Alþýðublaðið - 03.10.1972, Side 7

Alþýðublaðið - 03.10.1972, Side 7
Kven-hormónarnir veita vörn gegn kölkun. Pillan veldur hormónaskorti og getur því, ef verst gegnir reynst TÍMASPRENGJi GAGMVART HEILBMGDI HOHUNHAR Á meðan konurnar framleiða östrogen i eggjastokkunum, kemur sjaldan fyrir að þær þjáist af kölkunarsjúkdómum. Að minnsta kosti mun sjaldnar en karlmenn. En þegar tiðahvörfin eru um garð gengin breytist þetta — og þegar kemur á sjötugsaldurinn er blóð- tappahlutfalliö hærra meðal kvenna en karla. L>egar kemur á þann aldur, framleiöa karlar lika meira östrogen en konur. — En fyrst við nú vitum að þessu er þann veg farið, hvernig þorum við þá að draga úr östrogenmagninu i blóði konunnar meö notkun pillunnar, svo þaö verður jafnt og i blóði karlmanns- ins? Kölkunarhættan er iskyggilegasta heilsufars- vandamál á okkar tið. t>ar er i rauninni um að ræða skaðvald, sem hefur svikist að okkur, svo viö höfum ekki enn getað gert okkur ljóst hve hættulegur hann er. En það er þó staöreynd að kölkunarsjúkdómar valda nú helmingi allra dauðsfalla. Og allt bendir til að það hlutfall verði stöðugt iskyggilegra. Einungis þriðjungur allra fimm ára barna — i Danmörku — hefur eðli- legar hjartavöðvaæðar. Meðal fimmtán ára er það alger undantekning. t>á er kölkunin farin að segja til sin i æðaveggjunum. Og þeim fer stöðugt fjölgandi sem deyja úr kölkunarsjúkdómum. Og þá sér i lagi hjartablóð- tappa. Af mörgum ásta'ð- um. Við reykjum of mikið, við etum of mikið, við hreyfum okkur of litiö, og við búum við rangt matar- æði. Kölkunin er dæmigerður menningarsjúkdórnur — sem við vitum enn ekki neina lækningu við. Og höfum ekki dug i okkur til að koma i veg fyrir. Lifnaðarhættir beggja jafn rangir að kalla. En það er munur á körl- um og konum, lika gagn- vart kölkuninni. Þeim karlmönnum fjölgar stöðugt sem deyja úr æða- kölkun, og stöðugt yngri og yngri. Vegna þess að lifnaðarhættir þeirra eru rangir. I.ifnaðarhættir kvenna eru viðlika rangir. Þar munar ekki miklu. Miðaldra kon- ur hreyfa sig yfirleitt heldur meira en miðaldra karlmenn. En þó ekki nægilega. Og þar hallar stöðugt á ógæfuhlið. Ef til vill reykja þær lika eitthvað minna en karl- mennirnir. En einnig þar verður stöðugt mjórra á mununum. Ekki getur það þvi skýrt hvers vegna kon- ur fá sjaldnar hjartablóð- tappa — og þá ekki fyrr en mun seinna á ævinni. Skýringarinnar er annars staðar að leita. t eggjastokkum konunnar. Þar framleiða þær östrogen — i mun meira magni en karlar framleiða i eistum og nýrnahettum. ()g það er einmitt þetta östrogen sem — á ein- hvern hátt — veitir vörn gegn kölkuninni. Fyrir það eru konurnar betur varða : gegn þvi að deyja úr blóötappa á fimmtugsaldrinum, eða fyrr, þó að hann verði stöðugt fleiri karlmönnum að bana. Kölkunin fer sér hægt. Hún byrjar, eins og áður er á minnst, strax i bernsku. En allt frá þvi er telpan nær 12-15 ára aldri og tiðir byrja, og hún tekur um leið að framleiða östrogen I miklu magni — njóta æðaveggir hennar augljósrar verndar. Það er ekki fyrr en að áratugum liðnum, þegar svo hefur dregið úr östrogenframleiðslunni að magn þess i blóði konunnar er viðlika og i blóði karlmannsins, að hlutföllin nálgast. Og þegar kemur á sjötugs- aldurinn látast fleiri konur en karlar úr blóðtappa. Það er þvi ekki undar- legt þótt östrogeninu sé þakkað það, að það verndi æðaveggina. Skammtarnir mun stærri en í pillunni. Það hagnýta menn sér