Alþýðublaðið - 22.09.1972, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 22.09.1972, Blaðsíða 3
ÁRBÆIARMÁL: AWNAB AF ÁRÁSAHMðHNUM FIÚR- DÆMDIIR Á 2 ÁRUM Saksóknari rikisins hefur óskað eftir frekari rannsókn og sam- ræmingu vissra atriða i máli mannanna tveggja, sem réðust á gestgjafa sinn i Árbæ fyrir mán- uði. Eins og fram hefur komið i fréttum var hér um mjög fólsku- lega árás að ræða og höfu kúpubrotnaði gestgjafinn við bar- smiöarnar. Eitt af þvi, sem embætti sak- sóknara vill fá nánari skýringu á, er ástæða árásarinnar. MEÐ 5000 KRÓNUM OF MIKIÐ Það vakti grunsemdir starfs- fólksins i Sparisjóði Hafnarfjarð- ar, þegar ungur piltur, sem þekktur er af ýmsu misjöfnu, gekk inn i Sparisjóðinn um daginn og vildi fá 5000 króna seðli skipt til þess að geta borgað leigubil. Benti fólkið biistjóranum á, að liklega væri þetta þýfi, og ók hann þá piltinum 'til rannsóknarlög- reglunnar. bað kom þá á daginn, sem bankafólkið hafði grunað, og drengurinn sem er 11 ára játaði að hafa stolið peningunum. Sagðist hann hafa stolið þeim af konu i biðskýlinu við Grensásveg. Þegar hann sá svo, hvað mikið var i buddunni, datt honum i hug að skreppa i Fjörðinn og hitta gamla kunningja sina, en hann er nýfluttur þaðan, og fékk hann sér þá leigubil með fyrrgreindum af- leiðingum. Þetta átti sér stað þann 14. þ.m. og getur konan vitjað peninga sinna til rannsóknarlögreglunnar i Hafnarfirði. Þykir embættinu ekki koma nægilega skýrt fram, hvort árásin hafi verið gerð i auðgunarskyni eða hvort einskær ofstopi hafi legið að baki. Við athugun á afbrotaferli aðal- árasarmannsins kemur nefnileoa i ljós, að ofbeldisverk, sem hann hefurframið um ævina, verða al- varlegri og alverlegri með hverju árinu. Alþýðublaðið skýrði frá þvi skömmu eftir að árásin var gerð, að aðalmaðurinn væri þekktur að ofstopa. Hann hefur margoft framið ofbeldisverk og hlotið dóma fyrir. Á árunum 1970 og 1971 var hann dæmdur fjórum sinnum samtals 25 mánaða fangelsi fyrir ráns- og þjófnaðarmál. Þessi dómar eru að mestu óafplánaðir. Þá eru til meðferðar hjá dóm- sólunum nokkur mál á manninn, auk þess sem saksóknari hefur til meðferðar þjófnaðarmál á hend- ur honum. Ofan á þetta bætist svo árásarmálið. Báðir voru mennirnir úrskurð- aðir i gæzluvarðhald á sinum tima. Aðalmaðurinn hlaut 60 daga, en hinn, sem einungis er talinn meðsekur, fékk 30 daga varðhald og verður þvi laus i dag. Landhelgi 1 veiðar kallaði Niels „ryksuguað- ferðina”. Hann sagði, að sovézkir togarar hefðu oft veitt á Islandsmiðum, og varðandi hættuna frá Japan sagði hann, að Japanir hefðu stundað tilraunaveiðar við landið og á Islandi væri óttazt, að jap- anskir fiskibátar kæmu á tslands- mið, þegar önnur veiðisvæði hafa verið þurrausin. Samkvæmt fregnum frá Lond- on i gær eru Bretar enn reiðubún- ir til þess að fallast á tilboð Is- lendinga um viðræður landanna tveggja til að finna lausn á þorskastriðinu. VERDUR VÍGT Á SUNNUDAG Nýja safnaðarheimili Grens- ássóknar verður vigt á sunnu- daginn kemur klukkan 11 f.h. Biskup íslands,herra Sigurbjörn Einarson, vigir heimilið við guðsþjónustu. Heildarkostnaður við safnaðarheimilið er nú orðinn um 11 milljónir króna, þar af er ein milljón gjafafé, en heimilið er ekki fullfragengið. Kjallar- inn er t.d. ófrágenginn, en þar á að vera aðstaða fyrir æskulýðs- starf. Verður heimilið þvi bæði til guðsþjónustuhalds og sem miðstöð safnaðarins. öllu sóknarfólki hefur verið sent kynningarblað um fjárþörf heimilisins, og i þvi er stungið upp á, að hvert heimili gefi sem svarar andvirði eins stóls i sfanaðarheimilið, en það er 2,500 krónur, að sjálfsögðu eru öll