Alþýðublaðið - 12.09.1972, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 12.09.1972, Blaðsíða 12
 m, Alþýöubankinn hf KÓPAVOGS APÚTEK Opið öll kvöld til kl. 7 Laugardaga til kl. 2 Sunnudaga milli kl. 1 og 3 Q 1 SEHDIBiLASTÖWN HF ÆTTUM AÐ VERA VIÐBUNIR HAF- ÍS HÉR í VETUR ,,Það var deilt á þaö, þegar hafrannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson var sent norður- fyrir Jan Mayen til að leita að isjökum i sumar i stað þess að halda áfram að leita að fiski, en það er svo með frum- rannsóknir, að þær eru nauð-' synlegar þótt þær skili ekki árangri strax", sagði Páll Berg- þórsson veðurfræðingur, þegar A.þýðublaðið leitaði frétta hjá honum i gær um horfur á hafis i vetur. ,,k>etta er i fyrsta sinn, sem hafrannsóknir eru stundaðar svo langt norðurfrá”, hélt Páll áfram, ,,og ég er ánægður með þetta íramtak Uafrannsóknar- stofnunarjnnar. Þessar rannsóknir sýna, að fyrir norðan Jan Mayen er sjór mjög kaldur. en al'tur á móti er hann mildari hér við land en i meðal- ári. Þessi staðreynd bendir til SPÁR PÁIS HAFA STAB- IST 75% þess, að við getum átt von á köldum sjó hér við land, og þar með hafis, i vetur. Hins vegar eru þessir straumar svo hægir, að flöskur, sem hefur verið kastað út i þá, voru sex mánuði á leiðinni hingað, svo enn sem komið er má ekki sjá með vissu hvenær þessi kaldi sjór kemur hingað. Kn sem stendur gefur þessi mildi sjór við Island til kynna, að það geti dregizt veru- lega að ismyndun verði hér”. Páll sagði, að mjög mikil- vægt væri að gera isspár sem l'yrst, jafnvel þótt þær verði ónákvæmari fyrir bragðið. Séu þær hins vegar ekki gerðar fyrr en i janúar-febrúar geti isinn verið kominn upp að landinu áður en niðurstöðurnar séu fengnar, og þá sé of seint aö búa sig undir iskomuna. llm sinar eigin hafisspár, sem hann helur gerl árlega frá þvi árið l!)(>9, sagði Páll, að hann va'ri byrjaður á undirbúningi, en lyki spánum i nóvemberlok eða septemberbyrjun. Af þeim fjórum spám, sem hann hei'ur gert, hafa þrjár staðizt vel. en ein, þ.e. i fyrra brugðizt. Iog sagðist Páli vera ána'gður með þá útkomu. ENN EIHN ISRAELSXUR BORGARI FYRIR SXOTÁRÁS SKÆRUIHIA 42 ára gamall starfsmaður israelska sendiráðsins i Brussel i Belgiu. Zadok Ophir að nafni. var skotinn og alvarlega særður á kalfihúsi einu i miðborg Brussel á sunnudagskvöld. Aðgerð var gerð á manninum, sem fyrir árásinni varö, og telja læknar nokkra von um. að hann haldi lifi. Zadok hafði farið til kaffi- hússins til að eiga viðræður við mannnokkurn. sem áðu'r hafði haft samband við hann i gegn- um sima og kynnt sig sem Mohammed Karbah. 1 kaffi- húsinu átti Zadok á fá nákvæm- ar upplýsingar um fyrirhugaða árás arabiskra skæruliða á sendiráð israelsmanna i borginni. Lögreglan i Brussel lýsti i gær eftir 29 ára gömlum Marokkó- búa vegna morðtilraunarinnar á Zadok. Hinn eftirlýsti heitir Hassan ben AUah ben Salah Juodat og er fæddur i Casablanca 1943. Þessi siðasta morðtilraun á israelskum borgara i Vestur- Evrópu er litin mjög alvarleg- um augum i tsrael og eru menn þar þrumu lostnirog fjallað var um morðtilraunina á fundi rikisstjórnarinnar i gærkvöldi. Sýrlenzkur og tveir vestur- þýzkir vinstri sinnaðir öfga- menn voru handteknir á sunnu- dagskvöld á flugvellinum i Munchen, er þeir reyndu að komast úr landi. Hert hefur verið mikið á öllu eftirliti á öllum flugvöllum i Vestur-Þýzkalandi siöan morðin voru framin i Munchen I siðustu viku. Mennirnir þrir, sem handteknir voru á sunnu- dagskvöld, eru grunaðir um að vera i tengslum við skæruliða- samtökin, sem stóðu að baki morðunum á israelska iþrótta- fólkinu. Lik skæruliðanna fimm, sem létu lifið á