Alþýðublaðið - 08.09.1972, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 08.09.1972, Blaðsíða 3
SPASSKI MISSTI ALDREI MODINN BER ANDSTÆDINGI SÍNUM VEL SÖGUNA ,,Ég gaf aldrei upp vonina um, að mér tækist að halda titl- inum, ég hélt i hana alveg fram i 21. skákina”, sagði Boris Spasski, fyrrum heimsmeistari i skák, á einskonar kveðjufundi með blaðamönnum á Hótel Sögu i gærmorgun. Spasski var á hraðri ferð, hann var að undirbúa brottför sina frá landinu siðdegis i gær. En samt gaf hann sér tima til að svara spurningum blaðamanna á þann látlausa og alúðlega hátt, sem skapað hefur honum meiri vinsældir hér á landi en titt er um útlendinga. Spurningum blaðamanna svaraði hann hreinskilninslega og blátt áfram. Hann drap á ýmislegt sem ekki hefur komið fram áður. Til okkar islenzku blaða- mannanna beindi Spasski sér- stakiega máli sinu i lokin. Hann bað um þakkir til tslendinga fyrir sig og konu sina, og kvað dvölina hér liafa verið ógleym- anlega. Hann bað um þakkir til allra, sem sent höfðu þeim hjón- um bækur, bréf og gjafir, og kvað verst að geta ekki þakkað öllum þessum íslendingum per- sónulega. 1 byrjun var Spasski spurður álits um einvigið. ,,Að svo komnu máli er ekki hægt að segja mikið um einvigið, það er svo stutt um liðið”, sagði Spasski. ,,En ég get þó sagt það, að Fischer tefldi betur, og hann átti sigurinn skilið”. Talið barst að hinu viðkvæma máli varðandi ásakanir Gellers á Bandarikjamennina fyrir að beita einhvers konar efnafræði- legum eða rafeindafræðilegum áhrifum. ,,Ég get ósköp litið um þetta sagt, en þvi er ekki að neita, að i þrjú eða fjögur skipti leiðmérallsekki vel á sviðinu”. Um einvigið sjálft sagði Spasski, að margar skákanna hefðu verið mjög góðar, og að sinu áliti væri 19. skákin bezta skák einvigisins. Aðspurður um sin verstu mistök i einviginu svaraði Spasski þvi til, að hann gæti eiginlega ekki gert upp á milli mistakanna, þar væri úr svo miklu að velja! Eitraða peðið svokallaða, sem Fischer drap i fyrstu skákinni og varð heldur meint af, hefur mikið verið til umræðu hjá skákunnendum. Spasski sagði að hann hefði óneitanlega orðið hissa þegar Fischer þáði þetta peð, þvi að gildran hefði virtst augljós og þvi sjaldgæft, að jafn reyndir skákmenn og Fischer vari sig ekki á sliku. Og þá minntist Spasski á atriði sem eflaust gleður kven- þjóðina mikið. Hann sagði að sér hefi reynzt betur að tefla eft- ir aö Larissa kona hans kom hingað til lands. Iiann hefði haft yfirtökin i flestum siðustu skák- unum, enda hefði talmennska Fischer dofnað. ,,Ég gaf aldrei upp vonina um, að mér tækist að halda titl- inum, ég hélt i hana alveg fram i 21, skákina”, sagði Spasski. Þetta er sannarlega mikilvægt atriði, þvi margir voru á þeirri skoðun, að Spasski hafi raun- verulega verið búinn að gefast upp, og hann hefði einungis hugsað um að tapa með sem minnstum mun. „Fischer er listamaður”, var svarið þegar Spasski var spurð- ur um mótstöðumann sinn: hvernig honum likaði við mann- inn, sem hrifsaöi af honum titil- inn. Og Spasski bar Fischer á all- an hátt vel söguna. Hann var ekki aðeins ,,a man of art”, heldur var hann ljúfur og lipur i viðkynningu. En þvi væri ekki að neita, að Fischer væri ó- venjulegur maður. Spasski hvað hátterni Fischers fyrir einvigið og að nokkru ieyti á meðan á þvi stóð, hafa truflað sig, en á sjálfu svið- inu, þar sem einvígið fór fram, hefði Fischer ekki truflað sig á neinn hátt. ,,Sigur Fischers hefur haft og mun hafa mikið auglýsingagildi fyrir skákina, og ekki sist i lönd- um þar sem skák hefur lftið sem ekkert verið iðkuð”, sagði Spasski, og hann bætti þvi við, að i Sovétrikjunum ætti Fischer marga aðdáendur. Spasski sagði að héðan héldi hann til Kaupmannahafnar, en siðan lægi leiðin til Moskvu. Það eina, sem hann hugsaði núna um, væri hvild, og hann myndi ekki tefla á 1. borði rússnesku skáksveitarinnar á Ölympiu- mótinu, sem innan skamms hefst i Júgóslaviu. Spasski kvað það uppspuna með öllu, að hann hefði haft i huga að hverfa ekki aftur til Sovétrikjanna, Hann bjóst ekki við þvi, að lif sitt breyttist mik- ið, og lúmskum spurningum eins og þeirri, hvernig hann ætl- aði