Alþýðublaðið - 09.09.1972, Blaðsíða 3
Þá var öldin önnur: Lénharður
fógeti færður upp í Iðnó 1913
ER NÚ TJALDIÐ FALLIÐ -
ÁÐUR EN ÞAÐ FER UPP?
Litlar likur virtust á þvi i gær-
kvöldi, aö samningar tækjust
milli hússtjórnar Iðnó og Leik-
félags Reykjavikur um húsaleigu
félagsins, og aö leikstarfsemi
félagsins geti hafizt á tilsettum
tima. Fyrsta auglýsta sýning
félagsins á þessu hausti átti að
verða i kvöld á „Dóminó” eftir
Jökul Jakobsson,
Guðmundur Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Leikfélags Reykja-
vikur. sagði i gær, þegar Alþýðu-
blaðið hafði samband við hann:
„Málið stendur þannig i dag, að
lagður hefur verið fyrir okkur
samningur, sem við treystum
okkur engan veginn til að ganga
að. Þessi samningur, ef sam-
þykktur yrði, þýddi um 50%
hækkun á húsaleigu okkar miðað
við siðastliðið leikár.
Eins og sakir standa er svolitið
erfitt að koma viö samningum i
þessu efni, þar sem formaður
hússtjórnar lagði fram drög að
samningi, áður en hann fór af
landi brott, og gaf áöur aðeins
umboð til fulltrúa hússtjórnar að
undirskrifa þetta samningsupp-
kast og ekkert annað”.
Guðmundur sagði ennfremur:
„Til beinna aðgerða af hálfu hús-
stjórnar hefur ekki komið enn, að
öðru leyti en þvi, að skipt hefur
verið um læsingu á aðgöngumiða-
sölunni.
Hins vegar hefur okkur verið
hótað, að húsinu verði alveg lokað
með fógetavaldi. Var talað um,
að þær aðgerðir kæmu til fram-
kvæmda nú um hádegið, en ekk-
ert slikt hefur gerzt enn nú sið-
degis”.
Guðmundur Pálsson sagði i
samtalinu við blaðið, að á siðast-
liðnu ári hefði félagið greitt i
húsaleigu til Iðnó tæplega
1.800.000.00 krónur, en nú sé farið
fram á að húsaleigan verði tæp-
lega 2.700.000.00 krónur, og er þar
um 50% hækkun að ræða.
Guðmundur benti á i samtalinu,
að Leikfélagið hefði engar aðrar
tekjur af starfsemi sinni en þær,
sem fengjust af sætanýtingu.
Guðmundur kvað félagið aðeins
leigja sjálfan áhorfendasalinn,
sviðið, búningsklefa, og litla
skrifstofu i Iðnó, en auk þess
fatageymsluna, þegar leiksýn-
ingar stæðu yfir.
„Hins vegar er veitingarekst-
urinn i húsinu alls ekki á okkar
vegum”, sagði Guðmundur, og
Framhald á 2. siöu.
Ovenjumiklum slysadegi
lauk með banaslysi
MIKLAR ANNIR
LÖGREGLU
Litil telpa beið bana i gærdag i
einhverri mestu slysahrynu sem
gengið hefur yfir Reykjavik i
langan tima.
Litla telpan varð fyrir bil á sjö-
Útlend kona var flutt í ofboöi á
Borgarspitalann i gær. Hún var
stórslösuö að sögn. Ilún var i bil
sem valt i uppsveitum
Árnessýslu. Læknirinn i Laugar-
ási var yfir henni á leiðinni.
unda timanum i gær, skammt frá
Laugabóli við Nesveg.
Þá slösuðust átta aðrir i um-
ferðinni i Reykjavik i gær, enginn
þeirra þó lifshættulega, en nokkr-
ir talsvert.
Það var laust eftir klukkan eitt i
gær að árekstrarnir urðu hver af
öðrum, og hafði lögreglan varla
undan að sinna útköllum. Varð
alls 21 árekstur frá klukkan eitt til
sjö, þar sem átta slösuðust og
einn beið bana.
Það urðu þó ekki eingöngu um-
ferðarslys á þessum tima i gær,
þar sem sjúkrabilarnir fluttu að
auki átta manns vegna annarra
slysa og höfðu nokkur þeirra átt
sér stað innanhúss eða á vinnu-
stöðum, en að sögn varðstjóra er
þetta óvenjumikið á einum degi.
Auk þess fluttu sjúkrabilarnir 11
sjúka menn.
Að sögn lögreglunnar er þetta
alveg óskiljanlegt þar sem
akstursskilyrði voru ágæt, i allan
gærdag, götur þurrar og bjart
yfir.
FISCHER KOMINN A FLAKKSKONA
Ég má varla vera að þvi að tala
við þig núna, Fischer biður nefni-
lega eftir mér og við erum að
skreppa út á land, sagði Sæmund-
ur Pálsson, fylgdarmaður
Fischers, er blaðið náöi tali af
honum i gær.
Sæmundur stal þó einni minútu
af tima sinum og heimsmeistar-
ans. og sagði að nú hygðist
Fischer skoða sig um á lslandi og
kikja á nokkra merkisstaði.
