Alþýðublaðið - 17.04.1973, Qupperneq 3
Sigfinnur
svarar
Fram-
kvæmdaráði
Framkvæmdastjóri Samtaka
sveitarfélaga i Suðurlandskjör-
dæmi, Sigfinnur Sigurðsson, gerir
eftirfarandi athugasemd við
„ummæli Framkvæmdaráðs
Framkvæmdastofnunar rikis-
ins”:
„1* Það er með öllu rangt, að
byggðasjóði rikisins sé bann-
að i lögum að veita fjármagn
til byggðaþróunar á Islandi,
enda hefir Framkvæmdaráð
stofnunarinnar nýlega gert
samning við ráðgjafarfyrir-
tækið Hagvang h/f, um vinnu
að Austurlandsáætlun gegn
greiðslu alls kostnaðar auk
eigin vinnuframlags stofn-
unarinnar.
Þetta ráðgjafarfyrirtæki er
hið sama og vann mest að
gerð 1. hluta Suðurlandsáætl-
unar.
2. Alþingi samþykkti fyrir tæpu
ári að fela Framkvæmda-
stofnun gerð Suðurlandsáætl-
unar i samvinnu við Samtök
sveitarfélaga i Suðurlands-
kjördæmi.
3. A fundum i september og
október s.l., varð það að sam-
komulagi milli Fram-
kvæmdaráðs Framkvæmda-
stofnunar rikisins og fram-
kvæmdastjóra Samtaka
sveitarfélaga i Suðurlands-
kjördæmi, að hann tæki að sér
forystu i þessu máli, þar eð
Framkvæmdastofnunin hefði
ekki nægu starfsliði á að skipa
vegna vinnu við þrjár aðrar
landshlutaáætlanir. Það hefir
komið i ljós, að þessi af-
greiðsla málsins hefir ekki
enn verið lögð fyrir stjórn
stofnunarinnar né heldur hefir
bréf forsætisráðherra frá s.l.
sumri, fengið þar afgreiðslu.
En í þvi bréfi fól hann stofnun-
inni umrætt verkefni, skv.
þingsályktuninni.
4. Það má benda á, að 1. áfangi
að Suðurlandsáætlun liggur nú
fyrir, en stofnunin hefir enn
ekki birt neitt af þeim byggða-
áætlunum, sem forgangsröö-
un hafa híotið”.
Heimsmeistaraeinvígið í skák 1975:
NU TAKA
RÚSSAR
Á HONUM
STÓRA
SÍNUM
Tap Spasskys gegn Fischer i
einvigi þeirra um heimsmeist-
artitilinn hefur heldur betur ýtt
við skákáhugamönnum i Sovét-
rikjunum. Er nú öll áherzla á
það lögð af hinni voldugu skák-
vél Sovétmanna, að Rússi
endurheimti heimsmeistara-
tignina árið 1975, en þá á næsta
heimsmeistaraeinvigi að fara
fram.
„Það hefur ekkert slaknað á
skákáhuganum hérna”, sagði
Anthony Saidy, bandariskur
skákmeistari, sem nýiega er
kominn heim frá skákmóti i
Eistlandi. „Ef eitthvað er, þá
hefurtapið gert það að verkum,
að Sovétmenn hafa einsett sér
að leggja sig meira fram”.
Sú i hæsta máta óvanalega
staða fyrir Sovétmenn að hafa
orðið númer tvö i heimsmeist-
araeinvigi hefur orsakað, að
„þeirra maöur”, Spassky, er
heldur i ónáð þessa stundina.
Hann hefur verið ávitaður i
blöðum fyrir slæman undirbún-
ing undir einvigið og sagt er, að
tvivegis hafi honum verið mein-
að að taka þátt i skákmótum á
erlendri grund — skákmóti i San
Antonio i Texas og skákmóti i
Palma de Mallorca.
Iþrótta- og likamsræktarráö
rikisins og hið opinbera mál-
gagn þess, blaðið „Sovetsky
Sport”, hafa ekki aðeins gagn-
rýnt Spasský, heldur einnig hina
tvo fyrri andstæðinga Fischers,
Tigran Petrosjan og Mark
Taimanov, fyrir að slugsa með
undirbúninginn að einvigium
Um Spassky sagði ráðið, að
hann hefði sinnt skákmótum
minna og hefði „unnið minna” á
siðari árum, en áður og að i ein-
viginu i Reykjavik hefði
„brugðizt að hann auðsýndi
viljastyrk og skapstyrk”.
