Alþýðublaðið - 01.03.1973, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 01.03.1973, Blaðsíða 6
Úr „Aktuelt' . Eftir Jörgen Dragsdahl Pólitískir fangar í Bandaríkjunum óttast síðari fjögur árin af valdatíma Nixons Það er alvarleg ákæra að ræða um pólitiska fanga i Bandarikjunum. Að fólk af pólitiskum óstæðum sé neytt til þess að eyöa hluta ævinn- ar i fangelsi vekur undir venjulegum kringumstæðum reiöi ilandi meö sterkar, lýð- ræðislegar siðvenjur. Engu að siður hlýddu milljónir fólks, negrar og hvitir menn, meö vantrú og fyrirlitningu á Richard Nixon ræða um frelsi og lýðræði i sjónvarps- ræðu um miðjan janúar s.l. Vegna þess að hundruð pólitiskra fanga i bandarisk- um fangelsum lita með skelfingu fram til næstu fjög- urra ára með Nixon. Hegningarlögin eru notuð í pólitísku augnamiði Skilgreiningin „pólitiskur fangi” er oft notuð 1 sam- bandi við fólk, eins og Bobby Seale og Angelu Davies. t þessum sem og öðrum tilvik- um hafa opinberir aðilar i Bandarikjunum visað ásök- uninni á bug með þvi að segja, að umrætt fólk sé ekki ákært fyrir stjórnmálaskoð- anirsinar, heldur fyrir brot á hegningarlögum Bandarikj- anna. Spurningin er þvi, hvort þessi viðbára skipti I raun- inni nokkru máli. Það má nefnilega vel vera, að hegn- ingarlöggjöfin sé undir þess- um kringumstæöum aðeins notuö til þess aö komast und- an ákærum um pólitiska þvingunar- og kúgunarstarf- semi. Framangreindri spurn- ingu er að nokkru leyti svar- að með þvi ef athugað er, af hve miklum ákafa yfirvöldin nota hegningarlögin gegn vinstri sinnuðum „aktivist- um” og það er svo borið saman linkuna, sem öörum, svo sem eins og lögreglu- mönnum, er sýnd fyrir aö brjóta þessi sömu lög. A umliðnum fjórum árum hefur f jöldinn allur af vinstri sinnuðu fólki verið leitt fyrir dómstóla, oft eftir að hafa setið árum saman i haldi, og hefur svo verið saklaust fundið af kviðdómi. Mjög á- berandi einkenni á öllum þessum málum hefur verið, aö sönnunargögn ákæru- valdsins hefa verið ákaflega veik. Dæmi er Bobby Seale- málið, en þvi lyktaði með al- gerri sýknu á öllum ákærum eftir að Seale haföi setið i fangelsi I 22 mánuði. James F. Ahern, lögreglusjóri i New Haven i Connecticut, þar sem Seale sætti ákærun- um, hefur ritað, að hann hefði undrast að Seale skyldi hafa verið ákærður þar eð lögreglan hefði engin sönn- unargögn haft i höndum gegn honum. Morð með köldu blóði. Hins vegar er svo stöðug aukning á kaldrifjuðum morðum, þar sem fólk veit jafnvel oft um nöfn hinna meðseku valdsmanna. Tveir foringjar i „Svörtu pardus- dýrunum” — baráttu- samtökum svertingja —, Fred Hamilton og Mark Clark, voru myrtir 4. desem- ber 1969. Skýrsla, sem m.a. var unnin af fyrrum dóms- málaráðherra Bandarikj- anna, Ramsey Clark og fyrr- um hæstaréttardómara, Art- hur Goldberg, segir berum oröum, að þarna hafi lög- reglan framið vel skipulagt morð. í maimánuði 1970 frömdu lögregla og her 12 ótviræö morð. Fórnardýrin voru fjórir hvitir stúdentar við Kent State University, tveir svartir stúdentar við Jacson State College og sex svert- ingjar I Augusta I Georgiu. Þann 21. ágúst 1971 