Hann talar um að vera hér i
viku til tiu daga, sagði Sæmund-
ur. og flakka svolitið um, enda er
hann búinn að ljúká flestum eða
öllum sjón^rps- og blaðaviðtöl-
um, sem hann átti von á, og leikur
nú á als oddi.
Það er ekkert ákveðið hvert við
förum, en i dag ætlum við bara að
skjótast út úr bænum og koma
aftur i kvöld. -
24 AD NORPA f
50 M1A0RINIIM
Landhelgisgæzlan gerði taln-
ingu á erlendu togurunum á mið-
unum hér við land i gær og töldust
þeir vera 59 talsins og virðist
skipunum fyrir Austurlandi hafa
fækkað frá þvi sem verið hefur
undanfarna daga.
Skilyrði til talningar voru frem-
ur erfið vegna veðurs fyrir Norð-
TÖFLUM FJÖLGAR
Á SUÐUREYRI
Rannsókn eiturlyfjamálsins á
Suðureyri er enn haldið áfram og
hefur fjöldi manns verið yfir-
heyrður. Blaðiö hafði enn sam-
band við Sturlu Jónsson, hrepps-
stjóra á Suðureyri i gær, og sagði
hann, að nú væri búið að yfir-
heyra nær alla viðriðna málið, að
undanteknum nokkrum aðilum ,
sem farnir voru til Reykjavikur,
en haft verður samband við þá.
Kkkert verulega nýtt hefur
komið fram i málinu, nema hvað
ljóst er, að þúsundir af töflum
voru i umferð. fleiri en haldið var
i upphafi. Sturla vildi þó ekkert
reyna að gizka á fjöldann, þar
sem mikið væri um missagnir, og
loðnar upplýsingar i yfirheyrsl-
unum.
Piltarnir tveir sem sögðust
hafa stolið töflunum i sjúkraskýl-
inu á Þingeyri, eru enn i varð-
haldi.og sýslumaður fór til Þing-
eyrar i gær til að kanna, hvernig á
þvi stendur, að læknirinn saknar
mun minna magns, og sýslumað-
ur fór til Þingeyrar i gær til að
kanna, hvernig á þvi stendur, að
læknirinn saknar mun minna
magns, en i umferð var. -
austurlandi i gær.
Hugsanlegt er, að einhverjir
brezku togararnir sem komu
hingað á miðin um mánaðamótin,
séu af eðlilegum ástæðum farnir
heim til löndunar og til að hvila
mannskapinn.
Alls töldust 33 brezkir togarar
vera að veiðum, þar af voru 24
norðvestur og norður af Vest-
fjörðum, allir djúpt úti og i
grennd við 50 milna mörkin. 9
brezkir togarar voru að veiðum
langt innan við 50 milna mörkin
úti fyrir Austurlandi. 5 brezkir
togarar voru á siglingu, er talning
fór fram, og voru 4 þeirra langt
innan við nýju fiksveiðimörkin.
18 vestur-þýzkir togarar voru
við veiðar á tslandsmiðum i gær
og reyndust þrir þeirra innan
islenzku fsikveiðilandhelginnar.
Tvö færeysk veiðiskip voru á
miðunum i gær og eitt belgiskt.
Landhelgisgæzlan heyröi i gær
til „Áróru”, fneigátu hennar
hátignar Bretadrottningar, i
stefnu á Færeyjar frá Austur-
landi.
Samkvæmt upplýsingum Haf-
steins Hafsteinssonar, blaðafull-
trúa landhelgisgæzlunnar virtist
brezka fneigátan vera talsvert
djúpt undan eftir styrkleika send-
ingarinnar, sem landhelgisgæzl-
an heyrði i gær, að dæma,-
A FERÐ OG FLUGI
Hálft tólfta þúsund útlendinga
sótti okkur heim i siðastliðnum
mánuði og um 5,450 Islendingar
sneru heim á sama tima.
Af öllum þessum þúsundum
ferðuðust aðeins um fimm hundr-
uð með skipum.
VERKAMENN
Áburðarverksmiðju rikisins vantar
nokkra verkamenn i fasta vinnu. Nánari
upplýsingar hjá verkstjóra á staðnum á
mánudag milli 10 og 12 fyrir hádegi.
ÁBURÐARVERKSMIÐJA RÍKISINS
Gufunesi
HÁLFS DAGS STARF
Iðnaðarráðuneytið óskar að ráða konu til
vélritunar og almennra skrifstofustarfa
hálfan daginn.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
rikisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um mennt-
un og fyrri störf sendist iðnaðarráðuneyt-
inu fyrir 20. september.
Iðnaðarráðuneytið
8. september 1972.
RITARI
Ritara vantar til afleysinga við Klepps-
spitalann i 3 mánuði, frá 1. október að
telja. Laun samkvæmt launakerfi rikisins.
Umsóknum, er greini aldur, menntun og
fyrri störf, sé skilað til skrifstofunnar,
Eiriksgötu 5, fyrir 22. september n.k.
Umsóknareyðublöð á skrifstofu rikis
spitalanna.
Reykjavik, 8. september 1972.
Skrifstofa rikisspitalanna.
Laugardagur 9. september 1972
3