Alþýðublaðið - 18.01.1973, Síða 7

Alþýðublaðið - 18.01.1973, Síða 7
3 þá helzt það að drekka minna IGUNNIER [,, ÞYNNKU áfengisáhrif hafa hins vegar horfih mun fyrr. — Sá stóri verður sem sé að drekka meira en sá litli til þess að finna á sér? — Já, og sé tekið tillit til þess; að iifrar beggja sé i áþekku ásigkomulagi, þá verður stóri maðurinn á sama hátt undir áhrifum löngu eftir að runnið hefur af þeim litla. Setjum svo, að sá litli sé 50 kg. á þyngd, en sá stóri 90 kg. og á milli kl. 8 og 12 að kvöldi inn- byrði hvor þeirra um sig 40 centilitra af alkóhóli. Klukkan eitt um nóttina hefur þá sá stóri 2,21 prómill af alkóhóli i blóðinu, en sá litli næstum tvöfalt meira, eða 2,18 prómill. Sá litli ætti þvi að vera „syngjandi fullur”, en sá stóri ekki verr leikinn en það, að hann ætti auðveldlega að geta hneykslazt á framferði litla mannsins, kunningja sins. Ef stóri maðurinn ætlar hins vegar að fylgja litla kunningja sinum eftir i gleðskapnum, þá yrði hann að innbyrða u.þ.b. 60 centilitra af alkóhóli á móti þeim 40, sem sá litli ,,lét sér nægja”. En þá er magnið, sem lifur þess stóra þarf að eyða af alkóhóli úr blóðinu, lika þeim mun meira. Klukkan eitt um nóttina er áfengismagnið i blóði beggja 2,18 prómill. Þrettán klukku- timum siðar er litli maðurinn 4 orðinn bláedrú. En sá stóri ir verður ekki laus við alkóhólið úr likama sinum fyrr en 22 timar eru liðnir, —9 klukkustundum á eftir þeim litla. — Það virðist þvi bæði vera ódýrara og heppilegra að vera litill. En getur þá litill maður ekki drukkið stóran mann ,,und- ir borðið”? — Jú, sannarlega. Þar kom- um við að þvi forvitnilega rann- sóknarefni — fyrir visindamenn að sjálfsögðu — þar sem er auk- ið þol einstaklingsins gegn áfengisáhrifum. Manneskja, sem hefur vanið likama sinn á neyzlu alkóhóls, byggir smátt og smátt upp aukna mótstöðu gegn áhrifum þess. Þar að auki lærist lifrinni með tið og tima að brjóta niður meira magn af alkóhóli á klukkustund. Fólk, sem drekkur mikið, gefur brennt þrem til íimm centilitrum af alkóhóli á . iklukkustund i stað þeirra /tveggja, sem venjulegt fólk brennir að meðaltali á sama tima. 1 viðbót við þetta virðist einnig heilinn geta vanið sig við sterkari og sterkari alkóhól- blöndu án þess að verða fyrir áhrifum. Þyki „óvönum” t.d., að áhrifa gæti af vindrykkju, þótt alkóhólmagnið sé aðeins 1 prómille i blóðinu þá getur ver- <ið, að vanur drykkjumaður, eða eigum við ekki heldur að segja ofdrykkjumaður, þurfi allt að þrefalt meira alkóhólmagn i blóði til að merkja áhrifin. Af þessu leiðir, að litill maöur get- ur vel drukkið stóran mann und- ir borðið, en þá vel að merkja þvi aðeins, að likami þess litla hafi vanizt i svo rikum mæli að neyta áfengis, að myndazt hafi mótstaða gegn áhrifum þess, en stóri maðurinn sé hins vegar mun óvanari áfengisneyzlunni. — Maður getur ' sem sagt þjálfað sig upp i að drekka áfengi? — Já, en þetta orðatiltæki, „að þjálfa sig upp i” er i hæsta máta óæskilegt, þar sem það leiðir hugann að heilbrigðum likamsæfingum. Æfing i áfeng- isdrykkju á ekkert skylt við slikt, — siður en svo. Manneskja, sem hefur vanið sig á vindrykkju, hefur i staðinn týnt niður ákveðnum viðbrögð- um likamans, sem hjá öðru fólki ^ hindra eitrun af völdum