Alþýðublaðið - 22.06.1973, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 22.06.1973, Blaðsíða 12
alþýðu H INNLÁNSVIÐSKIPTILEIÐ ^T^TIL LÁNSVIÐSKIPTA ’*aBÚNADARBANKI 4y ÍSBANDS KOPAVOGS APÖTEK Opið öll kvöld til kl. 7, nema laugardaga til kl. 2, sunnudaga milli kL 1 09 3 Simi 40102. ÞRJI) SVEITARFÉLOG f EINUM HAUt „HREINASTA AND- STYGGÐ'' „Sorphaugarnir við Hval- eyrarvatn eru hreinasta and- styggð, og það er greinilegt, að þar er engin hirða önnur en rétt að drulla yfir þá grús”, sagði Einar Ingi Sigurðsson, heil- brigðisfulltrúi Kópavogs, i við- tali við Alþýðublaðið i gær. Haugar þessir, sem eru skammt fyrir sunnan Hafnar- fjörð eru nýttir af þremur sveitarfélögum, — Hafnarfirði, Garðahreppi og Kópavogi, en verktaka hefur verið falin sorp- hreinsun frá húsum og sjá um haugana. Alþýðublaðið hefur það eftir áreiðanlegum heimildum, að sökum þessa mikla draslara- skapar verktakans á haugun- um, hafi Kópavogsmenn i hyggju að semja við Reykjavik um að flytja sorp úr kaupstaðn- um á hauga borgarinnar á Gufunesi. Þær viöræður eru þó aðeins á byrjunarstigi ennþá. Ljósmyndarinn okkar, Frið- þjófur, flaug yfir haugana i gær, og má glöggt sjá sóðaskapinn á myndinni, og svo við vitnum i orð heilbirgðisfulltrúa Kópa- vogs: „Það er engin ástæða til að sorphaugar þurfi að vera ógeðslegir.” Örin visar á stjóra jarðýtu sem iiðlangan daginn er i þvi vonlausa verki að reyna að dylja skömminni og 50 metra frá er friðsælt Hval eyrarvatnið. BÆRINN TEKUR í TAUMANA „Mengunin frá Málningu hf. hefur oft verið mikil, en á þriðjudaginn keyrði hún um þverbak”, sagði Einar Ingi Sigurðsson, heilbrigðisfulltrúi i Kópavogi i viðtali við Alþýðu- blaðið i gær. En i gær kallaði Einar einmitt á sinn fund for- stjóra Málningar, og sagði hann, að þarna hafi að likindum verið um slys að ræða, óeðlilega mikið hafi farið niður af máln- ingu. Eins og lesendur vafalaust rekur minni til fjallaði Alþýðu- blaðið um mengun frá máln- ingarverksmiöjunni við Foss- voginn fyrir nokkru, og vöktu þau skrif mikla athygli. M.a. var okkur bent á mengunina á þriðjudaginn, en þá lá allan daginn hvitur flekkur á stóru svæði út frá verksmiðjunni. Einar Sigurðsson heilbrigðis- fulltrúi sagði, að mengunarmál verksmiðjunnar hafi verið til athugunar um nokkurt skeið, en nú verði þau tekin föstum tök- um. Nú er farið að vinna að þvi i samvinnu heilbrigðisfulltrúans, forstjóra Málningar og verk- fræðings að finna einhverja siunarlausn á vandamálinu, og sagði heilbrigðisfulltrúinn, að vissulega finnist lausn á næst- unni. Danskur sérfræðingur er um þessar mundir að rannsaka sjó-- inn i Foss'vogi og hingaö til hef- ur hann ekki fundið nema óvenjulegt magn af skaðlegum efnum. „En vissulega er þarna um að ræða „estetisk” spjöll, spjöll á náttúrulegu umhverfi”, sagði Einar Ingi Sigurðsson, „og þótt þessi danski sérfræð- ingur segi, að i Danmörku og viðar hleypi málningarverk- smiðjur öllum úrgangi hindr- unarlaust i sjóinn, er engin ástæöa til þess fyrir okkur að apa það eftir útlendingum, sem dregur okkur niður”. Og enn mengaðist sjórinn i Fossvogi af málningu i gær, eins og sjá má af þessari mynd, sem Friðþjófur tók. fálþýðuj 'kuglýsingasími Mþýðublaðsins er 86660 K0PAV06S MST Dpidöfl kvöldtil kl. 7,' iema laugardaga tíf 7, sunnudaga mllH <1. 1 og 3.S|mi40,02_ síMmmiASTOOin nr Þar er fjaran einna líkusi risastóru málverkt ^ bat^landj «> bíhtnv rt>s*n\tCi#S<n« I ísa. bau tiiiir>di<iÍM*e»fflKNi«»ei*Mfmn?r. !ílii*""fU!f!>í>,.lkWi..* þau ekki niftur ! L nn (ftHKplní iw prn ht»bik»Mi<« ntr. f

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.