Alþýðublaðið - 12.08.1972, Side 2
SKEMMTANIR — SKEMMTANIR
HÓTEL LOFTLEIÐIR -
VÍKINGASALURINN
er opinn fimmtudaga, föstudaga,
laugardaga og sunnudaga.
HÓTEL LOFTLEIÐIR
Cafeteria, veitingasalur meö sjálfsafgreiöslu, opin alla
daga'
HÓTEL LOFTLEIÐIR
Blómasalur, opinn alla daga vikunnar.
HÓTEL BORG
viö Austurvöll. Resturation, bar og dans I Gyllta saln-
um.
Sfmi 11440
HÓTEL SAGA
Grilliö opiö alla daga. Mímisbar og Astrabar, opiö alla
daga nema miövikudaga. Simi 20890.
INGÓLFS CAFÉ
viö Hverfisgötu. — Gömlu og nýju dansarnir. Sími 12826
ÞÓRSCAFÉ
Opiö á hverju kvöldi. Sfmi 23333.
HÁBÆR
i
Kinversk resturation. Skólavöröustfg 45. Leifsbar. Opiö
frá kl. 11. f.h. til kl. 2.30 og 6e.h. Sfmi 21360.
Opiö alla daga.
SKEMMTANIR — SKEMMTANIR
Ingólfs-Café
BINGO ó sunnudag kl. 3
Aðalvinningur eftir vali.
11 umferðir spilaðar.
Ingólfs-Café
Gömludansarnir í kvöld kl. 9
Hljómsveit Þorvaldar Björnssonar.
Söngvari: Grétar Guðmundsson.
Aðgöngumiðasalan frá kl. 5 — Simi 12826
Kauptilboð óskast i jarðirnar Strönd og
Litlu-Strönd i Rangárvallahreppi, ásamt
öllum húsum og mannvirkjum, og i skóla-
hús ásamt eins hektara leigulóð. Nánari
upplýsingar gefur oddviti Rangárvalla-
hrepps, simi 995834, Hellu.
Tilboðsgögn eru afhent á skrifstofu Inn-
kaupastofnunar rikisins, Borgartúni 7,
Reykjavik, og þar verða tilboð sem berast
opnuð kl. 11. f.h., föstudaginn 25. ágúst
1972.
Oddviti Rangárvallahrepps.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BOBGARTÚNI 7 SÍKI 26844
HÆKKUMN LOKS KOM-
IN AÐ FIILLU FHAM Á
VENDI GOMLU UlLANNA
Þegar skattskráin kemur út
fara skattborgarar aö kveinka
sér og.spyrja, hvernig þeir eigi
eiginlega aö lifa. Annað er þó uppi
á teningnum þegar um áfengis-
kaup er að ræða, þau vaxa sifellt
þrátt fyrir hækkandi verð á á-
fengi, og sama er að segja um
bilakaup.
Alþýðublaðið frétti það á bila-
sölu hér i borg, aö notaðir bilar,
allt niður i 7—8 ára gamlir hafi nú
hækkað nokkurnveginn i sam-
ræmi við þær hækkanir, sem urðu
á nýjum bilum i vor. Samt sem
áður er þróunin sú, að sifellt
verða fleiri og fleiri nýir bilar á
götunum, og elztu bilarnir eru
teknir úr umferð fyrr en áður.
Að visu voru fluttir inn heldur
færri bilar fyrri helming þessa
árs en á sama tima i fyrra, en þar
munar þó aðeins 154 bilum.
Nú, þegar verzlunarmanna-
helgin er liðin, geta bilasalar far-
ið að taka lifið heldur rólegar, og
einn bilasalinn hefur meira að
segja auglýst lokað vegna sumar-
leyfa.
Annars höfum við fregnir af
þvi, að þróunin i sölu notaðra bila
sé svipuð og atvinnuþróunin. Eft-
ir að atvinnan fór að verða jafnari
og timi „sældarævintýranna” leið
fór bilasalan að verða jafnari.
Þvi varð kippurinn, sem kemur
vanalega i bilasöluna dagana fyr-
ir verzlunarmannahelgina, minni
en hann var áður. Inn i þetta spil-
ar eflaust lika, að sumarið byrj-
aöi vel veðurfarslega, og menn
fóru fyrr að hugsa til bilakaupa.
Það hefur aftur á móti litil
breyting orðið á þvi, að vissar
gerðir bila komast i tizku, sér-
staklega meðal ungra manna, og
stoppa þá varla við á bilasölun-
um. Áður fyrr voru eftirlætisbilar
unglinganna „tryllitækin” svo-
Arkitektafélag tslands hcfur
óskað eftir þvi við ólaf Jóhanncs-
son, forsætisráðherra, og rikis-
stjórn islands, að fá að hreins og
lagfæra Bernhöftstorfuna rikis-
sjóði að kostnaðarlausu.
