Alþýðublaðið - 01.03.1973, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 01.03.1973, Blaðsíða 3
FRÉTT NÆMT Læknisfræði- bókmenntir Hér á landi er staddur yfir- maður bókasafna Mayo Foundation I Rochester i Minnesota, Jack D. Key. Kemur hann hingað á vegum islenzku læknafélaganna og mun halda fyrirlestur um læknisfræðibókasöfn og hlut- verk þeirra. Fyrirlesturinn verður haldinn i kennslustofu Land- spitalans og hefst kl. 20.30 á fimmtudagskvöld. Gosið spillir ekki fiskinum Rannsóknir sem m/s Bjarni Sæmundsson gerði i nágrenni Vestmannaeyja nýlega, benda til aö ekki þurfi að óttast að áhrifa frá gosinu gæti i sjónum, t.d. á fiskgöngum. Reyndist ástandið vera eöli- legt, og meðalhitinn sá sami og venjulega, 7 stig. Einu áhrifin sem merkjanleg voru fundust i nágrenni við Eyjar, en þau hurfu skjótt þegar frá landi dró vegna blöndunar- áhrifa vinda og strauma. 18 þúsund tonn til Eskifjarðar Til Eskifjarðar hafa nú borizt um 18 þúsund lestir af loðnu á yfirstandandi loönu- vertið, þar af hafa 200-300 tonn veriö fryst, en hitt farið i bræðslu. Þegar er búið að afskipa á Eskifirði 1100-1200 tonn af loönumjöli og sömuleiðis eru farin þaðan ein 470 tonn af lýsi. HAFNARFJÖRÐUR ENDURSKIPULAGÐUR Skipulagsnefnd og bæjarverkfr. Hafnarfjaröar lögðu þann 15. feb. fyrir bæjar- ráð tillögu að aðalskipulagi Hafnarfjarðar. 1 samráði við skipulagsstjóra ríkisins sam- þykkti siðan bæjarstjórn að uppdráttur og greinargerð skipulagsins yrði auglýst til sýnis og gagnrýni. Stefnt er að þvi, að aöalskipulagið verði samþykkt á komandi sumri. Núgildandi og eina skipulag Hafnarfjarðar hingað til er frá árinu 1933, en það hefur veriö unnið jafnt og þétt að breyt- ingum á þvi. Gildistimi hins nýja skipulags verður frá 1968- 1983. t greinargerðinni, sem aðal- skipulaginu fylgir, kemur m.a. fram að Ibúafjöldi bæjarins 1. des. s.l. var 10.694. Hefur hann aukizt hraðar undanfarin 5 ár, en ráð var fyrir gert I áætlun um ibúafjölda einstakra sveitarfé- laga á höfuðborgarsvæðinu. Aætlaður ibúafjöldi Hafnar- fjaröar 1983 er 14-15 þús. Aætlað er, að heidarlandþörf Hafnarfjarðar fyrir byggingar verði milli 500-600 hektarar I lok skipulagstimabilsins. Er það nálægt helmings aukning frá þvi, sem nú er. Helstu nýju byggingarsvæðin verða hinir svokölluöu „Hvammar” i suöurhluta Hafnarfjarðar og þar á eftir suðurhluti Hval- eyrarholts og eru það sfðustu stóru svæðin, sem byggð veröa bæjarmegin við Reykjanes- braut. Sennilegt er talið, aö fyrsta ibúðarsvæðið ofan Reykjanes- brautar veröi hið svokallaða „Asland” kringum býlið As, sem stendur undir Asfjalli suö- austan við bæinn. Uppdrættir aðalskipulagsins ásamt greinargerð verða til sýnis I skrifstofu bæjarverk- fræðing^, Strandgötu 6, alla virka daj.a kl. 11-12 fram til 27. april n.k. Hlutaöeigandi aðilum ber að skila athugasemdum sinum til bæjarstjóra Hafnar- fjaröar fyrir 11. mai n.k. Fimm ára verðandi skákséní Robert Le Donne, sem er 5 ára gamall, æfir skákkunnáttu sina í Shelby Lyman Chess Institute i New York. Robert öðlaðist áhuga fyrir skáklist- inni s.l. sumar við að fylgjast með sjónvarpsþáttum um heimsmeistarakeppnina milli Bobby Fischer og Boris Spassky I Reykjavik. Skák- meistarar I Marshall Chess Club I New York eru nú farnir að kenna honum og einn þeirra, Shelby Lyman, segir, að Robert litli geti bætt það afrek Fischers aö vera oröinn stórmeistari 15 ára gamall. Fyrir nokkru fóru til Vest- mannaeyja tveir menn á vegum Almannavarna i þvi skyni að meta þá bila, sem þar eru I notk- un, meö tilliti til verðmætis þeirra, öryggis og væntanlegs viðhalds. Tilgangurinn með skráningunni er m.a. aö auðvelda væntanlegar bætur vegna skemmda, sem veröa vegna notk- unar bilanna við björgunarstörf. Annar þeirra, sem fékk þetta verkefni, er Hafsteinn Sölvason, bifreiðaeftirlitsmaöur, og sagöi hann I viðtali viö Alþýöublaöið i gær, að 162 bilar hafi verið i Eyj- um, þegar þeir fóru þangað, en siðan hafi eitthvað bætzt við, m.a. hafi nokkrir bilar frá