Alþýðublaðið - 08.04.1973, Blaðsíða 2
Karlmaður fæddur í
STEINGEITARMERKI,
21. desember —r 19. janú-
ar.
Þeir karlmenri sem fæddir eru
i Steingeitarmerki eru oft
alvörugefnir i sjónarmiðum
sinum gagnvart lifinu, og oft
markar alvaran einnig sjónar-
mið þeirra gagnvart ástum og
rómantik. Yfirleitt eru þeir ekki
ýkja rómantiskir i sér, heldur
ganga þeir beint til verks og af
hreinskilni, þegar um málefni
hjartans er að ræöa. Mjög eru
þeir yfirleitt heiöarlegir hvað
tilfinningar snertir, og er sjald-
gæft að þeir beiti daðri eða
stofni til léttúöugra ævintýra.
Astin er þeim alvörumál, og
þeim er alltaf kappsatriði að
haga sér eins og vera ber.
bað getur tekið Steingeitar-
manninn talsverðan tima aö
finna þá konu, sem hann telur
að verði sér að hæfi sem eigin-
kona Þarsemhann er oftast nær
raunhygginn, vill hann einungis
kvænast þeirri konu, sem hann
álitur að verði sér stoð og stytta,
en ekki fjötur um fót. Gera þeir
þar margir miklar kröfur, og fá
naumastáhuga á konu, sem ekki
uppfyllir þær. En þegar þeir
hafa hinsvegar fundið þá konu,
sem þeir vilja kvænast, hafa
þeir ekki i frammi neitt laumu-
spil, og undantekningarlitiö eru
þeir mjög'. triiir og traustir
eiginmenn. ' ‘ ,
Flestir eru Steíngeitarmenn
starfsamir og harðduglegir.
Þeir geta gert miklar kröfur til
annarra, en þeir gera ekki siður
kröfur til sjálfra sin, og eru
undantekningarlitiö áreiðanleg-
ir og heiðarlegir. Hjónabandib
er þeim mikilvæg og virðuleg
stofnun, og þeir vilja flest i söl-
urnar leggja i þvi skyni að það
verði sem farsælast.
Karlmaður fæddur i
Steingeitarmerki og kona
fædd í
HRÚTSMERKI, 21. marz
— 20. apríl.
Ekki mundi það reynast
vandkvæöalaust ef þau gengju i
hjónaband þar eð hún er honum
gagnólik á margan hátt. Hún er
oft skapheit og ástriðumikil, og
er þvi liklegt að henni finnist
hann ekki nægja sér, vegna hlé-
drægni hans og hófstilltra til-
finninga. Hann er mjög varkár i
peningamálum, hún ör fljót-
huga og hættir við að fara gá-
lauslega með fjármuni. Sökum
þess hve stolt hún er að eðlis-
fari, er óliklegt að hún vildi láta
hann segja sér fyrir verkum>
hún mundi vilja stjórna heimil-
inu eftir sinu eigin höfði, og er
þvi hætt við aö oft mundi slá i
brýnu með þeim, bæði af þeim
sökum og vegna peningamál-
anna. Og ef hún svo vildi veita
honum ráð eöa liö i starfi, þá má
gera ráð fyrir aö hann þættist
þar éinfær. Hún er oft vel gefin,
en hefur aftur á móti sérstæðar
skoöanir, sem hún þá vikur ekki
frá. Þó er ekki loku fyrir það
skotið, að þau gætu átt farsælt
hjónaband, ef bæði væru stað-
ráðin i þvi og gerðu sér grein
fyrir agnúunum.
Karlmaður fæddur i
Steingeitarmerki og
kvenmaður fæddur i
NAUTSMERKI, 21. apríl
- 20. mai.
Ef hann kvæntist þessari
skapgóðu og hugljúfu konu, gæti
hjónaband þeirra orðið hið
ástúðlegasta, þar eð hún er
mjög þeim kostum búin, sem
hann telur að helzt megi eigin-
konu prýða. Hún er oftast nær
trú og traust eiginkona, sem
helgar sig heimilislifinu, og
mundi þvi ráðriki hans ekki
valda henni neinum áhyggjum.
