Alþýðublaðið - 17.01.1973, Side 5
Alþýðublaðsútgáfan h.f. Ritstjóri Sig-
hvatur Björgvinsson (áb). Fréttastjóri
Bjarni Sigtryggsson. Aðsetur ritstjóm-
ar Hverfisgötu 8-10. — Sími 86666.
Blaðaprent h.f.
VITFIRRING OFBELDISINS
Fyrir aðeins örfáum dögum birtist i Alþýðu-
blaðinu forystugrein, þar sem rætt var um þá ó-
hugnanlegu ofbeldis- og afbrotahneigð, sem fer
núyfir landið eins og logi yfir akur. Benti blaðið
á, hve vanbúið þjóðfélagið er til þess að veita
mótspyrnu og löghlýðnum borgurum þá vernd,
sem þeim ber. Varaði blaðið við áframhaldandi
svefngengilshætti og afskiptaleysi ráðamanna
af afbrota- og refsimálunum og varaði m.a. við
þeim hugsunarhætti, sem um of virðist gegn-
sýra sjónarmið þeirra, sem annast eiga leið-
beinandi uppeldisstörf, að æskuna eigi að skoða
sem ábyrgðarlausa og verði unglingi á að mis-
stiga sig, jafnvel þótt um sé að ræða fyllilega
meðvitað, yfirvegað og alvarlegt brot þá eigi
alltaf fyrst að leita að sökinni hjá einhverjum
öðrum en unglingnum sjálfum.
Nú, nokkrum dögum siðar, hefur enn einn
óhugnarlegur atburður átt sér stað i Reykjavik.
Vopnaður maður ræðst inn i fjölbýlishús i einu
af ibúðarhverfum borgarinnar, veitist þar að
saklausu fólki, sem á sér einskis ills von, særir
það og gerir aðvifandi mann, sem kemur til
hjálpar ofsahræddu fólkinu, að örkumlamanni.
öll þjóðin fyllist óhug er hún frétti atburð þenna
og einlægri samúð með þeim, sem fyrir árásinni
urðu.
Margir meðal almennings hafa sagt, að mað-
urinn, sem verknaðinn vann, hafi sjálfsagt
ekki verið með réttu ráði, en bera ofbeldisverk
siðustu ára ekki vitni um, að hluti sjálfrar
þjóðarinnar sé ekki fyllilega með réttu ráði, —
að vitfirring ofbeldisins hafi heltekið hug og
hjörtu fjölmargra Islendinga? Hvernig er t.d.
með það unga fólk, sem gengur um götur syngj-
andi samtökum erlendra hryðjuverkamanna
með blóði drifna slóð lof og pris og leggur tvenns
konar mat á morð og misþyrmingar eftir þvi,
hvort þau verk eru framin i anda „réttrar
stefnu” eða ekki? Er þetta ekki lika vitfirring
ofbeldisins, talandi tákn um sjúklegt hugarfar,
sem reiðubúið er til að réttlæta misþyrmingar
og fagna morðum, aðeins ef þau eru framin af
„réttum aðilum”?
Verk eins og þau, sem framin hafa verið und-
anfariðóg valdaþvi, að skelfing hefur gripið um
sig meðal ibúa heils borgarhverfis i Reykjavik,
eru ekki einangruð undantekningatilfelli. Þau
eru miklu frekar til vitnis um siðferðisþroska
eða öllu heldur siðferðishnignun þjóðarinnar.
Bjáti eitthvað á, þá verður of mörgum Islend-
ingum nú á timum fyrst hugsað til ofbeldis til
þess að rétta sinn hlut og þar sem viðnámsþrótt-
urinn af einhverjum ástæðum er minnstur brýt-
ur eldur heiftarinnar af sér öll bönd og einstakl-
ingurinn ræðst á náunga sinn með það fyrir aug-
um að ræna, limlesta, — eða jafnvel að myrða.
Það hættulegasta er þó, þegar upp koma i
sliku þjóðfélagi kenningar um að beita eigi of-
beldið ofbeldi. Að fyrir niðingsverk eigi að
hefna, en ekki að refsa. Slikar kröfur sýna það
eitt, að ofbeldishneigð hefur fest djúpar rætur.
