Alþýðublaðið - 22.06.1973, Blaðsíða 1
VARDSKIPI VAR TVISVAR BANNAD AD
TAKA ÞYZKA LANDHELtlSBRIÓTA
Eftirlitsskip hvergi nærri í annað skiptið
Islenzku varðskipi
hefur í tvígang
undanfarna daga
verið skipað frá v-
þýzkum togurum:
annan hafði
varðskipið elt í
nokkrar
klukkustundir, og
hinn var varðskipið
búið að króa af i ís.
Þessir atburðir
sinn í hvorri ferð
þessa varðskips og
gerðust báðir út af
Vestfjörðum. I fyrra
skiptið tókst
varðskipinu eftir
nokkra eftirför að
króa landhelgis-
brjótinn af og hugðu
varðskipsemenn á
uppgöngu, en þá
kom skipun að
sunnan um að láta
togarann eiga sig.
Ekkert eftirl itsskip
var á þessum slóð-
um.
I síðara skiptið
hafði varðskipið elt
togarann nokkra
stund, og hafði hon-
um verið gefið
stöðvunarmerki,
sem hann sinnti
ekki. Ef tirl itsskiðíð
Poseidon sigldi allan
timann með
varðskipinu.
Á það reyndi ekki,
hvað þaðan yrði
gert, ef varðskips-
menn gerðu alvar-
lega tilraun til að
hefta för togarans,
því áður en til
hennar kom, barst
skipun að sunnan um
að láta togarann
eiga sig.
LOGREGLUSTJORI:
MALIÐ ATHUGAÐ
GAUMGÆFILEGA
,Við munum að sjálfsögöu
taka þetta mál til gaum-
gæfilegrar athugunar
strax, en þar sem engin
kæra hefur borizt frá þeim,
sem á að hafa orðið fyrir
árásinni, og þar sem við
höfum nýfengið skýrsluna
EKKERT
EINSDÆMI
Vegna fréttar Alþýðu-
blaðsins i gær höfðu tveir
fyrrverandi lögregluþjónar
i Reykjavik samband við
blaðið og sögðu, að þótt ein-
stakt hugrekki mætti kalla
það hjá Kópavogsmannin-
um að gefa skýrslu um at-
buröinn, þá væri hrotta-
skapur lögregluþjóna við
fanga og menn i haldi
ekkert einsdæmi. Það væri
hins vegar ekki vænlegt til
frama i stéttinni að vera að
kæra slikt hjá kollegunum,
og þvi væru sennilega ekki
fleiri skýrslur til skriflegar
um slikt en sú, sem Kópa-
vogsmaðurinn setti saman.
„Það er talsverður hópur
lögregluþjóna, sem telur,
að kraftarnir ráði öllu”,
sagði annar maðurinn, en
báöir tóku fram að mikill
meiri hluti lögreglumanna
væri sem betur fer á þeirri
skoðun, að þeir gætu sinnt
starfi sinu öðru visi en með
hnefunum einum.
frá Kópavogslögreglunni,
er of snemmt að segja fyrir
um framhald málsins"
sagði Sigurjón Sigurðsson
lögreglustjóri i viðtali viö
blaðið i gær.
Vegna fréttar blaðsins i
gær, um að lögregluþjónn
úr Kópavogi hafi oröið
vitni að þvi, að lögreglu-
þjónn úr Reykjavik sýndi
manni ofbeldi i
lögreglustöðinni við
Hverfisgötu, var lögreglu-
stjóri spurður, hvort við-
komandi lögregluþjónn
yrði látinn hverfa frá störf-
um, á meðan rannsókn
stæði yfir, svo sem titt er
með rikisstarfsmenn.
„Það hefur engin
ákvörðun verið tekin um
það enn,” sagði lögregluþ-
stjóri, „m.a. vegna þess að
meintur þolandi hefur ekki
kært atburðinn og skýrslan
er komin frá utanaðkom-
andi aðila."
„Eftir þvi sem bið bezt
vitum, er þetta fyrsta
fyrirtækið sinnar tegundar
I Skotlandi” er haft eftir
Bjarna.
-ísland vægast
gegn hassinu'
íslendingar taka svo
sannarlega vægast á
hassmálum af öllum
löndum iheimi, að Afgan-
istan og þeim Afriku-
rikjum sem hass er leyft i
undanskildum, sagði
Wym Willson O’Hanlon,
24 ára gamall Banda-
rikjamaður frá Missouri,
Minneapolis, er blaða-
maður blaðsins hitti hann
i matsal stúdenta við
Hringbraut.
