Alþýðublaðið - 12.12.1972, Síða 16
' ,
KOPAVOGS APOTEK Qpið öll kvöld til kl. 7 Laugardaga til kl. 2 • iBl UMMBU.AS1ÚWN Hf
: Sunnudaga milli kl. 1 og 3
BRÉF STÖRFYRIR-
TÆKJA Á UPPBOÐI
Illutabréf i ýmsum þjóðkunn-
um stórfyrirtækjum verða seld
hæstbjóðendum á opinberu upp-
boði hjá embætti Borgarfógetans
i Heykjavik i dag. Má þar til
nefna Verzlunarbanka íslands
hf., Loftleiðir hf., Eimskípafélag
islands hf., Borgarvirki hf., og
Stálborg hf.
Verður þetta að teljast nokkur
BÍLSTJÓRAR SETTU
Eftir mikið stapp varð það úr,
að leigubilstjórar samþykktu
styttingu vinnuviku sinnar, sem
þýðir raunverulega, að þeir setja
næturtaxtann á mælinn klukku-
tima fyrr en verið hefur hingað
til. Það gerðu þeir svo i fyrsta
sinn klukkan fimm á föstudaginn,
og breyttu honum ekki aftur fyrr
en á mánudagsmorgun.
önnur breyting, sem varð á
taxta leigubilstjóranna, er nefni-
lega sú, að næturtaxtinn gildir
allan laugardaginn, en áður var
ekið á dagtaxta klukkan 8—12 þá
daga. Með þessu hafa leigubil-
stjórar aflað sér 40 stunda vinnu-
viku, — liklegast siðastir allra
stétta.
En hvað þýðir þessi breyting
mikla kauphækkun? Að þvi er Al-
þýðublaðið hefur eftir meðlim i
gjaldskrárnefnd atvinnubilstjóra
er kauphækkunin, gróft áætluð
12%. Dagvinnutaxtinn verður sá
sami sem áður, eða um 330—340
krónur á timann að meðaltali.
MISTÖK KOSTUDU
25 MANNSLÍF
Gróf mistök járnbrautarvarðar
urðu þess valdandi að 25 manns
létu liíið i járnbrautacslysi i
Búlgariu á sunnudaginn.
Brautarvörðurinn beindi far-
þegalest inn á braut þar sem
vörulest var á fullri ferð. Lest-
arnar rákust saman, og fórust 25
manns og 10 slösuðust alvarlega.
Fyrir skömmu barst Sjó-
mannasambandi Islands stuðn-
ingsyfirlýsing frá Bö og Malnes
Distriksfiskarlag iNoregi, vegna
útfærslu islenzku landhelginnar.
Var yfirlýsing þar að lútandi
samþykktá ársfundi samtakanna
sem haldinn var 3. desember.
nýlunda, en er þó ekki einsdæmi.
Er hér uin að ræða bréf, sem
fundist hafa i dánarbúum og
þrotabúum, scm liafa komið til
meðferðar Skiptaráðandans. Eigi
að siður mun marga klæja i lóf-
ana eftir góðum kaupum. Skal
engu spáð um, hvort mönnum
verður að ósk sinni i þvi éfni, en
forvitniiegt er þetta uppboð, hvað
sem öðru líður.
í NÆTURGÍR KL. 5
Næturvinnutaxtinn var 4—500 kr.
á timann, en samkvæmt þessari
12% hækkun verða timalaunin um
448—560 krónur.
Segja má, að miðað við kaup
ýmissa annarra sé þetta ekki of
mikil hækkun. Raunhæft er t.d. að
miða við útseldan tima á verk-
stæðum, en þar kostar dagvinnan
370 kr., eftirvinnan 480 kr. og
næturvinnan 595 kr. auk þess eru
atvinnutæki leigubilstjóra frekar
dýr, en algengt er að bilar þeirra
kosti nær niu hundruð þúsundum.
