahagsbandalagið fyrir íslands hönd i Brussel i dag. Samkvæmt upplýsingum, sem Alþýðublaðið hefur aflað sér, var feiknamikill ágreiningur innan rikisstjórnarinnar, hvort undir- rita ætti samninginn, sem fjallar m.a. um tollfriðindi ýmissa út- flutningsafurða tslendinga. Eins og áður hefur komið fram i fréttum er i samningnum fyrir- DREPNIR OG SÍÐAN STUNG- IÐ INN? Fimm ræningjar i Nigeriu voru fyrir skemmstu dæmdir fyrir vopnað rán. Dómurinn hljóðaði upp á dauöa, lifstiðarfangelsi, 21 ár i tukthúsi og húðstrýkingar. Þegar dómurinn var lesinn upp spurði einn hinna dæmdu hvort þeir yrðu fyrst leiddir fyrir af- tökusveitina, þá hýddir og likin loks sett i fangelsi. Nú er helzt haldið að danskur milljónamæringur hafi staðið að baki eiturlyfjasmyglsins mikla, sem upp komst i Kaupmannahöfn á miðvikudaginn. Er talið að þessi danski milljónari, sem nú er ákaft leitað, hafi borgað fyrir lyfin 7—8 milljónir danskra króna, eða tæplega 100 milljónir islenzkra króna, i von um að þessi upphæð rúmlega tvöfaldaðist á skömmum tima. Eins og fram kom i fréttum, fanndanska lögreglan við húsleitá miðvikudaginn 228 kiló af hreinu liassi og 127 kiló af efni sem mor- fin er unnið úr. Verðmæti fikni- lyfjanna var metið á vel yfir 200 milljónir islenzkra króna. Danska lögreglan hefur afar litið viljað segjaum málið, enda vinnur hún dag og nótt að lausn þess, og er jafnvel búist við fleiri handtökum fljótlega. Það er einkum einn maður sem lögreglan vill fyrir alla muni hitta. Maður þessi er álitinn danskur milljónamæringur, sem lagt hafi fram 7—8 milljónir danskra króna fyrir lyfin i von um að ávaxta þá peninga á skjótan hátt. Til þess að smygla þessu efni inn i landið fékk hann alþjóðlegan glæpahring, og Tyrkirnir fimm sem handteknir voru i sambandi við smyglið eru einmitt taldir félagar i þessum glæpahring. Það sem leiðir einkum grun að Framhald á bls. 4 vari af hálfu Efnahagsbandalags- ins þess efnis, að tollfriðindi islenzkra sjávarafurða i Efnahagsbandalagslöndunum komiekki til framkvæmda, nema viðunandi samkomulag náist i landhelgismálinu að áliti banda- lagsins. Rikisstjórnin hafði margsinnis lyst þvi yfir, að landhelgismálinu og viðskiptamálum yrði ekki blandað saman, en niðurstaðan hefur orðið sú eftir mikinn ágreining innan rikisstjórnarinn- ar, að samningurinn verði undir- ritaður, þrátt fyrir áðurgreindan fyrirvara. Virðist rikisstjórnin þannig hafa gengizt inn á það sjónarmið viðsemjenda sinna i 3russel, að tengsl séu milli landhelgis- málsins og samningsins við EBE. IRLAND VAR DANSKUR AUDKYFINGUR A BAK VID EITURSMYGLIÐ? 13 drepnir og 120 limlestir Að minnsta kosti þrettán manns voru drepnir, þar af tvcir brezkir hermenn, i sprengingum i Beifast á Norður-lrlandi i gær. Að minnsta kosti 120 manns slösuðust i sprengjuárásum i borginni i gær, sem eru hinar blóðugustu siðan i desembcr i fyrra, en þá voru 15 drepnir. Fyrsta sprcngingin varð um tvö leytið i gær i miðborginni, þar sem allar götur voru fullar af fólki, cinkum konur og börn i innkaupum fyrir helgina. Kin sprengjanna sprakk á biðstöð strætisvagna, þar sem fjöldi fólks var fyrir. A cinni klukkustund sprungu 17 sprengjur i cinni af aðalgötum Belfast og greip gifurleg hræðsla uin sig meðal fólks þar. Fólkið flýði frá cinum sprengjustaðnum til annars. Sprengjunum, sem sprungu i Belfast i gær, hafði verið komið fyrir við biðstöðvar strætisvagna, járnbrauta- stöðvar, opinberar byggingar, brýr og útstillingarglugga. Talsmaður norður-irskra yfirvalda sagði i gærkvöldi, að sprcngjunum hefði verið komið fyrir mcð skipulegum hætti með það fyrir augum, að þær dræpu og limlestu sem flesta. Það er ekki alveg nýtt, að menn bregði sér upp á Vatna- jökul. En það er alveg nýtt, að menn fari þangað með áætlunarbil. Og auðvitað er það nýtt fyrirtæki, sem stendur að þessu nýmæli: Kattarferðir c/o Brjótur h.f. Aðalstræti 54, Akur- eyri. Af hverju „Kattarferðir”? Jú, vegna þess, að farartækið heitir Snjóköttur og er feiknavoldug beltabifreið, sem kemst yfir hvað sem er. Bilstjóri á Snjó- kettinum er Baldur Sigurðsson en fararstjóri Ingólfur Armannsson, kennari, sem lengi starfaði hjá Bandalagi islenzkra skáta i Reykjavik, snjall málamaður og þaulvanur ferðagarpur. Þeir félagar hafa bækistöð upp undir jökulröndinni, á Dyngjuhálsi, austan Gæsa- Sigurgeir B. Þórðarson, Akureyri, tók báðar myndirnar. Sú hér efra er úr Kverkfjöllum en þessi til vinstri við Grimsfjall. vatna, beint suður af Trölla- dyngju. Þaðan er svo farið i skipulegar feröir daglega inn á jökulinn, ýmist inn á Bárðar- bungu eða bæði Bárðarbungu og um Grimsvötn. Ferð um bæði svæðin tekur 12—15 klukku- Framhald á bls. 4 MEÐ „STRÆTÓ" UPP Á VATNAJÖKUL! Laugardagur. 22. júli 1972 3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.