Alþýðublaðið - 17.04.1973, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 17.04.1973, Blaðsíða 9
Iþrótíir 2 Meistarar VALIIR VARD LOKS MEISTARI! Valsmcnn eru tslandsmeistarar í handknattleik 1973. Þeir fóru yfir siöustu hindrunina jafn auöveld- lega og flestar hinar, unnu tR-inga í síöasta leik sinum 18:12. Þaö er enginn vafi á þvf aö bezta liöiö vann. Aö visu var sóknarleikur liösins engu betri en annarra liöa, en munurinn liggur fyrst og fremst i vörn og markvörzlu. A þvi sviöi eru Valsmenn f sérflokki hér á landi, og vafalaust á heimsmælikvaröa. Nú þegar tslandsbikarinn er kominn aö Hlföarenda, geta Valsmenn snúiösér aö næsta stórverkefni scm er Evrópukeppnin. Þar hafa Fram og FH einokaö á siöustu árum, en nú er þaö Valsmanna að spreyta sig- Eins og við var að búast, voru taugar Valsmanna strengdar i byrjun. Þeim gekk illa og það voru IR-ingar sem riðu á vaðið með að skora eftir fimm minútna leik. Og tR hefði getað bætt við fleiri mörkum, hefði Agúst Svavarsson ekki farið illa að ráði sinu i sókninni. En mörkin komu ekki hjá 1R, og það lenti i hlut hins ötula fyrir- liða Vals, Gunnsteins Skúlason- ar, að skora þrjú næstu mörk úr hornunum. Atti Gunnsteinn eftir að vera drjúgur i leiknum, enda hitti hann á veikan blett hjá Geir Thorsteinssyni markverði 1R. Staðan var orðin 5:1 fyrir Val þegar tR komst næst á blað, og i hálfleik var staðan 8:3. Enn jókst munurinn i byrjun siðari hálfleiks, og var staðan um tima 10:3. Þá komu þrjú mörk i röð hjá 1R, en þvi svöruðu Vals- menn jafnharðan með fimm mörkum i röð. Léku þeir af rósemi hins örugga sigur- vegara, og það kom engum á óvart að munurinn skyldi vera sex mörk þegar flautað var til leiksloka, 18:12 Valsmönnum i hag. Verðskuldaður sigur. Mörk Vals: Gunnsteinn 6, Bergur 3 (lv), Stefán 3, Gisli, Ölafur, Agúst, Jón K. Jóhann Ingi og Jón Jónsson eitt mark hver. Mörk 1R: Agúst 4, Brynjólfur 3, Gunnlaugur 2, Vilhjálmur 2 (lv) og Þórarinn eitt mark. Sem lyrr segir eru Valsmenn mjög vel að sigrinum komnir. 1 liði þeirra er hvergi veikan hlekk að finna i vörninni, og i sókninni eru leikmenn f jölhæfir, þótt Vaiur mætti vel við þvi að fá eina stórskyttu i sinn hóp, skotmann sem veruleg ógnun stendur af. 1 þessum leik var það fyrirliðinn Gunnsteinn Skúlason sem bar af öðrum. Aðrir leikmenn áttu frekar rólegan dag, en i markinu stóð Ölafur BenediktssQn sig frábær- lega vel. Það hlýtur að vera styrkur svo góðri vörn, að hafa jafn frábæran markvörð fyrir aftan sig. Ég hef sagt það áður og mun standa við það, að Ölafur er okkar langbezti mark- vörður þessa stundina, og lik- lega er hann einn þriggja beztu markvaröa sem við höfum átt. IR-ingar voru mjög ólikir þvi sem þeir eru venjulega i leikj- um gegn Val. Nú voru þeir óöruggir i sókninni, og það var eiginlega aldrei nein hætta á l'erðum fyrir Valsmenn. 1R hafnaði i fimmta sæti, og er þaö nokkru neðar en reikna mátti með eftir góða byrjun liðsins i tslandsmótinu. —SS. Þetta eru meistarar Vals vig- reifir að sigri loknum. Efri röð frá vinstri: Þórarinn Eyþórs- son, þjálfari (Tóti), Reynir Ólafsson, þjálfari (Patton), Gisli Arnar Gunnarsson, Torfi Asgeirsson, Jón Agústsson, Þorbjörn Guðmundsson, Gisli Blöndal, ólafur H. Jónsson, Björgvin Guðmundsson, Ólafur Guðjónsson, Geirarður Geir- arðsson, aðstoðarmaður, Þórð- ur Sigurðsson, formaður hand- knattleiksdeildar