Alþýðublaðið - 07.03.1973, Blaðsíða 6
íslenzka áfengislöggjöfin leyfir ekki
sýkladrepandi áfengismagn í brugginu
Staðgreitt/ 1 ks. öl,
stóð á nótunni.
Nú geta Reykvikingar
keypt sér efni til öl-
gerðar i matvöru-
verzlunum borgarinnar.
Er skammtur af humli,
kornflögum, malt-
extrakt, geri, og
fleiri efnum, sem dugar
til að brugga 16 litra af
öli seldur i fallegum um-
búðum, og að sfálfsögðu
með leiðbeiningum.
Utan á pakkann er limdur miöi
með „Viövörun”. Er hann með
rauðu letri og fer ekki fram hjá
neinum. Segir þar: Samkvæmt
islenzkum lögum er óheimilt að
búa til drykki, sem i er meira en 2
1/4% af vinanda að rúmmáli. Af
þessum sökum skal aðeins nota
0% eða 0 gr. af sykrinum i upp-
skriftinni. Notið sykurflotvog til
öryggis.
Þá kemur úrdráttur úr áfengis-
löggjöfinni:
Lög nr. 58, 24. april 1954: I. kafli
2. grein:
Afengi telst samkvæmt lögum
þessum hver sá vökvi, sem meira
er i en 2 1/4% af vinanda að rúm-
máli. III. kafli, 7 gr.: Bannað er
að brugga á Islandi eða búa til
áfenga drykki eða áfengis-
vökva...”
Ef einhver hefur haldið, að upp
væru runnir nýir timar, eða eins
og stundum er sagt, þeir góðu
gömlu timar, i ölgerðar- og
áfengismálum Islendinga, þá
getur sá hinn sami strax hætt við
að halda upp á það.
Þetta er ekki sársaukalaust,
þvi eins og segir i meðfylgjandi
leiðbeiningum, erum við
tslendingar með fremstu þjóðum
á þessu sviði og ættum þvi að geta
náð góðum árangri. Er með þessu
átt við hollustuhætti og þá
þekkingu á hreinlæti, sem nauð-
synleg er við ölgerð. Alveg sér-
staklega er slikt mikilvægt vegna
þess, að ekki er fyrir hendi nægi-
legt vínandamagn til þess, að það
hafi sótthreinsandi áhrif, á sama
hátt og i sterkum bjór.
Er þess og sérstaklega getið á
öðrum stað i leiðbeiningunum, að
það sé hið upphaflega sykurmagn
i vökvanum, sem ræður þvi, hve
mikið vinandamagn myndast við
gerjunina. En eins og áður segir,
er brýnt fyrir væntanlegum öl-
gerðarmönnum að nota aðeins 0
gr. af sykrinum i uppskriftinni.
Þá er engin hætta á ferðum.
FRYSTIHÚLFIÐ
DJÚPFRYSTING A BÖKUNARVÖRUM
Næstum þvi allar bökunar-
vörur er hægt aö drjúpfrysta.
Þó eru til undantekningar, svo
sem eins og marengs. Bezt og
handhægast er að djúpfrysta
brauð og kökur eftir að bakað
hefur verið, en einnig er hægt að
djúpfrysta deigið óbakaö. Þegar
frysta á gerdeig, þá á að nota
tvöfalt það magn af geri i
deigið, sem gefið er upp i upp-
skriftinni.
Venjulegar brauövörur,
tertubotnar og kökur, sem
frystar hafa verið og geymdar
við — 18 stig á Celcius eftir
baksturinn er hægt að geyma I 8
til 10 mánuöi. hrátt deig d.iúp-
fryst i 1 -3 mánuði og mjög fitu-
rikar kökur eða brauðvörur i 3
mánuði.
Umbúðir:
Sem umbúðir má nota plast-
poka, álpappir eða hreinar
álþynnur.
Þíðing:
Hrátt deig, sem hefur veriö
formað i kökur/brauð eöa tertu-
botna áður en það hefur verið
fryst má setja frosið i ofninn.
