Alþýðublaðið - 12.12.1972, Page 3
IGr&fK Vl&OFK OGc 1'ILVE.RAN/
“ÞAO HITTAST rBotNLANGAKASTi Oö V£RÐA ÁSTFANGlN REGAR HANN TEKOR ÚR H£NN/ NV?RA9"
BENZIN-
GEYMIð-
INN VAR
OPINN
Ungur maður, Björgvin
Gunnarsson, til heimilis að
Skúlagötu 74, Reykjavik, lézt á
Landsspitalanum i fyrrakvöld,
af völdum brunasára sem hann
hlaut er eldur blossaði upp i bil
hans uppi i Mosfellssveit nú um
helgina.
Björgvin heitinn var staddur
skammt frá Gljúfrasteini, er
eldurinn blossaði upp, en sam-
kvæmt upplýsingum sjónar-
votts rann billinn út af veginum
þegar eldurinn kom upp og stað-
næmdist á girðingu við veginn,
en þá féll Björgvin út úr bilnum.
Sjónarvottur þessi kom
Björgvin þegar til hjálpar, en
hann var þá orðinn alelda. Var
hann þegar fluttur á sjúkrahús,
en lézt þar i fyrrakvöld, sem
fyrr segir.
Rannsóknarlögreglan i
Hafnarfirði hefur málið til
rannsóknar, en ekki er enn vitað
með vissu hvað olli ikveikjunni.
Eldsneytisgeymir bilsins var
opinn, en ekki hafði eldur kom-
izt i hann, né heldur vélarrúmið.
Eldurinn logaði allur i farþega-
rými bilsins og brann þar mest
allt.
Björgvin heitinn var fæddur
26. mai, 1941. Hann lætur eftir
sig fjögur börn. —
FÉKK NÓT í
SKRÚFUNA
Vélbáturinn Eldborg frá
Hafnarfirði lenti i erfiðleikum
fyrir helgina, er báturinn fékk
nót i skrúfuna. Var báturinn þá
staddur undan Norðurlandi.
Vélbáturinn Harpa RE tók
Eldborgu i tog, og dró hana inn
til Akureyrar. Var Eldborgin
tekin upp i slipp hjá Slippstöð-
inni, og netaflækjan losuð aftan
úr skipinu. Var þvi verki lokið
seinni hluta sunnudags, og var
Eidborgu þá rennt á flot.
Skemmdir á bátnum urðu litl-
ar sem engar.
JÓLAFUNDUR
Kvenréttindafélag Islands
heldur jólafund á morgun kl.
20,30 að Hallveigarstöðum. Les-
ið verður úr ritverkum is-
lenzkra kvenna og Þórhildur
Olafs guðfræðinemi flytur jóla-
hugleiðingu. —
KANASJÓNVARP
Orator, félag laganema við
Háskóla Islands, efnir til al-
menns fundar um lögmæti sjón-
.varpsstöðvarinnar á Kefla-
vikurflugvelli i dag. Fundurinn
verður haldinn að Hótel Sögu,
og hefst kl. 20.30.
Frummælendur verða
prófessor Sigurður Lindal og
prófessor Þór Vilhjálmsson.
Þeir munu að loknum stuttum
inngangsorðum svara íyrir-
spurnum fundargesta um lög-
fræðileg atriði sjónvarpsmáls-
ins.
VARA VIÐ VISI-
TÖLUFÖNDRI
Ekki stendur á iiáskóla
mönnum að axla byrðarnar,
segir i bréfi til blaðs
ins frá stjórn Bandalags
háskólamanna. Stjórnin var
ar sérstaklega við visitölu
skerðingu launa i hærri launa-
flokkum. Telur hún, að hvers
konar skerðing verðlagsuppbót-
ar fyrir ákveðna hópa, brjóti i
bága við kjarasamninga rikis-
starfsmanna frá desember 1970,
og raski allri launaflokkun og
muni leiða til umróts og al-
mennrar spennu i kjaramálum.
Varar stjórn háskólamanna
stjórnvöld alvarlega við afleið-
ingum allra ráðagerða i þá átt.
Stjórnin fullyrðir að með kjara-
samningunum 1970 hafi verið
gengið á hlut háskólamanna
miðað við kjör á frjálsum
vinnumarkaði, og að þær óum-
flýjanlegu leiðréttingar, sem þá
fengust að nokkru, muni þá aft-
ur renna út i sandinn af sömu
ástæðum og fyrr.