lika. Konur sem eggja- stokkarnir eru teknir úr — til dæmis vegna æxla — er gefið östrogen i skömmt- um, sem eiga að bæta henni upp það sem dregið hefur úr hennar eigin framleiðslu. Þessir östrogen- skammtar eru mun sterkari en magnið i pillunni. Þar er þvi nú stillt i hóf eins og unnt er, i þvi skyni að hafa sem minnst áhrif á hormóna- jafnvægið. Áhrifin verða eigi að siður all harkaleg, og kem ég að þvi siðar. Með nauðsynlegri hor- mónagjöf er unnt að auka östrogenmagnið i blóði þeirra kvenna, sem sviptar hafa verið eggja- stokkunum. Það kemur þeim að liði á margan hátt, en mikil- vægast er þó að fyrir bragöið njóta æðaveggir þeirra eðlilegrar verndar, að minnsta kosti mun meiri verndar en æða- kerfi karla. Gervi-vernd. Það liggur ljóst fyrir að komið hefur til athugunar hvort ekki myndi kleift að vernda konur gegn æða- kölkun, einnig eftir að þær geta ekki framleitt östrogeni sama magni og áður. Með öðrum orðum, eftir tiðahvörfin. Það eru og ýmsar aðrar ástæður til að gefa konum östrogen eftir tiðahvörfin. Og enn fleiri gildar ástæð- ur til að gefa þeim östrogen meðan á tiða- hvörfunum stendur, eink- um ef þær þjást af þeim fylgióþægindum, sem ekki er ótitt. En sú tilraun að freista aö vernda æðakerfi þeirra frá kölkun, verður að sjálfsögðu þung á metunum. Alkunna er, að þeir læknar eru all margir sem álita að ekki beri að hindra eðli- legan gang náttúrunnar hvað þetta snertir — og gera ævi konunnar þannig að enn meiri mun lengri en karlmannsins, miðað við það sem nú er. Lækkun sem nemur 50% Hvað sem þvi liður gerist stöðugt algengara að freista að vernda konur frá elli og kölkun, þegar östrogenframleiðsla þeirra minnkar. Það er að segja, frá tiða- hörfum. Frá þeim tima þegar östrogenframleiðsla þeirra er þó aðeins meiri en ungu stúlknanna, sem nota pilluna. Eins og kunnugt er, kemur pillan i veg fyrir þungun með þvi að sjá svo um að ekkert egg nái þroska — og þá ekki heldur neitt eggbú eða gul- bú. En það er einmitt þar sem mest af magni östrogensins er framleitt. Og hlutskipti pillu- stúlkunnar verður það, að östrogenmagnið i blóöi hennar minnkar yfirleitt um helming, frá þvi sem eðlilegt getur talizt. Framhald á bls. 4 Á morgun: Næstum helmingur þjáist af dapurleika og óhamingju Eftir Halldór Halldórsson Þótt ótrúlegt megi virðast er það einum manni að þakka, að hundruðum manna hefur verið beint af braut afbrota til heiðarlegs og hamingjuríks lífs hér á íslandi í nokkur undanfarin ár. Þessi maður hefur með þrotlausu starfi og hreint einstöku viljaþreki bjargað yfir 1000 unglingum frá því að verða afbrotamenn. Á árunum 1960-1970 hefur hann beitt sér fyrir náðun og tilraunalausn 72 af- brotamanna, sem sátu í fangelsi og aðeinsátta hafa gerzt brotlegir á ný. Frá árinu 1955 hefur þessi sami maður haft eftirlit með 1336 körlum og konum á aldrinum 15-21 árs, sem notið hafa ákærufrestunar. Það má segja, að árangurinn sé ótrúlegur, því aðeins 10% þessara unglinga hefur framið af- brot á ný.Hinir eru hólpnir. Maðurinn heitir Óscar Clausen, en hann hefur rekið íslenzku fangahjálpina siðastliðin 24 ár með þessum einstaka árangri. Hann hefur hlotið stórriddara- kross islenzku fálkaorðunnar fyrir liknarstörf og viðurkenn- ingu frá Alþjóðlegu fangahjálp- inni. En það, sem honum finnst mest um vert er þakklæti. þeirra, sem hann hefur hjálpað. „Þetta er hlutur, sem ekki hefur verið hampað og að mestu unnið i sjálfboðavinnu”, sagöi Jónatan