Alþýðublaðið - 28.12.1972, Page 7
og ferðafólk ógnar mörg
þúsund ára gömlum
menningarverðmætum
með eyðileggingu
Johannes Nicolaisen, C>
prófessor við Kaupmanna-
hafnarháskóia er orðinn
tuarega-hirðingjum í
Sahara og hefur þar
eignast tvo bræður
VÍSINDIN OG PLASTIÐ ETJA KAPPI UM NATTURUBORNIN
Það er að verða hver siðastur
fyrir visindamenn, sem ætla sér
að rannsaka frumstætt fólk hér á
jörð. Ástæðan er sú, að plast-
byltingin fer sem logi yfir akur, —
einnig meðal frumstæös fólks. Og
ef þjóðfræðingarnir verða ekki á
undan plastinu er tækifærið til að
kynna sér menningu þessa fólks
að engu orðið.
A minna en fimm árum hafa
þýöingarmiklir þættir
menningar, sem til varð á meira
en þúsund árum hjá tuaregum,
hirðingjakynflokki i Sahara, með
öllu horfið. Land tuareganna
liggur i suðurhluta Alsir og er
u.þ.b. 1500 km. langt og álika að
breidd, en hirðingjaþjóðflokkur
þessi fer allra sinna feröa yfir hin
ósýnilegu landamæri til Nigeriu,
Mali og að nokkru leyti einnig til
Libyu.
Prófessor einn frá Kaup-
mannahafnarháskóla, Johannes
Nicolaisen að nafni, er nýlega
kominn heim aftur eftir að hafa
heimsótt syösta hluta Sahara, þar
sem hann m.a. ætlaði að heim-
sækja tvo bræður sína, sem báðir
eru tuaregar, og bjuggu i Aiier-
fjöllum. Þvi miður var annar
bræðranna látinn, en Johannes
Nicolaisen hitti þann yngri, Hanu,
sem á nú heima i Ahadgar-fjöll-
um og tók bróðurnum frá Dan-
mörku opnum örmum, gaf honum
rúm i tjaldi sinu og lánaði honum
bezta úlfaldann sinn. Bræðra-
bandið var traust þrátt fyrir fleiri
ára aðskilnað.
Johannes Nicolaisen hefur
dvalizt alls þrjú ár hjá tuaregum
og talar mál þeirra. Rannsóknir
sinar á þessum mjög svo
athyglisverða kynþætti, sem á sér
ævaforna og háþróaða menningu,
gerði hann m.a. á 2000 km. langri
ferð með úlfaldalest um Sahara,
þar sem hann ferðaðist frá einni
kynkvisl til annarar. 1 þetta sinn
var hann boðinn hjartanlega vel-
kominn aftur af þeim tuarega-
kynkvislum, sem áður höfðu veitt
honum viðtöku sem fjölskyldu-
meðlimi.
AÐALL, LANDSETAR
OG ÞRÆLAR
— Hvernig var nú að hitta aftur
tuarega-fjölskyldu þina, spurði
blaðamaður danska dagblaðsins
„Aktuelt” Johannes Nicolaisen.
— Það varð fagnaðarfundur.
En allar þær breytingar, sem
orðið hafa, eru ekki af þvi góða.
Þegar ég heimsótti tuaregana á 6.
áratugnum þá var lif þeirra eins
og þvi er lýst i elztu heimildum.
Hið gamla tuarega-samfélag auð-
kenndist af ákaflega fast mótaöri
stéttaskiptingu. Fyrst og fremst
var það aðallinn, en meðal for-
réttinda hans var, að hann átti
úlfaldana, siðan komu land-
setarnir, sem urðu að gjalda
aðlinum skatt og einnig að annast
hin erfiðari störf.
En samt sem áður var enginn
krytur á milli þessara tveggja
stétta, sem raunar hafa haft fólk
af öðrum kynþáttum sem undir-
sáta. Tuaregarnir eru hávaxnir
og Ijósir á hörund og hafa haft
undir sinni stjórn þeldökka negra,
sem þeir héldu sem þræla, án
þess þó að hægt sé að líkja þvi
þrælahaldi við aðbúðina, sem
negrarnir hlutu hjá hvitu
MILUON RUSSNESKRA HERMANNA
VID KÍNVERSKU LANDAMÆRIN
Eru Kinverjar raunverulega
hræddir og uggandi gegn valdi
Rússa? Telja má fullvist að svo
sé, og er það ekki að ástæðulausu.
