Alþýðublaðið - 08.12.1972, Blaðsíða 12
KOPAVOGS APÚTEK
Opið öll kvöld til kl. 7
Laugardaga til kl. 2
Sunnudaga milli kl. 1 og 3
StNÐiBlL ASTÖÐiN Hf
EINAR OG SIR ALEC
ALLS EKKI
SAMNINGAR-
AÐEINS RABB
Fjinar Agústsson, utanrikisráð-
herra, sem nú tekur þátt i fundi
utanrikisráðherra ríkja Atlants-
hafsbandalagsins, átti i gær ann-
an fund sinn i röð meö Sir Alec
Douglas liome, utanrikisráð-
herra Bretlands, um landhelgis-
máliö. Auk þess ræddi hann i gær
við Walther Scheel, utanrikisráð-
herra Vestur-Þýzkalands um
sama mál.
Einar Agústsson átti klukku-
MÆÐRASTYRKSNEFND
Jólasiifnun á vegum Mæðra-
styrksnelndar er nú hafin. Aðal-
tiigangur söfnunarinnar hefur
einkum verið sá að hjálpa gamal-
mennum, einstteðum ma'ðrum,
Framhald á bls. 8.
stundar fund með Home á heimili
brezka sendiherrans i Brlissel i
fyrradag og siðan 20 minútna
fund aftur i gærdag, sem fram fór
i aðalstöðvum Atlantshafsbanda-
lagsins i Brussel. Þar ræddi hann
einnig við utanrikisráðherra
Vestur-Þýzkalands.
1 fréttum útvarpsins i gær-
kvöldi var haft eftir Einari
Ágústssyni, að skýrt skyldi tekið
fram, að ekki mætti lita á þessar
viðræður um landhelgismálið
sem samningaviðræður, heldur
óformlega rabbfundi.
Á fundi utanrikisráðherra
Atlantshafsbandalagins i gær
greindi Einar Ágústsson frá
fyrirhugaðri endurskoðun
Varnarsamningsins við Banda-
rikjamenn.
raðstefnan SEn
í LOK NÆSTA ARS
Sljóriiinálanefnd Allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna sam-
þvkkti á fundi sinum i gærkvöldi, samhljóða tillögu, þar sem
ákveðið er að llafréltarráðstefna Sameinuðu þjóðanna hefjist meö
tyeggja vikna lundi í nóvember-desember l!)7:i i New York.
Þessi fyrsti fundur ráðslefnunnar mun einungis fjalla um fundar-
sköp og fyrirkoinulag hennar. Annar fundur ráðstefnunnar verður
svo haldinn i Santiago i t'hile. Mun hann standa i tvo mánuði, april-
mai 11171.
líkki er ákveðið hvenær siðari fundir ráöstefnunnar verða haldn-
ir, ef haldnir verða. i tillögunni er lýst þeirri von, að llafréttarráð-
stefnunni iinini Ijúka I!I74 eða 1075, ef Allsherjarþingið sani-
þykkir. <
INNI í
HLÝJUNNI
„Veðurútlitið i Reykjavik og
nágrenni næsta sólarhring: All-
hvass norðan og sums staöar él i
kvöld...” Þannig hljóðaði spáin i
sima 17000 i gær — og þvi ekki
likur á að fjögra ára börnin á
Orænuborg lciki sér mikið úti
við i dag frcmur en i gær, þegar
Ijósmyndarinn leit þar inn til að
forvitnast um hvað fjögurra ára
börn dundi sér við þegar veðrið
cr vont og kalt.
En inni var hlýtt og krakkarn-
ir virtust ekki sakna útileikj-
anna meðan fóstran las spenn-
andi sögur fyrir þau.
FRÉTTAMENN
BJUGGUST VIÐ
UNDIRRITUN I
DAG - EN ÞAÐ
VARÚSKHYGGJA
1 gær álitu margir fréttaskýr-
endur, að samkomulag um
vopnahlé i Vietnam yrði undirrit-
að i dag eða á rnorgun, en frú
Nguyen Thi Binh, formaður n.-vi-
etnömsku sendinefndarinnar i
Paris, sagði við fréttamenn, að
það væri úr lausu lofti gripið. Hún
bætti þvi við, að stjórnin i Saigon
óskaði ekki eftir nokkurskonar
samkomulagi um frið, og ætlun
hennar sé að halda striðinu
áfram. Hún hélt þvi einnig fram,
að Bandarikjamenn styddu
stjórnina i þessu máli.
Kissinger, öryggismálaráðgjafi
Nixons Bandarikjaforseta og Le
Duc Tho, aðalsamningamaður
N.-Vietnam, ræddust við i fjóra
tima i gærdag, og búizt er við öðr-
um fundi i dag.
Þá herma fregnir frá Saigon, að
Thieu forseti hafi átt hálfs annars
tima fund með Ellesworth
Bunker, sendiherra Bandarikj-
anna i gær, og álita fréttaskýr-
endur, að sendiherrann hafi verið
að gefa forsetanum skýrslu um
gang viðræðnanna i Paris.
OTTINN VIÐ GENGISFELL
INGU VELDUR KAUPÆÐI!
„Get ég fengið bil á morgun?”
Þetta er algeng spurning, sem
bifreiðainnflytjendur verða
flestir, ef ekki allir, að svara oft
þessa dagana, og alltaf er það
nei. Svo sitja þeir eftir með sárt
ennið og horfa á eftir fólki með
fulla vasa af peningum, en allir
bilar eru fyrir löngu uppseldir,
og fleiri koma ekki fyrr en eftir
árpmót.
Einn bifreiðainn-
flytjendanna sagði i
viðtali við Alþýðu-
blaðið i gær, að hann
hafi farið til Kaup-
mannahafnar i siðasta
mánuði, og pantað 20
bila til til þess að reyna
að anna hinni gifurlegu
eftirspurn. Þegar hann
kom til landsins nokkr-
um dögum siðan sagði
sölumaður fyrirtækis-
ins, að þessir 20 bilar
væru allir seldir, áður
en þeir voru komnir til
landsins, og allt væri
komið i sama farið
aftur.
Svipaðar fregnir hefur
Alþýðublaðið haft frá innflytj-
endum heimilistækja, og m.a.
tók einn þeirra siðustu tiu upp-
þvottavélarnar, sem von er á
fyrir áramót, úr tollvöru-
geymslunni, og seldust þær
allar áður en þær komu i verzl-
unina, og fengu þó færri en
vildu. Vélarnar voru þvi sendar
beint heim til kaupendanna, án
viðkomu i verzluninni.
Alþýðublaðið hefur áður skýrt
frá þvi, að gifurlegt kaupaæði
virtist hafa gripið um sig meöal
fólks, og má af þessu sjá, að það
hefur siður en svo rénað. Eina
breytingin virðist vera sú, að
hlutirnir eru hættir að fást —
eru uppseldir. Það er samdóma
álit þeirra innflytjenda, sem
Alþýðublaðið hefur haft tal af,
að ástæðan fyrir þessu kaupa-
æði sé fyrst og fremst ótti við
gifurlegar verðhækkanir á
næsta leiti, og beinist það
einkum að dýrari hlutum, slik-
um sem segir i upphafi fréttar-
innar.
BÍLAR OG HEIMILISTÆKI
SELJAST UPP ÁDUR EN
SENDINGARNAR KOMA
TIL LANDSINS