BORGIÐ
Eftir mikið erfiði og baráttu
i heilan sólarhring tókst Sigl-
firðingum á laugardag að
rétta togarann Hafliða við, en
sem kunnugt er sökk skutur
skipsins á föstudagsmorgun-
inn, þar sem það lá við haf-
skipabryggjuna á Siglufirði.
Mjög miklar skemmdir urðu
á togaranum, einkum vélum i
vélarúmi, þar sem allt fylltist
af sjó.
Allt er á huldu enn uin or-
sakir óhappsins, en sjópróf
fara fram næstu daga á Siglu-
firði vegna slyssins og munu
þau væntanlega leiða i ljós,
hvað olli þvi, að skipið sökk að
nokkru þarna i höfninni.
Kristján Möller, fréttaritari
Alþýðublaðsins á Siglufirði tók
meðfylgjandi mynd af tog-
aranum Hafliða á föstudag-
inn.
Eins og Alþýðublaðið skýrði
frá á laugardag hefur togarinn
verið á söluskrá i marga mán-
uði, en enginn kaupandi fund-
izt. Togarinn hefur legið ónot-
aður i höfn á Siglufirði siðan
snemma á þessu ári, er honum
var lagt, þar sem áhöfn fékkst
ekki ráðin á skipið.
tæki. bar verður nýlenduvöru-
verzlun, raftækjabúð, bygg-
ingar- og útgerðarvöruverzlun,
bakari og vörumóttaka flutn-
ingabila og hjólbarðaverkstæði.
Auk þessara fyrirtækja er fyrir-
hugað, að þarna verði til húsa,
— raunar uppi á húsinu, — ver-
búðir hlutafélagsins Sjóbúð h/f,
sem Alþýðublaðið sagði frá i
haust.
Liklega veitir ekki af að koma
upp þessani þjónustumiðstöð á
Ölafsvik, en i ár hafa verið veitt
32 byggingarleyfi til ibúðabygg-
inga. begar eru hafnar fram-
kvæmdir við 22 þeirra, og flutt
verður inn i nokkrar ibúðir upp
úr áramótum.
öll húsin verða hituð með raf-
magni, en verið er að setja upp
500 kilówatta disilrafstöð við
Fossárvirkjun. Að henni við-
bættri verður framleiðsla virkj-
unarinnar samtals 2.250 kw.
Það er ekki aðeins stórhugur i
Ólafsvikingum i húsabygging-
um, —á árinu hafa verið keypt-
ir þangað fjórir bátar. Stakkholt
h.f. hefur keypt Arnfirðing, 105
lesta stálbát, Hörður Sigurvins-
son kom nýlega til Ólafsvikur
með Hersi, 37 tonna bát, frá
Norðfirði, Gunnar. Jónasson
keypti Hring, 87 lesta bát, frá
Þorlákshöfn og Hreiðar Jónsson
keypti Portland, sem er 12 tonn.
Með þessum bátum er báta-
stóllinn i Ólafsvik orðinn 25 þil-
farsbátar, en tveir þeirra eru i
viðgerð eftir bruna og komast
ekki i gagnið fyrr en á næstu
vertið.
Afli bátanna var ekki góður i
sumar, frekar en annarsstaðar
á landinu, en glæddist með
haustinu. En þá var það veðrið
sem hamlaði veiöum, þar sem
tiðarfar hefur verið mjög óhag-
stætt.
Aflatregða og gæftaleysi
draga þó ekki kjarkinn úr Ólafs-
vikingum, eins og bátakaupin
sýna, og auk þess hafa undan-
farið staðið yfir ýmsar breyt-
ingar og endurbætur á fisk-
vinnslustöðvum, og eru það
framkvæmdir upp á nokkrar
milljónir samanlagt. Má nefna,
að hjá Fiskverkun Viglundar
Jónssonar hefur verið gengið
frá vöskunar- og fiskverkunar-
húsi og geymslu fyrir þurrfisk,
auk þess sem 400 fermetra fisk-
verkunarhús hefur verið reist.