vegagerö- inni veriö sendir austur. Þaö kom m.a. fram við athug- unina, aö þvi er blaðiö fékk upp- lýst hjá Almannavörnum, aö slit á hjólböröum og rúðuskemmdir eru mjög miklar, en einnig veldur gjallið miklum skemmdum á | ýmsum vélarhlutum, og sezt m.a. inn i lofthreinsara og oliusiur. Að sögn Hafsteins er geysimik- ið verk að vinna þá skýrslu, sem Almannavarnir eiga að fá um feröina, en þó sé timafrekast aö finna út hvert er verðgildi bilanna eða gangverð. Til þess verður að ganga á milli bilasala, og sagöi hann, að þeim beri alls ekki sam- an. Nýrritstjóri Frá og með deginum i dag, 1. marz, tekur Freysteinn Jó- hannsson viö starfi sem rit- stjóri Alþýðublaðsins og verður hann jafnframt ábyrgðarmaður þess. Freysteinn Jóhannsson er 26 ára, fæddur i Siglufirði, sonur hjónanna Jóhanns Þorvalds- sonar, kennara, og Friðþóru Stefánsdóttur. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskól- anum að Laugarvatni 1966 og hóf starf sem biaðamaður við Morgunblaðiö ári siðar. Vorið 1970 lauk hann námi við norska blaöamannaskól- ann i Osló og hefur siöan starfað hjá Morgunblaöinu, en sl. sumar var hann blaðafull- trúi Skáksambands Islands meðan heimsmeistaraeinvigiö i skák stóð yfir. Freysteinn Jóhannsson er kvæntur Viktoriu Ketilsdóttur. Sighvatur Björgvinsson verður áfram stjórnmálarit- stjóri blaðsins og Bjarni Sig- tryggsson fréttastjóri þess. HLAIIT ADEINS VIKU FANG- ELSIFYRIR LÍKNARMORD Málaferðin út af liknarmoröi hollenzka læknisins Postma-van Boven hefur vakið heimsathygli, eins og sagt var frá hér I blaöinu fyrir skemmstu. Málið gegn hinni 45 ára gömlu van Boven hefur veriö til með- feröar fyrir dómstóli i frisneska bænum Leeuwarden. Var hún ákærö fyrir að hafa stytt móður sinni aldur með banvænum mor- finskammti. Hefur hún nú veriö dæmd til fangelsisvistar I eina viku, og I eins árs fangelsi skil- orðsbundiö. Eins og áður segir, hefur mál þetta vakið mikla athygli langt út fyrir landamæri Hollands. Stéttarbræður van Boven i Hol- landi hafa með ýmsu móti tjáö samúð sina og samstöðu meö hinni ákærðu, og tugþúsundum undirskrifta var safnað henni til stuönings. Eftir sakarefninu gat van Boven búizt við allt að 12 ára fangelsi. Ákærandinn krafðist hins vegar eins mánaðar fangels- is óskilorðsbundið, og tveggja ára fangelsi skilorðsbundið. Verjandi ákærðu kraföist aftur á móti sýknudóms og hélt þvi fram, aö liknarmorð væri ekki refsivert. Málið reis, eins og áður hefur verið sagt frá, vegna þess, aö ákærða gaf þjáðri móður sinni banvænan skammt af morflni ár- ið 1971. Haföi móöir hennar sem var 78 ára gömul, sárbænt hana um aö binda endi á lif sitt. Uppvist varð um liknarmorðið, þegar starfsbróðir van Boven, neitaðiaö undirrita dánarvottorö, þar sem hinni raunverulegu dánarorsök var leynt. Frú Postma van Boven hafði áður rætt viö þennan lækni um liknar- morö, og taldi, að hann væri hlynntur réttmæti þess undir hlið- stæöum kringumstæðum þeim, sem hér hefur lauslega verið skýrt frá. Svo reyndist hins vegar ekki, þegar til kastanna kom. Komst atferli van Boven þannig upp, og var hún ákært samkvæmt hollenzkum lögum. Verjandinn hélt þvi fram, að gildandi ákvæöi væru dauö- ur lagabókstafur, sem ekki bæri að fara eftir. Verður ekki annað séö en að undirréttur- inn I Leeuwarden hafi með dómi sinum, að einhverju leyti fallizt á það sjónarmið. Eflaust veröur máli þessu áfrýjað af ákæruvald- inu, og um það fjallað af hæsta- rétti Hollands, hver sem úrslit þess kunna að verða þar. Skuttogari Eskfirð- inga hefur fiskað vel Aflabrögð skuttogarans Hólmatinds, sem gerður er útfráEski- firði, en hanner af minni gerðinni, um 500smálestir að stærð, hafa verið mjög góð að undanförnu. Meðalafli togarans eftir 7-10 daga útivist hefur verið 100-140 tonn. Að sögn Helga Hálfdánarsonar á Eskifirði heyrir til algerra undantekninga, að Hólmatindur komi til lands með minna en 100 tonn. EYJABÍLAR METNIR VEGNA BfiTA Fimmtudagur 1. marz. 1973 o

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.