Og þó að hún vilji vera honum
hjálpleg við að spara fé til fram-
tiðarinnar, þá ætlast hún til þess
að vel sé fyrir henni séð, og vill
ekki vera án þeirra hluta sem
með þarf. Yfirleitt er hún ein-
staklega ljúf i sambúð og mundi
á allan hátt vilja gera honum til
hæfis. En hitt er lfka til, að hún
hafi sinar eigin skoðanir, og þá
er hætt við að hún færi sinu
fram, hvað svo sem hann segði.
Yfirleitt hún frábær húsmóð-
ir, og mundi þvi ekki veita hon-
um ástæðu til gagnrýni. Ein-
lægni hennar og heitar tilfinn-
ingar mundu smám saman
vinna bug á Hlédrægni hans, og
yrðu þá viðbrögð hans meiri'og
innilegri. Hún er dugmikil og
raunhyggin eins og hann, ‘ en
samt sem áður kynni henni að
verða erfitt að uppfylla kröfur
hans til eiginkonunnar á köfl-
um.
Karlmaður fæddur i
Steingeitarmerki og kona
fædd í
TViBURAMERKI, 21.
maí — 20. júní.
Ætti hjónaband hans við þessa
eirðarlausu en oft vel gefnu
konu að reynast farsælt, má
gera ráð fyrir að bæði yrðu að
leggja þar hart að sér. Hann
mundi þurfa á þolinmæði að
halda i hjúskap við hana, þar eð
hann skildi ekki sibreytilega
skapgerð hennar og tilfinninga-
lif. Honum er það mjög mikil-
vægt að allt gangi samkvæmt
áætlun og árekstralaust, en allt
STEINGEITIN
Stjörnuspekin spurð
álits um sambúðina
hversdagslegt og skipulagt er
henni hugarraun. Hann getur
gerzt fáskiptinn og þögull, segi
hún eitthvað sem særir hann eða
móðgar. Venjulega hefur hann
fulla stjórn á skapi sinu og til-
finningum, hún lætur aftur á
móti tilfinningar og hugboð ráða
fyrir sér. Yfirleitt hugsar hún
ekki fram i timann, en hann er
einkar gætinn i peningamálum
og vill helzt safna sem mestu fé i
banka. Mundi honum þykja hún
ábyrgðarlaus og óáreiðanleg, og
allar hennar áætlanir einkenn-
ast af heldur litilli fyrirhyggju.
Ekki er liklegt að sterk tengsl
mynduðust með þeim, þar sem
ást hennar ristir grunnt á köfl-
um og megnaði ekki aö leysa ást
hans úr viðjum hlédrægninnar.
Aftur á móti er hún oft lifsglöð
og einkar aðlaðandi, og ef til vill
mundi hann telja það þess vert
að hann leitaðist við að skilja
hana.
Karlmaöur fæddur i
Steingeitarmerki og kona
fædd í
KRABBAMERKI, 21.
júní — 20. júni.
Ekki er óliklegt að hann
mundi laðast að þeirri konu en
þar sem þau eru harla ólik að
eðli til, er harla sennilegt að
mikla þolinmæði og einbeittni af
beggja hálfu þyrfti með til þess
að hjónabandið yrði farsælt.
Hún mundi þola illa hlédrægni
hans og hófstillingu i öllum við-
brögöum/ hún er oftast nær
ofsafengin i atlotum sinum og
holdlegar ástriður hennar
sterkar og krefst þvi þess af
makanum, að hann láti ekki sitt
eftir liggja. Og þó að hann kunni
vel að meta umhyggju eigin-
konunnar, er eins vist að honum
mundi finnast hún ganga helzt
til langt i sifelldu stjani sinu
kringum hann. Þá er og ekki
óliklegt að hún vilji flestu ráða i
sambandi við heimilishaldið, og
bæri hann þar fram einhverjar
tillögur, er aldrei að vita nema
hún neitaði að taka tillit til
þeirra. Hann mundi verða við
óskum hennar um öryggi, þar
eð hann mundi búa henni þægi-
legt og gott heimili, en varla
mundi hann þó vilja eyða pen-
ingum i þvi sambandi umfram
það nauðsynlegasta. Ef þau
gerðu það aftur á móti að sam-
komulagi með sér að vægja
hvort fyrir öðru og mætast á
miðri leið, þá er eins vist að
sambúð þeirra gæti orðið góö.
Hún mundi rjúfa viðjarnar af
viðbrögðum hans með ástarofsa
sinum og ástriðuhita, en vilja-
festa hans mundi auðvelda
henni stjórn á skapsmunum sin-
um og tilfinningum.