myrtu verðir i San Qentin fangels- inu hinn gáfaða „pardus- dýraleiðtoga” George Jack- son. Skömmu siðar bönuðu lögregla og her 32 föngum og 9 gislum I Attica fangelsinu i New York. Framhald á bls. 4 Maður, sem reykir allt sitt lif, fær eitt og hálft kiló af tjöru I lungun. Þar að auki er 25 sinnum meiri hætta á, að reykingamaður deyi úr lungnakrabbameini en maður, sem ekki reykir. Þetta er hægt að fræðast um i riti, sem nú hefur verið gefið út i rúm 4 ár fyrir heilsuhælisgestina i Bad Nau- heím i Vestur-Þýzkalandi. Þvi að svo lengi hafa einmitt „afvötn- unar”-lækningar fyrir reykinga- menn farið þar fram á heilsuhæl- um. Samtals hafa 2806 þátttak- endur tekið þátt i „afvötnunar”- námskeiðunum, þar af 18 prósent konur. Yfirgnæfandi meirihluti reyk- ingamanna tók að reykja á unga aldri. Hægt er aö lesa þaö úr spurningalistunum, sem allir þátttakendur i námskeiðunum útfylla, hver orsökin var fyrir þvi, að þeir hófu reykingar: „Ég var forvjtinn, ég vildi slá um mig, af uppreisnarhneigð gegn foreldrum minum”. Menn hafa samt ekki látið sér nægja að forvitnast um orsökina fyrir þvi, að reykingamennirnir hófu reykingar, heldur einnig hvers vegna þeir héldu stöðugt áfram að reykja. Og þá kemur i ljós, að "sigarettan rýfur hina venjubundnu hverdagsiðju, hún verkar sálarróandi og hún eyðir deilum, hún skýrir hugsunina, hún eykur tengslin við þá, sem maður hefur samskipti viö, hún veitir fullnægingu. Er „bilisminn” að verða þjóðarsjúkdóm- ur? Einkabilisminn er farinn að sæta tölu- verðri mótstöðu — það er enginn vafi á þvi. Viða erlendis gætir sliks mjög. Angi af þeirri baráttu hefur borizt alla leið hingað til íslands, þar sem bil- unum fer óðum fjölg- andi, og er tiltölulega skammt siðan að ,,bar- áttan gegn blikkbelj- unni” hófst opinber- lega og formlega með kröfugöngu og spjald- burði i miðborg Reykjavikur. Rólynd- ari og e.t.v. ekki eins á- kafir andstæðingar „blikkbeljunnar” ræða nú með sivaxandi á- hyggjuþunga um nauð- syn þess að friða á- kveðna lands- eða borgarhluta fyrir á- gangi óvættarins: að einshvers staðar þurfi að gefa borgarbúanum kost á að dreða niður fæti án þess að þurfa að lita fyrst til beggja hliða, áfram og aftur fyrir sig svo hann megi varast bilana. Og jafnvel i blöðunum, innan um bilasiður, árekstrafréttir, umferðarmyndir og aðra blikk- beljudýrkun, eru nú farnar að sjást „and-bila” klausur. Meira að segja þeir tækriifróðu bil- dellingar, sem rita dálk upp og dáls niður um dá- samheit karbúrators og diska- hemla, wankelvéla og krúmtappa og hvað það nú heitir allt saman eru farnir að vera á stundum eins og eilitið kuldalegir i garð goðsins sjálfs: svona likt og væru þeir farnir að reika i trúnni. Svo koma auðvitað læknar og sálfræðingar, hagfræðingar og félagsfræðingar, arkitektar og útiloftsmenn og all- ir eru sammála um hina nýju uppgötvun: billinn er varhuga- verður. Bilisminn er sjúkdómur. En er einkabilisminn þá orðinn þjóðarsjúkdómur? Þegar öll tizka og allt hysteri hefur verið skilið frá, er það þá satt? Sennilega. „Sjúkdómseinkenn- in” eru bæði sálræn og likamleg. Einkabilisminn, eins og