Sveinsson, fulltrúi sak- sóknara rikisins um Óscar. ”Þetta er svo fyrirbyggjandi starf, að ég veit, aö þeir eru ótaldir foreldrarnir, sem eru i ævarandi þakkarskuld við hann fyrir þá umsjón og leiðsögn, sem hann hefur veitt þessum ungling- um”. En það eru ekki bara foreldr- arnir, sem standa i þakkarskuld við Öscar, heldur unglingarnir sjálfir enda hefur honum verið auðsýnt þakklæti á margan hátt. Hónum hafa verið gefnar ýmsar gjafir, eins og t.d. tré- skurðarmynd af Kristi að brjóta hlekki af fanga. Fimm fyrrver- andi afbrotamenn gáfu honum myndina fyrir veitta hjálp. Blaðamaður Alþýðublaðsins heimsótti Óscar einn morguninn og ræddi við hann vitt og breitt um 24 ara starf Fangahjálparinn- ar og áhuga hans á liknarstörfum almennt. Hvað getur þú sagt okkur um ákærufrestunina? — Ákærufrestunin er bráð- nauðsynleg, þvi Islendingurinn þolir ekki fangelsi, við þolum ekki innilokun. Við höfum svo sterka einstaklingskennd og hræðslu- kennd. Þessi starfsemi min er beinlinis byggð á tvennu. Á frelsi og vinnu. Ef maðurinn vill ekki vinna er ekkert hægt að gera fyrir hann og ef hann vill ekki haga sér sam- kvæmt þessari gömlu islenzku reglu, að guð hjálpar þeim, sem hjálpa sér sjálfir er hann vonlaus. Reyndar má lengja þessa reglu og segja, að hann geri ekkert fyrir hina. Það er ekki hægt að fá neinn árangur af þessari starfsemi nema maðurinn leggi það til sjálfur og vilji bæta sig. Útvegar þú þessu fólki vinnu? Já, alltaf. Og ef ég held að við- komandi hefði betra af þvi að fara úr bænum þá gef ég enga fyrir- skipun. £g reyni að hafa vinsam- leg áhrif á manninn. Hann verður að vilja fara sjálfur. Ég hef reynslu af þvi að ráðskazt sé með menn og þá lokast þeir alveg. Is- lendingurinn vill ekki hafa neina hnysni um sina hagi. Og okkar unglingar hafa miklu næmari frelsiskennd en margbældir ungl- ingar i nágrannalöndunum: Þeir eru bældir með skólaaga, sem er ekki til hér. A Islandi eru það unglingarnir, sem stjórna skólunum. Og hérna er ekki til heragi. Ég segi nú bara L&G, lof sé guði. Ég vil ekki láta byggjá hér á landi fangelsi með himinháum múrum, eins og gert er i ná- grannalöndunum. Við erum búin að reka opið fangelsi i rúm 17 ár, Kviabryggju. Þangað hafa farið 109 afbrotamenn og aðeins sex af þeim hafa brotið af sér aftur. Hvað vill þetta segja. Það, sem koma skal eru opin fangelsi, en ekki stór innilokunarfangelsi. Þau tilheyra sautjándu öld. Þessi lönd, sem eru i kringum okkur og það stóru löndin eru langt á eftir okkur. Þessum orðum sinum til stað- festingar sýndi Óscar blaða- manninum ummæli um starfsemi Islenzku fangahjálparinnar frá Alheimsfangahjálpinni i Milwaukee. Þar er hún rómuð mjög og talað um, að árangurinn sé geysigóður. Er starfsemi þin styrkt fjár- hagslega? Já, ég fæ rúmlega húsaleigu. Myndirnar hér til beggja hliöa eru teknar á heimili óscars að Bankastræti 12. Til vinstri stendur hann viö tréskurðarmynd, sem hon- um var gefin, en til hægri ræðir hann við fyrrverandi afbrotamenn, sem hann bjargaði. „Hér eru útlendingar, sem nota hass og með því ná þeir valdi á ungum stúlkum. Þetta eru ævin- týramenn, sem lita á okk- ur sem einhverja frum- menn..." Ef allir lifðu eins fá- brotnu lifi og ég, þá yrði ríkissjóður gjaldþrota á einum mánuði. Eg kaupi nefnilega ekki brenni- vin." ALDUR AFBROTAMANNA ER NU MIKLU LÆGRIEN HANN VAR ADUR Er það allt og sumt? Ég segi það nú kannski ekki alveg, en það er ekkert til að vinna