Fiskverkunarhús af sömu stærð
hefur einnig verið reist hjá
Bakka sf., auk 400 fermetra
hitaleiðslu, sem var lögð i húsið,
og frágangi á kaffistofu og
snyrtingu fyrir starfsfólk.
Kostnaður við þessar fram-
kvæmdir er samtals sjö og hálf
milljón króna.
ANKAR GAMALL
Það er vissulega ástæða til að
ætla, að mennirnir hafi ætlað að
selja hass hér, og sterkar likur
benda til, að a.m.k. annar þeirra
hafi gert það áður, sagði Þorgeir
borsteinsson fulltrúi lögreglu-
stjórans á Keflavikurflugvelli i
viðtali við blaðið i gær.
Sem kunnugt er, voru tveir
útlendirigar handteknir á Kefla-
vikurflugvelli á föstudaginn var,
og fannst tæpt kiló af hassi i fór-
um þeirra.
í HETTUNNII
Annar er Bandarikjamaður, en
hinn frá Belgiu. Vitað er að annar
mannanna kom hingað til lands i
siðasta mánuði, og leikur nú
sterkur grunur , á, að hann hafi
nú ætlað sér aö endurtaka það.
Þeir hafa nú báðir verið
úrskurðaðir i allt að 30 daga
gæzluvarðhald og sagði Þorgeir
að rannsókn málsins væri enn á
frumstigi, og ekkert hægt að
segja enn um, hvort mennirnir
væru i sambandi við einhvern
fikniefnasala hér. —
Það fer aldeilis að verða
stórborgarbragur á Ólafsvik, en
þar er nú verið að byggja 960
fermetra verzlunar- og iðnaðar-
hús, sem á að hýsa fimm fyrir-
Veturinn kom til Hornfirðinga í gær
Veturinn kom ekki til þeirra
Hornfirðinga fyrr en i gærmorg-
un, en fram að þvi nutu þeir nán-
ast sumarbliðu, að undanskildum
einum degi, þegar jörð gránaði
45% MEÐ
NATO-AÐILD í
DANMÖRKU
Aðeins 45% danskra kjós-
enda vill aðild Danmerkur að
Atlantshafsbandalaginu.
Þetta var niðurstaða skoð-
anakönnunar sem danska
blaðið Berlinske Tidenide
gekkst fyrir.
18% kjósenda vilja nú þegar
úrsögn úr NATO, en 37% kjós-
enda hafa ekki skoðun á mál-
inu, og fer sú tala -stöðugt
hækkandi. Virðist þvi sem
Danir hafi ekki áhuga á þess-
um málum nema að litlu leyti.
litilsháttar. Og sumir Hornfirð-
ingar fullyrða jafnvel, að vetrar-
veður hafi ekki komið þar um
slóðir siðan einhverntimann á
árinu 1971.
Þegar við töluðum austur i gær
sagði heimildarmaður okkar,
Egill Jónasson, verkstjóri i
frystihúsi Kaupfélagsins, að logn-(
drifa hafi verið um morguninn, en
gert austan storm með krapahrið,
þegar á daginn leið. bað sagði
hann væri vetrarveður, sem
Hornfirðingar könnuðust mæta
vel við.
Undir kvöldið var átta senti-
metra djúpur jafnfallinn snjór, og
færð þvi góð, bæði i þorpinu og i
sveitunum i kring. Hinsvegar
sagði hann, að mikil hálka væri á
götunum, og Lónsheiöin hélt hann
væri ófær.
Þrátt fyrir einmuna tið til
landsins sagði Egill okkur að
gæftir hafi verið litlar til sjó-
sóknar I haust, og bátar séu
hættir róðrum.
Siðast var tekið á móti fiski i
frystihúsinu i gær, og bjóst Egill
við að lokið yrði viö að vinna hann
i dag. Þá verður tekið til við að
undirbúa frystihúsið undir
vetrarvertiðina, en þeim fer nú að
fækka vertiðunum, sem húsið
verður notað, þar sem nýtt frysti-
hús er i byggingu og verður tekið i
notkun eftir eitt til tvö ár.
ÓLAFSVÍK