áfeng- isins, en ef áfengi er drukkið i of miklum mæli getur það haft i för með sér alvarlega eitrun, sem leiðir til dauða. Með tið og tima hverfur t.d. ógleðin sam- , fara of mikilli áfengisneyzlu og þegar svo er komið, þá ver lik- aminn sig ekki lengur með upp- sölu þegar svo mikið magn hef- ur verið drukkið af áfenginu, að eitrunarhætta er á ferðum. Á sama hátt verður vanadrykkju- maður sjaldan fyrir þvi, að her- bergið fari að snúast fyrir aug- unum á honum og hann byrjar ekki að röfla eða að slaga, fyrr en hann hefur drukkið óeðlilega mikið. Þannig bila smátt og smátt hinar eðlilegu varnir likamans með aukinni „æfingu” og þess vegna er „æfing i áfengisdrykkju” ekki æskileg . sem slik, heldur þvert á móti og er þá sama, hvernig á málið er litið. Sem dæmi um þetta má nefna, að vanadrykkjumaður getur mæta vel gengið um með þrjú prómill af alkóhóli i blóðinu án þess að hann virðist meira en vel hreyfur af vini.þar sem minna þjálfaður drykkjumaður myndi hins vegar vera næstum þvi meðvitundarlaus af sama magni. En þetta leiðir auðvitað til þess, að sá fyrrnefndi getur bætt enn meiru á sig og er þar af leiðandi i margfalt meiri eitr- unarhættu. — Það er sagt, að kvenfólk þoli vin verr en karlmenn. 5 — Já, og það er rétt. Það á sinar likamlegu skýringar. Kona, sem vegur 60 kg verður t.d. fljótar „full”, en karlmað- ur, sem er af sömu þyngd og er þá vitaskuld við það miðað, að þessar manneskjur standi að öðru leyti jafnt að vigi. Astæðan er sú, að talsverður hluti af likamsþunga konunnar stafar af fitulagi undir húðinni, sem ekki er til staðar i likt þvi jafn mikl- um mæli hjá körlum. Þessi fitu- vefur inniheldur ekki mikið vatn og getur þvi ekki veitt viötöku nema tiltölulega litlu magni af alkóhóli. Kona, sem er 60 kg. að þyngd, hefur þvi i likama sinum mun minna vatnsmagn, en karlmað- ur af sömu hæð og þyngd. Þar af leiðir, að alkóhólblandan i likama konunnar verður sterk- ari en alkóhólblandan i likama karlsins og þvi kemst konan . fyrr undir áhrif. — Allirþekkja félagslegar af- leiðingar ol mikillar áfengis- drykkju, en hvaða skaða valdur hún á likamanum? — t fyrsta áfanga er það lifr- in, sem skemmist. Hún klýfur eggjahvitu- og sykurefnin. Þeg- ar likaminn neytir alkóhóls verður iifrin að taka það á sig sem aukaverkefni, að brjóta niður alkóhólið og meðan hún er að gera það, þá hefur hún þeim mun minni orku aflögu til ann- arra verka. Þess vegna safnast i lifrina mikið fitumagn, sem hún hefur ekki aðstöðu tii að kljúfa með eðlilegum hætti vegna mik- illa starfa við að eyða alkóhóli. Þetta er hin svokallaða feita-lif- ur, auðkenni drykkjumann- anna. — En svo er tii eitthvað, sem heitir skorpin lifur. — Já, skorpin lifur er siðasta stigið i lifrarsjúkdómum margra áfengissjúlkinga. Þá er lifrin orðin svo skemmd, að hún getur ekki lengur endurnýjað sig eða náð sér. En feita lifrin getur aftur orðið eðlileg, ef maðurinn hættir að drekka. — Nú eru margir, sem segja, að það sé hættuminna að drekka bjór en sterk vin. — Hvernig hættuminna? Hvernig ætti iikaminn að gera greinarmun á alkóhólsameind- um eftir þvi hvort þær væru komnar úr bjór, léttum vinum eða brennivini? Alkóhólið er alls staðar það sama. Eina spurn- ingin er aðeins, hversu mikils