Alþýðublaðið - 12.09.1972, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 12.09.1972, Blaðsíða 9
IÞROTTIR VÍKINGUR ER ENN FALLINN NIOUR í 2. DEILD! Það ivar mikið um að vera hjá knattspyrnumönnum um helgina, þar sem leikir fóru fram i öllum deildum og öll úrslit, sem máli skipta liggja þar fyrir þótt nokkrum leikjum sé enn ólokið. Fram hefur tryggt sér sigur í 1. deild, sem kunn- ugt er og á þó tveim leikj- um ólokið. Víkingur fellur í 2. deild, en Akureyringar báru sigur úr býtum í 2. deild og taka þvi sæti í 1. deild á næsta ári. Viö skulum aðeins líta á helztu knattspyrnuviðburði helgarinn- ar. 11. deild fóru fram þrirleikir og voru tveir þeirra mikilvægir, annar skar úr um silfurverblaun- in og þátttöku i Evrópukeppni á næsta ári, en það var leikur ÍA og IBV, en hinn leikurinn, leikur KR og Vikings var nánast úrslitaleik- ur um neðstu sætin i deildinni og fall i 2. deild. ÍA-ÍBV 1-4 (0-2) Vestmannaeyingar unnu stóran og verðskuldaðan sigur yfir Akureyringum og margir telja aö lið þeirra sé það bezta i dag, alla- vega hafa þeir beztu framlinunni á að skipa. Staðan i hálfleik var 2-0 og voru það þeir Orn Óskarsson og Tómas Pálsson sem skoruðu mörkin. Eyleifur skoraði snemma i siö- ari hálfleik fyrir Skagamenn, en undir lokin bættu þeir Haraldur Júliusson og Asgeir Sigurvinsson tveim mörkum við fyrir Eyja- menn og lauk leiknum þvi eins og áður sagbi með sigri Vestamnna- eyinga 4-1. Skagamenn hafa slakað á undir lok mótsins og er það aö vonum, þar sem lið það sem þeir hafa á að skipa i dag, er nánast að verða varalið. Hver leikmaður þeirra á fætur öðrum hefur meiöst og ekki getað leikið meö og má þar nefna Matthias Hallgrimsson, Björn Lárusson, Harald Sturlaugsson, Benedikt Valtýsson og nú siöast Jón Gunnlaugsson. Það blæs þvi ekki byrlega fyrir Skagamönnum, sem stendur og við það bætist, að þeir hafa ekki nógu góðum varamönnum á að skipa til að skipa sæti þessara leikmanna. VALUR-ÍBK 0-3 (0-1) Valur og Keflvikingar léku á Melavellinum á laugardag og var leikurinn mjög lélegur og fátt sást þar af góðri knattspyrnu. Vals menn byrjuðu á aö skora sjálfs- mark i byrjun leiksins og bættu siðan öðru við i byrjun siðari hálf- leiks. Þriðja markið skoraði svo Friðrik Ragnarsson seint i siðari hálfleik. Leikurinn hafði litla þýðingu fyrir liðin, sem bæði hafa tryggt sér sæti i deildinni og áttu ekki von i að ná öðru sætinu eftir sigur tBV yfir tA. Keflvikingar voru betri aðilinn i þessum leik og unnu verðskuldað, þótt mörk þeirra hafi verið frem- ur ódýr. Þeir héldu i dag áleiðis til Spánar þar sem þeir leika á mið- vikudag við hið fræga lið Real Madrid i Evrópukeppni meist- araliða og þurfa þá að taka á sin- um stóra. Valsmenn eru i sama baslinu og Skagamenn. þar sem meirihluti þekktustu leikmanna þeirra eru á sjúkralista. KR-VÍKINGUR 1-0 (1-0) Sá leikur helgarinnar, sem hvað mesta athygli vakti var leik- ur KR og Vikings, sem fram fór á Melavellinum á sunnudag, enda mikið i húfi fyrir bæði liðin. KR nægöi jafntefli til