Alþýðublaðið - 27.03.1973, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 27.03.1973, Blaðsíða 4
FLOKKSSTARFIÐ AÐALFUNDUR Aðalfundur Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur verður haldinn í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu n.k. miðvikudag, 28. marz, kl. 20.30. Á DAGSKRÁ: 1. Venjuleg aðalfundarstörf, þ.á.m. stjórnarkjör. 2. Tillaga til lagabreytingar. 3. Gylfi Þ. Gíslason hefur framsögu um efnið: Hvað er að gerast í stjórnmálunum? Alþýðuflokksfólk í Reykjavík. Fjölmennið og mætið stundvíslega. Stjórnin. FERMINGARGJAFIR NÝJA TESTAMENTIÐ vasaútgáfa/skinn °g nýja SALMABOKIN 2. prentun fást I bókaverzlunum og hjá kristilegu félögunum. HIÐ ÍSL. BIBLÍUFÉLAG ilallgrimskirkju Reykjavík simi 17805 opiö 3-5 e.h. Hamborg laugawegi 22 — Að.a'stræ'ti 6 Bawkastraeti 11 Eldhúsrúllur Skipasmiðir ✓ Óskum eftir að ráða nokkra skipasmiði. Mötuneyti á staðnum. Upplýsingar gefur yfirverkstjóri. SLIPPFELAGIÐ I REYKJAVÍK H.F. Mýrargötu, simi 10123. Féiag Járniðnaðarmanna Félagsfundur verður haldinn fimmtdudaginn 29. marz 1973 kl. 8.30 i Félagsheimili Kópavogs, niðri. Dagskrá: 1. Félagsmál 2. önnur mál 3. Erindi: „Valdakerfið á íslandi” Ólafur Ragnar Grimsson lektor flytur. Mætið vel og stundvislega. Stjórn Félags járniðnaðarmanna Landlæknir: ,,Ég mun hlíta dómsúrskurði um nafnabirtingu” Læknar hafa verið svipt- ir lækningaleyfi vegna óvarlegra lyfjaávísana Undanfarið hafa verið til um- ræðu i blöðum viðbrögð land- læknisembættisins við beiðni sakadóms Reykjavikur um birt- ingu á nöfnum einstaklinga, sem á árunum 1968—1971 hafa fengið ávisað eftirritunarskyld- um lyfjum oftar en 50 sinnum, svo og um birtingu á nöfnum lækna þeirra, er látið hafa einstaklingum þau í té. Eftirrit- unarskyld eru t.d. morfin og önnur skyld lyf, pethedin og amfetamin. Það er rétt, að landlæknis- embættiö hefur undir höndum upplýsingar um nöfn þessara lækna og sjúklinga. Það skal tekið fram, aö fyrrv. landlæknir, Sigurður Sigurðs- son, sendi sakadómara hinn 28. aprll s.l. upplýsingar um þá ein- staklinga, sem fengiö hafa ofan- greint magn af eftirritunar- skyldum lyfjum á árunum 1968—1971, en hvorki nöfn né sjúkraskrár viðkomandi. Til þess að almenningi sé kunnugt um ástæðuna fyrir þvi, að land- læknir hefur óskað eftir dóms- úrskurði, og þá væntanlega frá Hæstarétti, um hvort honum beri að gefa upp nöfn lækna og einstaklinga, vil ég benda á eftirfarandi: Samkvæmt 10. grein læknalaganna ber lækni að gæta fyllstu þagmælsku um öll einkamál, er hann kann að komast að sem læknir, nema lög bjóði annað. Þess vegna er beiðni ekki nægjanleg, heldur er krafizt dómsúrskurðar. aðra illkynja sjúkdóma og þar af leiðandi mjög þjáð. 3) Fólk með aðra sjúkdóma, t.d. taugasjúkdóma, sem þarfn- ast þessara lyfja, en væri að mestu óstarfhæft að öðrum kosti. 