Ástæðan fyrir þvi er sú, að nú
þegar eru til staðar ein milljón
rússnezkra hermanna við landa-
mæri Kina.
Hafa K.nverjar nú þegar byggt
fjölda neðanjarðarbyrgja sem
liggja i einni aðalgötu i miðri
Peking, þar sem Kinverjar geta
leitað til ef til alvarlegra stórá-
taka kæmi við óvinaheri eða til
kjarnorkustyrjaldar kæmi.
Chou En Lai, forsætisráðherra
segir, að Rússar vilji ekki sanna
að þessi stóri liðshópur eigi að
vera ögrun við Kinverja til að
koma á stað striði. Ef svo sé ekki
þvi hverfa þeir þá ekki á brott i
stað að auka á sundrungu og
pressu á landamærunum.
Danskur blaöamaður sem var á
ferð um Kina nýverið, fékk að sjá
hvernig umhorfs er i neðan-
jarðarbyrgjunum.A gangstéttum
götunnar mátti lita ótalmörg
sementsrör sem þrædd voru ofan
i jörðina og áttu að vera til að loft
kæmist niður i göngin. Hleri var
opnaður á stéttinni og gengið upp-
rétt niður i byrgin. Gangarnir
sem gengið var um virtust aldrei
enda taka. Einnig voru gangarnir
það mjóir, aö ekki tókst nema
tveim að ganga samtimis inn öll
göngin, og aðeins tveir metrar til
lofts. Eftir fimmtán minútna
gang var gengið niður á við. Inn-
an tiðar var komið átta metra
niður i jörðina. Loks var komið
inn i stóran klefa þar sem inni var
neyðartalstöð.
Nú loksinsfengustskýringar á,
hvers vegna útlendingum var
leyft að sjá byrgið. Núverandi
ráðamenn i Kina hefðu fullyrt, að
á meðan imperialismi væri rikj-
andi i heiminum, mættu Kinverj-
ar búast við striði og bæri öllum
Kinverjum skylda til að búa að
sem beztum vörnum ef til styrj-
aldar kæmi.
I þeirri götu sem byrgin eru
staðsett i, vinna að jafnaði um
1800 manns á 270 metra löngu
svæði. Búizt mætti við, að við-
skiptavinirnir sem i verzlanirnar
komi, se’u ekki færri en 8000, þó
þeir margfaldizt ef eitthvað er
sérstakt um að vera i götunni.
Þeim sem unnu við byggingu
byrgjanna var ætlað að vinna að
undir kjörorðum Maos: „Verið
viðbúin striði”.
Hér eru um að lita margra kiló-
metra löng göng þar sem fólk get-
ur flykkst niður i, ef nauðsyn
krefur, á örfáum minútum.
Ungur Kinverji segir að nauð-
synlegt sé að hafa þessi mikil-
vægu byrgi til taks, ef kæmi til
götubardaga, og sérstaklega bæri
að hafa i huga, að byrgin skuli
vera höfð öll samliggjandi i göt-
unni.
I herbúðum i nánd viðNanking
er kinverskur herforingi spurður,
hver sé raunverulega þeirra höf-
uðóvinur? „Það eru allir sem
þjarma að okkur” sagði hann, „i
þessu tilviki má segja að Rússar
séu okkar höfuðóvinir, þar sem
þeir eru til staðar með mikinn
fjölda hermanna við landamæri
okkar”.
Varaformaður byltingarráðs-
ins i Shanghai var fyrstur til að
ræða opinskátt um Lin Piao sem
hugðist og hafði nærri tekizt að
myrða Mao-tse-Tung. Lin Piao
hugðist ætla aðkollvarpa grund-
vallarreglum Maos, þar sem
hann hafði aðrar hugmyndir um
utanrikisstefnu þjóðarinnar.
„Það eru ekki aðeins nærliggj-
andi þjóðir sem hafa verður auga
á, það verður einnig að varna
gegn þeim sem vilja og ætla að
reyna að grafa undan núverandi
rikisskipulagi og hyggjast koma á
gamaldags hugsunarhætti og
skipulagi sem rikjandi var áður
en byltingin var gerð i landinu.
