Alþýðublaðið - 22.06.1973, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 22.06.1973, Blaðsíða 2
HVERNIG SIGRA EG EINMANALEIKANN? LUNDBERGHJONIN SVARA Fjórir lítrar vökva á dag - þá fer ekki hjá því þú megrist Kæru Hanna og Knud Lund- berg. Stöðugt koma fleiri og fleiri bækur um megrunaraðferðir á markaðinn. Hvað á maður svo að velja af þessum óliku kerf- um? Vinkona min ein léttist annað slagið um allmörg kg með því að telja ofan i sig heita- einingarnar. Að visu þyngist hún alltaf aftur sem þvi svarar en eigi að siður litur út fyrir að þessi aðferð sé allárangursrik. En nú segir maðurinn minn að þetta sé óhollt. Hann heldur þvi fram að þið hafið skrifað eitt- hvað i þá veru, og þess vegna langar mig til að spyrja ykkur álits á þeirri aðferð að telja hitaeiningarnar. Vinsamlegast. K.P. Kæra K.P. Ekki er neinum vafa bundið að þessi megrunaraðferð er árangursrik. Það má megra sig að mun með þvi að draga út hitaeininga-neyzlu sinni. Þá lifir maður sumsé á fitu og hvitu sem er harla saðsamt og maður borðar þvi ekki eins mikið af. Þegar við getum samt sem áður ekki mælt með þeirri að- ferð er ástæðan sú, að ef maður sparar mjög við sig kolvetnið og hitaeiningarnar, verður maður yfirleitt að auka fituneyzluna til muna, sakir þess hve hvitan er dýr. Of dýr fyrir flesta. En þá er freklega brotið gegn kenningum hjartaverndar- manna, sem mæla eindregið með þvi að fitan sé spöruð við sig — sérstaklega með tilliti til þess að við neytum flest rangra tegunda af fitu. Með tilliti til kölkunarinnar erum við þvi ekki fylgjandi skyndilega stór- minnkaðari neyzlu kolvetnis- næringar yfirleitt. Einnig vegna þess að við litum ekki á það sem neitt lækningaráð að vera hold- skarpur, heldur sem lifnaðar- háttu. Aftur á móti erum við þvi einkar meðmælt að fólk spari við sig sykur. Ef fólk bætir sér það upp með gervisykri, eða engum, dregur það yfirleitt að svo miklu leyti úr hitaeininga- neyzlu sinni, að það léttist við það. Og það án þess að finna til nokkurrar svengdar. Við skulum ekki heldur gleyma þvi, að öll von er til að árangurinn endist að sama skapi lengur sem megrunarað- ferðin er hægvirkari. Og fari maður út i það að spara við sig kovetnisnæringuna, þá ber að neyta þvi meiri hvitu i staðinn, þó svo að dýr sé, Það er nefnilega öll ástæða til að ætla, að það sem viðkomandi léttist i fyrstu eftir að hann tek- ur til við megrunina, sé að mikl- um hluta til vökvatap og hvitu- tap, og hvituna megum við alls ekki missa. Þvi meiri hvita sem er i fæðunni, þvi meira af henni fáum við endurbætt. Þvi miður verður ekki vitað með vissu, hve mikið af vefja- hvitu fer sina leið, þegar við- komandi tekur til við að spara kolvetnisnæringuna. Vitað er þó að þetta, ásamt vökvatapinu, verður til þess að viðkomandi léttist að mun, en það jafnar sig svo aftur, sem betur fer þegar megrunarviðleitninni er lokið i það skiptið, og við endurheimt- um það vökvamagn og þá hvitu, sem við megum illa vera án. Sem sagt, forðizt sykurinn, en sparið ekki við ykkur það kol- vetni sem fólgið er i ávöxtum og grænmeti, sem meðal annars hefur mikla þýðingu i sambandi við þarmana. Það er úr- gangurinn, sem ræður svo miklu um meltinguna. Forðizt sykurinn, en sparið ekki við ykkur það kolvetni sem er í ávöxtum og grænmeti. Af nýrri bókum, sem