Karlmaöur fæddur i
Steingeitarmerki og kona
fædd í
UÓNSMERKI, 21. júli —
21. ágúst.
Jafnvel þó aö hann geti heill-
azt af þessari aðlaðandi og ást-
riku konu, en bæði mundu þau
samt verða að leggja nokkuð á
sig ef hjónaband þeirra ætti að
verða hamingjusamt. Hún gæti
reynzt honum hin bezta eigin-
kona, og heitar tilfinningar
hennar mundu án efa kalla fram
innilegri og sterkari svörun af
hans hálfu og rjúfa hlédrægni
hans. Hún hefur oft mikla
ánægju af að taka þátt i sam-
kvæmislifinu og fara á
skemmtanir; er ekki óliklegt að
hún gæti talið hann á að gerast
þar einnig þátttakandi, og
mundi það gera lif hans glað-
værara og fjölbreyttara, en á
þvi er ekki vanþörf. Þar sem
bæði eru metnaðargjörn, mundi
hún veita honum mikilvæga að-
stoð við að komast áfram. En
svo kemur þar á móti, að hún
getur verið kröfuhörð vegna
fágaðrar smekkvisi sinnar, og
gæti það, ásamt löngun hennar
til að skemmta sér, orðið til þess
að honum fyndist meir en nóg
um kostnaðinn, þar sem hann er
mjög sparsamur og fastur á fé,
og vill helzt leggja hvern eyri á
banka. Hún er oft stolt og við-
kvæm fyrir þegar virðuleiki
hennar er annars vegar, og
mundi ekki þola hugsanlega
gagnrýni hans. Hún mundi og
sennilega risa gegn yfirráða-
hneigð hans og ekki vilja láta
hann skipa sér fyrir. En eigi að
siður gæti hún orðið honum góð
eiginkona, og þyrfti hann ekki
að sjá eftir þótt hann leggði allt
á sig til þess að hjónabandið
yrði farsælt.
Karlmaður fæddur i
Steingeitarmerki og kona
fædd í
MEYJARMERKI, 22.
ágúst — 22. september.
Naumast mundi hann geta
kosið sér betra kvonfang, en
konu fædda i Meyjarmerki, svo
samvalin eru þau á margan
hátt, og ættu þau ekki að þurfa
mikið á sig að leggja til þess að
hjónabandið yrði hið farsælasta.
Bæði eru þau yfirleitt hlédræg,
en ástrik eigi að siður þótt ekki
sé þar ærslum eða ofsa fyrir að
fara, og mundi þvi hvorugt gera
þar þær kröfur til hins, sem ekki
yrðu uppfylltar. Bæði láta þau
fremur skynsemina ráða fyrir
sér en tilfinningarnar og mundi
það auðvelda þeim alla sam-
vinnu. Bæði eru þau raunhyggin
og dugmikil, og mundi þeim þvi
vegna vel i öllu, sem þau tækju
sér fyrir hendur i sameiningu.
Þá er það staðreynd að bæði eru
þau yfirleitt sparsöm og hyggin
i fjármálum, og mundi þeim þvi
safnast drjúgum i sjóð til fram-
tiðarinnar. Vafalitið mundi
hann láta hana einráða um
heimilisstörfin, og þar sem bæði
eru mjög heimakær, þá yrðu
þau þar saman öllum stundum
sem þeim væri unnt. Henni
hættir við að vera all gagnrýnin,
en hann ætlast lika til fullkomn-
unar á öllum sviðum, svo það
kæmi heim. Þau þyrftu einungis
ef til vill að sýna hvort öðru
nokkurt umburðarlyndi, og ætti
þá hjónaband þeirra að verða
hið farsælasta.
Karlmaöur fæddur i
Steingeitarmerki og kona
fædd í
VOGARMERKI, 23.
september — 22. október.