magns neytt er. 1 10 flöskum af venjulegum norrænum bjór er álika mikið magn af áfengi og i hálfri brennivinsflösku. Ef maður drekkur 10 bjóra á sama tima og maður drekkur hálfa brenni- vinsflösku, þá verða áhrifin mjög svipuð. Það einasta góða við bjórinn er, að það er mjög erfitt að fá i likamann sama áfengismagn úr bjór og úr brennivini á jafnstuttum tima. Þessu til viðbótar verða menn svo að gera sér grein fyrir, að bjórinn er sterkari, en almennt er talið. Á Norðurlöndum (Is- land er þar undantekning) er styrkleiki bjórsins miðaður við alkóhólmagn i þyngdareiningu, en við rúmmálseiningu þegar rætt er um vin og brennd vin. Bjór, sem gefinn er upp sem 3,6% sterkur er þvi i rauninni 4,5% að styrkleika, ef notaður er sami mælikvarði og um sterku vinin. — Hvers vegna fær fólk höfuðverk daginn eftir aö það hefur neytt áfengis i rikum mæli? — Orsökin er oftast sú, aö meltingin er i ólagi og maginn er ekki i lagi. Sumir telja, að þeir verði timbraðri af t.d. wisky eða konjaki, en t.d. af brennivini eða vodka. Ég þekki ekki til neinna rannsókna, sem staðfest geti þessar fullyrðing- ar. En ef fólk drekkur mikið af áfengi, þá getur það einnig ver- ið, aö það borði þá og reyki of mikið og það getur verið ástæð- an fyrir vanliðaninni daginn eft- ir, —a.m.k. fyrir hluta hennar. — Þú, sem sérfræðingur i áhrifum áfengis, átt áreiöan- lega i pokahorninu einhver góö ráð til að forðast timburmenn og slika vanliðan? — Já, ég á eitt gott ráð aö gefa. Það, að drekka ekki of mikið. Það er eina ráðið, sem dugar. Ef menn hafa hins vegar ekki gætt sin sem skyldi, þá er ekki um annað að gera en hvild og góðan svefn til að draga úr van- liðaninni, — ef menn þá geta sofið. — En er þá ekkert ráð tiltækt til þess að flýta fyrir þvi, að alkóhólið eyðist úr likamanum? — Nei. Ég veit ekki um ráð til að flýta fyrir starfi lifrar- innar við að eyða áfengi úr mannslikama. — En gufuböð, ferskt loft, göngutúrar og likamleg áreynsla? — Þvi miður. Ekkert af þessu dugar tii að flýta éfnabreyting- um þeim, sem eyöa alkóhóli úr mannslikama. Ekkert af þessu kemur þvi að gagni daginn eftir. En ef fólk getur af einhverjum ástæðum ekki sofiö út eða legið fyrir og hvilt sig, þá er góður göngutúr eða gott gufubað svo sem ekki verra en hvað annaö til að láta timann liða. — Hjálpar það nokkuð að fá sér einn litinn — rétta sig af? — Alls ekki. Það skýtur mál- inu bara aðeins á frest. Við það lengist aðeins sá timi, sem liða þarf svo áhrifin hverfi og þar með lengist timi vanliðunar. Ég mæii alls ekki með slikum ráö- um. Áfengi er efni, sem likaman- um er ekki eðlilegt að neyta. Maður undir áhrifum áfengis er ekki eins og hann á að sér að vera. Afengisneyzlan gerir það að verkum, að liffæri neytand- ans, svo sem lifrin, verða að taka sér tima frá nauðsynja- verkum til þess að iosa likam- ann viö áfengið og ýmis sjúk- dómseinkenni geta fylgt i kjöl- farið. Þar sem neyzla áfengisins er likamanum ekki eðlileg er eöli- legt, að áhrifin beri þess merki fyrr eða siðar og hvað timbur- mönnum viðvikur þá eru þeir eðlileg afleiðing of mikillar áfengisneyzlu, sem ekkert ráð er til viö annað en að drekka bara minna. o Fimmtudagur 18. janúar 1973

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.