Alþýðublaðið - 17.01.1973, Blaðsíða 9
Iþróttir 2
NÚ TEKUR DEILDARKEPPNIN VID
AD NflD - 06 LIVERP00L FÆR
MEISTARA DERBV f HEIMSÓKN!
Chelsea-Arsenal 2
Það hefur jafnan verið um tvisýna baráttu að ræða þegar
þessi nágrannalið mætast. Arsenal er nú i 2. sæti með 37
stig, en Chelsea er i 7-11 sæti með 26 stig.
Arsenal vann Chelsea i fyrra á Stamford Bridge með 2-1,
en þar fer þessi leikur fram nú. Ég reikna með sömu úr-
slitum að þessu sinni, en bendi á jafntefli sem líkleg úrslit.
Leicester-Man.City 1
Bæði eru þessi lið neðarlega i 1. deild, þar sem Leicester
er með 20 stig og er i 17-18. sæti, en Man. City er i 13.-24. sæti
með 24 stig. Þar sem Man.City er með mjög slakan árangur
á útivelli hallast ég fremur að þvi, að Leicester vinni
þennan leik, en rétt er að geta þess að liðin skildu jöfn i
fyrra á Filbert Street án þess að mark væri skorað.
Liverpool-Derby 1
Liverpool heldur enn öruggriforystu i 1. deild með 40 stig,
en meistararnir frá i fyrra, Derby, eru i 5. sæti, með 29 stig
og hafa þvi enga möguleika á því að verja titilinn. Þar sem
Liverpool hefur enn ekki enn tapað á Anfield Road i vetur, á
ég ekki von á öðrum úrslitum en heimasigri i þessum leik.
Man. Utd.-West Ham 1
Fá lið hafa verið meira i fréttum að undanförnu en Man.
Utd., en þetta fræga lið er nú i neðsta sæti i 1. deild og kaupir
og selur leikmenn i grið og erg og gerir þannig örvæntinga-
fulla tilraun til að bæta stöðuna. Hinir tryggu áhangendur
liðsins, sem jafnan fylla áhorfendapalla Old Trafford, munu
án efa heimta sigur yfir West Ham á laugardaginn og ég
held að þeim verði að ósk sinni, þvi ég spái heimasigri.
f KVÖLD ERU ÞAD
A siðasta seðli voru eingöngu leikir úr 3ju umferð bikar-
keppninnar og eins og raunar var vitað fyrir, komu úrslit
nokkurra leikja á óvart.
Arsenal gerði jafntefli við Leicester á Highbury, en þar
höfðu flestir gert ráð fyrir ArsenaL sigri. Efstu liðin i 1. og 2.
deild Burnley og l.iverpool gerðu einnig jafntefli og þriðja
leiknum á seðlinum, milli Carlisle og Huddersfield lauk
ejnnig með jafntefli.
Síðan komu þrir heimasigrar og voru það úrslit, sem
almennt var reiknað með. Norwich og Leeds gerðu einnig
jafntefli svo að engu af þrein efslu liðunum i 1. deild tókst að
tryggja sér áframhaldandi þátttöku. önnur úrslit urðu á
þann veg, sem reikna mátti með, nema hvað WBA tókst
ekki að sigra 2. deildar liðið Nott. For. og Man. Utd. tapaði
rétt einum leiknum og að þessu sinni fyrir Úlfunum.
Spámenn blaðanna stóðu sig þokkalega vel i siöustu spá,
þvi Sunday People var með 8 leiki rétta, en siðan komu
Alþýðublaðið og Morgunblaðið með 7 rétta, þá Sunday
Mirror, Sunday Telegraph og Þjóðviljinn með 6 rétta. Vísir,
Observer og News of the World voru með 5 rétta, en Timinn
rak lestina að þessu sinni með aðeins 3 leiki rétta.
Næsti getraunaseðill er nr. 3, en á honum eru leikir úr
deildarkeppninni. Virðist mér hann hvorki erfiðari eða
léttari en siðustu seðlar.
Þá hef ég þcssi orð ekki fieiri að sinni og sný mér að sp-
ánni:
Birmingham-Wolves X
Birmingham tapaði um s.l. helgi i Bikarkeppninni fyrir 2.
deildar liðinu Swindon, Úlfarnir tryggðu sér áframhaldandi
þátttöku með þvi að sigra Man. Utd. 1-0.
