Alþýðublaðið - 15.08.1972, Qupperneq 12
alþýðu
mum
Alþýðúbankftnn hf
ykkar hagur/okkar metnaöur
KÓPAVOGS APÓe
Opið öll kvöld til kl. 7
Laugardaga til kl. 2
Sunnudaga milli kl. 1 og 3
SEMXBtl ASrÖÐiN Hf
Larsen ekki launafrekur
Nú er sá frægi danskur, Bent Larsen, farinn af iandi brott.
Héöan hélt hann til Bandarikjanna á föstudaginn, I þeim til-
gangi aö tefla þar á einhverju stórmóti.
En meöan hann dvaidi hér á landi, skýröi hann tvær skákir úr
einviginu mikla fyrir forvitnum skákáhugamönnum og vakti
veröskuidaöa athygli fyrir útskýringar sínar og athuga-
semdir.
Þegar viö hér á Alþbi. forvitnuöumst um þaö hjá Skáksam-
bandinu hvað stórmeistarinn hefði fengið fyrir útskýringar
sinar, var ekki vitað um þaö meö vissu, en okkur tjáö aö hann
hefði verið mjög sanngjarn og samvinnuþýöur þegar rætt var
um launin.
,FISCHER HEFUR
EKKI VIT Á
LÆKNISFRÆÐI
FREKAR EN
ÉG Á SKÁK”
Hefur Fischer nú enn einu
sinni ákveðiö að setja skákein-
vigið i klemmu: — nú vegna
þess, að hann hefur ekki fengið
afrit af læknisvottorði þvi sem
heimilaði Spasski að fresta 14.
skákinni?
I það minnsta kvartaði hann
yfirþvi i bréfi til Lothar Schmid
yfirdómara i gær, að hafa ekki
fengið þetta afrit, og hann segir
einnig, að sennilega sé þaö ógilt.
Það var Úlfar Þórðarson
læknir, sem gaf Spasski læknis-
vottorðið, og hann sagöi að það
væri dómarans að segja til um
það, hvort Fischer fái afrit af
þvi. Telji dómarinn, að ein-
hverjar reglur heimili það, hafi
hann ekkert við það að athuga.
Siðan bætti hann við, að viti
ekki til þess, að Fischer hafi vit
á læknisfræði, frekar en hann
sjálfur á skák, og þvi sjái hann
ekki að skákmanninum komi
heilsufar Spasskis nokkuö við,
það væri mál læknisins að úr-
skurða hvort hann gæfi út
læknisvottorð.
Framhald á bls. 4
Þetta eru nýju fötin Fischers, eöa réttara sagt: áskorandinn i
nýju fötunum frá Colin Porter. Trúlega hefur hefur hann
aldrei verið I jafn nýtizkulegum fötum, enda fara þau honum
Ijómandi vcl. Hins vegar er hann vanari vföari sniöi, og fyrir
vikið fannst honum þessi þröngt sniðnu föt trufla sig viö
skákina.
HRADSKAKMOTIÐ
Vegna gífurlegrar þátttöku i
hraöskákmóti, sem Skáksam-
band ísiands gekkst fyrir í út-
garði á laugardag urðu tugir
manna frá að hverfa.
Alls mættu til leiks 120 manns,
en i hinu eiginlega hraöskákmóti
komust aöcins 28 manns aö. Auk
þcss var sett upp eins konar
hliöarmót og voru þátttakendur i
þvi 50.
„Þetta er hneyksli, Skipulags-
leysið var algjört og enginn
virtist vita neitt í sinn haus”,
sagði ungur skákmaður i viðtali
við Alþýðublaðið i gær.
t hraðskákmótinu tóku þátt þrir
stórmeistarar, en sigurvegari
varð Haukur Angantýsson. Hann
hlaut 22 vinninga af 27 mögu-
legum.
Friörik Ólafsson lenti i öðru
sæti með 21 vinning, Ingi R. Jó-
hannsson i þriðja sæti með 20 og
hálfan vinning og vestur þýzki
stórmeistarinn Lothar Scmid
varð fjórði með 19 vinninga.
