Alþýðublaðið - 27.03.1973, Page 12
Sparnaðarvikan hófst
með heimsókn á Alþinai
Hundruð reykviskra hús-
mæðra fylktu liði að Alþingis-
húsinu klukkan tvö i gær til að
mótmæla hinum miklu verð-
hækkunum, sem urðu á öllum
landbúnaðarvörum um siðustu
mánaðamót. Aðeins litill hluti
fylkingarinnar komst inn i þing-
húsið og á áheyrendapalla, sem
fljótlega voru fullskipaöir. Auk
reykvisku kvennanna voru
mættar á þingpalla 20-30 konur
úr Arnessýslu, þegar þingfund-
ur hófst, til að vekja athygli á
sjónarmiðum húsmæðra i sveit.
Þessi einstæða heimsókn
kvennanna á Alþingi hafði sin
áhrif á hina kjörnu fulltrúa,
húsbændurna i Alþingishúsinu,
og upphófst þar næsta óvenjuleg
„leiksýning utan dagskrár.”
Meðan á henni stóð skiptust á
pústrar og lófaklapp á vixl,
stundum mátti heyra frammi-
köll frá gestunum á áheyrenda-
pöllunum og utan af götunni
glumdu við hávær slagorð, þar
sem verðhækkunum á landbún-
aðarafurðum var mótmælt.
Um tima hrópuðu konurnar,
sem utan þinghússins stóðu:
,,Út með Halldór E.!” En ráð-
herrann lét sér nægja að kikja
út um gluggann og brosa. Hins
vegar mátti að minnsta kosti
einu sinni sjá Ölaf Jóhannesson,
forsætisráðherra, veifa hendi til
frúnna utan dyra. Forsætisráð-
herra tók engan þátt i umræð-
unum i gær um verðlagið á
landbúnaðarvörum.
„Leiksýningin”, sem var með
eldhúsdagssniði, i þingsölum i
gær hófst með þvi, að Jónas
Arnason bauð kvenfólkið vel-
komið á þing, einkum konurnar
austan úr sveitum. Gerði þing-
maðurinn grein fyrir mótmæla-
plaggi, sem 20-30 húsmæður i
sveitum Arnessýslu höfðu
undirritað, en þar sagði m.a.,
„að með nærveru sinni vildu
konurnar kynna sjónarmið sin,
þ.á m., að landbúnaðarvörur
hefðu ekki hækkað meira en
aðrar vörur”. Og ennfremur:
„Við mótmælum herferð, sem
nú er gerð gegn islenzku bænda-
fólki og skorum á islenzkar kon-
ur að sniðganga brezkar og
vestur-þýzkar vörur, meðan á
fiskveiðideilunni stendur við
þessar þjóðir.”
MÓTAAÆLI
Eins og kunnugt er samþykkti
almennur fundur i Húsmæðra-
félagi Reykjavikur 15. marz s.l.
að beina þeim tilmælum til hús-
mæðra, að þær dragi verulega
úr neyzlu landbúnaðarafurða i
mótmælaskyni vegna óeðlilegra
verðhækkana.
Á sama fundi var samþykkt
að skora á húsmæður að mæta á
þingpöllum 26. marz, þ.e. i gær.
Ekki reyndust þingmenn
stjórnarflokkanna i Neðri deild
Alþingis vera alveg sammála
konunum.
Þannig sagði Agúst Þorvalds-
son, að hann undraðist það, að
húsmæður beittu sér fyrir þvi að
takmarka neyzlu á landbún-
aðarvörum, „þeim vörum, sem
hefðu hækkað tiltölulega minnst
af öllum vörum á markaðnum”.
Jóhann Hafstein kvaðst sem
fyrsti þingmaður Reykvikinga
ekki geta setið undir þvi orða-
laust, að óvægilega væri vegið
að reykviskum húsmæðrum.
Sagði hann, aö þær húsmæður,
sem nú mótmæltu hækkun á
verði landbúnaðarafurða, væru
ekki að beina geiri sinum að
bændum, heldur núverandi rik-
isstjórn. Hún ætti sökina á hinni
miklu hækkun, sem orðið hefði.
SÖKIN RÍKIS-
STJÓRNAR
Ingólfur Jónsson kvað bændur
ekki eiga sök á verðbólgunni,
sem magnazt hefði meira en
nokkru sinni fyrr i tið núverandi
rikisstjórnar. Benti hann á, að
nú þegar verð á nýmjólk hefði
hækkað um 44%, hefði verðið til
bænda aðeins hækkað um 11,4%.