UNGUR
ÍSLENDINGUR
DRUKKNAR
í DANMÖRKU
Það slys vildi til þann 2. desem-
ber s.l., i Hirtshals i Danmörku,
að ungur háseti af vélbátnum
Þorsteini RE 303 féll i höfnina og
drukknaði. Pilturinn hét Ilarald-
ur Pétursson, Sólheimum 34,
Reykjavik, fæddur 14. janúar
1955.
Vélbáturinn Þorsteinn er á sild-
veiðum i Norðursjónum, en strax
og hann kemur heim verða haldin
sjópróf út af slysinu.
VARAHLUTAVANDINN
leysturhjAdatsun
Varahlutaskortur i bifreiðar
hefur löngum verið mikill
höfuðverkur bifreiðaeigenda, og
þjónusta umboðanna i þessum
efnum hefur ráðið miklu um val
manna á tegundum. Nú hefur eitt
umboðanna gert þann samning
við umbjóðanda sinn, sem á að
leysa varahlutavandamálið að
mestu eða öllu leyti og tryggja
viðskiptavinunum flesta vara-
hluti með litlum sem engum
fyrirvara.
Þarna er um að ræða Datsun-
umboðið, en umboðsmaðurinn,
Ingvar Helgason, hefur gert
samning við verksmiðjurnar i
Japan um, að þær eigi jafnan
varahiutalager i Tollvörugeymsl-
unni hér, og umboðið taki af
honum jafnóðum og einstakar
gerðir varahluta klárist á lager
þess.
„Þetta er bylting i bilbrans-
anum hérna, og segja má, að með
þessu hafi japanskir bilar fyrst
náð fótfestu i landinu”, sagði
Ingvar, þegar Alþýðublaðið hafði
tal af honum.
Ingvar sagði, að maður frá
verksmiðjunum hafi komið til
landsins fyrir skömmu og iitið á
aðstæður i Tollvörugeymslunni
og kynnt sér fyrirgreiðslu útibús
Útvegsbankans, sem umboðið
skiptir við. Japananum leizt i alla
staði vel á allt þetta og gerði
samning, sem hljóðar upp á ótak-
Framhald á bls. 4
DYRAVERNDARAR
BÍTAST VEGNA
HUNDAHALDS
„Hundamálið” hefur á ný skot-
ið upp kollinum og nú i Sam-
bandi Dýraverndunarfélaga Is-
lands. 1 fréttatilkynningu frá ný-
kjörinni stjórn sambandsins, sem
blaðinu hefur borizt, er fyrrver-
andi stjórn sama sambands ekki
vandaðar kveðjurnar og þvi lýst
yfir, að staðhæfingar hennar i
greinagerð til borgarráðs varð-
andi hundahald i borginni séu
„órökstuddir hleypidómar”, sem
séu „ósamrýmanlegar hefð-
bundnum mannréttindum
borgarbúa”.
t fréttatilkynningunni kemur
fram, að á aðalfundi Sambands
Dýraverndunarfélaga tslands,
sem haldinn var i Hafnarfirði 3.
desember s.l., hafi verið sam-
þykkt ályktunartillaga með „ná-
lega helmings meirihluta at-
kvæða fulltrúanna (34:18)”, þar
sem m.a. segir:
„Þær staðhæfingar fyrrverandi
stjórnar Sambands Dýravernd-
unarfélaga tslands, sembornar
voru fram i greinargerð hennar
til Borgarráðs Reykjavikur i des.
1970, varðandi hundahald i borg-
inni, að hundahald i þéttbýli sé 1.
andstætt dýravernd, 2. þjáning
fyrir dýrin og 3. hættulegt heilsu
manna ogdýra, brjóta algerlega i
bága við yfirlýsta stefnu
(Alþjóðadýraverndunarsam
bandsins) og skoðanir heims-
þekktra visindamanna á hunda-
haldi i þéttbýli, sem er undir
opinberu eftirliti.
Ennfremur fela þessar stað-
hæfingar i sér órökstuddar og ó-
sæmandi aðdróttanir um dýra-
niðslu i garð milljóna hundaeig-
enda i erlendum borgum, stjórn-
valda þessara borga og fjölda
þjóðhöfðingja heims. Hafa þær
þvi stuðlað að kynlegum hug-
myndum um tsland og orðið is-
lenzkri dýravernd til álitshnekkis
á erlendum vettvangi”.