að tryggja sér áframhaldandi þátttöku i 1. deild, en Vikingur þurfti að sigra til að fá aukaleik við KR um sætið. Það er skemmst frá að segja, að þótt Vikingur hafi verið betri aðilinn i þessum leik, þá töpuðu þeir með einu marki og féllu i þá sömu gröf, sem þeir voru lengst af i á sumrinu, að geta ekki skorað mark. Gunnar Gunnarsson skoraöi fyrir KR snemma i fyrri hálfleik, eftir að Diðrik markvörður Vik- ings haföi hálfvariö skot frá Hauki Ottesen, en hann hélt ekki knettinum, svo eftirleikurinn var auðveldur fyrir Gunnar. Það verða þvi Vikingar, sem leika i 2. deild næsta ár og taka þar sæti Akureyringa, sem tryggöu sér sætið i l.deild meö þvi að sigra Armann á Melavellinum á sunnu- dag meö 1-0. Það var hart barist í leik KR og Víkings á sunnudaginn, enda mikið i húfi fyrir bæði liðin. Hér er Hafliði í baráttu við tvo KR-inga. 2. 0EIL0: Tveir leikir fóru fram i 2. deild um helgina og eins og áður er fram komið, þá sigruðu Akureyr- ingar Armann á Melavellinum á sunnudag i slökum leik með 1-0 og hafa þar meö unnið sigur i deild- inni og leika þvi i 1. deild á næsta ári. Astæða er til að bjóða þá vel- komna þangaö og þeir eru án efa margir, sem fagna endurkomu þeirra. VðLSUNGAR-FH 1-1 Völsungur og FH léku á Húsa- vik á laugardag og lauk leiknum með jafntefli l-i. FH háði lengi framan af harða keppni við Akur- eyringa um sigur i 2. deild, en hafa slakað á undir lokin og verða að láta sér nægja annað sætið. En iið þeirra er ungt að árum og á þvi framtiðina fyrir sér, en trúlega verður þeim erfiður róðurinn á næsta ári, þar sem þá verður viö Vikinga aðeiga, sem án efa ætla sér ekki langa viðdvöl i 2. deild. ÞRÓTTUR NESKAUP STAÐ í 2. DEILD. Úrslitakeppni i riölum 3. deild- ar fór fram i Reykjavik um helg- ina. Þar mættu til leiks Þróttur frá Neskaupstað, Vikingur frá Ólafsvik, Knattsspyrnufélag Siglufjarðar og Viðir úr Garði. Neskaupstaöar Þróttur bar sig- ur úr bitum i þeirri keppni og leikur þvi i 2. deild á næsta ári, en liðið féll i 3ju deild i fyrra, sem kunnugt er. Úrslit einstakra leikja urðu þessi: KS-Viðir 3-2 Vikingur-Þróttur N. 2-2 Þróttur N- KS 2-1 Viðir-Vikingur 3-2 KS-Vikingur 5-1 Þróttur N.-Viðir 3-1 KVENNA KNATTSPYRNA: Senn fer ab draga til úrslita i fyrsta tslandsmóti kvenna, sem haldið hefur verið hér á landi og um helgina fóru fram þessir leik- ir: Haukar-IBK 1-0 Breiðablik-Þróttur 2-1 Fram-FH 1-1 Armann-Grindavik 8-1 Eftir er aðeins úrslitaleikurinn, sem veröur á milli Armanns o’g FH, en ekki mun ákveðiö hven- ær hann fer fram. ÍSLANUSMÚT 3. FLOKKS: Úrslitaleikirnir i riðlum lands- móts 3. flokks fór fram um helg- ina og urðu úrslit einstakra leikja, sem hér segir: Fram-Þróttur R 3-1 KA Akureyri-KR 0-4 Stjarnan-Fram 1-5 Þróttur N-KA Akureyri 2-2 Þróttur R-Stjarnan 2-0 KR-Þróttur N 6-1 Þaö veröa þvi KR og Fram sem leika til úrslita um Islandsmeist- aratitilinn i 3. aldursflokki. ALLIR KNATTSPYRNUVIÐBURDIR HELGARINNAR Þriðjudagur 12. september 1972 3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.