hann er i dag, er I flokki með misnotkun á- fengis og tóbaks, bæði hvað varð- ar útbreiðslu og skaðvænleg áhrif á hvern einstakling. Sjúkdómseinkennin eru líka félagsleg En „sjúkdómseinkennin” eru lika á félagslega sviðinu. Einka- bilisminn krefst óhemjumikils fjármagns. Hugsið ykkur t.d. öll bilastæðin, svo ekki sé meira nefnt. Senn hvað liður verður að fara að kaupa upp hús af rándýr- um lóðum til niðurrifs til þess að „skaffa blikkbeljunni beit” og enginn má nú reisa verzlunarhús i miðbænum I Reykjavik án þess að leggja út i griðarmikinn kostn- að við útvegun og gerð bilastæða, beint eða óbeint. Þegar öll slik fjárhagsatriði einkabilismans hafa verið tind og talin og tekin saman, hugsið ykkur þá hversu mikla félagslega þjónustu væri hægt að veita fyrir þá peninga. Þá væri vart skortur á sjúkrahúsum ellegar þröngt setnir skólarnir. Þessu fórnum við fyrir bil. Og sú fórn er allt of stór miðað við það, sem bilisminn veitir okkur i stað- inn, að þvi er sérfræðingarnir segja. Billinn er „meðal mestu óskapa, sem dunið hafa yfir mannkynið”, að þvi er brezki hagfræðingurinn E. J. Mishan segir og þarf vitaskuld ekki að taka fram, að sá góði maður er að sjálfsögðu „anti-bilisti” — og er það hin eina, sem við vitum um þann mann. Félagsfræðingurinn og borgar- skipulagssérfræðingurinn Kenn- eth R. Schneider, sem starfar hjá Sameinuðu þjóðunum, hefur tekið saman söguna um sigurvinninga bilsins. Næstum þvi af sjálfu sér hefur sú sigurvinningasaga orðið ákaft áróðursrit gegn bilisman- um. Rit um: bílinn, and- stæðing mannsins Enkum og sér i lagi hefur Schneider haldið sér við sigur- sögu bilsins i Ameriku, en hann hefur einnig heimsótt Evrópu og kynnt sér málið frá efrópskri hlið. Schneider hefur ritað bók um at- huganir sinar og hefur sú bók nú komið i ýmsum löndum. Meðal útgefenda er forlagið Gröndal og Sön i Osló, Noregi, og heitir bókin i norsku útgáfunni: „Bilen mot mannesket ” (Billinn gegn mann- inum) ef einhver Islenzkur „anti- bilisti” skyldi hafa áhuga á að kaupa. Lýsingarnar afhjúpa hringavitleysuna Schneider bæði lýsir ástandi, eins og það er og kemur með uppástungur. Lýsingarnar eru miklu betri en upp- ástungurnar, en það merkir þó ekki, að uppástungurnar séu i sjálfu sér ómögulegar eða ónot- hæfar. Málið er hins vegar það, að lýsingarnar afhjúpa hingað til dulda hringavitleysu með svo sannfærandi hætti, að maður hreinlega verður orðlaus. Undir venjulegum „dagligdags” kring- umstæðum er billinn auðsjáan- lega orðinn svo sjálfsagður hlutur af lifi voru og tilveru, að við get- um ekki hugsað skýrt, þegar talið gerst að honum. Það þarf að tyggja auðsæar afleiðingar bil- ismans ofan i okkur. Og loks þá viðsjáum: guð minn almáttugur! Guð minn almáttugur Þetta er engin tilraun til þess að auglýsa upp bók Schneiders. Við Alþýðublaðsmenn höfum engan hag af þvi. Við vitum ekki meira um Schneider, en við vitum*þann brezka hagfræðing E. J. Mishan og við vorum vist búnir að segja, að um þann mann vitum við bók- staflega ekki neitt. En við viljum samt ekki neita okkur — og þá væntanlega lesendum okkar sömuleiðis — um þá