Alþýðublaðið - 05.01.1973, Side 1
albýou
LÆKNAR
TREGIR
Á GÖGN
'PILLU-
LÆKNA
MÁLIÐ
Dómsrannsókn vegna meints
misferlis lækna við ávisanir á
örvandi og róandi lyf hefur nú
staðið yfir um nokkurra mánaða
skeið, en nú er jafnvel útlit fyrir,
að málið sé komið i eindaga og
rannsókninni verði aldrei lokið,
þar sem embætti sakadómarans i
Reykjavik hefur verið neitað um
að fá að kanna gögn i málinu, sem
ráðið geta úrslitum.
Það var Alþýðublaðið fyrst
dagblaða, sem vakti athygli á
alvarlegu ástandi þessara mála i
Fann
vixilinn
„fíúc
utan
skemmti
slajf
Samkvæmt upplýsingum
Sverris Einarssonar, saka-
dómara, hcfur bifreiðastjóri
sá, sem fól á sinum tima lög-
fræðingi sinum að krefjast
fundarlauna fyrir Hagkaups-
vixil Smjörlikis h.f., skýrt frá
þvi fyrir rétti, að hann hafi
fundið vixilinn fyrir utan veit-
ingastað hér i borginni.
Sá maður kveðst ekki hafa
haft undir höndum fleiri víxla
en þennan, af þeim vixlum,
sem saknað er, og ekki vita
neitt um þá, hvorki fyrr né
siðar.
Blaðinu er ekki kunnugt um
hvort haldið verður fast við
kröfu um fundarlaun. Fari
svo, verður væntanlega skorið
úr um réttmæti þeirrar kröfu
fyrir dómstólum.
siðara hluta janúar á siðasta ári.
Blaðið dró þá fram i dagsljósið
ýmsar uggvekjandi staðreyndir
auk þess, sem Kristján Péturs-
son, tollvörður lýsti ástandinu i
viðtali við Alþýðublaðið.
Þetta varð til þess, að Læknafé- -
lagið hélt almennan félagsfund
vegna skrifa fjölmiðla og i fram-
haldi af þvi óskuðu læknar eftir
þvi við embætti saksóknara að
það léti fara fram rannsókn á
málinu.
Varð saksóknarinn við þessum
tilmælum, og þvi hefur nú að
undanförnu verið i gangi rann-
sókn þessara mála hjá sakadóm-
aranum i Reykjavik. Samkvæmt
upplýsingum Jóns A. Ólafssonar,
sakadómara, er rannsóknin m.a.
fólgin i viðtækri öflun ýmissa
gagna hjá opinberum aðiljum.
Slik gagnaöflun leiðir af sér úr-
vinnslu heimilda, sem eðlilega
tekur tima.
Þá stendur á þvi, að embætti
landlæknis telur sér ekki heimilt
að láta af hendi gögn, nema að
undangengnum dómsúrskurði.
Framhald á bls. 4
LENGSTA
ÁRIÐ
Mörgum þótti árið 1972 lengi að
liða, væntanlega vegna margra
og merkilegra atburða sem þá
gerðust, og drógu að sér athygli
manna.
Það hefur nú verið tilkynnt, að
1972 sé lengsta ár sem þekkst hafi
i sögu timatöku á jörðinni. Til
þess að rétta klukkuna, og sam-
ræma hana gangi jarðar, var
tvisvar á árinu bætt við tveimur
sekundum. Fyrst 30. júni, og svo
aftur 31. desember.
Þessar tvær sekilndur, að við-
bættum einum degi vegna hlaup-
árs gera árið 1972 þvi lengsta sem
þekkst hefur.
Árásarmaðurinn handtekinn
VITNI GÁTU
BENT Á HANN
MYNDASAFNI
Maöur sá, sem réðst á
Ingibjörgu ólafsdóttur, 19
ára stúlku, uppi i Breiö-
holti aö morgni 19. des-
ember sl. og stakk hana
á hol með hnífi, er nú
fundinn, og játaði hann á
sig verknaðinn við fyrstu
yfirheyrslur norður á
Akureyri i gær.