Hann kom ásamt
nokkrum vinum sinum
hingað til lands i þeirri
góðu trú, að ekkert væri
amazt við þess háttar
hér, og hefði hann þvi
með sér þrjú görmm af
hassiss, en hinir höfðu
ekkert.
Þegar ég kom i toll-
skoðun á Keflavikurflug-
velli, og var tekinn út úr
röðinni, grunaði mig
ekkert misjafnt, þar sem
ég var ekki að smygla
neinu, að minu viti, sagði
hann.
Þegar ég var svo ber-
háttaður og mér var sagt
að glenna i sundur fæt-
urna, fór mig að gruna að
hverju þeir væru að leita,
enda fundu þeir
grömmin.
Þá hófst talsverð bið, á
meðan verið var á ná i
hasshund, sem mér skilst
að Islendingar eigi eitt
eintak af, og var hann
látinn þefa af öllum
minum farangri.
Hann fann ekkert
meira, enda hafði ég
játað þessi þrjú grömm,
og þá frekari leit hætt,
sagði O'Hanlon.
Nú bjóst ég við að vera
settur i fangelsi og þurfa
ef til vill að dúsa þar i
nokkra 'sólarhringa þar til
ég væri yfirheyrður, en sú
varð ekki raunin.
Ég var tekinn i yfir-
heyrslur og m.a. spurður
um minn fjárhag, sem er
bágur og ég sagði
nákvæmlega frá. Eftir
nokkra bið var mér til-
kynnt, að féllist ég á að
greiða fimm þúsund
króna sekt fyrir brot mitt,
væri málið afgreitt. Ég
féllst á það og var svo
laus eftir nokkra klukku-
tima og sektargreiðsluna.
Ég ætla svo sannarlega
ekki að hafa nokkuð vafa-
samt með mér til tslands
aftur, en þessi afgreiðsla
er mér ógleymanleg með
hliðsjón af kunningja
minum, sem enn situr i
fangelsi i Sviss fyrir álika
magn sem hann var
tekinn með þar fyrir
nokkrum mánuðum.
Blaðið bar þetta undir
Olaf Hannesson fulltrúa
lögreglustjóra á Kefla-
vikurflugvelli, og sagðist
hann kannast við málið,
og hefðu þeir tekið þessa
stefnu i málinu, þar sem
sýnt þótti, að maðurinn
ætlaði ekki að selja efnib
hér.
ÍSLENZK
VERKSMIÐJA
í SKOTLANDI
Jón Bjarni Kristinsson,
eigandi Glerborgar h.f., er
i hópi framkvæmdamanna
frá Bretlandi, Noregi og
Islandi, sem hafa stofnað
glerverksmiðju i Skotlandi,
Scotspane, og er hún stað-
sett i Livingston. Bjarni er
nú staddur úti i Skotlandi
ásamt tveimur starfs-
mönnum Glerborgar, sem
vinna við uppsetningu
verksmiðjunnar. Verk-
smiðjan mun annast um
framleiðslu tvöfalds ein-
angrunarglers, og tekur
ljún væntanlega til starfa
eftir u.þ.b. hálfan mánuð.
Til að byrja með munu
starfa við verksmiðjuna 10
menn, en þeim mun siðar
verða fjölgað upp i 30.
Bjarni Kirstinsson segist
vera mjög ánægður með
fyrirgreiðsluna i
Livingston, að þvi er segir i
frétt frá Livingston
Development Corporation.
Hann segir, að fyrirtækið
muni koma framleiðslu
sinni á almennan markað
en ekki selja beint til hús-
eigenda.
SAMVINNA
VIÐ BRETA
OG NORSKA
BRETAR
BORGA BRÚSANN
SJÁLFIR
„Við erum bú sjá það fyrir lön |>að er taktik Brc nir að gu, að >ta, að
á varðskipin og beygla þau svo, að þau þurfi að leita hafnar til við- gerða", sagði Pétur Sigurðsson, íorstjóri Landhelgisgæzlunnar, i viðtali við Alþýðublaðið I gær.
Pétur sagðisl : ekki
\ UJtt lLv \^\ um brot Breta á legum siglingar 'ö Jicitt alþjóð- eglum.
„Þau dæma sig sjálf . En það ery vel fyrir öllu séð. „Við erum vá- tryggðir i London", sagði forstjóri Land- helgisgæzlunnar.