ánægju að tilfæra nokkur gullkorn úr bók Schneiders og vonum um leið, að hann muni aldrei verða þess vis- ari þótt stolizt hafi verið með þeim hætti I bók hans — rikari verður hann örugglega ekki af þvi þar sem við eigum i hlut svo hon- um má vera nokk sama. Lögmálið um útþenslu bílismans Grundvallar kenning Schneid- ers i umræddri bók er: Lögmálið um útþenslu bilismans. Fyrr eða seinna, skrifar hann, mun bilism- inn halda innreið sina I öll samfé- lög I heiminum, en i Ameriku hef- ur hann fengið einkar hagstæð uppvaxtarskilyrði. Lögmálið er jafn óbrigðult og erfðalögmál Mendels að þvi er Schneider segir og sýnir fram á, að það fyrirfinnst liffræðilegt afl, sem er sterkara en manneskjan. Billinn hefur gert kröfu um nýja tegund af rikis- borgararétti (eins og sjá má hugsar Schneider til bilsins eins og lifandi veru). Atkvæðisrétt sinn notar hann i gegn um meðal- göngu kröfu-hagsmunahópa og á sama hátt beitir hann sinu geysi- mikla félagslega valdi. Og bilnum hefur orðið svo vel ágengt, að hann rikir nú yfir öllum stærri bæjum og borgum. Hin járnhörðu lögmál, sem hann setur, eru lögð til grundvallar i öllu skipulagi borga og bæja og þau lögmál eru jafn ljós og þau eru einföld: Sam- setning, gerð og viddir borgarinn- ar eiga að þjóna hagsmunum þýðingarmesta ibúans — bilsins. Schneider lætur sig einnig sögu bilsins miklu varða — eins og eðlilegt er um svo stórmerkilegan og voldugan afguð (þar eigum við að sjálfsögðu við bílinn, en ekki Schneider, sem við — eins og marg hefur komið fram — þekkj- um ekki). „Það var ófreskja, sem byrjaði að bæra á sér” þegar „djöflavagn” aldamótaáranna byrjaði að troða sér inn I samfé- lag mannlegra vera, — fyrst sem tæki fyrir ævintýraþyrst fólk, sið- an handa þeim riku þar næst sem „hinn metnaðarfulli draumur hinna fátæku” þar til loks að hann varð það, sem allir héldu: Allra undirdánugastur þjónn allra. 180,000 prósent framleiðsluaukning A timabilinu frá 1899 til 1937 jókst framleiðslan á bilum um 180.000 prósent — eitt hundrað og átta tiu þúsund prósent! Bfllinn fékk rúm I orkusmiðju sjálfs samfélagsins. Bilaiðnaðurinn með öllum sinum hliðar-og dótt- urgreinum,svo sem oliuhreinsun, benzinstöðvum, verkstæðum, hjólbarðaviðgerðum, þvotta- stöðvum, varahlutaverzlunum og guð má vita hvað og hvað varð al- ger miðdepill efnahagslifsins i , Ameriku — að sjálfsögðu með til- svarandi itökum um málefni samfélagsins. 1 byrjun voru vegir i Ameríku slæmir. Billinn, eink- um og sér i lagi einkabillinn, þvingaði I gegn aukningu á vega- gerðarfé úr 139 millj. dollara á ári 1918 upp I 1,8 milljarða 1940 og 10 milljarða undir lok 6. áratugsins. Aukningin nemur 13.300 prósent- um — þrettán þúsund og þrjú- hundruð prósentum, rétt var það. Þó með öllu án þess, aö með þvi hafi umferðarvandamál bilsins veriðleyst. Siður en svo. Þau hafa AÐ VERÐA BÖL AFVÖTNUNAR'- NÁMSKEID FYRIR REYKINGARMENN Þegar sjúklingum á þessu stigi er ljóst, hvernig komið er og þeir koma til Bad Nauheim, eru þeir leiddir á átta daga námskeið heil- brigðrar skynsemi. Til að byrja með fá þeir að hlusta á læknis- fræðilega fyrirlestra um hin skaðvænlegu áhrif tóbaksins á likamann. Þeim er bent á kostina við það að reykja ekki og ásamt læknum kynna þeir sér og sundurgreina auglýsingastarf- semi sigarettu-iðnaðarins. Að lokum fá þeir tækifæri til að kynnast likamlegri liðan þeirra, sem eru hættir að reykja. Fyrir þá, sem aðeins reykja við viss tækifæri, en það er u.