Alþýðublaðið reyndi I gær að ná
tali af forsætisráöherra i gær til
þcss að kanna hvaða undirtektir
þessi málaieitan arkitekta hefur
fengið hjá rikisvaldinu, en
árangurslaust.
i bréfi arkitektanna til ólafs
nefndu, þe. stórir og kraftmiklir
ameriskir bilar. Þá má nefna
jeppaölduna, þá voru sérstaklega
litlu Willys jepparnir vinsælir.
Núna i sumar eru jeppar reyndar
mjög vinsælir, en þó hefur athygli
manna helzt beinzt að einni teg-
und, Bronco. t sumar hafa þeir
yfirleitt haft litla viðdvöl á bila-
sölunum.
ARKITEKTAR BJOÐA
FRAM KRAFTA SÍNA
Jóhannessonar er tekið fram, að
leyfið myndi fela i sér frestun á að-
gerðum öðrum, svo sem flutningi
húsanna eða niðurrifi, en fæli ekki
að öðru Leyti i sér neina skuld-
bindingu fyrir rikisstjórnina.
Ein af aðalröksemdunum
gcgn varðveizlu torfunnar hefur
hingað til verið sú, að lagfæringar
hennar og uppbygging kostaði of
mikla peninga, cn með þessu ryð-
ur Arkitektafélagið henni úr vegi.
UTSVARSGREIDEHDUR
AKNANESI
Ef þér eigi standið skil á fyrirframgreiðsl-
um útsvara fyrir 15. ágúst, verða lagðir á
dráttarvextir, svo sem skylt er lögum
samkvæmt.
7,5% á ógreidda febrúargreiðslu.
6,0% á ógreidda marzgreiðslu.
4,5% á ógreidda aprilgreiðslu.
3,0% á ógreidda maigreiðslu.
1,5% á ógreidda júnigreiðslu.
Fyrir hvern byrjaðan mánuð, sem gjald-
andi dregur að greiða útsvar sitt, hækka
dráttarvextir um 1,5% til greiðsludags
(18% á ári)
Vinsamlegast gerið skil nú þegar.
Bæjarritari.
Jazzballettskóli BARU
DÖMUR ATH: DÖMUR ATH.
Nýr 3ja vikna kúr i likamsrækt og megr-
un, nudd sauna fyrir dömur á öllum aldri,
hefst mánudaginn 14. ágúst.
Upplýsingar og innritun i síma 83730
Jazzballettskóli Báru.
SÍÐAST VIÐ
ANANAUST
Öll leit að franska manninum,
sem lýst var eftir i gær hefur ekki
borið árangur ennþá.
Síðast sást til hans skammt frá
Ánanaustum aðfaranótt miðviku-
dagsins siöasta og eftir þeirri vis
bendingu hafa fjörur verið farnar
auk þess, sem farið var á bátum
út í eyjarnar úti á sundum.
Björgunarsveitarmenn úr
Reykjavik, Seltjarnarnesi og
hjálparsveit skáta hafa tekið þátt
i leitinni.
Þá hefur þyrlan hafið yfir stórt
svæði, en án árangurs.
Maðurinn hcitir Henri
Oominique de Saint-Marie en
manna að meðal kallaður Gaston.
Hann er búsettur i Garðastræti 9 i
Reykjavik.
Gaston er 25 ára gamall, 185
sm. á hæð, Ijóshærður, grannvax-
inn og brúneygður. Hann var
klæddur dökkblárri hettuúlpu og
brúnum molskinnsbuxum, drapp-
litri peysu og brúnum skóm.
GYLFI Á FUNDI
! FYRIR VESTAN
Formaður Alþýðuflokksins,
i Gylfi Þ. Gislason. efndi s.l.
fimmtudag til fundar á ísafirði
með ýmsum trúnaðarmönnum
Alþýðuflokksins i Vestfjarða-
kjördæmi. Fundinn sótti full-
trúaráðsfólk af isafirði og for-
ystumenn Alþýðuflokksins frá
fjörðunum i kring.
A fundinum var einkum rætt
um stjórnmálaástandið al-
mennt, landhelgismálið og sam-
einingarmálið.
Fundurinn tókst mjög vel og
eru Alþýðuflokksmenn á Vest-
fjörðum ákveðnir i þvi að efla
vcg flokksins þar og styrk
flokksfélaganna.
2'
Laugardagur 12. ágúst 1972