Alþýðublaðið - 18.01.1973, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 18.01.1973, Blaðsíða 4
OKKUR VANTAR BLAÐBURDAR- FÓLK í EFTIR- TALIN HVERFI Laugarteigur Laugarnesvegur llauðilækur Neðra-Breiðholt. Barómstigur Bergþórugata HAFIÐ SAM- , BAND VIÐ AF- GREIÐSLUNA i Félagsvistin Á félagsvistinni i kvöld flytur Benedikt Gröndal varaformaður Alþýðuflokksins stutt ávarp. Ofbauð 1 1 aunungarmál, að ýmsu væri mjög ábótavant i gamla hegn- ingarhúsinu og hefði svo verið all- lengi, en þess væri að gæta, að húsið væri orðið mjög gamalt og úrelt sem fangelsi. Það sem væri mest aðkallandi að lagfæra væri að bæta aðbúnað fanganna og starfsaðstöðu fanga- varða. : Áskriftarsíminn er ; ! 86666 Ilafnarfjörður Byggingafélag Alþýðu hefur til sölu eina ibúð við Selvogsgötu. — Umsóknir um ibúð þessa sendist formanni félagsins fyrir 23. þ.m. Félagsstjórnin. SÓLARKAFFI ísfirðingafélagsins verður að Hótel Sögu, Súlnasal, sunnudaginn 21. janúar kl. 20.30. Aðgöngumiðar verða seldir og borð tekin frá laugardag og sunnudag kl. 16.00-18.00 i anddyri Súlnasals. Fjölbreytt skemmtiatriði. Stjórnin. I Jörundur við völd færeysku leikhúslífi Jörundur hundadagakonung- ur fór sigurför um landið fyrir 164 árum, — og aftur steig hann hér á land fyrir tveimur eða þremur árum, þá i búningi Jónasar Arnasonar. Sú sigurför var fólgin i 100 sýningum á leik- ritinu um hann, ,,Þið munið hann Jörund”, á fjölunum i Iðnó, — en hún endaði ekki eins og i fyrra skiptið, þvert á móti heldur hún áfram, — um þessar mundir i Færeyjum. Þeir Jónas og Flosi Ölafsson héldu til Færeyja fyrir skömmu, og Flosi setti leikinn á svið i leikhúsinu þar. Frumsýningin var á laugardaginn i fyrri viku, i húsi á stærð við Iðnó, og þegar Alþýðublaðið hafði tal af Jónasi skömmu eftir heimkomuna i lok fyrri viku sagði hann, að átta sýningar hafi verið'á leiknum i röð, og honum frábærlega vel tekið. ,,Ég hef ekki kynnzt öðru eins i aðsókn”, sagði Jónas, ,,og það er von á, að leikurinn slái öll met i aðsókn i Færeyjum.” Þýðari leiksins er Jóhann Hendrik W. Poulsen, þekktur fræðimaður og kennari, en hlut- verk Jörundar leikur Olivur Næss. Ekki er þörf kynningar á leik þessum, en til gaman skal hér birt fyrsta erindi söngsins um Jörund eins og það er i munni hinna færeysku þriggja á palli. Sögu vit ætla að siga i kvöld um sjófarann Jörund hin knáa, sum kongur rikti við sóma og sann eitt summar á landinum bláa. Aridu — ariduardey ariduaridáa, ‘ sum kongur rikti hann við sóma og sann eitt summar á landinum bláa. Forðast nú helzt mannfall Herstjórn bandariska hersins i Saigon gaf i gær út tilskipun til bandariskra hernaöarráðgjafa i Suður-Vietnam þess efnis, að þeir láti undan siga verði á þá ráðizt. Þetta er haft eftir heimildar- mönnum i bandariska hernum i Saigon, og ástæðan fyrir til- skipuninni er sögð vera sú, að koma eigi i veg fyrir mannfall i bandariska hernum i bardögum þeim, sem reiknað er með að blossi upp eftir að opinberlega hefur verið