þ.b. fjórðungur hælisgestanna, er til- tölulega auðvelt aö hætta reyk- ingum. Raunar hætta þeir flestir strax eftir fyrstu fyrirlestrana. II prósent keðjureykingamanna — en stór hluti þeirra hafði þegar fengiö krabbameinseinkenni — var aftur á móti, þrátt fyrir upp- lýsinga- og fræðslustarfsemi, mjög erfitt að fá til að hætta reyk- ingum. Venjureykingamenn (sem reykja daglega 5—20 sigarettur, 4 vindla eða pipu) voru 64 prósent þeirra, sem vildu fara á sllkt námskeið. Þeim tókst yfirleitt að hætta reykingum eftir 5 daga, i staðinn fyrir að sjúga hina venjulegu glóð á sigarett- unni sugu þeir karamellur af sér- stakri gerð, átu hnetur og þurrk- aða ávexti eða drukku Iskalt vatn. Hver og einn styrktist i ákvörðun sinni og það var að þakka þessum hjálpartækjum og umfram allt þvi, að þeir áttu sér svo margar systur og bræður, sem gengu sama þjáningaveginn. 1 lok nám- skeiösins gátu bæði hinir „afvötn- uðu” og leiðbeinendur þeirra glaðzt yfir mjög góðum árangri. 82 prósent þeirra höfðu hætt að reykja og 16 prósent þeirra höfðu minnkað mjög sigarettuneyzlu sina. Eftir námskeiðið I Bad Nau- heim koma þeir siðan á nýjan leik út i hið fjandsamlega (reykinga- manna)-lif með auglýsingastarf- semi þess og öllum þeim „snjöllu” mönnum, sem lokka með „Þú getur nú reynt eina sigarettu á ný”. Afleiðingin verð- ur sú, að eftir fjögur og hálft ár reykja 47 prósent þeirra aftur. En þrátt fyrir þetta er árangurinn i Bad Nauheim einn hinn fremsti 1 sinni röð I Evrópu og Bandarikj- unum. Bilafjöldinn nálgast ibúatöluna smám saman. Það er ekkert lögmál, sem hindrar að hann nái henni og aukist síðan. sennilega aldrei verið verri. Þrátt fyrir allt. Bíllinn á sér ekki lengur lokamark Það er nú orðið ljóst, skrifar Schneider, að billinn á sér ekki neitt lokamark þar sem hægt sé að segja: hingað fer hann og lengra ekki, guði sé lof. Það er að- eins hægt að segja, að samfélagið verði i mismunandi miklum mæli háð bilnum og það er aldrei hægt að segja, nú er hámarkiriu náð, þvi billinn getur alltaf gengið lengra. Fortune (sem við vitum þvi miður heldur engin deili á. Innsk. Alþbl.) hafði uppgötvað vaxtarvandamálið er hann ritaði grein árið 1967 þar sem m.a. seg- ir: „fæðingarkúrfa bilsins nálg- ast nú fæðingarkúrfu mannsins. Það er ekkert lögmál, sem segir, að hin fyrrnefnda kúrfa geti ekki náð hinni siðarnefndu — farið upp fyrir hana og hærra enn”. Gagn- stætt sandpappir og raksápu, sem aðeins eru tæki I þjónustu menn- ingarinnar og eiga sér ákveðin efri mörk, þá hefur billinn þróast og vaxið,unz hann er orðinn sam- stæð og heilleg „menning” út af fyrir sig, segir S.