Munchenflugvelli fyrir skotum vestur-þýzku lög- reglunnar, voru i gær send með flugvél til Tripoli, höfuðborgar Libiu. þar sem þau verða jarð- sett i dag. ARITU NARSKYLDA ALLRA VEGABREFA Haft var eftir vestur-þýzka innanrikisráðherranum Hans- Dietrich Genscher i gær. að Bonnstjórnin hefði i hvggju að taka upp áritunarskyldu vega- brcífa vegna ferða fólks frá öllum Arabalöndunum. Sagði ráðherrann. að þessi til- laga væri liður i aðgerðunum til að hindra fleiri ofbeldisverk af hálfu arabiskra skæruliða i Vestur-Þýzkalandi. ltáðherrann sagði ennfremur. að rikisstjórnin hefði ekki i hyggju að endurskoða liigin um réttindi útlendinga. sem dveldust i landinu. en hins vegar yrði ákvæðum laganna fylgt strangar eftir en áður. i Vestur-Þýzkalandi eru nú um 2.2 milljónir erlendra verka- manna og námsmanna. þar af eru um 50 þúsund fra' Arabalönd- unum. Vestur-þýzka öryggisþjónustan hefur upplýst að á siðastliðnu ári hafi 10 samtök Palestinumanna veriö skráð i Vestur-Þýzkalandi. MILUfiN DALA TIL FJfiLSKYLDNANNA Vestur-þýzka stjórnin tilkynnti i gærkvöldi að hún hafi þegar afhent Kauða krossinum eina milljón dollara. «8 milljónir islenzkra króna, til styrktar fjölskyldum israelsmanna, sem létu lifiö i Munchcn i siðustu viku. Myndin er tekin á þvi augnabliki cr skærulið- arnir sprengdu i loft upp þyrluna sem israelsku iþróttamennirnir voru i á flugvellinum við Furstenfeldbruck. BYRJAÁ BJARTI OG BLÚMINU Þegar tljaldið er dregið frá á nýju leikári Þjóöleikhússins nú á laugardaginn er það Sjálfstætt fólk, sefn væntanlega verður sýnt i 22. sinn fyrir fullu húsi, — og þá verða þessar þrjár heiðurskvinnur á sviðinu: Nina Sveinsdóttir, Anna Guðmunds- dóttir og Kmilia Jónsdóttir. Leikurinn mun á næstunni koina út hjá bókaútgáfu Helga- fclls undir nafninu „Bjartur í Sumarhúsum og blómið.” Það er Róbert sem fer með aöalhlutverkið f Sjálfstæðu fólki, en leikstjórinn, Baldvin Halldórsson, færði söguna i leik- fornt ásamt Halldóri Laxness. LANDjÐ SKALF OFTUM HELBINA Land hefur skolfið undir Suður- nesjabúum all oft siðan á fimmtu- daginn i siðustu viku, en sterkasti kippurinn mældist i Keflavik klukkan 15.22 á sunnudaginn, en samkvæmt richterskvarða var hann fjögur stig. Jarðskjálftanna varð mest vart i Grindavik og Krisuvik, og Ragn- ar Stefánsson, jarðskjálftafræð- ingur sagði við Alþýðublaðið i gær, að upptökin séu i um 40-50 km. fjarlægð frá Reykjavik Það þýðir, að upptökin eru skammt norður af Grindavik, og þar i vestur, jafnvel allt út i sjó. Ragnar sagði, að kippur hefði fundizt austur i Villingaholti i Flóa klukkan þrjú á laugardag- inn, en sá staður sagði hann að sé mjög næmur fyrir jarðskjálftum, sem eiga upptök sin á Reykja- nesi. Ekki sagði Ragnar, að upptök þessa jarðskjálfta hafi verið rannsökuð náið, það verði raunar ekki gert strax. Venjan er sú, að upplýsingum um jarðskjálfta er safnað saman, en siðan gerðar rannsóknir. sem ná yfir löng timabil. Þessi vinnubrögð sagði Ragnar. að séu viðhöfð vegna skorts á vinnuafli, en hann er eini starfandi jarðskjálftafræðingur- inn á landinu. ÁRASARMENNIRNIR ENN í FANGELSI Mennirnir tveir, sem réðust á og misþyrmdu gestgjafa sinum i Reykjavik föstudaginn 18. ágúst sitja enn i fangelsi. Rannsókn sem staðið hefur yfir siðan. fer senn að ljúka, og verður málið þá sent saksóknara rikisins til ákvörðunar. Maðurinn, sem fyrir árásinni varð/ höfuðkúpubrotnaði og lá um skeið mjög þungt haldinn á Borgarspitalanum. Hann er nú á batavegi og hefur fengið að fara heim af sjúkrahús- inu. Annar árásarmannanna var úrskurðaður i 60 daga gæzluvarð- hald. en hinn i 30 daga.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.