tilkynnt um vopna- hléssamninga. Tilskipuninni er ekki beint til bandariska flug- hersins, en hann hefur hert árásir á skotmörk i Laos og Suður-Viet- nam eftir að árásum var hætt á N- Vietnam. Suður-vietnamski herinn held- ur uppi árásum á fimm nyrstu héruðin i Suður-Vietnam af full- um krafti til að koma i veg fyrir hugsanlegar tilraunir N-Viet- nama til þess að vinna þau áður en vopnahlé kemst á. Þá gerðu skæruliðar úr Þjóðfrelsisfylking- unni harðar árásir á hernaðar- mannvirki i nágrenni Saigon i gær. ELLSBERG FYRIR RÉTT Réttarhöld yfir Daniel Ellsberg og Anthony Russo, sem stóðu fyr- ir þvi fyrir rúmu ári, að leyniskjöl um aðgerðir Bandarikjamanna i Vietnam, hin svonefndu „Penta- gonskjöl”, voru birt i nokkrum dagblöðum, hefjast innan skamms i Los Angeles. Mál þetta vakti talsverða at- hygli á sinum tima, en hið opin- bera reyndi árangurslaust að koma i veg fyrir birtinguna eftir að ljóst var, að þeir félagar höfðu komizt yfir skjölin. Ellsberg og Russo lýstu þvi yfir eftir að ákvörðunin um réttarhöldin var gerð heyrinkunn, að þeir ætli að notfæra sér þau til nýrra árása á stefnu Bandarikjanna i Vietnam, og beina sjónum manna að þeim hugsanagangi og mati, sem hefur skapað hana. Ajax 9 Boryssia Mönchengladbach, V- Þýzkalandi. Ofk Belgrad, Júgóslaviu — Fc Tvente Enschade, Hollandi Tottenham, Englandi — Victoria Setabul, Portúgal. Liverpool, Englandi — Dynamo Dresden, A-Þýzkalandi. Leikirnir fara fram 7. og 21. marz. FRAMHÖLDFRAMHOLDFRAMHOLO Rikiö 2 bilum kr. 288.308 miðað við 100 þúsund kilómetra akstur, en það gerir um kr. 2.88 á hvern ekinn kilómetra. Út frá þeirri tölu er reiknað, að tekjur rikissjóðs af Keflavikurveginum eru kr. 71.481.600 á ári miðað við 2000 bila umferð á dag. A Hellisheiði er miðað við 1500 bila umferð á dag, og verða þá árstekjurnar kr. 86.724.000, og af Hafnar- fjarðarveginum, sem er fjöl- farnasti þjóðvegur landsins með 17000 bila umferð á dag, eru tekjurnar kr. 89.352.000. A fundinum var mikil áherzla lögð á, að uppbyggingu vega- kerfisins væri fyrst og fremst hraðað á Suðurlandi, en þaðan komi meiri hluti þess fjár, sem renna i vegasjóð. Auk þess var bent á mikilvægi þess fyrir höfuðborgarsvæðið, að sam- göngur á Suðurlandi séu sem beztar. Eiga menn 2 margfalt fyrir þá vegi með því, sem rikið fær i sinn hlut með skattheimtu af bilum og rekstrarvörum þeirra. Sam- þykkt var siðan einróma tillaga, sem mótmælti þessari fyrirhug- aðri ráðstöfun. Þeirri skoðun yfirvalda vega- mála, að menn eigi glaðir að borga fyrir þann sparnað, sem fæst með þvi að aka eftir steypt- um eða malbikuðum vegum, likti einn ræðumanna, Þór Hagalin, við mann, sem hefur i fyrsta sinn unnið i Happdrætti Háskólans. Maðurinn hefur spilað i happdrætti án þess að fá vinning. Þegar hann fær loks vinninginn heldur hann, að nú hafi hann aldeilis grætt, og það þrátt fyrir að Háskólinn byggir stöðugt hverja stórbygginguna á fætur annarri fyrir peningana hans. Þess má geta, að