OG KINVERJAR UNDIRBUA SIG
MEÐ NEÐANJARÐAR BYRGJUM
ÞETTA
GERÐIST
LÍKA ...
ÞJQÐSKJALA-
SAFNIFÆRÐ
RÚM HÁLF
MILLJÓN
Snemma á þessu ári færði frú
Jórunn Jónsdóttir, Eskihlið 6B i
Reykjavik, Þjóðskjalasafni Is-
lands að gjöf verðtryggð spari-
skirteini útgefin 1968, samtals að
nafnverði kr. 200.000,00 til minn-
ingar um son sinn, Ingvar
Stefánsson skjalavörð, sem and-
aðist 30. april 1971. Gjöf þessi er
gefin i þvi skyni, að henni verði
varið tii útgáfu sagnfræðilegs
heimildarrits eða rita úr skjölum
Þjóðskjalasafns tslands og verði
útgáfan tengd minningu Ingvars
heitins. Raunverulegt verðgildi
þessara bréfa verður hinn 25.
febrúar 1973 rúmlega 500 þúsund
krónur.
1 frétta tilkynningu Þjóðskjala-
safnsins segir m.a.: „Ingvar
Stefánsson hafði starfað um nær-
fellt sex ára skeið við Þjóðskjala-
safn íslands, er hann féll frá i
blóma aldurs sins, og átti safnið
þá á bak að sjá frábærum starfs-
manni. Þjóðskjalasafnið hefur
með þakklæti veitt viðtöku þess-
ari höfðinglegu gjöf frú Jórunnar
og metur mikils þann vinarhug og
það traust i garð stofnunarinnar,
sem lýsir sér i þessari gjöf”.
Nú hefur verið ákveðið, að fé
þessu skuli varið til að gefa út
bréfabók Þorláks biskups Skúla-
sonar, er sat Hólastól á árunum
1628-1656. Hann er nú einkum
kunnur fyrir fornmenntaáhuga
sinn og bibliusafn. Bréfabók
þessi, sem nú er varðveitt i Þjóð-
skjalasafni, en áður i Landsbóka-
safni og þaðan komin vestan úr
Flatey, er eftirrit frá siðustu ára-
tugum 17. aldar
EINN FEKK TAUGA-
ÁFALL - SEX SKILDU
Edwin „Buzz” Aldrin, sem
lenti manna fyrstur á tunglinu,
ásamt Neil Armstrong i júli
1969, gerði það heyrinkunnugt
fyrir skömmu, að hann hefði
fengið taugaáfall eftir tungl-
ferðina. Hann sagði, að ástæðan
fyrir taugaáfallinu hafi alls ekki
verið álagið, sem fylgdi þvi að
þjóta um himingeiminn, heldur
það sem á eftir fylgdi, — nefni-
lega að verða þjóðhetja eftir
lendinguna. Hann sagði, að
álagið, sem þvi fylgdi, hafi verið
óþolandi.
Hvert augnablik i lifi hans
fyrir geimferðina, og á meðan á
henni stóð, var þaulskipulagt,
en enginn bjó hann undir eftir-
köstin.
Nú er Aldrin að skrifa bók,
sem á að bera heitið „Snúið
aftur til jarðar”, þar sem segir,
að geðlækningameðferð, sem
hann gekkst undir eftir geim-
ferðina, hafi verið haldið
leyndri vegna almenningsálits-
ins. Geimferðahetjur urðu að
vera flekklausar.
En nú hefur Aldrin ákveðið að
þegja ekki lengur. Hann segir,
að geimfarar séu valdir eftir
ýmsum reglum, en aðalregluna
segir hann þá, að treysta megi
væntanlegum geimförum full-
komlega. „Við verðum að vera
eldklárir I kollinum”, segir
Aldrin.
„En það sem kom fyrir mig
getur komið fyrir hvern sem er.
Ég held, að enginn okkar hafi
raunverulega vitað hvernig átti
að bregðast við”.
Aldrin er nú ráðgjafi nokk-
urra fyrirtækja og býr með konu
sinni, Jane, i Los Angeles.
Ýmsir aðrir geimkönnuðir
hafa gert gagngerar breytingar
á lifnaðarháttum sinum eftir
heimkomuna til jarðar.