Steikingar- eöa bökunar-
timinn á þá að vera helmingi
lengri, en ella (ekki tvöfalt
lengri, heldur þvi sem nemur
1/2— helmingi — af upphaflega
uppgefnum bökunartima).
Fullbakað brauð er hægt að þiða
við stofuhita ellegar i ofni. Sé
brauðvaran þidd I ofni er hætt
við þvi, að hún þorni nokkuð.
Umbúðirnar eru settar utan
um franskbrauð, bollur o.þ.h. á
meðan þau eru enn volg. Þannig
verða brauðin ekki eins þurr og
skorpan losnar ekki eins frá inn-
matnum og ef beðið er með að
pakka inn þangað til eftir að
brauðvörurnar hafa kólnað. Þó
verður að gæta þess að EKKI
má setja þessar né aðrar mat-
vörur i sjálfan frystirinn fyrr en
þær hafa fullkólnað. Fransk-
brauð fullþiðnar við stofuhita á
ca. þrem klukkustundum, viö
170 stig á Celcíus i ofni á 45 min.
Bollur þiðna við stofuhita á ca. 1
klst.,en i ofninum á ca. 10 min.
Vínarbrauö, kringlur o.s.frv.
fullbakast, eru látnar kólna og
pakkað i álþynnur eða álpappir
áður en þaé er sett I frystirinn.
Sllkar bökunarvörur á að þiða I
170 stiga heitum ofni i ca. 10-15
min. 3 klst.
Sykurdeigskökur (sandkökur,
harðar tertur o.s. frv.) má ef
vill skera I sundur og setja sultu
á milli laga I eða væta I ávaxta-
safa áður en þær eru frystar.
Einnig má skreyta þessar kökur
áður en þær eru frystar, en þó er
bezt að biða með það þangað til
EFTIR að þær eru orénar harð-
freðnar. Þessar kökur á að þiða
á svölum staö I ca. 3 klst.
Gott er að hraðfrysta kransa-
kökur og aðrar þurrar köku- og
tertutegundir. Þær eru þiddar
við stofuhita — timalengdin fer
eftir stærð kökunnar.
Vatnsdeigskökur má frysta
með eða án fyllingar.
Þegar séra Bjarni var
sjötugur, sagði hann í
stólræðu einn sunnudag-
inn: „Hvað gera menn á
sunnudögum?" Síðan
ræddi hann þetta atriði
fram og aftur, og komst
réttilega að þeirri niður-
stöðu, að þeir dagar færu
fyrir lítið hjá æði mörg-
um. „Og nú", sagði séra
Bjarni, „þegar ég lít yfir
farinn veg, sé ég, að
sunnudagarnir í mínu lífi
eru, hvorki meira né
minna, en 10 ár ævinnar".
Þetta er ekki flókið
dæmi, en svona skýrt tala
bara snillingar. Og sann-
leikurinn er sá, að ótrú-
lega margir, eru í hrein-
ustu vandræðum með
jafnt sunnudaga sem aðr-
ar tómstundir. Saga og
stundir, sem eru mörgum
ekki aðeins tíu ár, heldur
heil eilifð af leiðindum og
sinnuleysi,einhvers staðar
á milli svefns og vitundar.
Þessu atriði verður að
gefa gaum í fullri alvöru.
Það virðist jafnvel svo, að
þeir, sem komast næst þvi, að
skipuleggja þann tima, sem þeir
hafa aflögu frá dagsins önn,
verji honum eins nytjalaust og
mögulegt er, að minnsta kosti
fljótt á litið. Má þar til nefna
bridge, golf, sportveiði, keilu-
spil, við að horfa á annað fólk
hamastimargvislegum leikjum
og keppnum, og svona mætti
lengi telja. Ekki er þetta sagt til
áfellis, og i rauninni lýsir þetta
0
Miðvikudagur 7. marz 1973.