Við Islendingar verðum umsvifalaust að snú-
ast til varnar gegn þeirri afbrota- og ofbeldis-
bylgju, sem yfir okkur gengur og gegn þeim
hugsunarhætti, sem er gróðrarstia ofbeldis i
verki. Það gerum við með fyrirbyggjandi að-
gerðum en ekki með þvi að reyna að svala
hefndarlöngun hinna löghlýðnu borgara innan
ramma laganna. Grimmd verður aldrei eytt
með grimmd, — en ofbeldi verður ekki heldur
svæft með skeytingaleysi.
JÓN ÁRMANH UM GENGISFELLINGUNA:
SNEMMBUNU SVIKIN
Hér birtist annar hluti
af ræðu Jóns Ármanns
Iléðinssonar um gengis-
fellinguna. Fyrsti hluti
birtist i Alþýðublaðinu i
gær.
Ég veitti þvi athygli, að hæstv.
félagsrnálaráðherra sagði i gær i
ræðu sinni: „Kaupið hefur verið
geysihátt”, hins vegar man ég
eftir þvi, að hæstv. forsætisráð-
herra hefur sagt hóflegt. Ég skal
ekki vera að eltast við þennan
túlkunarmismun. Þeir um það,
hvernig túlka á hlutina misjafn-
lega, eftir þvi hvernig aðstæður
eru.
Nú þykir hæstv. félmrh. henta
að tala um geysiháa kauphækk-
un, til þess að réttlæta þessa
gengisfellingu. Ég er viss um, að
þetta hefði hann ekki sagt t.d. ef
þing hefði setið hér i september
eða i júni. Þá hefði hann ekki tal-
að svona hátt um að kaup hafi
hækkað, vegna bráðabirgðalag-
anna frá 11. júli i sumar. En þá
geta menn nú beitt þannig orð-
anna hljóðan eftir þvi hvað við á i
það og það skiptið. í sambandi við
frv., sem var hér til umræðu fyrir
rúmlega tveimurárum, um verð-
lag og atvinnuöryggi, 1970, voru
hér langar umræður. Ég hefi far-
ið i gegnum þessar umræður og
það er alltof langt mál að rekja
þær, þó væri það mjög gaman,
sérstaklega vegna tengsla vissra
manna hér i dag við rikisstjórn og
alþýðusamtökin. En þeir hefðu
gott af þvi að fletta upp i eigin
ummælum þá og hugleiða aðeins,
hvað þar stendur á tugum blað-
siðna. Ég ætla mér ekki að rifja
þetta upp, það er bezt að þeir geri
það i einrúmi.
Það var nefnilega tilkynnt i
kvöld hækkun ávini og tóbaki. Vin
á að hækka um 30% og tóbak á að
hækka um 25% og einhvern veg-
inn hefur það siast út hér i þing-
sölunum, að þetta eigi nú ekki að
koma beint inn i visitöluna og
hafa full áhrif. Ekki veit ég hvað
þetta verkar inn i visitöluna, en
svona fljótlega skoðað kynni
þetta að nálgast 2 stig. En hvern-
ig var það nú með vesalings við-
reisnarstjórnina, var hún ekki
að berjast við hækkun á vini og
tóbaki á sinum tima, i þessu frv.,
sem ég vitnaði til hér áðan? Var
hún þá ekki talin óferjandi að öllu
leyti? En hvað ætli muni ske
núna? Nú, er þetta bara einn
þáttur i tekjuöflun rikisstjórnar.
Það kemur lika fram i trúnaðar-
plaggi sem fjárveitinganefnd var
sýnt i kvöld, að það muni kosta
um 1000 millj. kr. að halda visitöl-
unni innan þessara marka, svo að
hún fari ekki yfir 124 stig á kom-
andi ári. Það er reiknað með þvi,
þó er ekkert tekið tillit til þeirra
kjarasamninga, sem verða á
komandi hausti. Það er heldur
ekkert tekið tillit til þeirra áhrifa,
Jón Arm. Héðinsson
sem nokkur verkalýðsfélög, eða
launþegafélög kynnu að ná i
gegnum samninga, sem ganga
yfir núna, m.a. við farmenn, við
vélstjóra, og við flugmenn. Gagn-
varl verkalýðshreyfingunni eru
þetta hátekjumenn. Ef þeir nú
knýja fram umtalsverða launa-
hækkun i gegnum verkfallsrétt-
inn? Dettur þá nokkrum manni i
hug, að forsvarsmenn láglauna-
fólksins geti veriðrólegir?!Sagter,
að tengslin verði ekki rofin á einn
eða neinn hátt viö visitöluna, og
hún eigi að mæla eðlilegt gildi
kaupsins. En þrátt fyrir það, þá
ætlar hæstv. rikisstj. að nota
a.m.k. 1000 millj., til þess að
draga úr þessum áhrifum og
halda kaupinu þannig innan viss
ramma, sem er ósköp skiljanlegt.