fyrir. Ég hef aftur á móti skrifað 26 bækur og ég hæli mér af þvi að hafa brúkað ritlaunin i fangahjálpina. Hvert er megininntak starf- semi þinnar? Min vinna gengur beinlinis út yfir það að koma i veg fyrir að unglingar verði eyðilagðir með fangelsisvist og eins að hjálpa þeim, sem lent hafa i fangelsi, þegar þeir koma út. Ég kem mjög litið i fangelsin nema ég sé beðinn um það. Það er innanhússmál, sem mér kemur ekki við. Hins vegar fylgist ég með þvi, þvi mennirnir koma til min og biðja mig um aðstoð t.d. að kaupa föt. Hvað hafa margir menn notið aðstoðar þinnar i gegnum árin? Þeir eru um 2400 og af þeim er 1336, sem notið hafa ákærufrest- unar. Og núorðið er hún orðin aöalgrein starfseminnar. Hún er langt á undan öðrum löndum hvað árangur snertir. Finnst þér þú hafa hlotið þakk- læti fyrir þitt starf? Já, mjög mikið. Þeir koma til min 15 árum seinna og ef þeir þurfa eitthvað að ráðfæra sig við mig þá koma þeir. Það veitir mér mikla hamingju. En hefurðu einhverntima orðið fyrir skitkasti frá mönnum, sem þú hefur reynt að hjálpa? Já já. Ég hef orðið fyrir þvi að þurfa að forða mér frá manni, sem ætlaöi að rota mig i Banka- strætinu með Kóka kóla flösku. Þetta var maður, sem ég reyndi að hjálpa, en það var bara ekki nóg. Hann vildi fá peninga fyrir brennivini, en það vildi ég ekki láta hann fá. Þaö er oft, sem ég þarf að neita mönnum um peninga. Hingað koma menn af öllu tagi, en flestir fara samt i vinarhug. En það kemur fyrir, aö maður verður að ganga að simanum og hringja i lögregluna. En það er önnur tegund en sú, sem ég get gert eitthvað fyrir. Finnst þér opinberir aðilar hafa sýnt þessari starfsemi nægan skilning? Já, fullkomlega. Og fyrst og fremst Bjarni Benediktsson, sem var ekkert annað en velvildin og Gústaf Adolf Jónasson, er var ráðuneytisstjóri i dómsmála- ráðuneytinu. Hann var einstakur heiðursmaður og sýndi mér fulla vinsemd. Einnig Valdimar Stef- ansson, saksóknari rikisins og Baldur Möller, núverandi ráðu- neytisstjóri i dómsmálaráðuneyt- inu. Allir þessir menn hafa sýnt ein- staka velvild og þeir hafa lika fylgzt með og vita hvað hefur gerzt. Siðan vék Óscar talinu að Kvia- bryggju. Kviabryggja er opið fangelsi. Það hefur komið fyrir tvisvar, að menn hafa strokið þaðan og það voru ómögulegir menn, sem þýðir ekkert að eiga við. En hinir koma þaðan með þakklátum hug. Þar er enginn stéttamunur. Forstjórinn þar var hjá mér fyrstu fimm árin og hann hefurdrukkið i sig þá pólitik, sem ég hef. Og allir, sem hafa verið á Kviabryggju koma þaðan með þakklátum hug. Hvernig er það með afbrota- unglingana. Reynir þú að aftra þvi, að þeir séu sendir á Litla- Hraun? Ég verð að hæla mér af þvi, að það er hrein undantekning, að unglingar séu sendir á Litla Hraun til að taka út hegningu. Ég reyni að koma i veg fyrir það og þeir, sem þangað eru sendir eru þannig, að þeim er nauðsyn að þvi að vera i fangelsi. Sumir eru þannig, að þeir geta hvergi samlagazt öðru fólki og vilja helzt setja allt i háaloft. Það er þá vanalega geðbilun. Árásarmennirnir til dæmis eru venjulega geðbilaðir menn og það verður að tryggja borgurunum öryggi gagnvart slikum mönnum. En ég álit, að það eigi að vera sér- stakar deildir við geðsjúkrahúsin fyrir svona menn. Innilokunarfangelsi er hlutur, sem er búinn að vera i heiminum. Hefurðu verið lengi á þessari skoðun? Ég hef haldið henni fram alla mina ævi. Ég hef reyndar sagt frá þvi áður, en þegar ég var