komið hafa út um megrun og þess- háttar, viljum við mæla með smákveri eftir Warning-Larsen. Sem gamall og reyndur kennari illkamsfræði og lifefnafræði er honum áreiðanlega öðrum fremur treystandi. Hann skýrir frá þvi I stuttu máli hvað maður megi og hvað maður megi ekki, og þó af mikilli nákvæmni. Hann leggur til dæmis megin- áherzluna á neyzlu vökva og eggjahvituefna. Einkennilegt og óvenjulegt kann sumum að virðast það, að hann skuli mæla með þvi að við- komandi drekki fjóra litra af vökva daglega, meðan megrunarlotan varir, en eflaust er það rétt. Ofþyngd er oft að miklu leyti að kenna of miklu salti i likamanum, sem hin mikla vökvaneyzla skolar á brott. Að sjálfsögðu er þarna einungis um að ræða drykki, sem ekki luma á neinum hita- einingum. Kaffi te, tært vatn eða ölkelduvatn... Með beztu kveðjum. Hanna og Knud Lundberg. Kæru Hanna og Knud Lund- berg. Getið þið ekki aðstoðað mig viö að leysa harla erfitt vanda- mál. Eg hygg að ég sé ekki ein um að komast ekki hjá að glima við það. Mér liður illa. Ekki vegna þess að ég sé á um- breytingaskeiðinu, þvi er löngu lokið. Ekki heldur vegna kyn- lifsins, það er i lagi. f rauninni er það hið eina, sem við eigum sameiginlegt nú orðið, maðurinn minn og ég. Hann vinnur allan daginn, kemur heim rétt sem snöggvast til að boröa og er svo þotinn aftur. Kvöldunum eyðir hann oftast nær við spil. Við eigum ekki neinar efnahagslegar áhyggjur við að striða. Satt bezt að segja eigum við nokkuð fé i bankan- um, og húsnæðið er bæði ódýrt og gott. En hvað á ég til bragðs að taka til að verjast ásókn ein- mannaleikans? Börn okkar og barnabörn búa svo langt frá, að við getum einungis haft tak- markað samband við þau. Eg umgengst þó einungis fjöl- skylduna, en það er, vægast sagt, allt of sjaldan. Ef þið gætuð veitt mér ein- hverja aðstoð, þá mundu margir hér i landi, sem svipað er ástatt um, njóta góðs af. Vinsamlegast. Einmana húsmóðir. Kæra einmana húsmóðir. Þar hefur þú áreiðanlega lög að mæla, að þú ert ekki ein um glimuna við einmitt þetta vandamál. Eldri húsmæður eru stjúpdætur nútima samfélags. Fæstar hafa þær nokkra sér- menntun, þær hafa helgað sig eiginmanni sinum börnum og heimili — og fyrr eða siðar kem- ur svo að þvi að þær verða að horfast i augu við einmana- leikann. Reyndar geta þær nú valið um ýmis störf, sem ekki þarf sérmenntun til að leysa af hendi. Og auk þess standa eldri konum opnar ýmsar leiðir til að afla sér ýmissar menntunar, til dæmis á námskeiðum. En þvi er nú einu sinni þann veg farið, að mikill meiri hluti þessara eldri kvenna vill helzt halda sig heima. Og það geta þær að sjálfsögðu og samtimis unnið að minnsta kosti tals- verðan sigur á einmanaleikan- um — ef þær bindast einskonar samtökum i þvi skyni. Þær geta haft sin spilakvöld, ekki siður en eiginmennirnir. Þær geta snætt saman morgunverð. Og svo eru það saumakvöldin. Eins og þú segir, þá eru margar svipað á vegi staddar og þú sjálf. Leitaðu nokkrar af þeim uppi. Eigir þú ekki sjálf frumkvæðið, þá verður ekki neitt úr neinu. Með beztu óskum og kveðjum. Hanna og Knud Lundberg. Ef maður sparar mjög við sig kolvetníð og hitaeiningarnar, verður maður yfirleitt að auka fituneyzluna til muna. Reykjavík 0 Föstudagur 22. júní 1973

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.