Alþýðublaðið - 18.07.1973, Side 3

Alþýðublaðið - 18.07.1973, Side 3
Siglingar - ný vin í velferðareyðimörkinni Nú eru sportsiglingar að hefja göngu sina hér á landi. Þær teljast til iþrótta, enda er keppt i þeirrigrein um viða veröld, og liklega eru það fáar iþróttir, sem gripa menn eins föstum tökum og siglingar. Fyrir þvi eru margar ástæður. Ein þeirra er sú, að þær reyna i mörgu tilliti á mannlega getu til hins ýtrasta. Menn sveigja til hlýðni við sig örlitið brot af frumkrafti náttúrunnar. Þar reynir á listræna kunnáttu og eðlisávisun að færast ekki meira i fang en hentar, eftir öllum aðstæðum. Siglingar eru hættuleg iþrótt. íþrótt sem temur mönnum sem varkárni einfaldlega ógilt, ef stigið er fram fyrir plankann i upp- stökkinu. Til að koma i veg fyrir liftjón hafa verið sett lög og reglur, sem ná til flestra tilvika, sem séð verða fyrir, og varða brot viðurlögum, þó að ekki hljótist af þeim slys eða aðrar alvarlegar afleiðingar. Hér þurfa slikar reglur strax að koma til, og eftirlit með þvi, að þeim sé fylgt. Einhverjir slá sér á lær og segja : „Hana nú, eitt eftirlitið enn”. Hér er ekki eftir neinu að biða, og reyndar segir mér svo hugur, að forstöðumenn okkar hefðbundnu siglingamála hafi góðan skilning á þessari 'nýlundu, sem er að ryðja sér til rúms. Það æskufólk, sem kemst á bragðið i þessari göfugu og skemmtilegu iþrótt, verður ekki stöðvað, enda engin ástæða til, en hér þarf að byrgja brunninn i tima. Siglingaklúbbarnir, sem nú starfa, standa vel að hlut- unum, og er enginn vafi á þvi, að þegar fram liða timar, verði sportsiglingar almenn Iþrótt, en ekki aðeins rikra manna gaman. Hún gerir miklar kröfur til iðkenda i mörgu tilliti, bæði til hugar og handa, og munu fáar iþróttir temja mönnum jafnt áræði sem varkárni, eins og þessi. Siglingar eru ný vin I velferðarey.ðimörkinni, sem vert er að hlynna að frá byrjun, ekki hvað sizt með ströngum reglum og góðu eftirliti. RÍKISSPÍTALARNIR lausar stöður Tvær stöður AÐSTOÐARLÆKNA við KLEPPSPiITALANN eru lausar til umsóknar og veitast frá 1. september og 1. október n.k. Umsóknarfrestur er til 17. ágúst n.k. Staða SÍMAVARÐAR við LAND- SPÍTALANN er laus til um sóknar nú þegar. Vaktavinna, aðallega næturvaktir. Staða RITARA við LANDSPÍTAL- ANN er laus til umsóknar nú þegar. Staðan er hálft starf. Umsóknum,er greini aldur, menntun og fyrri störf ber að skila til stjórnar- nefndar rikisspitalanna. Umsóknar- eyðublöð fyrirliggjandi á skrifstof- unni. Reykjavik 16. júli 1973 SKRIFSTOFA RIKISSPÍTALANN A EIRÍKSGÖTU 5,SlM111765 Ég hefi einhvers staðar séð þvi haldið fram nú fyrir skemmstu, að Island sé sérstak- lega ákjósanlegt fyrir þessa iþrótt. Fyrir svona staðhæfingu er rétt að gera mikinn fyrir- vara, og þannig má ýmislegt til sanns vegar færa. Að öðrum kosti vonast ég til, að þetta mat fái sem minnstu ráðið um þróun þessarar göfugu iþróttar, sem enn er á algeru byrjunarstigi hér, þótt nokkrum sinnum hafi óskipulega verið fitjað upp á henni áður. Okkur íslendingum er ekki sýnna en öðrum að fylgja boðum og bönnum, en mestu varðar, að menn skilji ástæð- urnar, sem að baki liggja slikum ákvæðum. Það verður vitanlega löngum lagt i hendur einstaklingsins að taka ákvarð- anir eftir aðstæðum. Það þarf engan að brýna á þvi nú, hvað litið þarf út af að bera, til þess að ófyrirsjánlegur breytileiki náttúrunnar verði jafnvel hinum hæfustu mönnum ofjarl. Þá er þjóðarsorg á íslandi. Það er áræði einstaklinganna, sem hefur hjálpað okkur niður úr trjánum og á leið til stjarn- anna. En einmitt fyrir það, höfum við öðlazt hæfileikann til að tileinka okkur reynslu ann- arra og læra af henni. í löndum þar sem sportsiglingar eru gömul iþrótt, eru mjög itarlegar reglur og fyrirmæli um hvaðeina, sem horfir til öryggis. Það er ekki bara svona eins og i þristökki, þar sem stökkið er Bragi Sigurösson # Aukin gæði þorsk- aflans færðu okkur milljónatugi Gæði þorskaflans voru nokkru betri á siðustu vertið en ver- tiðinni þar áður. 56,03% þorskaflans fóru 11. gæðaflokk á vertiðinni nú, á móti 51,07% á vertiðinni 1972. Þessi 5% aukning þýðir tugi milljóna i auknum gjaldeyristekjum, þvi mikill verðmismunur er á 1. og 2. gæðaflokki. Allflestir útgerðarstaðir á vetrarvertiðarsvæðinu frá Hornafirði til Stykkishólms bættu sig frá