Alþýðublaðið - 06.08.1972, Page 1
UÓTUR LÍMMIÐI Á FALLEGRILIST
Það var snilldarlausn á erf-
iðum vanda að endurteikna nýja
húsið á horni Bankastrætis og
Skólavörðustigs þannig að horn-
ið var sneitt af húsinu.
Þegar slegið var utan af hús-
inu nú i vikunni sáum við að
þetta hafði tekizt vel, húsið er
fallegt, og raunar miklu fall-
egra en það hefði nokkru sinni
orðið með hornið skagandi fram
i götuna.
Auk þess opnast Skólavörðu-
stigur að neðan og þarna mynd-
ast aðlaðandi svæði.
En skyldi arkitekt hússins
kvitta fyrir ljósaskiltið sem sett
hefur verið upp fyrir ofan eina
verzlunina. Stórt og klunnalega
hannað i hvitum og rauðum lit
er það nánast eins og stór og
ljótur limmiði á fallegu lista-
verki, truflandi og óþarft.
Það er þvi miður allt of al-
gengt að kaupmenn telja sér
bráðnauðsynlegt að glenna upp
auglýsingaskilti sin eða nöfn
verzlana, þegar fyrirferða-
minna og stilhreinna skilti getur
komið þvi til skila sem þarf á
þann hátt, sem gleður augað.
Þarna er án efa um hugsunar-
leysi að ræða. Skiltið hefur verið
pantað án samráðs við arkitekt-
inn og án þess að nokkur tengsl
þess við húsið væru höfð i huga.
Ég vona að Guð og Sveinn Zo-
ega forði okkur frá þessu skilti
og öðrum svipuðum.
Bjarni Sigtryggsson: UM HELGINA
SUNNUDAGUR 6.ÁGOST 1972—53.ÁRG. 175.TBL.