Skoraði fyrrverandi land-
búnaðarráðherra á húsmæður
að beina geiri sinum fremur að
rikisstjórninni, en hætta ekki
við að kaupa mjólk og aðrar
landbúnaðarvörur.
Halldór E. Sigurðsson, land-
búnaðar- og fjármálaráðherra,
sagði m.a., að kaupmáttur
launa væri nú meiri en áður. A
sama tima og islenzka þjóðin
berðist á tveimur vigstöðvum,
annars vegar við erlent ofurefli
til varnar 50 sjómilna land-
helginni, og hins vegar við
náttúruhamfarir i mestu veiði-
stöð landsins, væri ekki tima-
bært að etja stétt gegn stétt.
„Ég veit, að húsmæðurnar gera
sér grein fyrir þvi, bara ef þær
athuga málið betur, að þær hafa
öðru hlutverki aö gegna en efna
til æsinga,” sagði ráðherrann.
Gylfi Þ. Gislason sagði, að
augljóst væri af þvi, sem væri
að gerast i þinghúsinu og utan
þess þá stundina, að hagsmuna-
andstæður væru að skerpast
milli neytenda og framleiðenda.
Hér væri ekki tilefni til neinna
gamanmála. Ef einhverjir
hefðu egnt stétt gegn stétt væru
þaö þeir menn, sem tekið hefðu
að sér að stjórna landinu án
þess að geta það.
Gylfi sagði ennfremur, að
landbúnaðarvörur væru orðnar
óeðlilega dýrar, en samt sem
áður bæru bændur alls ekki of
mikið úr býtum, öðru nær. Kvað
Gylfi orsakir hinna óeðlilegu
hækkana á landbúnaðarvörum
þær, að röngu skipulagi og
rangri grundvallarstefnu væri
fylgt i landbúnaðarmálum af
hálfu núverandi rikisstjórnar.
HVER UNDRAST?
„Hver getur I alvöru undrazt
það, að islenzkar húsmæður
mótmæli þessum gifurlegu
hækkunum og láti þær ekki sem
vind um eyru þjóta. Ef landbún-
aðarvörur væru ekki greiddar
niður, væru þessar vörur nú
óseljanlegar á islenzkum mark-
aði. Þó að rikisstjórnin greiði
landbúnaðarvörur niður um
1.600 — 1.700 milljónir króna á
ári, þurfa neytendur samt að
greiða þetta gifurlega verð fyrir
þær. Þessu til viðbótar kemur,
að rikissjóður greiðir 400
milljónir króna til þess að er-
lendir kaupendur geti keypt is-
lenzkar landbúnaðarvörur.
Þetta ástand er óviðunandi”, og
Gylfi sagði að lokum: „A öllum
sviðum er núverandi rikisstjórn
hætt að reyna að stjórna land-
inu. Ekkert hagsmunamál er
launþegum og neytendum jafn-
brýnt og að rikisstjórnin fari
frá”.
Lúðvik Jósefsson, viðskipta-
ráðherra, hélt langa ræðu i eld-
húsdagsstil um þróun verðlags-
og viðskiptamála almennt.
Kvað hann hækkanirnar á land-
búnaðarvörum stafa fyrst og
fremst af þvi, að eðlilega hafi
verið staðið við samnings-
bundnar kauphækkanir til
bænda til samræmis við kaup-
hækkanir annarra stétta.
Lúðvik sagði m.a.: „Það er
ljótur leikur að ala á óeiningu
milli neytenda og framleiðenda.
Það er rangt, að islenzkar land-
búnaðarvörur séu orðnar óeðli-
lega háar i verði. Svo er alls
ekki, þegar borið er saman við
verð á landbúnaðarvörum i
öðrum löndum i nágrenni við
okkur”.
Björn Pálsson sagðist undrast
það, „að blessaðar húsmæðurn-
ar taki fyrir ódýrustu vöruna,
en ekki t.d. sykur, sem hefði
hækkað um 115%” og ýmsar
aðrar vörur.
„Þetta er eins og þegar mein-
lætamenn hér áður fyrr voru að
berja sjálfa sig, að hætta ein-
mitt að kaupa ódýrustu vör-
una”, sagði Björn. ,