1 ályktuninni kemur ennfrem
ur fram, að fundurinn skorar á
Borgarstjórn Reykjavikur að
endurskoða afstöðu sina i hunda-
málinu. —
VID MÆTTIIM
EKKI í HAAG
1 fyrrinótt rann út frestur sá
sem tslendingar höfðu til að mæta
fyrir Alþjóðadómstólinn i Haag
vegna landhelgismálsins.
Enginn fulltrúi mætti fyrir
tslands hönd, enda hefur Einar
Ágústsson utanrikisraðherra lýst
þvi yfir að það yrði ekki gert, þar
eð tsland viðurkenndi ekki lög-
sögu dómstólsins i málinu.
Útfærsla islenzku landhelg-
innar verður tekin fyrir hjá
Alþjóðadómstólnum um miðjan
janúar.
NÁMSFÚLKIÐ SÖPAST
HEIM TIL JÚLAHALDS
Miklar annir eru fyrirsjáanleg-
ar i millilandaflugi islenzku flug-
félaganna fyrir jólin. Er hér um
að ræða mikinn fjölda náms-
manna sem hyggst koma i jóla-
leyfi.
O
Hjá Flugfélagi tslands hefur
verið ákveðið að fjölga aukaferð-
um verulega, bæði á innanlands-
flugleiðum og erlendum.
Aukaferðirnar hefjast 16. desv
en þangað til verður flogið sam-
kvæmt áætlun nema tilefni gefist
til fleiri ferða fram að þeim tima.
Til Hafnar verður flogið á
hverjum degi fram að aðfanga-
dag, til Frankfurt am Main,
laugardaginn 16. des. og á
Þorláksmessu. Til Osló sunnudag
17. des. og fimmtudag 21. des.
Glasgow, mánudag, miðvikudag
og föstudag fyrir jól. Þá verður
ein aukaferð til London þriðjudag
19. desember.
Þessa slðustu viku fyrir jól
verða þotur Flugfélagsins i milli-
landaflugi með fullum sætafjölda,
120 i hvorri þotu, i stað 75 sæta,
sem venja er að hafa i vetrar-
áætlun, og þá er hluti farþega-
rýmis notaður til vöruflutninga.
O
Hjá Loftleiöum eru áætlaðar
fimm aukaferðir frá Kaup-
mannahöfn, Osló og Stokkhólmi,
þar af þrjár ferðir frá Höfn, og
tvær frá Osló og Stokkhólmi. Má
segja að hér sé eingöngu um is-
lenzka námsmenn að ræða i þess-
um aukaferðum, og var gripið til
þess ráðs að sameina hópa frá
Norðurlöndum. Ekki er reiknað
með að þurfi að fjölga ferðum
milli Luxemburg og New York.
BÍLARNIR
„VERULEG
IDGJALDA-
HÆKKUN”
NAUÐSYN
,,Eg tel aö á næsta ári þurfi
vafalaust að koma til veruleg
hækkun á iðgjöldum bifreiða-
trygginganna”, sagði Bjarni
Þórðarson, framkvæmda-
stjóri Sambands islenzkra
tryggingafélaga, i samtali við
Alþýðublaðið I gær.
Bjarni sagði, að svo virtist
sem tjón verði talsvcrt færri á
þessu ári en i fyrra, en hins
vegar hefði kostnaður vegna
tjónanna aukizt nijög mikið.
Skýringin á þvi, hvers vegna
tjónafjöldinn hefur minnkað
frá siöasta ári, er talin sú, að i
allmörgum tilvikum hefi ein-
staklingar gert upp tjón sin án
milligöngu tryggingafélag-
anna, eftir að 7,500 króna
sjálfsábyrgð bifreiðaeigenda
kom til sögunnar á þessu ári.
Unnið er að gerö áætlunar á
vegum tryggingaféiaganna
um afkoinu bifreiðatrygging-
anna á yfirstandandi ári, en
þvi verki er ekki lokið, að sögn
Bjarna Þórðarsonar.
Nýtt tryggingaár hefst 1.
mai. —
Þriðjudagur 12. desember 1972
o