4) Fólk með persónuleika- galla, en sumt af þessu fólki leitar á náðir heimilis- og geð- lækna. Verkefni læknanna er að veita þessu fólki hjálp, uppörv- un, styrk og traust. Þessi hópur er mjög vandmeðfarinn og erfitt að fylgja ákveðinni reglu um meðferö, en oft er reynd lyfja- meðferö. 5) Fólk, virðist reyna meö öll- um tiltækum ráðum að fá ávisað ofangreindum lyfjum, til sölu, þótt erfitt sé að sanna slikt at- hæfi. Þessi hópur er fámennur. Siðan eftirritunarskyldan hófst, en sá siður var upp tekinn fyrir tugum ára, hefur það verið hlut- verk landlæknis, að benda lækn- um á aðila, sem sannað er að stundi þá iðju, og svo hefur einnig verið gert nú. Gæta verður ýtrustu varkárni, er þetta er gert, og farið er eftir þeirri reglu, að sá, er sakar, skal sanna sök. Þetta hefur tek- izt m.a. vegna góðrar samvinnu lyfjafræðinga og lækna við land- læknisembættiö. Fyrrv. land- læknar og núverandi hafa gefiö nokkrum læknum aðvaranir vegna óvarlegra lyfjaávisana, og i vissum tilfellum hafa lækn- ar að tillögu landlæknisembætt- isins veriö sviptir lækningaleyfi um tima eða varanlega. Saka dómari hefur fengið nöfn þess- ara lækna og má finna þessar upplýsingar i Heilbrigðisskýrsl- um. Ef dómsúrskurður verður uppkveðinn um birtingu nafna lækna og jafnframt ofan- greindra sjúklinga, mun ég vitaskuld hlita þeim úrskurði, en ennfremur mun fylgja sjúk- dómsgreining hvers sjúklings og jafnframt ástæða fyrir lyfja- ávísun læknis. Fyrir tilstuðlan fyrrv. land- læknis var gerður samanburður á heildarinnflutningi lyfja, sem eru eftirritunarskyld á Islandi á árunum 1967—68 og borið saman við innflutning á Norðurlöndum og í Englandi. Tafla Úr þessari töflu má lesa, að heildarinnflutningur til íslands er hlutfallslega minnien margra þessara landa. Ég hefi orðið var við, að fólk blandar oft s.k. „geðlyfjum” og róandi lyfjum saman við eftirritunarskyld lyf og gjarnan er rætt um, að læknar ávisi fyrr- nefndum lyfjum um of. 1 nóvembermánuði 1972 var fyrir tilstuðlan landlæknisembættisins og heilbrigðisráðuneytisins gerð tæmandi konnun á lyfjaávisunum á Reykjavikursvæðinu varðandi geðlyf, svefn- lyf, „róandi lyf ” og verkjalyf, þótt þessi lyf séu ekki eftirritunarskyld. Þrátt fyrir ýtarlega könnun meðal nágrannalanda, er ekki kunnugt um, að svo nákvæm könnun hafi verið gerð þar. Ætlunin er að slik könnun verði gerð af og til. Eftir að ég tók við embætti hefi ég unnið að áframhaldandi könnun gagna um eftirritunar- skyld lyf ásamt lyfjafræðingi við heilbrigðismáiaráðuneytið, þó að henni sé ekki að fullu lok- ið. Komið hefur i ljós, að fólk það, er hér um ræðir, má að mestu flokka i eftirfarandi hópa: Morphin (lOmg) Pethidin (lOOmg) Methadon (lOmg) Total svnthetic analgetics öll eftirritunarskyld . verkjalyf Hydrocon (5mg) Thebacon (7,5mg) Codein (20mg) Ethylmorphin (20mg) öll eftirritunarskyld hóstastillandi lyf öll eftirritunarskyld ávana- og fiknilyf liðan, m.a. geðveilu, drykkju- fsLAND 1967 312 312 75 387 699 58 15 3384 30 3487 4186 sýki (dipsomani) o.fl. 1 þessum 1968 216 306 148 454 670 96 1 6846 48 