happdrættisvinningur öku- mannsins, þegar hann ekur á malbikuðum vegum, miðað við malarvegi er samkvæmt rann- sóknum, sem British Road Research Laboratory hefur látið gera, helmings sparnaður á viðhaldi, dekkjum og benzini. Hægri 12 Eins og kunnugt er, þá gerði núverandi rikisstjórn þá breytingu á skipan löggæzlu- mála, að i stað þess að löggæzla væri á vegum viðkomandi sveitarfélaga er hún nú öll á vegum rikisins og kostuð af þvi. Sveitarfélögin, eins og t.d. Reykjavikurborg, hafa þvi litil sem engin völd i þeim málum lengur. Alþýðublaðinu er kunnugt um, að i haust er fjárlög yfir- standandi árs voru i smiðum þá gekk lögreglustjórinn i Reykja- vik á fund ráðherra og fulltrúa rikisstjórnarinnar og lýsti þvi öngþveitisástandi sem væri að skapast i Reykjavik vegna mannfæðar lögreglun nar. Óskaði hann mjög eindregið eftir þvi, að stjórnin heimilaði fjölgun i Reykjavikurlög- reglunni um 50 manns á árinu 1973 og aðra 50 á árinu 1974. öðru visi væri ekki hægt að halda uppi nauðsynlegri gæzlu i höfuðborginni. Beiðni lögreglustjórans var algerlega visað á bug. Fékk hann ekki leyfi til þess að ráða svo mikið sem i eina einustu nýja stöðu á yfirstandandi ári, nema hvað honum var heimilað að ráð 4 kvenlögregluþjóna af 10, sem hann hafði óskað eftir. t Reykjavikurlögreglunni eru nú 220 lögregluþjónsstöður og er fullskipað i þær allar. Kúttaðir 12 Vanessa GY 257, þar sem hann var að veiðum á svonefndu Digranesflaki. Þarna var hetju- lega að verið hjá varðskipsmönn- um, þvi klippingin tókst þrátt fyr- ir gifuryrði brezka skipstjórans. Einnig vörðu sex aðrir togarar Vanessa og reyndu meira að segja að sigla á Tý. Þegar svo langt var gengið sýndi sá gamli úthafshvalur tennurnar — varð- skipsmenn beindu byssunni að togurunum og hótuðu að skjóta, en þá lagði brezka heimsveldið niður rófuna. Aöeins 1 manna, og tveir bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, þeir Axel Jónsson og Sigurður Helgason. Ekki verður séð, hvort' siðasttöldu bæjarfulltrúarnir skrifa undir fjórða lið bókunarinnar sem samþykkir henni eða aðeins sem vitundar- vottar. Alþýðublaðið sneri sér i gær til Ásgeirs Jóhannessonar, bæjar- fulltrúa Alþýðuflokksins i Kópa- vogi, og sagði hann um myndun hins nýja hægri meirihluta i stjórn bæjarins: „Það er athyglisvert, að fulltrúi Samtaka frjálslyndra og vinstri manna hefur nú tekið sæti ihalds- mannsins Eggerts Steinsens i meirihlutanum, sem af yfir- lýsingum að dæma boðar jafnvel sameiginlegt framboð við næstu bæjarstjórnarkosningar, sem fram fara á næsta ári. Fari svo, að Sjálfstæðis- flokkurinn og Framsóknar- flokkurinn myndi til frambúðar þessa nýju hægri samfylkingu með fulltingi Samtaka frjáls- lyndra og vinstri manna, verður þetta sjálfsagt fyrsta raunveru- lega hægri fylkingin, sem mynduð er hér á landi”. — UR UG SKARIGP.IPIR KCRNELÍUS JONSSON SKÖLAVORÐUSTlG 8 BANKASTRÆTI6 ^■%IH^88-18600 o Fimmtudagur 18. janúar 1973

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.