Þetta eru ósköp skiljanleg vinnu-
brögð og raunar liklega alveg ó-
hjákvæmileg vinnubrögð. Við
höfum hinir flokkarnir, sem eru i
stjórnarandstöðu, verið að bagsa
við þetta, þá sagt i fullri andstöðu
við launþegasamtökin á sinum
tima, en nú er dæminu aðeins
snúið við. Nú er kallað, að hér sé
vinveitt rikisstjórn. Hún segir það
á pappirnum, að tengslin verði
ekki rofin. Við fáum ekkert að
vita um, hvaða bandormar fylgja
þessari gengisfellingu. Við höfum
ekki hugmynd um það. Það er
ekkert látið uppi um það á einn
eða annan hátt. Við verðum þvi
vara að vona, að þeir komi með
þá bandorma, sem verkalýðs-
samtökin sætta sig við. Við verð-
um bara að vona það. Þeir
treysta sér bara ekki til þess að
skýra frá þvi. En það er til marg-
rómaður stjórnarsáttmáli, sem
menn eiga að lesa, eftir ráölegg-
ingu hæstv. forsætisráðherra
kvölds og morgna til þess að
skilja. En skyldu nú ekki flestir
hafa skilið hann svo hingað til,
þangað til þessi ósköp dundu yfir,
að gengisfelling væri ekki á næsta
leiti? Ég man eftir þvi, að þegar
ég var að berjast i kosningabar'-
áttunni litið reyndur á móti þess-
um snillingum i minu kjördæmi,
þá var þaö sagt: Það
eru þreyttir menn i ráðherrastól-
unum, úrræðalausir, lofum þeim
að hvila sig, lofum nýjum mönn-
um að koma inn, sem hafa nýjar
Kramhald á bls. 4
FLOKKSSTARFIÐ
HAFNFIRDINGAR
Alþýðuflokksfélag Hafnarf jarðar boðar til fundar i Alþýðuhús-
inu i Hafnarfirði nú i kvöld 17. janúar, kl. 20,30.
Fundarefni:
1. Bæjarmál. Bæjarfulltrúarnir Stefán Gunnlaugsson og Hörð-
ur Zóphaniasson hafa framsögu.
2. Kosningar i fulltrúaráð.
STJÓRNIN
FELAGSVISTIN
Reykvikingar. Alþýðuflokksfélag Reykjavfkur efnir til félags-
vistar n.k. fimmtudagskvöld, 18. janúar. Spilað verður i Ingólfs-
café, niðri, og verður byrjað að spila kl. 8.30 stundvislega.
Fólk er hvatt til að mæta á tilsettum tíma.
Skemmtinefndin.
ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG REYKJAVÍKUR AUGLYSIR
VIÐTALSTIMAR
ÞINGMANNA OG BORGARFULLTRÚA ALÞÝÐUFLOKKSINS
Stjórn Alþýðuflokksfélags Reykjavikur hefur ákveðið að gangast
fyrir því, að Reykvikingar geti hitt að máli þingmenn Alþýöuflokks-
ins i Reykjavik og borgarfulltrúa. Reglulegir viðtalstimar verða frá
kl. 5 til 7 hvern fimmtudag og verður auglýst fyrirfram, hverjir
verða til viðtals hvern dag.
Fyrsti viðtalstíminn verður n.k. fimmtudag, 18. janúar, kl. 5 til 7
e.h. á skrifstofum Aiþýðuflokksins, Hverfisgötu 8-10. Til viðtals
verður formaður Alþýðuflokksfélags Reykjavikur, Sigurður E.
Guðmundsson, varaþingmaður Aiþýðuflokksins i Reykjavik.
Alþýðuflokksfélag Reykjavikur.
Sigurður Guðmundsson
Miðvikudagur 17. janúar 1973
o