Skaphöfn og eiginleikar þess-
arar konu eru þannig, að ekki
mundu hún og Steingeitarmað-
ur eiga vel saman, og er hætt við
að þau yrðu að sigrast á harla
mörgum vandamálum áður en
hjónaband þeirra yrði við-
unandi. Hún er oft harla róman-
tisk og ástriðuheit, og það
mundi þvi valda henni miklum
vonbrigðum, er hann reyndist
þess ekki umkominn að veita
ást hennar næga svörun. Marg-
ar konur fæddar i Vogarmerki
eru harla gefnar fyrir munað og
ætlast til þess að þær hafi efni á
að ganga glæsilega klæddar og
verða sér úti um þá skartgripi,
sem þær kjósa. Hætt er við að
hann mundi blátt áfram neita
þvi að eyða peningum i slikan
óþarfa, frá hans sjónarmiði, eða
hann léti undan kröfum hennar
með andmælum, og þó ekki
nema að einhverju leyti. Þá má
gera ráð fyrir að smekkur henn-
ar hvað allan heimilisbúnað
snertir reyndist allur annar en
hans. Hún er oft harla glæsileg
og aðlaðandi, og að sama skapi
vinmörg og hefur mikla ánægju
af þátttöku i samkvæmum og
störfum við félagsmálum, og
mundi honum finnast hún af-
rækja heimilið, ef til vill. Aftur á
móti er það nokkurn veginn vist,
að hún mundi fegin gera allt
sem i hennar valdi stæði til þess
að hjónabandið yrði farsælt, og
væri hann þá reiðubúinn að
ganga nokkuð til móts við hana,
þá gæti það tekizt.
Karlmaður fæddur í
Steineitarmerki
og kona fædd í
DREKAMERKI,
23. okt.—22. nóv.
Ekki er það ósennilegt að Stein-
geitarmaður laðist mjög að
þessari konu, og allt virðist fyrir
hendi til þess að hjónaband
þeirra geti orðið hið farsælasta
og báðum til hamingju. Hún er
oft mjög tilfinningarik, skap-
mikil og heit og áköf ást hennar
mundi rjúfa af honum viðjar ó-
framfærninnar og kynda undir
ástriðum hans. Þar sem allt
daður er honum yfirleitt fjarri
skapi, mundi hann ekki veita
henni neina átyllu til afbrýði-
semi, og yfirráðahneigð hennar
mundi hann láta sig einu gilda.
Hún er eiginmanni sinum und-
antekningarlitið ákaflega trú,
helgar sig fjölskyldulifinu og
mundi allt á sig leggja i þvi
skyni að hjónabandið yrði sem
farsælast. Hún sér oft lengra en
aðrir, og á flestum auðveldara
með að sjá hvern mann aðrir
hafa að geyma, og mundi þvi
geta veitt honum ómetanlega
hjálp i störfum og viðskiptum.
Hagsýni hennar og dugnaður
gerir að hún er frábær húsmóð-
ir, og mundi hann ekki hafa
neina ástæðu til að gagnrýna
hana hvað það snertir. Enerfitt
mundi honum veitast að skilja
hana fyrst i stað, vegna þess hve
tilfinningarik hún er og geðmik-
il. En hann þyrfti ekki að sjá eft-
ir þvi að leggja sig fram um
það, þvi að ef þau sýna hvort
öðru skilning og umburðarlyndi
er liklegt að hjónaband þeirra
verði með ágætum.
Karlmaður fæddur í
Steingeitarmerki
og kona fædd í
BOGMANNSMERKI
23. nóv.—20. des.
Það er harla óliklegt að hann
mundi laðast að þessari konu,
þar sem hún er honum harla
ólik á margan hátt, og trúlegast
að þau eigi fátt sameiginlegt.
Hún á sér oft mörg áhugamál
utan heimilisins og gæti það
orðið henni timafrekt. Hann
leggur hinsvegar oftastnær
megináherzluna á að komast
vel áfram og eignast gott heim-
ili, en hefur svo litinn tima af-
lögu til annarra hluta. Ekki er
hún likleg til að þola honum að
hann þrengi nokkuð frjálsræði
hennar, og sennilegt að hún léti
sem hún vissi það ekki, en færi
sinu fram, þó að hún geti verið
ástrik, er sennilegt að hana
mundi skorta hitann til að
brjóta af honum viðjarnar.
Hann mundi lita á margt, sem
hún tæki sér fyrir hendur, sóun
á fé og tima og hann mundi
gagnrýna heimilishald hennar,
ef hún léti áhugamálin bitna á
skyldustörfunum. Yfirleitt er
hún ekki mikil húsmóðir, og
mundi henni veitast það erfitt
að uppfylla kröfur hans þar. En
hvað um það, fyrir umburðar-
lyndi af beggja hálfu og einlæg-
an vilja, gæti hjónabandið orðið
sæmilegt.
Sunnudagur 8. apríl 1973.