Alþýðublaðið - 01.03.1973, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 01.03.1973, Blaðsíða 5
Lihýöwlj Alþýðublaösútgáfan h.f. Ritstjóri Sig- hvatur Björgvinsson (áb). Fréttastjóri Bjarni Sigtryggsson. Aðsetur ritstjprn- ar Hverfisgötu 8-10. — Sími 86666. Blaðaprent h.f. LÚÐVÍK VILL EKKI Ekkert gengur i togaradeilunni. Enn liggja skipin bundin við bryggju. Með hverjum deg- inum, sem liður við þær aðstæður, tapar þjóðar- búið stórfé. Sárastur verður þó tekjumissirinn fyrir togarasjómennina sjálfa og verkafólkið i frystihúsunum og er það eins og venjulega, að þeir tapa mestu, sem minnst eiga. Togaramenn, sem samkvæmt opinberum skýrslum eru tekju- lægstu menn á landinu, hafa nokkuð á annan mánuð mátt heyja að mestu leyti einir og óstuddir „gleymda” verkfallsbaráttu. Geta má nærri um hversu mikla erfiðleika hin langa verkfallsbarátta er farin að skapa þeim og fjöl- skyldum þeirra. Þar á ofan þurfa togarasjó- mennirnir svo að sæta aðkasti utanaðkomandi manna fyrir að leyfa sér að krefjast tæplega 25 þús. kr. kauptryggingar á mánuði fyrir 12 tima vinnu á sólarhring og langar fjarvistir frá heim- ilum sinum og fjölskyldum. Þjóðviljinn, blað Alþýðubandalagsins, tekur mál þetta til umræðu i fyrystugrein sinni i gær. Bendir blaðið á, að i fyllsta máta sé óeðlilegt, að togaraeigendur, sem hafa að mestu eða öllu leyti fengið kaupverð skipa sinna i formi lána og jafnvel framlaga úr opinberum sjóðum, skuli þverskallast við að semja og halda skipum sinum bundnum við bryggju. Réttast væri, segir blaðið, að rikið taki togarana eignarnámi, a.m.k. um sinn, og haldi þeim til veiða. Rikis- valdið eigi hvort eð er mest allt það fé, sem þeir hafi verið greiddir með. Þetta er stefna Þjóðviljans. Hvers vegna er hún þá ekki framkvæmd af sjávarútvegsmála- ráðherra Alþýðubandalagsins? Hefur hann e.t.v. einhverja aðra stefnu? Hver er þá hún? Staðreyndin er nefnilega sú, eins og glöggt kom fram hjá ráðherranum i þingræðu á dögunum er togaradeilan var á dagskrá, að átökin eru á milli hans annars vegar og togara- útgerðarmanna hins vegar. Togaraeigendur neita að semja, nema rikisstjórnin tryggi rekstrargrundvöll togaraútgerðarinnar i landinu, sem ekki er nú fyrir hendi. Á það neitar sjávarútvegsráðherrann að fallast. í þessari sjálfheldu hefur málið staðið i meira en heilan mánuð og togarasjómennirnir — tekjulægsta at- vinnustéttin á íslandi — standa mitt á milli striðandi aðila og taka við pústrum frá báðum. Þannig á stétt togarasjómanna ekki aðeins i höggi við atvinnuveitendur sina um þessar mundir. Hún á einnig i höggi við sjávarútvegs- ráðherrann, Lúðvik Jósepsson. Ef hann vildi gæti hann leyst vinnudeiluna fyrir togara- mennina strax i dag. En hann vill það ekki. Svo einfalt er málið. Þjóðviljinn getur svo skrifað eins mikið og lengi og honum sýnist um nauðsyn þess að rikið leggi eignarhald á togarana og haldi þeim út. Togarasjómenn verða ekki hökufeitir af þeim orðum, sem aldrei voru ætluð að vera meira en innantóm glamuryrði. Ef Þjóðviljinn vildi i raun og veru hjálpa togarasjómönnunum i vinnudeil- unni þá myndi hann snúa sér að sjávarútvegs- málaráðherra Alþýðubandalagsins og ýta við honum. Hann getur leyst þessa deilu, ef hann vill og hefði löngu átt að vera búinn að gera það.Þetta veit Þjóðviljinn. Þetta vita útgerðar- menn. Og þetta vita sjómennirnir. ALÞYÐUBLAÐIÐ óskar að róða sendil strax. Þarf að hafa bifhjól. Hafið samband við afgreiðslu blaðsins. Sími 14900. ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG REYKJAVÍKUR - LAUNÞEGARÁÐ: HVAOIM KJARAMÁUN? VIÐHORFIN I KJARAMÁLUM verða umræðu- efnið á fundi Launþegaráðsins, sem haldinn verður i Ingólfscafé í dag, 1. marz, og hefst kl. 20,30. stundvíslega. Frummælandi verður: BJÖRN JÓNSSON, forseti Alþýðusambands Is- lands. Launþegaráðsmenn og aðrir Alþýðuflokksmenn eru hvattirtil þessað f jölmenna og mæta stundvís- lega! STJÓRNIN Björn Jónsson HAFNFIRÐINGAR: ELDGOS - EFNAHAGUR - PÓLIIÍK Alþýðuflokksfélag Hafnarfjarðar boðartil fundar í dag, fimmtudaginn 1. marz í Alþýðuhúsi Hafnar- fjarðar og hefst fundurinn kl. 20,30. Fundarefni: Benedikt Gröndal, varaformaður Alþýðu- flokksins ræðir: ELDGOS — EFNAHAG — POLITIK. Alþýðuflokksfólk fjölmennið. Benedikt Gröndal Alþýðuflokksfélag Hafnarfjarðar ALÞÝDUFLOKKSFÉLAG REYKJAVÍKUR AUGLYSIR VIÐTALSTIMAR ÞINGMANNA OG BORGARFULLTRÚA ALÞYÐUFLOKKSINS Stjórn Alþýðuflokksfélags Beykjavíkur hefur ákveöið að gangast fyrir þvi, að Reykvikingum gefist tækifæri á aö hitta að ntáli þingmenn Alþýðuflokksins og borgarfulitrúa i Reykjavik. 1 þeim tilgangi mun stjórnin auglýsa viðtalstima reglulega hvern fimmtudag á timabilinu frá kl. 17—19, þar scm þessir trúnaðar- menn skiptast á um að vera til viðtals. Viðtölin fara fram á skrif- stofum Alþýðuflokksins að Hverfisgötu 8—10. I dag, fimmtudaginn 1. marz, erþað INGVAR ASMUNDSSON, varaborgarfulltrúi Alþýðuflokksins i Reykjavik, sem veröur til viðtals á flokksskrifstofunum við Hverfisgötu á timanum frá kl. 5 til 7 s.d. Þeir, sem geta ekki komið, en vilja ná tali af varaborgar- fulltrúanum, geta hringt i sima 1-50-20, en það er siminn i viö- talsherberginu. Ingvar Asmundsson Alþýðuflokksfélag Reykjavikur. Fimmtudagur 1. marz. 1973 o

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.