Alþýðublaðið - 22.06.1973, Blaðsíða 6
Þetta var ósköp sakleysisleg
dós. Hún lá þarna á jörðunni,
hreyfingarlaus, litlaus og virtist
ekki búa yfir neinu óttalegu, sem
hún þó gerði.
En Jay Armes er raunveru-
legur. Og hann bætir sér upp
fötlunina með þvi að leggja
harðar að sér.
Drengur nokkur tók dósina upp
og fleygði henni til vinar sins,
hins glaðlega 12 ára gamla
drengs Jay Armes, en hann var
áhyggjulaus drengur, sem ávallt
var reiðubúinn að koma i leiki.
Jay greip dósina báðum
höndum. bá heyrðist griðarmikill
hvellur og drengurinn kastaðist
20 feta vegalengd. ,,Ég reyndi að
staulast á lappir”, sagði hann
siðar, ,,en ég hafði ekkert til að
lyfta mér upp með.”
Hann hafði enga handleggi.
Hann fer á fætur skömmu eftir
kl. 5 að morgni, hleypur tveggja
milna vegalengd og fær sér svo
sundsprett i svo sem eins og hálfs
kiukkustund. Eftir að hafa snætt
morgunverð fer hann aftur i laug-
ina og svo þaðan i fullkominn
leikfimissai, sem hann hefur á
heimili sinu, og fer i erfiðar
likamsæfingar.
En Jay Armes, sem nú er 33ja
ára að aldrei, hefur siðan fundið
hluti til þess að ,,ýta sér áfram”
með. Handalaus hefur hann
ávallt fundið einhver úrræði.
Hann er stórhættulegur karate-
og júdósérfræðingur. Einnig
hefur hann unnið fjölmörg opin
tennismót i Texas og Arisona og
festir hann þá tennisspaðann við
gervihönd sina með limbandi.
Þessi hægláti Texas-búi er nú
margfaldur milljóneri, einka-
spæjari jafn hæfur og harður af
sér og hvaða starfsbróðir hans,
sem er. Hið fræga einkaspæjara-
fyrirtæki hans hefur verið nefnt i
forsiðufyrirsögnum blaða oftar
en einu sinni og oftar en tvisvar
og Armes hefur sjálfur ráðið
niðurlögum leynimorðingja, sem
vildu svo gjarna fá að lita hann
dauðan.
IUaðinn lifsorku
Hann var snjall fallhlifastökks-
maður og djúpsjávarkafari en
missti svo áhugann á þvi vegna
þess, að i þvi fólst eingin áskorun
lengur.
Nú flýgur hann þyrlu en hafnar
þvi með öllu að láta breyta stjórn-
tækum hennar fyrir sig — né
heldur stjórntækjum þeirra niu
bifreiða, sem hann á. Tveir þeirra
eru af gerðinni Cadillac og einn
Rolls—Royce.
Margar tilraunir hafa verið
gerðar til þess að senda hann á
eftir handleggjum sinum.En Jay
Armes lifir enn i vellystingum
praktuglega og er staðráðinn i að
njóta lifsins jafn vel og honum
hefur tekizt að koma sér áfram i
þvi.
Þveröfugt við kvennabósa og
drykkjurúta lögregluskáld-
sagnanna snertir Jay hvorki vin
ne tóbak, og viðurkennir fúslega,
að hann sé yfir sig ástfanginn af
eiginkonu sinni, Lindu, að hann
elski börn sin og að hann lesi dag-
lega i Bibliunni.
Má vera, að hin mikla festa
hans hafi verið hert i þeim logum,
sem brenndu af honum handlegg-
ína.
Þó á hann sumt sameiginlegt
með Bond-manngerðinni: hann
geislar af lifsorku allan daginn án
þess þó að þurfa að sofa meira, en
fjórar klukkustundir á sólar-
hring.
Fatlaður lögreglumaður hefur
oft sézt á sjónvarpsskerminum —
og slikir lögreglumenn hafa orðið
þar mjög vinsælir, eins og t.d.
sjónvarpsþættirnir um lamaða
lögreglumanninn Ironside sýna
og sanna, en þeir hafa m.a. verið
sýndir i islenzka sjónvarpinu.
Ýmsir fleiri slikir þættir hafa náð
vinsældum.
Og hann nýtur lifsins i rik-
mannlegu húsi umluktu stórum
og fögrum garði, sem er eins og
tekið beit út úr einhverri leynilög-
reglukvikmyndinni.
HANDALA
EN BEZTUR
I FAGINU
Einn kappinn — Mark Saber —
er einhentur. Annar — Longstreet
að nafni — er blindur. Sá þriðji —
Columbo — er eineygður. Allt eru
þetta frægar lögregluhetjur úr
vinsælum sjónvarpsþáttum.
Vann fyrir Brando
Vegna þess, að launakröfur
hans eruháar, þá eru viðskipta-
vinir hans oftast rikt og frægt
fólk. A sinum tima réð Marlon
Brando hann t.d. til starfa til þess
að hafa upp á syni sinum,
Christian, sem hafði verið rænt og
geymdur var i felum i Mexico.
Eftir að hafa leitað i iofti og á
landi i þrjá sólarhringa án þess að
Það verður ekki annað séð en að Jay Armes hafi ofan á velgengnina i starfinu getað krækt sér i hina
myndarlegustu konu.
Föstudagur 22. júní 1973