Sex þeirra hafa skilið við kon-
ur sinar. James Irwin, sem fór
með Apolló 15., gerðist evan-
geliskur prédikari og Edgar
Michell, sem varð sjötti maður
til þess að ganga á tunglinu, er
seztur i helgan stein og stundar
rannsóknir á hugsanaflutningi.
Aðrir geimfarar eru orðnir
rikir menn og gegna mikilvæg-
um stöðum i iðnaðinum. Walter
Cunningham segir: „t stað þess
að leyfa okkur að vera mann-
legir vildu þeir, að við hegðuð-
um okkur eins og við værum
skátar og byggjum i klaustri”.
Bygging dvalar-
heimilis fyrir
aldrað fólk
„Það hlýtur að vekja nokkra
furðu, að Reykjavikurborg hefur
aldrei fram á þennan dag reist né
rekiðelliheimili, og hefur þó þörf-
in á þvi sviði verið mikil”.
Þannig er m.a. komizt að orði i
tillögu, sem minnihlutaflokkarnir
i borgarstjórn Reykjavikur hafa
lagt fram um byggingu dvalar-
heimilis fyrir aldraða i höfuð-
borginni og stóraukna aðstoð
Framhald á bls. 4
mönnunum á nýlendutimunum.
Afstaða tuareganna til þrælanna
var einna helzt áþekk afstöðu
þeirra til barna sinna —
foreldrarnir höfðu sams konar
framfærsluskyldum að gegna
varðandi þrælana og börnin.
Nú hefurstjórnin i Alsir bannað
þrælahald, einnig þá tegund þess,
sem tuaregar stunduðu. Enginn
ætti að harma það, en samt sem
áður hlýtur maður að viðurkenna,
að með þvi hefur ákveðinn hluti
samfélagsbyggingarinnar hjá
tuaregum verið gjörónýttur. Og
um leið hafa — af orsökum, sem
enginn veit skýringu á — miklir
þurrkar herjað á lönd tuareganna
i fleiri ár samfleytt. í norður-
héröðunum hefur ekki rignt nógu
mikið til þess að gras sprytti og
afleiðingarnar eru þær, að
tuaregarnir hafa misst stóran
hluta af geita- og úlfaldabústofni
sinum.
Eini möguleikinn, sem þeir
eiga til að geta bjargað sér undir
þessum kringumstæðum, er að
grafa brunna og reyna að veita
vatni yfir jarðveginn. Á nokkrum
stöðum höfðu þeir fengið sér fasta
bústaði og voru byrjaðir að rækta
hirsi og hveiti með hjálp tilbúins
áveitukerfis.
En þab vill hirðingjaþjóð-
flokkur undir eblilegum kringum-
stæðum alls ekki gera. Það er svo
sem nógu auðvelt að segja, að
þessi letiblóð geti fariö að reyna
að vinna eitthvað. En þau viðhorf
eru rótföst i þúsund ára gamalli
menningu þeirra, að það sé
skammarlegt að vinna likamlega
vinnu.
í tjaldbúðunum, þar sem ég
dvaldi, höfðu börnin grafiö brunn
og áttu sér nokkra garða, hver
um sig álika stór og meðalstór
dagstofa. En þeir gáfu ekkert það
af sér, sem máli skipti fyrir
heimilið. Sumar kvennanna
bjuggu til leðurvörur. Karl-
mönnunum datt ekki einu sinni i
hug að snerta við þessum hlutum.
En þetta er ekki merki um leti.
Það kemur m.a. fram i þvi, að
karlmennirnir leggja á sig
óhemju erfiði þvi samfara að
reka bústofninn á beit i vinjum og
á ferðum um fjallahéröð, þar sem
lestarreksturinn getur verið ótrú-
lega erfiður.
En úlfaldalestirnar eru ekki
lengur einráðar, eins og áður
fyrr. Vörubilarnir eru smátt og
smátt að þoka úlföldunum til
hliðar og aukinn ferðamanna-
straumur setur sinn svip á lifs-
venjur tuareganna. t geitar-
skinnsvatnspoka fer t.d. skinn af
heilli geit þar sem plastkútur
getur hins vegar gert alveg sama
gagn. Úr geitaskinninu búa
tuaregarnir þá heldur til tösku,
sem ferðamenn eru fúsir til að
borga mikið fé fyrir. Af sömu
ástæðum eru tjöldin, sem áður
voru gerð úr geitaskinnum, nú
keypt tilbúin úr segldúk. Með
aðeins einni kynslóð mun kannske
það vandaða gamla handverk,
sem einkenndi þessa hluti, ger-
samlega týnast og hverfa.