6991 7661 hópi eru allmargir, sem með Danmörk 1966 841 589 205 794 2791 205 82 22379 513 23200 25991 hiálp lyfja starfa sem nýtir Nnrpgur 1966 613 163 107 270 1096 266 5023 107 5889 6985 þjóðfélagsþegnar. Fullyrða má, Svibióð 1966 141 72 38 110 360 26 11482 1351 12987 13347 að ef betta fólk fengi ekki lyfja- irinnipnH 1966 129 103 194 297 534 43 18506 1056 19806 20340 meöferð, lægi margt af þvi á England 1966 760 184 83 266 1384 7 10567 179 12763 14147 leyti óstarfhæft. 2) Fólk með krabbamein og 1 töflunni kemur fram fjöldi skammta á 100 íbúa hvers lands. Ólafur ólafsson. Atvinnulýðræði 5 sætta ótrúlegustu sjónarmið, svo framarlega sem það á eftir að festa rætur hér. Stjórnmála- næðingurinn á eftir að hlýna, og e.t.v. að tilheyra fortiðinni. Það er svo, að þegar maðurinn fer að hugsa, þá finnur hann svar við öllu, einnig þvi ótrúlegasta. En geta Islendingar fært sér þetta i nyt? Eru þeir ekki það sundurlyndir? A t.d. að greiða fyrir háskólamenntun, sem er nauðsynleg öllum meiriháttar at- vinnurekstri? A menntaði maðurinn að bera meira úr býtum en sá ómenntaði? Hvað fjármagnið, verður mikið eða litið tillit tekið til þess hver leggur það fram, ef það er tryggt að það kemur til skila. Þessar o.m.fl. spurningar verða áleitnar. Það væri æskilegt að tslendingum tækist að notfæra sér þetta skipu- lag, ef ekki aö öllu leyti, þá að mestu leyti vonandi. Axel Kristjánsson talaði um húsbónda valið, það er rétt, hér er um vandasamt verk að ræða. Það er ekki nægilegt að trúa á hug- sjón, hve háleit sem hún er, ef enginn maður er til, sem fær er um að framkvæma hana. Trúar- eiginleikinn og hugsjónin mega sin litið, ef brautryðjandinn, foringinn eöa húsbóndinn kunna ekki til verka. Þaö er maðurinn og geta hans, sem skiptir öllu máli. Ég leit inn hjá iðnfyrirtæki fyrir fáum dögum. Fyrirtækið er með þeim stærri sinnar tegundar. Maðurinn, sem ég vildi tala við stóð þar við vinnu, og hreinsaði vélar eftir notkun ásamt fleira fólki. Þessi maður var allt i senn forstjórinn, meistarinn og verka- maðurinn. öllum þessum störfum er hann búinn að gegna hjá fyrirtækinu á fimmta áratug, eða nánar tiltekið i 43 ár, og i 53 ár hefur hann starfað hjá fyrir- tækinu. Hefði þessi maður verið háskólamenntaður hefði ég tæp- lega átt miklar samræður við hann á þessum stað. Þessi maður er góð fyrirmynd þeirra sem eiga að stjórna þegar íslendingar fara að hagnýta sér atvinnulýðræðið, ef það má gefa þvi það nafn. Mættum við eignast marga hans lika? Það sem bent hefur verið á hér að framan, eru megin sjónarmið atvinnulýðræðisins. Það má ganga út frá þvi vafalaust, að mörg ljón eiga eftir að verða á veginum, þangað til að almennur skilningur er fyrir hendi á at- vinnulýöræðinu. En eftir þvi sem það nær betur hylli fjöldans og verður almennara, þeim mun betur koma áhrif þess i ljós. Bjarrii G. Tómasson málaram. 0 Þriðjudagur 27. marz. 1973

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.