fyrra ári. Mest Vogar, um 16,8%, Stokkseyri næstmest 12,7% og Grundar fjörður 12,4%. Einstaka staður var með verri útkomu, og var Sandgerði þar i nokkrum sér- flokki, en þar fór 4,9% minna 11. gæðaflokk en á fyrri vertíð. Útgerðarstaðirnir við Breiða- fjörð náðu beztri nýtingu þorskaflans á siðustu vertið, voru allir með yfir 60% i 1. flokk. Stykkishólmur var hæstur á blaði með 68,1% i 1. flokk, en lélegasta nýtingu höfðu Eyrarbakki, Sandgerði og Hafnarfjörður með 46-47% i 1. gæðaflokk. Fiskmat rikisins tók saman þessar tölur. •Aflaverðmæti Norð- ursjávarbátanna ríflega tvöfaldast Afli islenzku sildveiði- skipanna i Norðursjó er nú kominn yfir 10,000 iestir frá byrjun vertiðar. Var aflinn um siðustu helgi orðinn 10,482 lestir, en var á sama tima I fyrra 8.653 lestir. Verðmæti aflans i ár er 212 miljónir, en var i fyrra 107 milljónir. Er þetta nær helmingsmunur. Aflinn I siðustu viku var 2.064 lestir, og verðmæti hans rúmar 40 milljónir. Alls fengu 31 bátur afla i siðustu viku. Frá byrjun vertiðar hefur Súlan EA fengið mestan afla, 932,8 lestir að sölu- verðmæti 20,3 milljónir. Gisli Arni RE hefur aflað 837,5 lestir, að verðmæti 17,1 milljón og Loftur Baldvinsson hefur aflað 785,1 lest að verðmæti 20,2 milljónir. FRETT- NÆMT Sök bítur sekan Lincoln skaddaðist við að sigla a Ægi Ekki er hægt að segja, að sjóliðarnir á brezku freigátunum séu beint heppn- ir i áreitni sinni við Islenzk varð- skip. Um klukkan þrjú I gærdag kom skyndilega ný freigáta á miðin út af Hvalbak, þar sem Ægir var að stugga við sjö brezk- um veiðiþjófum. Þetta var frei- gátan Lincoln, og voru báðar siður herskipsins þaktar frlholt- um. Reyndi herskipið Itrekað að sigla á varðskipið og braut allar siglingarreglur. Skyndilega, eða um kl. 15.45, hægði freigátan skyndilega ferðina og lenti á skut Ægis. Varðskipið skemmdist ekkert, en svonefndur kefi á freigátunni brotnaði. Ljósmyndir og kvikmyndir voru teknar af atburðunum. Eins og fyrr segir var Ægir að stugga við sjö brezkum togurum, sem voru að ólöglegum veiðum út af Hvalbak, og voru i nágrenninu freigátan Berwick og dráttar- bátarnir Englishman og Irishman. Fimm togaranna hífðu strax vörpur sinar, og var Ægir að eiga við hina tvo, þegar fyrr- greindur atburður átti sér stað. Á sama tima stuggaði varð- skipið Óðinn við erlendum togur- um við Grimsey, en ekki kom til árekstra. Kapítalísk háborg reist í Moskvu Bandariskir einkaaðilar hafa i hyggju að reisa alþjóðlega viö- skiptamiðstöð i Moskvu áriö 1978, þar sem rými verður fyrir skrifstofur 200-400 erlendra fyrirtækja. Til þess hafa aðeins um 100 erlend fyrirtæki fengið leyfi til að opna skrifstofur 1 höfuðborg Sovétrikjanna. Bandariskur oliumilljóna- mæringur, Armand Hammer, sem af Moskvublöðunum er lýst sem „vini Lenins” hefur átt I samningum við sovézk yfirvöld um þessi atriði. Fyrr á þessu ári fékkst vilyrði þeirra fyrir þvi, að orðið yrði við óskum erlendra fyrirtækja um að byggt yrði nýtizku viðskiptamiðstöð, en undirbúningi og ákvörðunum um fjármögnun byggingarinnar er enn ekki lokið. Samstarfsnefnd erlendra banka, undir forystu Chase Manhattan Bank i New York hefur boðizt til að fjármagna þessa byggingu, og i máimánuði heimsótti aðalbankastjóri Chase Manhattan, David Rockefeller, Sovétrikin. Auk skrifstofubyggingarinnar á að vera i þessari miðstöð hótel með þúsund herbergjum, 650 ibúðir fyrir erlenda viðskipta- menn sem búa eða dvelja I Moskvu. og stórt bilastæði. Starfsfólk og ferðafólk á Lod flugvelli við Tel Aviv varð meira en litið undrandi um daginn þegar það heyrði ein- hverja enskumælandi bölva og ragna og klæmast hástöfum inni i flugstöðvarbyggingunni. Reynt var að hafa upp á þessum óhefluðu Englending- um, en þeir fundust hvergi. Skýringin fékkst hins vegar fljótlega. Starfsfólk dýra- garðsins I Tel Aviv hafði átt leið um flugstöðvarbygginguna meö nokkra páfagauka. FERÐAMENN BENZÍN — OG OLÍUSALA A BÁÐUM STÖÐUM. Liggi leið yðar landleiðina frá Vestfjörð- um eða til — farið þér um hlaðið i BJARKARLUNDI og FLÓKALUNDI. Á báðum stöðum bjóðum vér yður gistingu i vistlegum herbergjum ásamt máltiðum og annarri þjónustu i fögru og friðsælu umhverfi. Barðstrendingafélagið i Reykjavik Miðvikudagur 18. júlí 1973. o

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.