tvitugur, var það piltur, sem féll i það að brjota lás á skipi og fara niður i lúkarinn. Fyrir þetta var hann dæmdur i mánaðarfang- elsi. Inni hlóðst upp i honum minnimáttarkennd og hann kveið fyrir þvi að fara út. Ég fór til hans og hiföi hann upp, kom honum i vinnu og á heimili og geröi aö fyrirmyndarmanni. En ég hafði ekki efni á þvi fyrr en ég var orðinn sextugur að stofna fangahjálpina. Ég átti miklar eignir eins og t.d. Kvia- bryggju. Hana seldi ég mjög ódýrt vegna þess, að gera átti hana að þvi sem hún er. Fangahjálpin byggist ekki á sérkunnáttu, heldur einungis á þvi að hafa opið hjarta. Það er ekki allt komið undir sérþekk- ingu, eins og svo margir vilja halda fram. Finnst þér ekki að rikið sjálft ætti að reka starfsemi sem þessa? Nei alls ekki. Ég held, að þaö sé miklu betra að einstaklingar reki hana. »■ En kemur einhver i þinn stað? Já, hann kemur áreiðanlega. Ég hef ungan mann, sem hefur komið til min og unnið hjá mér. Og það eru ýmsir fleiri, sem hafa áhuga á þessu. Varðandi ákærufrestunina Óscar. Hvað heppnast hún i mörgum tilfellum? 1 niutiu tilfellum af hundrað. Hættan liggur i fyrstu mánuðunum. Þeir, sem brjóta aftur gera það i fyrstu tveimur mánuðum reynslutimans, en hinir hætta. Þetta var geysilega fyrirbyggj- andi starf og árangurinn gæti vel orðið sá, að eftir tiu ári verði færri afbrotamenn á Islandi en þeir eru núna. Aldur afbrotamanna núna er miklu lægri heldur en hann var hér áöur. Núna fer þetta niður i 15 ár, en var áður meira 18-20 ára. Rætt við Óscar Clausen um fanga- hjálp Unga fólkinu núna liður miklu betur,er hraustara og gerir meiri kröfur. Viltu þá meina, aö núna sé tvít- ugum manni minna hætt að leiðast út á afbrotabraut en áður fyrr? Já, það er enginn vafi á þvi. En svo er það annað.Áfengið á stóran þátt i afbrotunum. 1 90% tilfella held ég, að áfengið sé orsökin. Og svo núna hafa fiknilyfin bætzt inn i myndina. Þeir unglingar, sem nota þau er mjög óútreiknanl. Ég hef rekið mig mjög á það. Hér eru útlendingar, sem nota hass og með þvi ná þeir valdi á ungum stúlkum. Þó nokkrir hafa verið reknir úr landi einmitt fyrir svona hluti og það er nauðsynlegt, þvi þetta eru ævintýramenn. Lita á okkur sem einhverja frum- menn, sem við ekki erum. Siðan ræddi óscar um áhuga sinn á afbrotafræði og þá ákvörðun að láta allar sinar eignir, sem voru miklar, renna til fangahjálparinnar. Og hann heldur áfram: Ég vil ekki láta taka ungan pilt og setja hann i handjárn. Þetta brútalitet við móðurina fyrir þremur dögum var óhuggulegt. Það var fordæmanlegt. Ég kann reyndar hliðstætt dæmi. Það var kona, sem fékk að sjá barnið sitt i gegnum rúðu einu sinni i viku. Hún mátti ekki taka á þvi og hún grét og grét, þangað til tekið var i öxlina á henni og henni sagt að fara. Svo grét hún alla vikuna heima þangað til kom að næstu grátsenu. Varðandi þá unglinga, sem þú hjálpar, hver heldur þú að sé orsök þess, að þeir hafa leiðzt út i afbrot? Það er lausungin i lifinu. Hún er miklu meiri en hún var fyrir tuttugu árum. Og skólarnir hafa þvi miður engin bætandi áhrif. Ég skal segja þér, að ef allir lifðu eins fábrotnu lifi og ég þá yrði rikissjóður gjaldþrota á einum mánuði. Ég kaupi nefni- lega ekki brennivin. Það verður varla sagt, að rik- inu sé haldið uppi á brennivins- sölu. Er það? Ja, það er fleira sem fylgir sagði Óscar og hló. Þau ár, sem Óscar hefur rekið fangahjálpina hefur hann alltaf sótt þing alþjóðafangahjálparinn- ar