Verölaun i þessu móti voru 27
þúsund krónur, sem Jón Vig-
lundsson, bakarameistari gaf
Skáksambandinu og voru fyrstu
verðlaun helmingur þeirrar upp-
hæöar.
í hliðarmótinu tóku þátt 50
manns og urðu efstir Kristinn
Johnson og Jörundur Hilmarsson.
NÚ ER BUCHWALD BÚINN AB GERA BDBBV
FISCHER AD SAMNINBAMANNI f PARÍS!
Bandariski háöfuglinn Art Buchwald hefur gert heimsmeistara-
einvigib aö umtalsefni, og viö höfum endursagt einn af skopþáttum
hans, en þeir birtast aö jafnaöi i blööum um allan heim. Hér er sá
nýjasti:
Eins og fram kom i þessum
dáikum minum fyrir nokkrum
vikum ráðgerði Nixon forseti að
hringja i Bobby Fischer og
bjóða honum i kvöldverð i
Hvitahúsinu.
Talsmenn i Hvita húsinu hafa
nú rétt tilkynnt að forsetinn ætli
sér að bjóða Fischer hvort sem
hann vinnur einvigið við Spasski
eða tapar þvi.
Það hefur komið i ljós að
þarna er ekki aðeins um að ræða
venjulegt kurteisisboð. Forset-
inn hefur sérstaka ráðagerð á
prjónunum, sem ég get nú skýrt
frá opinberlega.
Forsetinn hefur ákveðið að
biðja Fischer að taka að sér
stjórn Parisarviðræðnanna við
Norður-Vietnami.
Úr þvi Fischer tókst að gera
alla geggjaða á íslandi, þá
heldur forsetinn að honum muni
takast það sama i Paris.
Og þannig hljóðar áætlun for-
setans:
Fyrst mun hann tilkynna að
hann sendi Fischer til Parisar 1.
september.
Allir blaðamennirnir biða á
Andrews herflugvellinum eftir
þvi að Fischer fari um borð i
einkaþotu forsetans. En — eng-
inn Fischer.
Fréttamenn finna hann þá i
hótelherbergi hans. Þar til-
kynnir lögfræðingur hans að
Fischer muni ekki fara til
Parisar að ræða við Norður--
Vietnami nema Frakkar, sem
halda þessa friðarráðstefnu,
borgi honum 100.000 dollara
fyrir þátttökuna.
Skeytasendingar á vixl.
Norður-Vietnamir biða tilbúnir
við fundarborðið með slatta af
ásökunum i garð Bandarikja-
manna, en það er enginn kom-
inn til að taka við þeim. Þeim er
dæmdur sigur i þessari lotu. en
sigurinn naumur, og það er aug-
ljóst að þetta hefur komið þeim
úr jafnvaegi.
Loks tekst að fá Fixcher til að
fara til Parisar, og næsti fundur
er ráðgerður. Noröur-Vietnamir
mæta stundvislega klukkan
10:30, eins og um var rætt, en
Fixcher birtist ekki fyrr en á
hádegi.
Þessi framkoma Fischers
hefur reitt þá til reiði, og þeir
byrja á hörkuskömmum i garö
Bandarikjamanna. Fischer
hlustar ekki á þá, heldur kvarta
undan þvi hvernig borðið er i
laginu og stólarnir. Hann segist
ekki geta byrjað samningavið-
ræður fyrr en búið sé að kippa
þessu i lag.
Hann segir Frökkunum enn-
fremur að hann sætti sig ekki
við að halda þessu áfram nema
lýsingunni i salnum sé breytt.
Vietnamarnir eru nú orðnir
froðufellandi af reiði. Þeim
hefur ekki enn gefizt tækifæri til
að afhenda öll mótmælin og
ásakanirnar i garð Bandarikja-
manna, og þeir ákveða að mæta
næst sjálfir of seint til viðræðn-
anna.
Þegar þeir koma svo of seint
næsta dag er Fischer þar fyrir.
Hann hafði mætt stundvislega
og er að tefla skák við sjálfan
sig. Hann lætur þá heyra að ef
þeir treysti sér ekki til að mæta
á réttum tima, þá geti hann
alveg eins farið heim.
Og Norður-Vietnamar byrja
að tala. Fischer setur þá skák-
Framhald á bls. 4