Hinir tveir höfðu einfaldlega
ekki stundað likamlega og bók-
lega æfingu af nógri kostgæfni
„né heldur kynnt sér tafl-
mennsku beztu erlendu skák-
mannanna nægilega vel”, sagði
Sovetsky Sport.
Þá hefur Sovetsky Sport
gagnrýnt sovézka stórmeistara
fyrir „of litlausar skákir” og
iþróttaráðið hefur tilkynnt, að á
Skákmeistaramóti Sovétrikj-
anna, sem fram fer i október-
mánuði n.k., verði ekki leyft að
semja jafntefli fyrr en eftir 30
leiki, nema með leyfi dóm-
nefndar. Þessu til viðbótar
herma heimildir i Sovétrikjun-
um, að á undanförnum mánuð-
um hafi mikil áherzla veriö lögö
á að leita að nýjum, ungum
skákstjörnum i Sovétrikjunum
og þjálfa liklega verðandi snill-
inga. Svo mikil áherzla hafi
verið lögð á æskuna, að margir
eldri meistarar hafi þurft að
liða fyrir það. Aö minnsta kosti
einn eldri skákmeistari hafi
misst rikisstyrkinn og þurft 'að
hefja skákkennslu til þess að
afla sér tekna.
Spassky ber engin þess merki,
að hafa tekiö gagnrýnina nærri
sér en er i rólegheitum að undir-
búa sig undir hugsanlegt nýtt
einvigi við Fischer 1975að þvi er
vinir hans i skákheiminum
segja. 1 fyrsta skákmótinu, sem
hann tók þátt i eftir tapiö gegn
Fischer — en það var mót i Tall-
in, er lauk 16. marz s.l. — gekk
Spassky ekkert sérlega vel —
var i þriðja sæti ásamt þrem
öðrum þátttakendum.
Þátttakendur i mótinu sögðu,
að Spassky hefði litiö vel út og
hefði leikið án nokkra merkja
um, að hann ætti við sálræn
vandamál að etja eða fyndist
hann þurfa að endursannahæfni
sina. Ekki er heldur aö merkja,
að rikisstyrkur hans, sem nem-
ur 300 rúblum á mánuði (tæpum
40 þús. kr.), hafi verið skertur i
vanþóknunarskyni.
Gömlu meistararnir enn í ónáð
INDRIBI TIL FLESTUM
EINTOKUM Á
BÚKASOFNUM
tslenzk bókasöfn þurftu að
kaupa flest eintök af skáldsögu
Indriða G. Þorsteinssonar:
„Norðan við strið” á árinu 1971,
að þvi er segir i nýjustu bóka-
safnstiðindum. Þessi bók aflaði
Indriða silfurhests bókmennta-
gagnrýnendanna og var önnur
tslenzkir simamenn hafa átt i
málarekstri að undanförnu vegna
ágreinings um röðun i launa-
flokka. Astæða þótti til að kæra
röðun 160 af 1000 félagsmönnum
vegna siðustu kjarasamninga
BSRA.
Samkomulag náðist um launa-
flokka 30 þessara starfsmanna án
þess að þær færu til dóms. Kjara-
tveggja islenzkra bóka, sem lagð-
ar voru fram til bókmenntaverð-
launa Norðurlandaráðs siðast.
Hér fer á eftir skrá yfir þær 35
frumsamdar bækur, sem mest
var keypt af i almenningsbóka-
söfn á árinu 1971:
Indriði G. Þorsteinsson: Norðan
nefnd hefur fellt dóm i málum 87
félagsmanna Félags islenzkra
simamanna, 51 fékk enga úr-
lausn, en 36 fengu viðurkenningu
á kröfum sinum að öllu eða ein-
hverju leyti.
Þessar upplýsingar komu fram
á aðalfundi félagsins fyrir
nokkru. Formaður félags is-
ienzkra simamanna er Agúst
Geirsson.
