Alþýðublaðið - 22.09.1972, Qupperneq 5

Alþýðublaðið - 22.09.1972, Qupperneq 5
I alþydul aðið Alþýöublaðsútgáfan h.f. Ritstjóri Sig- hvatur Björgvinsson (áb). Fréttastjóri Bjarni Sigtryggsson. Aösetur ritstjórn- ar Hverfisgötu 8-10. — Simi 86666. Blaðaprent h.f. ASGEIR KVADDUR í dag fer fram útför Ásgeirs Ásgeirssonar, fyrrverandi forseta íslands. Hann andaðist á heimili sinu að kvöldi föstudagsins 15. sept- ember. Ásgeir Ásgeirsson var 78 ára að aldri er hann lézt, en hann var fæddur þann 13. mai árið 1894. Að baki átti hann óvenjulega glæsi- legan feril, enda var maðurinn miklum gáf- um gæddur samfara hreinlyndi og drengskap i óvenju rikum mæli. Ásgeir Ásgeirsson kom viða við í störfum sinum og ávallt til blessunar. Hann var guð- fræðingur að mennt, en áhugamál hans voru á miklu viðara sviði og maðurinn óvenjulega fjölhæfur. Þannig stóð Ásgeir ávallt i fylk- ingarbrjósti i hvers kyns menningar og menntamálum, hann var afburða skörulegur stjórnmálamaður, vel metinn og virðulegur diplómat þegar hans þurfti með á þeim vett- vangi, höfðinglegur forseti Alþingis íslend- inga á Alþíngishátiðinni 1930 ogvirturog elsk- aður forseti Islands. Umfram allt var þó Ás- geir Ásgeirsson hjartahlýr mannkostamaður, — drengur góður —, eins og sagt hefði verið um hann af íslendingum til forna. Höfðings- bragur hans og höfðingslund héldust i hendur við alþýðlega framkomu og sérstaka um- hyggju fyrir þeim, sem minna máttu sin. Komu þessir eiginleikar Ásgeirs mjög vel fram i starfi hans á meðan hann hafði afskipti af stjórnmálum sem alþingismaður og gerðu það að verkum, að hann varð þjóð sinni sér- staklega kær sem forseti. Menn með skap- lyndi og mannkosti Ásgeirs eru fátiðir. Slika menn hefur islenzka þjóðin ávallt kunnað vel að meta. Þannig hefur hún ávallt viljað hafa foringja sina. Ásgeir Ásgeirsson átti þvi lifsláni að fagna að eiga við hlið sér eiginkonu, göfuga og góð- hjartaða, eins og hann var sjálfur. Sú kona var frú Dóra Þórhallsdóttir. Hennar þætti i þvi mikla og góða ævistarfi, sem þeim Ásgeiri tókst að inna af hendi, má ekki gleyma. Frú Dóra Þórhallsdóttir verður eins og maður hennar, — minnisstæð öllum þeim, sem henni mættu. Það fólk af erlendu sem innlendu bergi brotið, sem heimsótti þau hjón að Bessastöðum i forsetatið Ásgeirs Ásgeirsson- ar upplifði þar ógeymanlegar stundir i návist gáfu- og góðmenna, sem þau hjón voru. Þau voru ávallt verðugir fulltrúar þjóðarinnar jafnt innávið sem útávið. Nú er Ásgeir Ásgeirsson kvaddur. Um hann segir formaður Alþýðuflokksins, dr. Gylfi Þ. Gíslason, m.a. svo i minningargrein, sem hann ritar i Alþýðublaðið i dag: „íslendingar urðu fátækari við lát Ásgeirs Ásgeirssonar. En i lifi sinu hafði hann auðgað þjóð sina, ekki fyrst og fremst með þvi að gegna helztu hefðarstöðum fullvalda rikis, heldur með hinu, að fylla jafnan sæti sitt þannig, að fyllsti sómi var að ...” „Ásgeir Ásgeirsson sameinaði það með sjaldgæfum hætti að þekkja skyldu hefðar- mannsins og skilja hugsun alþýðumannsins. Þannig eiga þjóðhöfðingjar að vera. Þess vegna verður hans alltaf minnzt með þakklæti og virðingu”. t dag kveður islenzka þjóðin einn af sinum beztu sonum. Hún þakkar honum vel unnin störf i þágu lands og þjóðar. ISLENZK FRÆDI 06 UTANRlKISÞJÚNUSTA Það er sérkennileg tilfinning að vera staddur i stórum fyrirlestra- sal aðalbyggingar Leningrad- háskóla, eiga að fara að haida fyrirlestur á ensku um íslenzka menningu, sem dreift var i rússneskri þýðingu meðal áheyrenda, en vera siðan beðinn um að segja fyrst nokkur ávarps- orð á Islenzku. Sá, sem það gerði, var dr. Steblin Kamenski prófessor, einn kunnasti fræði- maður, sejn nú er uppi á sviði norrænna fræða, heiðursdoktor m.a. við Háskóla tslands. Hann skýrði beiðni sina með þvi, að sig langaði til þess, að i þessum salarkynnum heyrðistnú íslenzka af vörum islenzks manns. Fram til þessa hefðu aðeins Hússar talað þar islenzkuí Sjálfur bar hann þessa ósk fram á lýtalausri islenzku og þýddi siðan orð min á rússnesku. Steblin Kamenski prófessor er hvort tveggja i senn, mikiii fræði- maður og mikill aðdáandi islenzkrar menningar. Það er íslendingum ómetanlegt, að slik- ur maður skuli hafa tekið jafn- miklu ástfóstri viö island og raun ber vitni. Ýmsir nemanda hans cru þegar orðnir kunnir fræöi- menn og hafa fullt vald á islenzku, svo sem Berkov, sem einnig starfar við Leningrad- háskóla. Margir nemanda hans geta