og i vor fer hann á eitt síikt I Ulm i Vestur-Þýzkalandi. A þessum þingum hefur Óscar oft haldið ræður og allt af þegar hann stigur i ræðustól er hann kynntur sem The Grand Old Man from Iceland. A þessum þingum kynnir Óscar starfsemi sina á Islandi og árangurinn er m.a. sá, að héraös- dómari einn i Tel Aviv, ísrael, hefur tekiö upp aðferðir Óscars. Maöur þessi heitir Rubin og er yfirmaður fangabúða við borg- ina. Óscar sagði: Rúbin þessi hefur tekið það upp að koma afbrotamönnum fyrir i sveit, einn á bæ, svo þeir nái ekki að hittast. Og hann dæmir þá til að vinna kauplaust á samyrkju- búunum i tvö ár. Þetta hefur gefizt svo vel, að enginn þessara manna hefur brotið af éer aftur. Ég hitti hann i Genf og hann sagði við mig, að hann hefði tekið þetta upp eftir mér. Siðan höfum við skrifazt reglulega á . Þessi maður er einmitt sá, sem dæmdi islenzku stúlkuna, sem var uppvis að hasssmyglinu. Og hann koma eins og sjentilmaður fram við hana. Fékk hana náðaða eftir að hún hafði afplánað hálfan dóminn. A þessum þingum hef ég ávallt lagt áherzlu á það að grund- völlurinn fyrir minu starfi er frelsi og vinna. Ef maðurinn vill ekki vinna er hann vonlaus. Hvernig taka atvinnurekendur þér, þegar þú biður um vinnu fyrir fyrrverandi fanga? Agætlega og sömu sögu er að segja um bændurna. Það eru meira að segja dæmi dæmi um bændur, sem hafa tekið fimm drengi hvern eftirannan og allir hafa piltarnir orðiö fyrir- myndarmenn. Ég skal segja þér, að það verður að vera eitthvað pósitivt, sem gerist, ekkert helvitis kjaft- æði. Ég hata allt spæerriverk i sambandi við aðstoð við fyrrver- andi fanga. Það er betra að gafa þessum mönnum að borða við og við frekar en að halda eina alls- herjarátveizlu þar sem allir eru með pela i rassvasanum. Hvað finnst þér um stofnanir, eins og Upptökuheimili rikisins I Kópavogi? Ég hef nú bara heyrt um það,en ekki séð. En ég er á móti inni- lokunarstofnunum. Ég er algjör- lega á móti þvi að hrinda drengjum inn i fangelsi. loka þá inni, gera ergilega og jafnvel þjóðfélasgshatara. Að ráðið sé semsagt að senda þá i sveit? Já, tvimælalaust. En það á alls ekki að gefa með þeim. Ég hef orðið var við, að Rvik.borg hefur gefið áttaþúsund krónur á mánuði meö 12 ára dreng. Þetta eru vitlausir menn. Þaö er til að gera hann að aumingja. Þeir verða að vinna fyrir sér. Þaö er vinnan sem bjargar, en ekki hitt. Þú lætur semsagt enga fá pen- inga? Jú, ég verða að gera það stundum, en aldrei oftar en einu sinni. Ég lét t.d. dreng fá 1000 kronur um daginn. Hann átti að borga það daginn eftir, en hefur ekki látið sjá sig enn. En hann getur komið enn. Núna eru undir eftirliti Oscars u.þ.b. 300 unglingar sem njóta ákærufrestunar og við spyrjum hann hvernig hann hagi þessi eftirliti. Ég læt þá koma einu sinni i mánuði og skrái hjá mér hvað þeir starfa eða i hvaða skóla þeir eru. Og þeir Ijúga ekki aö mér. Alls ekki. Og ef ég lofa einhverju þá stend ég við. Það gera hins vegar ekki allir, sem eru að snatta i fangelsunum. Þeir láta sér loforð, sem þeir geta ekki staðið við. En mæta þeir þá á tilsettum tima? Já, já, ég þarf ekkert að kvarta. Og ef þeir mæta ekki hafa þeir kannski farið á sjóinn og þá er ég ekkertað hrófla viö þeim með þvi að hringja i þá. Það gerir þá bara nervösa. Þeir koma, þegar þeir geta. Framhald á bls. 4 o Þriöjudagur 3. október 1972. Þriðjudagur 3. október 1972.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.