minni framlög vel þegin. Að kvöldi vigsludagsins kl. 20.30 heldur kirkjukór Grens- ássóknar kirkjutónleika i heimilinu, undir stjórn Árna Arinbjarnarsonar. Heimilið verður til sýnis á vigsludaginn kl. 14—18 Sóknarprestur i Grensássókn er Sr. Jónas Gisla- son. — SEINT KOMA SUMIR — EN í gær birtist i öllum blöðum, nema Alþýðublaðinu, grein eftir Hannes Jónsson blaðafulltrúa rikisstjórnarinnar, þar sem m.a. er vikið að skrifum Alþýðublaðs- ins og málflutningi ritstjóra Alþýðublaðsins um kynningar- starfsemi Hannesar á landhelgis- málinu. Astæðan fyrir þvi, að grein þessi birtist ekki i Alþýðu- blaðinu er sú, að blaðinu hafði engin slik sending borizt frá blaðafulltrúanum og hafði rit- stjóri Alþýðublaðsins ekki hug- mynd um tilvist slikrar greinar fyrr en hann las hana i hinum dagblöðunum i gær. Laust eftir miðjan dag i gær var svo hringt til Alþýðublaðsins úr forsætisráðuneytinu og blaðið vinsamlegast beðið um að sækja þangað bréf til ritstjórans. Það var gert og kom þá i ljós, að þarna var komin grein sú, sem birzt hafði hinum blöðunum þá um morguninn. Með greininni fylgdi orðsending frá blaðafull- Sjötta og siöasta tunglferð Bandarikjamanna verður farin i desember næstkomandi og er að sjáifsögðu þegar búið að ganga frá feröaáætlun og að vanda farið nákvæmlega i sak- irnar. Þannig segir i fréttatil- kynningu, scm okkur barst mcð þessari mynd i gærdag, að tunglfararnir eigi að stiga á tunglið kl. 2,55 siödcgis aö bandariskum tima þann 11. des- cmbcr. — Tunglfararnir vcrða þrir og fara tveir ,,niður” að vanda á mcöan sá þriðji linitar hringi um tunglið. Myndin er af æfingu i geimstöö Bandarikja- manna á Klorida. Tvcir tungl- faranna sitja i farartækinu, sem þcir munu aka um mánaslóðir, cn i baksýn vinna scrfræöingar við „ferjuna”, sem á að flytja þá siðasta spölinn. SKIPSTJÓRINN ÁFRYJAÐI Skipstjórinn á Heimaey VE 1, sem er 105 tonn að stærð, var i gær dæmdur i Vestmannaeyjum i 50 þúsund króna sekt fyrir ólög- legar veiðar 1.7 sjómilur frá landi við Dyrhólaey aðfaranótt þriðju- dagsins. Við réttarhöld neitaði skipstjór- inn sakargiftum og kvaðst ekki hafa kastað fyrr en báturinn var kominn út fyrir þriggja milna mörkin, en þar er bátum undir 105 tonnum heimilt að stunda veiðar á þessu svæði. Þessi framburður hans var ekki tekinn gildur i héraðsdómnum og áfrýjaði skipstjórinn honum til hæstaréttar. KOMA ÞO trúa rikisstjórnarinnar, þar sem hann biður um birtingu sem allra fyrst. Enda þótt blaðafulltrúinn hafi átt óhægara með að koma tii- skrifi sinu til Alþýðublaðsins, en annarra blaða, þá tekur Alþýðu- blaðið að sjálfsögðu beiðni hans um fljótlega birtingu til tafar- lausrar athugunar. Blaðið hefur sjaldnast dregið lengi að birta það, sem blaðafulltrúinn hefur haft að segja. ®Sérkennari — Heyrnaruppeldisfræðingur Heyrnardeild Heilsuverndarstöðvar Reykjavikur óskar eftir að ráða heyrnar- uppeldisfræðing eða kennara með góða undirstöðu i specialpedagoik. Möguleikar eru á, að veitt verði fjárhagsaðstoð til frekara sérnáms siðar. Upplýsingar gefur forstöðumaður heyrnardeildar i sima 22400. Heilsuverndarstöð Reykjavikur. Tilkynning um innheimtu þinggjalda í Hafnarfirði og Gullbringu- og Kjósarsýslu: Lögtök eru nú hafin hjá þeim gjaldendum er hafa eigi staðið að fullu skil á fyrirframgreiðslu þinggjalda 1972, svo og þeim er skulda gjöld eldri ára. Skorað er á gjaldendur að greiða nú þegar áfallnar þinggjaldaskuldir, svo þeir komist hjá kostnaði vegna lög- taka. Sýslumaðurinn i Gullbringu- og Kjósarsýslu. Bæjarfógetinn i Hafnarfirði. Föstudagur 22. september 1972. o

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.