Alþýðublaðið - 08.09.1972, Síða 5
alþýðu
B
aöið
Alþýöublaðsútgáfan h.f. Ritstjóri Sig-
hvatur Björgvinsson (áb). Fréttastjóri
Bjarni Sigtryggsson. Aðsetur ritstjórn-
ar Hverfisgötu 8-10. — Sími 86666.
Blaðaprent h.f.
SAMID VID BELGA
í gær kl. 2 lauk formlega viðræðum islenzkra
og belgiskra stjórnvalda um veiðar belgiskra
skipa við ísland eftir útfærslu fiskveiðilögsög-
unnar i 50 miiur. Niðurstöðurnar urðu þær, að
samningur var gerður milli þjóðanna.
Belgiumenn telja sig vel geta sætt sig við það
samkomulag, sem náðst hefur. Ella hefðu þeir
ekki undirritað það. Hað okkur íslendinga varð-
ar, þá telur Alþýðublaðið, að við megum vel við
samningagerðina una. í samningnum höfum við
fengið viðurkennd svo mörg grundvallaratriði
varðandi landhelgismálið, að rétt var af okkur
að undirrita hann. Þetta eru einnig sjónarmið
vara formanns Alþýðuflokksins, Benedikts
Gröndals, i grein, sem hann ritar um samn-
ingana i Alþýðublaðið i dag.
Þýðingarmestu atriði samningsins út frá
sjónarmiðum okkar íslendinga eru þessi:
L Þótt það sé hvergi tekið fram berum orðum,
þá felur saraningurinn i sér viðurkenningu
Belga á útfærslu islenzku fiskveiðilögsögunnar i
50 milur. Hliðstæða samningagjörð Bandarikj-
amanna og Brasiliumanna vegna útfærslu land-
helgi hinna siðarnefndu orðaði bandariska stór-
blaðið New York Times eitthvað á þá leið, að i
fyrstu grein samningsins segðust Bandarikja-
menn ekki viðurkenna stækkaða landhelgi
Brasiliu en allan greinarnar þar á eftir fjölluðu
einmitt um slika viðurkenningu. Þetta
skemmtilega orðalag mætti einmitt nota um
samninga Belgiumanna og íslendinga, eins og
Benedikt Gröndal bendir á i grein sinni.
2. Þá fallast Belgiumenn á, að lúta alveg is-
lenzkri lögsögu innan 50 milnanna og fara i einu
og öllu eftir islenzkum veiðireglum á þeim tak-
mörkuðu svæðum út af suður og suð-vestur-
strönd landsins, þar sem belgiskum skipum er
heimilt að veiða ákveðinn tima ársins.
3. Þá samþykkja Belgiumenn, að veiðileyfi
þessi séu ekki aðeins bundin við ákveðna stærð
og gerð skipa, — heldur við nafngreind skip,
sem flest eru 200—300 tonn að stærð og ekki ný-
leg. Þessi nafngreindu skip fá að veiða á um-
ræddum svæðum ákveðinn árstima samkvæmt
leyfisbréfum islenzkra stjórnvalda og heltist
skipin úr lestinni, t.d. vegna aldurs, þá koma
engin nú i þeirra stað. Þetta atriði er mjög
mikilvægt fyrir okkur íslendinga. Þarna erum
við raunverulega aðeins að heimila Belgiu
mönnum að ljúka nýtingu á nokkrum smáum
skipum af eldri gerð, sem hafa eingöngu stund-
að veiðar hér við land, og Belgiumenn hafa lýst
þvi yfir, að þeir sætti sig fyllilega við þá lausn.
4. Þá samþykkja Belgiumenn að hætta með
öllu humarveiðum innan 50 milna lögsögunnar.
Þetta er nánast yfirlýsing um, að þeir telji
a.m.k. þessa fisktegund tilheyra auðæfum land-
grunnsins.
5. í fimmta, en ekki sizta lagi, táknar samn-
ingurinn við Belgiumenn svo, að ein þjóð Efna-
hagsbandalagsins hafi náð lausn á landhelgis-
málinu, sem hún sættir sig við, en einmitt þess
eðlis var skilyrði EBE fyrir gildistöku við-
skiptasamningsins við okkur. Þetta atriði er
mjög mikilvægt.
Þau atriði, sem hér eru nefnd, gera það að
verkum, að við getum vel við samning þann un-
að, sem gerður var við Belgiumenn hér í
Reykjavik i gær.
UNGIR RABHERRAR I
FINNSKU STJÚRNINNI
Eins og Alþýðublaðið skýrði frá
fyrir nokkrum dögum bentu þá
allar likur til þess, að stjórnar-
kreppan i Finnlandi væri að
leysast og ný stjórnarmyndun á
leiðinni undir forsæti jafnaðar-
mannsins Kalevi Sorsa, sem
gegnt hafði embætti utanrikisráð-
herra finnsku stjórnarinnar .
bessir spádómar rættust. Á
mánudaginn var tilkynnt um
myndun nýrrar ríkisstjórnar i
Finnlandi og forsætisráðherra
þeirrar rikis^tjórnar er ritari
jafnaðarmannaflokksins i Finn-
landi — Kalevi Sorsa.
Rikisstjórn þessi er samsteypu-
stjórn fjögurra flokka, —
Jafnaðarmannaflokksins, Mið-
flokksins, Sænska þjóðarflokksins
og Frjálslynda flokksins, en hinir
tveir siðarnefndu eru smá-
flokkar. Saman eiga þessir
flokkar 107 rikisþingmenn, en i
stjórnarandstöðunni sitja 93 þing-
menn.
