Alþýðublaðið - 23.06.1973, Page 1
V-ÞÝZK SAMNINGANEFND TIL
REYKJAVÍKUR Á FIAAMTUDAG
alþýðu
Fréttin í
fullugildi
Landhelgisgæzlan sendi i
gær út tilkynningu, þar
sem sagði, að enginn fótur
væri fyrir forsiðufrétt
Alþýðublaðsins i gær um að
varðskipi hafi verið bannað
að taka v-þýzka landhelgis-
brjóta, „enda hefur slik ósk
alls ekki verið borin fram
við yfirstjórn Landhelgis-
gæzlunnar af hálfu neins
varðskips.”
Alþýðublaðið telur
áfram, þrátt fyrir framan-
greinda tilkynningu Land-
helgisgæzlunnar, að fréttin
sé rétt, en það skal leiðrétt
hér, að annar atburðurinn,
sem sagt var frá, gerðist á
Skerjadýpi, en ekki út af
Vestfjörðum, eins og sagði
i fréttinni.
Stöðugt er nú verið að
hringja til blaðsins og
benda á viðbrögð þeirra
manna, sem blaðið hefur
bent á vegna slæmrar
umgengni, og þannig var
okkur bent á að verið væri
að taka til á bak við fiski-
mjölsverksmiðjuna að
Kletti, en fyrir rúmri viku
vakti blaðið athygli á
sóðaskapnum á baklóð-
inni þar.
Friðþjófur ljósmyndari
brá sér þangað inneftir i
gær og var þá stór krani
að moka ruslinu upp á
vörubila, sem voru i
stöðugum ferðum upp á
ruslahauga, og gefur það
nokkra hugmynd um
hversu mikið draslið var
Átta manna sendi-
nefnd frá Vestur-
Þýzkalandi kemur
hingað til lands á
fimmtudaginn til
samningaviðræðna
við íslendinga um
landhelgismálið.
Áformað er, að við-
ræðurnar fari fram
næsta dag, föstu-
daginn 29. júni, og
verði lokið fyrir
helgina.
Að þessu sinni er
nýr maður formaður
sendinefndarinnar,
sem ekki hefur
komið hingað áður.
Sá er dr. Abel, en
hann er það, sem
Þjóðverjar nefna
,,parlamentariskur
ráðherra", en það
eru n ýstof nuð
embætti í þýzka
stjórnkerfinu og eru
þau svipuð og em-
bætti aðstoðarráð-
herra í Englandi. Dr.
Abel er ,,parlament-
ariskur ráðherra"
utanrikismála og
gegnir því svipaðri
stöðu í þýzku
stjórninni og Lady
Tweedsmuir í þeirri
brezku — þ.e.a.s.
hann er nokkurs
konar aðstoðarráð-
herra Scheel,
vestur-þýzka utan-
ríkisráðherrans. Er
þetta í fyrsta skipti,
sem pólitiskur
fulltrúi vestur-þýzku
st jórnarinnar er
formaður samninga-
nefndar um land-
helgismálið, en
hingað til hafa það
verið menn með
starfsheiti ráðu-
neytisstjóra —
þ.e.a.s. embættis-
menn — sem hafa
verið i forsvari
þýzku samninga-
nefndanna, sem rætt
hafa við íslenzk
stjórnvöld.
Annar slíkur ráð-
herra verður í v-
þýzku sendi-
nefndinni, Fritz
Logemann, en sá er
aðstoðarráðherra
matvæla- og land-
búnaðarráðherrans.
í sendinefndinni
verða ennfremur
þrir starfsmenn
utanrikisráðu-
neytisins, tveir úr
matvæla- og land-
búnaðarráðuneytinu
og sá áttundi er dr.
Arno Meyer, starfs-
maður við fiskiðn-
aðarstof nunina í
Hamborg.
Ekki hefur enn
verið látið neitt uppi
af opinberri hálfu
um efni viðræðn-
anna, en af ýmsum
ástæðum er talið
líklegt, að Vestur-
Þjóðverjar kunni nú
að leggja fram nýjar
sáttatillögur. Munu
menn bíða þess með
óþreyju hvort í jós
muni þá koma, að í
nýjum sáttatil-
boðum sinum skeri
Vestur-Þjóðverjar
sig frá Bretum í
landhelgismálinu,
en ýmislegt hefur
bent til þess, að svo
kunni að fara.
í fyrsta skipti er aðstoðarráðherra
nú formaður slíkrar samninganefndar
SNARRÆDIFLUGMANNS
RIARGAÐI MALINU
Litlu munaði að
illa færi fyrir nokkrum
dögum, þegar flugvél frá
Flugstöðinni var á leið frá
Grænlandi til tslands, þvi
þegar flugmaðurinn hafði
nýlega skipt yfir á aðra
geyma og eldsneytið úr
þeim kom inn á mótor-
ana, fór vélin að hiksta og
reykja.
Flugmaðurinn skipti
þegar yfir á aðra tanka,
og var það fljótur að átta
sig, að mótorarnir náðu
ekki að drepa á sér.
Eldsneytið á þeim
tönkum dugði til að ná til
Reykjavikur, en ekki
hefði vélin komizt miklu
lengra.
begar farið var að
kanna hvaða óhreinindi
gætu hugsanlega verið i
benzininu, kom i ljós að i
stað benzins voru
geymarnir fullir af
steinoliu. Olian hafði
verið látin i misgáningi á
vélina i Grælandi.-
15 MÁNAÐA
FANGELSI
FYRIR KYN-
FERÐISBROT
Sjötugur Hafn-
firöingur hefur verið
dæmdur fyrir kyn-
ferðisbrot gagnvárt
tveim barnungum
sonardadrum sinum. og
hlaut hann 15 mánaða
óskilorðsbundinn fang-
elsisdóm. Vegna litlu
telpnanna birtir Alþ.bl.
ekki nafn afa þeirra.
Eldri slúlkan er fædd
1959 og hin 1961. Var
hann fundinn sekur
um að hafa alloft átt
einhver kynferðisleg
mök við stúlkurnar á
árunum 1969 til 1971, en
þá komst upp um atferli
hans.
Læknisrannsókn
leiddi i ljós, aö stúlk-
unum hafði ekki orðiö
meint af á likama. Dóm
þennan kvaö upp Sig-
urður Hallur
Stefánsson, og hefur
dómnum ekki verið
áfrýjað til hæstaréttar