lesið málið og þýtt úr þvi á rússnesku, þótt þeir hafi ekki vald á talmáli. Við háskólann i Moskvu er einnig fræðimaður, sem les og talar islenzku meö fullkomnum hætti. Vladimir Jakob, og raunar ekki aðeins islenzku, heldur einnig önnur Norðurlandamál. Hafa verið uppi ráðagerðir um, að hann yrði sendikennari i rússnesku við háskólann hér, og væri hann eflaust ágætlega til þess fallinn. Þessir og fleiri vinir tslands i Sovétríkjunum stuðla áreiöan- lega að þvi, að Island, islenzk menning og islenzkar afurðir eru vel þekkt hugtök i Sovétrikjunum. Meginstarfið að kynningu á öllu islenzku i þessu viðlenda riki hvilir þó á sendiráði Islands i Moskvu, en það nýtur nú forstöðu dr. Odds Guöjónssonar, eins reyndasta og hæfasta manns, sem islendingar hafa nú á að skipa á sviði viðskiptamála og utanrikisþjónustu. Jafnvel meðan á stuttri heimsókn stóð leyndi það sér ekki, hve vinmörg sendi- herrahjónin eru og hversu vel þau halda á málum islands i starfi sinu. Við sendiráðið starfar einnig Sigurður Hafstaö, en hann og kona hans hafa áður dvalið langdvölum i Sovétrikjunum og njóta þess i starfi sinu, að þau eru öllum hnútum þar gerkunnug. Hér heima eru störf utanrikis- þjónustunnar oft ekki metin sem skyldi. Það mun þó mála sannast, að þegar öllu er á botninn hvolft, sé gildi hennar margfalt á við þá fjármuni, sem til hennar er varið. Með þessu er ekki sagt, að ekki eigi að fara með gát með þá fjár- muni, sem varið er I þessu skyni, eins og öllu öðru. En hver sá eyrir, sem vel er varið til góðrar utanrikisþjónustu, skilar marg- földum arði. HVER VERDOR FYRSTUR? Um miðjan septem- bermánuð árið 1958 höfðu islenzku varð- skipin gert nokkrar til- raunir til þess að taka brezka togara i land- helgi. Engar höfðu þær tekizt. 1 flestum til- vikum höfðu brezk her-^j* Al%iýðublaðinu það sin á milli, hvaða varðskip myndi fá það tækifæri. Spenningur var lika nokkur hjá varðskipsmönnum, eins og sjá má af þessu við- tali við elzta skipverj- kn á Þór, sem birtist i 23. skip varnað vajðsk^jJ^^september árið 1958 mönnum að borð i landhJg^brjita í það eina s\pti, sem tekizt hafði að k varðskipsmönnum borð i brezkan toga' höfðu vopnaðir br^klf sjóliðar af freigátcSmi^ Eastbourne handtekið þá og haldið þeim föngnum i 11 daga. I lok september- mánaðar lá þó orðið i loftinu, að senn yrði brezkur togari tekinn. Og fólk ræddi mjög um „Varðskipið Þór m til Reykjavikur i rad\>. Á leiðinni iiíiuðtp'' Sl vestur með Langanesi varð ekki vart við einn einasta togara að veiðum I landhelgi. Á Norðfirði fóru af skipinu menn þeir, sem teknir voru i stað þeirra, sem Eastbourne rændi á dögunum." ,, Það er mikill spenn- ingur á milii okkar á varðskipunum um það, hver verður fyrstur til að koma brezkum land- helgisbrjót tii lands og ég vona að það falli i okkar hlut”, sagöi elzti skipverjinn á Þór og lik- lega allri landhelgis- gæzlunni, er blaðið átti tal við hann i gær. ,,Enda ætti Þór að hafa yfirburði yfir hin varð- skipin þar sem hann er stærstur og hefur mestan ganghraða”. liann heitir Jón Kristóf- ersson og varö sjötugur i júni. ,, Maður er nú að verða eins og kven- fólkið, þegar spurt er um aldurinn”, sagði Jón og hló við. Hann hefur verið á varðskipununt i 30 ár, á Þór síðan hann kom árið 1951 cn áður á Ægi. Jón sagði, að þófið á miðunum stæði við það sama siðustu dagana. Alltaf væri verið að ónáða landhelgisbrjót- ana og þeir aldrei látnir i friði. ,,Ég tel ekki liklegt, að togari undir trolli geti siglt á okkur”, sagði Jón, er talið barst að ásiglingartilraunum togaranna. Ilann kveðst viss um, enda hefur það heyrzt af samtölum milli skipanna, að skip- stjórar togaranna fái bæði leyfi og samþykki, jafnvel skipun, frá yfir- mönnum herskipanna um að reyna að sigla á islenzku varðskipin. Suntir togaraskip- stjórar svara ókvæðis- orðunt og stappa blaða- Framhald á bls. 4 KJÚRDÆMISÞIN6 Alþýðuflokksins i Norðurlandskjördæmi Vestra verður haldið á Hótel - Mælifelli Sauðárkróki sunnudaginn 24. september 1972 og hefst kl. 13. 1. 2. Gýlfi Pétur Dagskrá Þingið sett. Jóhann G. Möller Atvinnumál kjördæmisins: Pétur Pétursson, alþingismaður. Stjórnmálaviðhorfið; Gylfi Þ. Gislason, form. Alþýðuflokksins. Ávarp. Bárður Halldórsson, menntaskóla- kennari Almennar umræður og ályktanir Kosning Kjördæmisráðstjórnar. Þingslit. Kjördæmisráðstjórn. Föstudagur 22. september T972.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.