Þar til viðbótar koma svo
áhrifin frá ferðafólkinu, sem nú
er farið að sjást á mörgum þeim
slóðum, þar sem leiðir
tuareganna liggja. Ferðamanna-
straumur eyðileggur náttúru-
börnin.
— Hvaða þátt i lifi tuareganna
fjallaðir þú einkum og sér i lagi
um i siðustu heimsókn þinni?
— Að þessu sinni hafði ég
mestan áhuga á ættarböndunum.
Fjölskyldutengsl tuarega eru
mjög sterk. Þótt fjölskyldan
skipti sér ekki svo ýkja mikið af
unga fólkinu áður en það gengur i
hjónaband, þá er hjónabandið
sjálft svo sannarlega mál fjöl-
skyldunnar þar sem hún tekur
allar ákvarðanir. Ungur maður á
helzt að kvænast frænku sinni.
Samheldnin innan hvers ættboga
er ákaflega sterk og tuaregarnir
eru mjög góðir við börn sin.
Formlegt uppeldi er þó ekki til.
Þar er fyrst og fremst um að ræða
fordæmi, og þegar börnin eru t.d.
tiu ára gömul eða um það bil, þá
geta þau séð um úlfaldana og
taka þátt i mörgum öðrum störf-
um, sem að kalla. Tuaregarnir
eru múhameðstrúar, en fjöl-
kvæni tiðka þeir þó ekki og
konurnar njóta hjá þeim miklu
meira frjálsræðis en t.d. hjá
Aröbum.
Framtið tuareganna er óviss.
Þurrkarnir hafa fækkað mjög bú-
stofni þeirra og i vinjabæjunum
hafa vörubilar byrjað að etja
kappi við hinar ævafornu úlfalda-
lestir. Ef þróunin heldur áfram i
sömu átt munu aðeins tiltölulega
fá ár liða þar til tuaregarnir
hætta að vera til sem hirðingja-
þjóðflokkur. Og ef þeir neyðast til
þess að fá sér fasta búsetu i þeim
héröðum, þar sem hægt er að
stunda akuryrkju, þá er brott
failin sjálf forsendan fyrir þúsund
ára gamalli menningu þeirra.
Vitt og breitt um jarðar-
kringluna er tilveru frumstæðra
kynþátta ógnað vegna þess að
framþróunin er svo stórstig.
Sums staðar eru ónumin lönd, þar
sem rikisstjórnin vill hjálpa
frumstæðum ibúum til fram-
þróunar, annars staðar er það til
dæmis túrisminn, sem kemur
hreyfingu á hlutina.
— Hvernig er að koma úr þægi-
legum aðstæðum i Danmörku og
dönsku loftslagi i brennandi heitt
eyðimerkurloftslag og aðbúð
frumstæðs eyðimerkurþjóð-
flokks?
— Þeirri breytingu venst
maður fljótt. Það er miklu
erfiðara að fara hina leiðina, úr
hinum einföldu lifnaðarháttum og
sterku f jölskyldutengslum
tuareganna i danskar aðstæður.
Þar fyrir utan eru tuaregarnir
beztu og geðfelldustu manneskj-
ur, sem maður getur óskað sér að
fyrirhitta.
Hvað mundir þú gera, ef þú ynnir
miiljón í Happdrætti SÍBS?
JJX, bJXO ER HJEGTAÐ
GERJX SUO MJXRGT
Við fjölgum í ár þeim vinningum sem
koma sér bezt, ekki fáum svimandi
háum. Vinningsupphæðin hækkar um 25
milljónir, sem fara mest í 500 og 200 og
100 þúsund kr. vinninga. Og 10 þúsund
kr. vinningum fjölgar um helming.
Vinningslíkur eru hvergi meiri.
Miðaverð 150 kr.
Verið með og gerið 1973 að happaári.
Dregið verður 10. janúar.
Happdrætti SÍBS
— vinningur margra, ávinningur allra.
Fimmtudagur 28. desember 1972
Fimmtudagur 28. desember 1972