og Þórður Þorkelsson, formaður Vals. Fremri röð frá vinstri: Guð- mundur Harðarson, þjálfari, Stefán Gunnarsson, Jóhann Ingi Gunnarsson, Jón Breiðfjörð Ólafsson, Gunnsteinn Skúiason, Ólafur Bcnediktsson, Bergur Guðnason, Jón H. Karlsson, Agúst ögmundsson og Jón Jónsson. KR VANN ÁRAAANN LÉTT 4:0 KR vann Armann i Reykjavikurmótinu i gærkvöld 4:0> Leikur liðanna var fremur þófkenndur enda leikinn við erfiðar aðstæður. Staðan i hálf- leik var 1:0. Björn Pétursson skoraði fyrsta mark leiksins, og i siðari hálfleik skoruðu þcir Jóhann Torfason, Björn aftur (með hjálp mark- varðar Armanns), og Gunnar Gunnarsson. A iaugardaginn léku Valur og Vfkingur, og lauk leiknum ineð jafntefli 1:1. Jóhannes Edvaldsson skoraði stórglæsilegt mark fyrir Val i fyrri hálfleik, og I siðari hálfieik skoraði Stefán Halldórsson álika giæsilegt mark fyrir Viking. Jafntefli voru réttlát úrslit. i kvöld fer fram einn leikur i mótinu. Vestmannaeyingar leika við Þrótt á Melavellinum klukkan 19 i kvöld. —SS. JAFNT I KÖRFUNNI KR-ÍR 67:66 ( 42:25) Það er segin saga, að þegar KR og ÍR leiða saman hesta sina i körfunni, þá er enginn svikinn sem leggur leið sina á völiinn. Vart er hægt að hugsa sér skemmtilegri iþróttaleiki, en leiki KR og ÍR, spennan er gifurleg, einkum þegar fer að liða á leikinn. ÍR nægði sigur i leiknum til þess að hljóta Islandsmeistara- titilinn fimmta árið i röð, en KR- sigur þýðir það að leika verður hreinan úrslitaleik. Það var Hjörtur Hansson sem gerði þýðingarmestu körfu KR, úrslitakörfuna, og KR sigrar 67:66, eins stigs munur eins og svo oft áður. Leikurinn var eins og áður segir mjög jafn og spennandi, og leikmenn jafnt sem áhorfendur mjög spenntir á taugum. Þegar leikurinn var flautaður af, gerðist mjög grófur atburður. Einn áhorfandinn i stúkunni var ekki sáttur við úrslitin og i fáti miklu fleygði hann gosdrykkjaflösku langtútá leikvöllinn, og munaði litlu að flaskan hæfði starfs- menn leiksins. Þessi leikur var sérstaklega skemmtilegur á að horfa. Leik- menn beggja liða keyrðu á fullu allan leikinn út i gegn, en hvorugt liðið sýndi þó hittni eins og hún gerist bezt hjá þeim, kemur þar margt til, en sér- staklega það að leikmenn eru taugaspenntir mjög i jafn þýðingarmiklum leikjum sem þessum. Kolbeinn Pálsson var alger- lega óstöðvandi i þessum leik, og skoraði jafnt úr stökkskot- um, hraðaupphlaupum og með gegnum - brotum. Hjörtur Hansson lék Islandsmeistarana oft grátt, Birgir Guðbjörnsson lék nú á ný með liðinu og stóð sig vel i fyrri hálfleik. Gunnar var góður i spili liðsins, en Kristinn og Guttormur voru langt — frá sinu bezta. Birgir Jakobsson var beztur i liði 1R, Hann tók mikið af fráköstum og vann mjög vel allan timann. Kristinn Jörundsson var ekki nema rétt skugginn af sjálfum sér, en Agnar og Einar voru ágætir. Þó verður Einar Sigfússon að taka vitin betur fyrir, i þessum leik tók hann 12 skot, en hitti aðeins úr 4 þeirra, sem er mjög lélegt, vitaskotin eru sérstaklega þýðingarmikii i leik sem endar með eins stigs mun. Liðin verða nú eins og i fyrra að heyja aukaleik um íslands- meistaratitilinn, og enn á þvi KR möguleika á að sigra i öllum þeim körfuboltamótum sem hér eru haldin, þeir eru nýbakaðir Bikar- og Reykjavikur- meistarar. ■ ■ ' ■ Þriðjudagur 17. apríl 1973. 0

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.