eiginlega að koma nýja dýra bilnum sinum til Sovétrikjanna, svaraði hann einfaldlega, ,,ætli ég sendi hann bara ekki með skipi”! Spasski vonaðist til, að hann gæti aftur mætt Fischer við Framhald á bls. 4 ÞÁTTASKIL YIÐ KOMU LARISSU í sýslum landsins Fegurð Undirbúningskeppni fyrir feg- urðarsamkeppnina 1973 er nýhaf- in og standa tveir ungir menn fyr- ir henni, sem ætla að freista þess að koma keppninni á fastan og ör- uggan grundvöll. Ekki mun af veita, þvi af og til hefur gengið á ýmsu, og t.d. voru kosnar tvær ungfrú Reykjavik ekki alls fyrir löngu, og vissi hvorug, hvor átti titilinn með réttu. Þeir Hjörtur Blöndal og Einar Einarsson ætla nú að reyna við verkefnið og er þegar búið að kjósa fulltrúa þriggja sýslna. Það var gert á dansleikjum vestur á Fjörðum um siðustu helgi. Ungfrú Isafjarðarsýsla, var kjörin á Hnifsdal og er 17 ára og heitir Hrafnhildur Jóhannsdóttir. Ungfrú Barðastrandasýsla var kjörin á Bildudal og heitir hún Hugrún Arnardóttir. Hún er frá Petreksfirði og er 17 ára. Og ungfrú Strandasýsla var kjörin að Sævangi og heitir hún Guðrún Ingvarsdóttir frá Tindi i Kirkjubólshreppi, 17 ára en hún hefur sennilega þurft að ljúka búverkunum áður en hún fór á ballið, þvi hún kom mjög seint. Á laugardag verður svo ungfrú Skagafjarðarsýsla kjörin i Mið- garði og ungfrú Akranes að hótel Ös á sunnudagskvöldið. Alls verða rösklega 20 stúlkur kosnar til að taka þátt i aðal- keppninni, sem verður næsta vor. Hljómsveitin Opus leikur á öll- um dansleikjunum, og hefur að- sókn verið góð, að sögn þeirra félaga.- 100,000 FRÁ ASÍ Alþýðusamband tslands hefur ákveðið aö leggja kr. eitthundr- aðþúsund i söfnunina til Land- helgissjóðs. Jafnframt hefur Al- þýðusambandið beint þvi til allra aðildarsamtaka sinna að þau leggi fram fé til Landhelgis- sjóðsins og skipuleggi fjársöfn- un hjá félagsmönnum og starfs- hópum. Alþýöusambandið hefur opn- að Giróreikning nr. 19348 og hafa félögin verið beðin að leggja framlögin inn á hann i bönkum. sparisjóðum eða póst- húsum. ÞEIR STÆRSID Siðastliðinn laugardag lauk tiundu og siðustu viku Camel- laxveiðikeppninnar með þvi að Stefán Guðjónsson, Flókagötu 3, Reykjavik, dró rúmlega 25 punda hænd úr Laxá i Dölum. Stefán veiddi laxinn á flugu. Blue Charm no. 1 i Króknum. Ekki gekk það átakalaust, þvi Stefán, sem var með 8 1/2 feta flugustöng. þurfti að vaða ána i mitti, og fylgja laxinum niður fyrir flúðir og fossa. En að lok- um gafst laxinn upp, og var landað eftir mikla viðureign sem stóð i eina klukkustund og tuttugu minútur. Vikuna áður hafði einnig veiðst yfir 25 punda lax, og voru þetta þvi tveir stærstu Camel- laxar sumarsins, sem veiddust tævr siðustu vikur keppninnar. LUKKUHIÓUÐ Drætti er lokið i Vöruhapp- drætti SIBS. Númer 44005 hreppir 300,000 krónur og 100,000 krónur komu upp á 20795. Eflirfarandi númer hlutu 10,000 krónur hvert: 79 1155 1078 3898 5790 0100 7325 9085 9398 10091 11579 13288 14057 15055 15700 20172 21572 25057 25168 25717 25774 29027 30747 33960 34795 35044 30504 36609 37258 38087 41500 42385 42446 43123 45411 45633 48840 52415 50171 0 2 8 3 2 LANDGRUNNK) Á FRÍMERKINU Þetta merki er væntanlegt á markaðinn undir mánaðamótin. Það má segja að það sé einskon- ar landhelgismerki. Það sýnir ísland og landgrunnið. BREZKIR STYRKIR Menntamálaráðuneytið aug- lýsti i vor eftir umsóknum um styrk, sem British Council bauð fram handa tslendingi til há- skólanámseða rannsóknastarfa i Bretlandi námsárið 1972—73. Bárust rúmlega 20 umsóknir. Brezka sendiráðið hefur nú tjáð ráðuneytinu. að unnt hafi reynzt að veita tvo styrki. Hlutu þá Skúli Johnsen. læknir, til að leggja stund á heilsuverndar- fræði viö Edinborgarháskóla og Karl Lúðviksson, B.Sc.. til framhaldsnáms i skipaverk- fræði við háskólann i Glasgow. Brotist var inn i sýningarkassa Öfeigs Björnssonar gullsmiðs aðfaranótt sunnudags, en kassinn er utan á verzluninni Kúnigund að Skólavörðustig 7. Allt var hirt úr kassanum, en það var að verðmæti 14 þúsund krónur. Nálægir sýningarkassar voru látnir i friði. Lögreglan lýsir eftir vitnum Föstudagur 8. september 1972 3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.