við strið..................200
Guðmundur Danielsson:
Spitalasaga................188
Guðmundur G. Hagalin: Or
Hamrafirði til himinfjalla ....183
Andrés Kristjánsson: Agúst frá
Hofi.......................161
Kristmann Guðmundsson: Sum-
ar i Selavik...............145
Helgi Haraldsson (I.G.Þ.): Eng-
um cr Helgi likur..........132
JónHelgason: Orðskulu
standa.....................132
Þráin Bertelsson: Stefnumót i
Ilublin....................130
Vésteinn Lúðviksson: Gunnar og
Kjartan....................125
Óskar Aðasteinn: Dísir drauma
minna .....................120
Guðmundur Frimann: Rósin frá
Svartamó...................120
Halldór Laxness: Yfirskyggðir
staðir.....................120
Steinar J. Lúðviksson: Þrautgóð-
ir á raunastund............120
Guðjón Sveinsson: Svarti skugg-
inn........................115
Ingibjörg Sigurðardóttir:
Hrafnhiidur................113
Þorbergur Þórðarson: Einar rlki
III........................107
Guðm. Böðvarsson: Atreifur og
aðrir fuglar.................105
Guðjón Albertsson: ósköp .... 103
Sverrir Kristjánsson og Tómas
Guðmundsson: Gamlar slóðir. 100
Pétur Eggertz: Minningar rikis-
stjóraritara..............100
Jónas Guðmundsson: Hægur
sunnan sjö.................100
1 greinarstúf i bókasafnstíð-
indum er þess getið, að „ljóða-
bækur virðast ekki sigla háan byr
inn i söfnin”.
„Þó komu út á þessu ári bækur
eins og Klmblöð Hannesar
Péturssonar og Visur jaröareftir
Þorgeir Sveinbjarnarson. Væri
næsta eðlilegt, að slikar bækur
væru til i öllum stærri bókasöfn-
um landsins. Vonandi ber það
ekki vitni þverrandi ljóðelsku
þjóðarinnar, að svo fá eintök
ljóðabóka eru keypt i almenn-
ingsbókasöfn. Kaup á fræðibók-
um virðast heldur ekki vera ýkja
mikil — En meðan svo að segja öll
bókasöfnin berjast i bökkum
fjárhagslega er varla nema eðli-
legt, að helzt séu keyptar þær
bækur, sem fólkið spyr mest eft-
ir”.
Kæra niðurröðun
160 símamanna
í launaflokka
„Loki þó” nefnist nýtt leikrit
eftir Böðvar Guðmundsson, sem
Leikfélag Reykjavikur tekur til
sýninga i vikunni.Efni leikritsins
er sótt i Snorra-Eddu, og fjallar
um það uppátæki grallarans Loka
Laufeyjarsonar að klippa hárið af
Sif konu Þórs, og afleiðingar þess
verknaðar.
Vigdis Finnbogadóttir leikhús-
stjóri sagði á blaðamannafundi,
að Böðvar færi frjálslega með
efnið. Hann hefur sniðið það við
hæfi barna sem fullorðinna, enda
er meiningin að sýna leikritið
bæði á kvöld- og siðdegissýning-
um. Leikbúningar eru eftir
Magnús Pálsson og tónlist eftir
Jónas Tómasson. Leikstjóri er
Stefán Baldursson, en leikarar
eru 12 talsins.
Böðvar Guðmundsson skrifaði
leikritið að beiðni LR. Hann dvel-
ur við nám i Paris i vetur, en er
annars islenzkufræðingur að
mennt, sonur Guðmundar
Böðvarssonar skálds.
Hvers vegna hét
Snorri Snorri?
Þórhallur Vilmundarson
prófessor, forstööumaður ör-
nefnastofnunar Þjóðminjasafns,
flytur fyrirlestur i Háskólabiói á
skirdag 19. april kl. 3. Fyrirlest-
urinn nefnist: Hvers vegna hét
hann Snorri Sturluson? öllum er
heimill aðgangur.
Gufaði
R-11465
upp?
Engu er likara en Volkswagen
bill einn sé nú gufaður upp, þvi
þrátt fyrir mikla leit og stöðugar
auglýsingar, hefur ekkert til bils-
ins sézt siðan á laugardaginn.
Billinn er af árgerð 1967, hvitur
að lit og er númerið R-11465. Bill-
inn stóð á Reykjanesbraut, á
móts við Shell, þegar honum var
stoliö. —
Bjarni
Sigtryggsson
formaður B.í.
Bjarni Sigtryggsson, rit-
stjórnarfulltrúi Alþýðu
blaðsins, var kosinn formaður
Blaðamannafélags Islands á
aðalfundi þess á sunnudag.
Aðrir i stjórn eru: Atli
Steinarsson, Elias Snæland
Jónsson, Arni Gunnarsson og
Eiður Guðnason.
1 varastjórn eru: Árni Berg-
mann, Edda Andrésdóttir og
Friða Björnsdóttir.
Þriöjudagur T7. apríl T973.
o