Það verður tvisýnt um úrslit á St. Andrews i þessum leik
Birmingham og Úlfanna og finnst mér allir möguleikar
fyrir hendi Þó finnst mér jafntefli koma sterklega til
greina, enda hvert stig dýrmætt fyrir heimaliðið.
Newcastle-Crystal Pal. 1
Newcastle er i hópi efstu liða i 1. deild, en það sama
verður ekki sagt um Crystal Pal., sem á i harðri baráttu
fyrir tilveru sinni i deildinni. Crystal Pal. vann Newcastle
óvænt á St. James Park i fyrra, en held ég að dæmið snúist
við og að heimaliðið sigri, enda tapar Newcastle þar ekki
mörgum stigum að öllu jöfnu.
Norwieh-Leeds 2
Svo skemmtilega vildi til, að þessi lið mættust á Carron
Road, s.l. laugardag i Bikarnum og skildu þá jöfn, l:l.,Nú
leika þau aftur á sama velli, en að þessu sinni i deildini . Ef
Leeds á að eiga möguleika á þvi að halda i við Liverpool,
verða bæði stigin að vinnast i þessum leik og ég reikna með
þvi að það takist. Spá min er þvi útisigur.
Southampton-Sheff. Utd. 1
Hér eigast við lið, sem oft er erfitt að henda reiður á hvað
gera. Southampton er um miðju i deildinni, en Sheff. Utd.
hefur gengið illa i vetur og er i 7. sæti neðanfrá með 21 stig.
Dýrlingar frá Southampton eru harðir i horn að taka á velli
sinum The Dell og það hygg ég að Sheff. Utd. komi til með
að finna næsta laugardag, enda spái ég heimasigri.
Stoke-Coventry 1
Þegar þessi lið mættust i fyrri umferðinni i 1. deild á
Highfield Road heimavelli Coventry, þá vann heimalið með
2-1. Nú er aftur á móti leikið á Victoria Ground, heimavelli
Stoke, og er ég nokkurnveginn sannfærður um að dæmið
snýst við og að heimaliðið sigrar. Spá min er þvi sigur fyrir
Stoke.
Tottenham-Ipswich 1
Hér fáum við leik tveggja liða, sem bæði eru i fremstu
röð, þvi Ipswich er i 4. sæti, með 33 stig, en Tottenham er i 7-
ll.sæti með 26stig. Það verður þvi ekkert gefið eftir á White
Hart Lane á laugardaginn og spá mín er sú að heimaliðið
hafi betur i þeirri viðureign. Liðin hafa mætzt fyrr i vetur og
þá á Portman Road, velli Ipswich og varð þá jafntefli 1-1.
WIÍA-Everton 1
Þá erum við komin að siðasta 1. deildar leiknum á seðl-
inum, sem fram fer á The Hawthorns, en leik liðanna þar i
fyrra lauk með heimasigri 2-0. WBA er alveg við botninn um
þessar mundir og þvi nauðsyn á að krækja sér i 2 stig á móti
Everton, sem ekki hefur sterku liði á að skipa um þessar
mundir. Spá min er þvi heimasigur.
Swindon-Sunderland X
Swindon lagði 1. deildar liðið Birmingham aðvelli i Bikar-
keppninni á County Ground um s.l. helgi og aftur leikur liðið
þar um næstu helgi i deildarkeppninni og þá á móti Sunder-
land. Bæði eru þessi lið meðal neðstu liða i 2. deild. Það
getur allt skeð i þessum leik og þvi óvissa um úrslit. Heima-
sigur eða jafntefli finnst mér helzt koma til greina og þvi
bezt að fara varlega og spá jafntefli.
TVEIR STÓRLEIKIR
í kvöld má búast við húsfylli i Laugardaishötlinni, þvi
þá fara fram tveir stórleikir i X. deild. Leika fyrst
Vikingur og ÍR, en síðan Valur og FH. Ekki þarf að fjöl-
yrða um þýðingu þessara leikja fyrir stöðuna á toppi 1.
deildar.
Sem fyrr segir má búast við mikilli aðsókn, og er fólki
þvi bent á að koma timanlega. Fyrri leikurinn hefst
klukkan 20,15.
Meðfylgjandi mynd var tekin i fyrra, þegar Valur og
FH áttust við i einumaf mörgum bardagaleikjum þess-
ara liða. —SS.
Miövikudagur 17. janúar 1973