Maður þessi sem er 25 ára
gamall. hefur áður komið við
sögu hjá lögreglunni vegna
ofbeldisverks. i gærkvöldi átti
að flytja hann til Reykjavikur til
nánari yfirheyrslu. Njörður
Snæhólm rannsóknarlögreglu-
maður, fór til Akureyrar i
fyrradag til að hafa tal af mann-
inum er hann kæmi i land, en
hann var skipverji á skipi, sem
kom til Akureyrar i gær.
Köndin bárust stöðugt meira
að umræddum manni, eftir þvi
sem á leið rannsóknina, og stað-
festi fólk að hann hafi komið
móður og másandi inn i strætis-
vagn i Brciðholti skömmu eftir
að árásin var framin, og
skammt frá þeim stað.
Þekktifólkið manninn á mynd
i myndasafni lögreglunnar og
hnigu rökin meir og meir i átt að
honum. Þegar lögreglan taldi
sig hafa nægileg gögn i hönd-
unnm til að yfirheyra manninn,
var hann hins vegar kominn út á
sjó, og kom ekki i land fyrr en i
^æl' Framhald á bls. 4
Hérsésthvar Njöröur Snæhólm,
rannsóknarlögreglumaður
gengur á undan hnlfsstungú-
manninum niður landganginn á
flugvélinni, sem þeir komu með
frá Akureyri á ellefta tímanum i
gærkvöldi. — Annar rann-
sóknarlögreglumaður, Haukur
Bjarnason, beið þeirra á flug-
vellinum og strax á eftir brun-
uðu þeir á brott i Land-Rover
bifreið.
FAÐIRINN: „SANNARLEGA FEGINN"
,,Ég er sannarlega feginn að lögreglan er búin
að ná manninum, þvi svona menn eru stórhættu-
legir umhverfi sinu, sagði ólafur H. Sigurjóns-
son, faðir Ingibjargar, i viðtali við blaðið i gær-
kvöldi. Sagðist hann vera sannfærður um að
annaðhvort hafi maðurinn stungið dóttur sina i
misgripum fyrir aöra konu, eða hann væri
haldinn einhvcrri ofbeldisilineigð.
lngibjörg er nú á góðum batavegi, og standa
vonir til að hún fái jafnvel að koma heim af
spitalanum i dag.
KOMMUNISTAR EKKI MED I
HERSAMNINGSVIÐRÆÐUM I
Viðræðurnar um endurskoðun
varnarsamningsins við Banda-
rikjamenn munu væntanlega
hefjast i Washington um eða eftir
næstu mánaðamót. Samkvæmt
upplýsingum blaðafulltrúa rikis-
stjórnarinnar verður utanrikis-
ráðherra eini islenzki ráðherr-
ann, sem þátt tekur i þessum við-
ræðum.
Alýðublaðið beindi þeirri fyrir-
spurn til Péturs Thorsteinssonar,
ráðuneytisstjóra i utanrikisráðu-
neytinu i gær, hvenær viðræður
hæfust við bandarisk stjórnvöld
um endurskoðun varnarsamn-
ingsins.
Ráðuneytisstjórinn sagði, að
ekki væri búið að fastákveða,
hvaða dag viðræðurnar hæfust.
en kvaðst búast við, að fyrsti
fundurinn yrði i Washington um
mánaðamótin janúar - febrúar,
og af Islands hálfu tækju þátt i
fundinum Einar Agústsosn utan-
rikisráðherra, sendiherra tslands
i Bandarikjunum, og starfsmenn
utanrikisráðuneytisins.
Alþýðublaðið sneri sér einnig til
Framhald á bls. 4
EINAR AGUSTSSON
TIL WASHINGTON
UM MANAÐAMQTIH