Skipting ráðuneyta i finnsku
stjórninni er á þann veg, að
jafnaðarmenn gegna sjö ráð-
herraembættum. Úr röðum Mið-
flokksins eru fimm ráðherrar —
þar á meðal utanrikisráðherrann
og fjármálaráðherrann. Sænski
þjóðarflokkurinn á einn ráðherra
i rikisstjórninni, — varnarmála-
ráðherrann, og Frjálslyndi
flokkurinn á sömuleiðis einn ráð-
herra, — samgöngumálaráð-
herrann. Fimmtándi ráðherrann
er svo utanflokka, — innanrikis-
ráðherrann Heikki Touminen.
Meðalaldur ráðherranna i hinni
nýju rikisstjórn i Finnlandi er 45
ár. Yngsti ráðherrann er mennta-
málaráðherrann, Ulf Sundqvist.
Hann er aðeins 27 ára gamall.
Elztur er hins vegar fjármálaráð-
herrann, Johannes Viriolainen,
en hann er 58 ára.
Ellefu af fimmtán ráðherrum
hafa áður átt sæti i rikisstjórn og
12 ráðherranna eru einnig rikis-
þingmenn og þrir þá utan þings.
Tvær konur eru meðal ráðherr-
anna.
Þá eiga einnig tveir fyrrver-
andi forsætisráðherrar sæti i
hinni nýju rikisstjórn. Þeir eru
Ahti Karjalainen, sem nú fer með
embætti utanrikisráðherra, og
Jóhannes Virolainen, fjármála-
ráðherrann núverandi.
VELFERDIN BfR
TL VESALINGA
- SEGIR NIXON
t útvarpsræðu hefur Nixon, for vitahring, þar sem allir eru
scti Bandarikjanna, sett fram háðir rikinu og cyðileggur með
hörðustu árás sina til þessa á öllu skapgerð hins vinnandi
mótframbjóðandann, George fólks.
McGovcrn, frambjóðanda
Dcmókrataflokksins. Sagði — Stefna vinnunnar skapar
Nixon, að ef McGovern vinnur I styrka þjóð, sagði Nixon enn-
kosningarnar i nóvember þá fremur, en velferðarrikisstefn-
muui hann gcrsamlega leggja i an skapar þjóð vesalemnna og
rúst hið bandariska þjóðfélag. veiklinga!
Með myndun rikisstjórnarinnar
finnsku er lokið löngu óvissutima-
bili i sænskum stjórnmálum.
Litlu munaði að sú óvissa skaðaði
mjög álit Finna út á við, þvi menn
voru jafnvel farnir að ræða um,
að hætta við undirbúningsfund
öryggisráðstefnu Evrópurikja,
sem haldá átti i Finnlandi og
jafnvel, að nauðsynlegt væri að
flytja sjálfa ráðstefnuna til
annars lands vegna stjórnarfars-
erfiðleika Finna. Þetta mál hefur
sjálfsagt rekið mjög á eftir
stjórnarmynduninni.
En hin nýja rikisstjórn kemur
ekki til með að eiga sjö dagana
sæla. Miklir erfiðleikar blasa við
henni i innanrikismálum jafnt
sem utanrikismálum. Fjármál
finnska rikisins standa t.d. mjög
illa og er talið nær ókleift að koma
saman fjárlögum fyrir næsta ár,
nema með algerri umbyltingu og
grundvallar stefnubreytingum i
fjárlagagerðinni.
Af óleystum utanrikismálum
má m.a. nefna, að enn á eftir að
ganga frá hugsanlegum tengslum
Finna við stækkað Efnahags-
bandalag. Verður það erfið raun,
— bæði vegna þess, að tölu-
verðrar andstöðu gætir við slik
tengsl i Finnlandi sjálfu og
magnast sú andstaða óðum, auk
þess sem Sovétrikin munu vilja fá
að fylgjast mjög náið með málinu
og eiga það jafnvel til, að setja
Finnum mjög ströng skilyrði i
sambandi við hugsanleg tengsi
hinna siðarnefndu við EBE.
Kæðu þessa flutti Nixon að
kvöldi s.l. sunnudags. Sagði
liann m.a., að McGovern styðji
stjórninálastefnu, sem muni
vcikja bandarisku þjóðina og
gera Bandariki Norður—
Amcriku að annars flokks riki.
Lagði Nixon sérstaka áherzlu á,
að ef McGovern sigraði i for-
setakosningunum, þá myndi
hann eyöilcggja allar þær fram-
farir, sem Nixon sagði, að stjórn
sin hafi náö á s.l. þrem árum.
Fjórði september er verka-
lýösdagur i Bandarikjunum og
er það venja, að forseti Banda-
rikjanna flytji opinberiega ræðu
i tilefni dagsins. Hefur það verið
venjan, að ræður þessar hafa
verið ópólitiskar, en þá venju
braut Nixon að þessu sinni, en
útvarpsræða hans að kvöldi
sunnudagsins 3. september var
einmitt flutt i tilefni af verka-
lýðsdeginum, sem hátiðlegur
var haldinn daginn eftir. Var
ræða forsetans ódulbúin árás á
Demókrataflokkinn og frjáls-
lyndar hugmyndir McGoverns
um uppbyggingu velferöarrikis
i Bandarikjunum.
— Min stjórnmálastefna
byggir á vinnunni, sagði Nixon.
Hún leiðir til ábyrgðartilfinn-
ingar, sjálf strausts og
dugnaðar. Stefna McGoverns,
öldungadeildarþingmanns,
byggir á hugmyndinni um ,,vel-
fcrðarrikið”. Sú stefna endar I
Þá veit maöur scm sagt hvaða
álit Bandarikjaforseti hefur á
þcirri stjórnmálastcfnu. scm
gcrt hcfur Norðurlöndin að
fyrirmyndum annarra rikja i
þessum heimi, og þvi fólki, sem
þau lönd byggir.
Föstudagur 8. september 1972
5