Þ. sérfræðingur- inn. Og nokkur dæmi um skoðanir Schneiders, fyrst um áhrifin á manneskjurnar: „A hverjum einasta degi lokar manneskjan sig inni i sinu litla, bólstraða búri úr stáli, gleri og lakki og sættir sig umkvörtunar- laust við biðraðaaga einmana- leikans... Billinn hefur alveg ein- dæma vald yfir manneskjunni, hann rfkir yfir öllum fjölskyldu- fjármálunum og er oft þýðingar- meiri, en matur og drykkur. Þess eru meira að segja dæmi, að bill- inn sé fjölskyldunni mikilvægari en barn... Manneskjan lifir ekki lengur, hún hrærist bar i tilveru, sem byggð er upp utan um ferð- ina I og frá vinnu”. Og áfram um hvernig áhrifin breiðast úr „eins og hringbylgjur i vatni”: „Bflisminn, einkum i borgum og bæjum, grefur sig niður I stein- steypu, tryggir sér einkarétt á allri hreyfingu og sér svo um að hún stöðvist með öllu, gerir sér- hvern veg að óyfirstiganlegum virkismúr, fækkar valkostum, eykur útgjöldin, spillir náttúr- unni, stefnir fótgangandi fólki i hættu og hræðir það upp úr skónum, afmyndar mannslikam- ann, mengar andrúmsloftið, er plága fyrir heyrnina og móðgun við augað, gerir taugakerfið að sjálfvirknisvél, rekur hvern ein- asta borgara nær hinum langa armlegg laganna. Afnemur með öllu tilviljanakynningu, sprengir félög og samtök, villir af réttri leið sjálfstilgang manneskjunnar og lamar heilbrigða skynsemi — ofan á þetta allt saman falla 500 þús. manns á ári sem fórnardýr bilanna og margar milljónir lim- lestast”. 500 þúsund fórnarlðmb árlega Þetta segir Schneider. Við lest- urinn verður maður gripinn þeirri tilfinningu, að þetta geti svo sem verið Amerika, — en bara Amerika, megi ekki vera nema Amerika. En er þetta ekki meira en Amerlka? Þvi miður. Það er engin ástæða til að halda, að vit- firringin sé staðbundin. Þótt hér hafi ekki verið nefnd einstök dæmi tekur Schneider lesendur með sér i ferð um Evrópu, kemur við I Stokkhólmi, Kaupmanna- höfn og annars staðar, þar sem billinn rfkir. En Schneider nefnir þó ekki Is- land? Nei, satt er það. En þar fyr- ir er engin ástæða til þess að ý varpa öndinni léttar. Ætli Rest það, sem Schneider segir, eigi ekki við okkur Islendinga lika? Litum t.d. á einn laugardags- morgun um tólfleytið i andlit þeirra bilstjóra, sem sitja fastir I snyrtilegri röð frá Artúnsbrekku og niður i miðbæ. Auðn og tóm. Einangrun og einvera. Svei mér þá, ef „brosandi” grillið á bilnum þeirra er ekki öllu manneskju- legra i framan! Ellegar hinir alkunnu Islenzku útiloftsmenn og rjúpnadrepir? Litum á þá i jeppunum sinum. Akandi i vegleysunum upp hól og niður hól, yfir mel og ofan á mel, eftir mýri og inn I mýri, yfir ár og undir ár, upp á fjöll og niður af þeim aftur eins og þéttriðið net hjólbarðaslóða um allt Island staðfestir. Billinn — sú elskan- lega blikkbelja — er komin á beit um allt tsland. Og að sjálfsögðu var öllum fyrst hugsað til hans, þegar mannfólkinu hafði verið bjargað undan eldgosi i Vest- mannaeyjum. Vel á minnst, Vest- mannaeyjar. Þar voru 800 bilar. Þar var verkstæði og benzinstöð, varahlutaverzlun og sjálfsagt hjólbarðaviðgerö lika — sem sagt allt, sem til þarf, nema land til þess að aka á. MANNKYNSINS? Fimmtudagur 1. marz. 1973 Fimmtudagur 1. marz. 1973 o

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.