Alþýðublaðið - 14.08.1973, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 14.08.1973, Blaðsíða 10
VOH ÍBK UM FULLT HÚS ER NU AU ENGU URDIN Þá er draumur Keflvíkinga um fulll hús stiga fokinn út i veður og vind. Það voru Akureyringar sem sáu fyrir þvi, með þvi að ná jöfnu gegn tslandsmeistarakandi- dötum fyrir norðan á laugar- daginn, 0:0. Og það sem meira var, Akureyringar fengu tækifæri á að skora undir lokin, er þeir kræktu sér i vitaspyrnu, en Þor- steinn ólafsson varði hana frá- bærlega vel. Ahorfendur voru 2400, sem er met i 1. deildinni i sumar. Fyrri hálfleikurinn einkenndist af varnarleik. Bæði liöin lögðu alla áherzluna á vörnina, og þær gáfu aldrei eftir þumlung, svo fátt var um umtalsverð marktækifæri i hálfleiknum. 1 siðari hálfleik losnaði heldur um böndin, og meiri hætta skap- aöist. A 80. minútu komu Keflvik- ingar knettinum i netið, það var 3 leikir í 2. deild Þrír leikir fóru fram i 2. deild um helgina, og var ekkert um óvænt úrslit i þeim leikjum. A Selfossi léku heimamenn við FH, og eins og við var að búast, vann FH öruggan sigur 2:0. A Húsavik léku heimamenn við Ar- mann, og unnu 1:0. Og á Mela- vellinum léku nafnarnir Þróttur Reykjavik og Þróttur Neskaups- stað á sunnudaginn, og unnu þeir fyrrnefndu 2:1. Um næstu helgi fer fram heil umferð I 2. deild, og þar af tveir mjög mikilvægir leikir Völsungur leikur við Viking og FH við Þrótt R. Jón ólafur sem skaut að marki, Steinar truflaði Arna markvörö sem misreiknaði knöttinn, en Steinar var dæmdur rangstæður. Svo var það á 87. minútu aö Keflavikurhjörtun fóru að slá hraðar. Jóhanni Jakobssyni var brugðið innan vitateigs og vita- spyrna dæmd. Sigbjörn Gunnar- sson, vitaskytta þeirra noröan- manna, var farinn af velli, og Sævar Jónatansson tók spyrnuna. Hún var vel framkvæmd, stefndi i hornið niðri, en Þorsteinn náði þó til knattarins á ótrúlegan hátt og bægði hættunni frá. Jafntefli voru réttlát úrslit þessa leiks. Arni markvörður og Kári beztir Akureyringa, en vörnin bezt hjá IBK, með þá Einar og Guðna sem beztu menn. Tómas Pálsson var rekinn af leikvclli á laugardaginn. Það kemur á óvart, þvi Tómas er þekktur fyrir prúðmennsku, og hafði t.d. aldrei verið bókaður i leik. EYJAMENN SOTTU OG SOTTU- EN SKAGINN TÓK BÆÐI STIGIN Nú er öldin önnur á Akranesi, aðeins 500 áhorfendur komu að sjá leik ÍA og ÍBV á laugar- daginn og þessir fáu fengu að sjá leik mikilla átaka tveggja liða sem börðust hatrammlega um stigin, meira af kappi en forsjá. Og það voru Skagamenn sem fögnuðu sigri f lokin, 1—0 og var það ósanngjarn sigur eftir gangi leiksins, þar sem Eyja- menn áttu til muna fleiri upp- lögð marktækifæri. En Eyja- menn geta engum öðrum um kennt en sjálfum sér, að geta ekki notfært sér þessi tækifæri. Fyrri hálfleikur einstefna IBV og fékk 1A aðeins eitt tækifæri og skoraði! 1—0. 41. min.: Matthias Hall- grimsson nær boltanum við miðlinu og brunar upp völlinn, spilar 1—2 viö Jón Alfreðsson og rennir siðan boltanum i netið framhjá úthlaupandi mark- verðinum. Skagamenn sóttu mun meira fyrstu 30. min. i s.h. og fengu m.a. vitaspyrnu, boltinn hrökk i hendi Friðfinns sem var einn og yfirgefinn á stóru svæði. „Illur fengur, illa forgengur” og Björn Lárunsson skaut „bananaskoti” framhjá. Harka fór að færast i leikinn og dóm- arinn hafði litil tök á at- burðarásinni. Tómas Pálsson rekinn útaf þrátt fyrir að honum væri sýnt gult spjald og Frið- finnur Finnbogason bókaður fyrir taklingu á Mattias sem varð til þess að Matthias varð að yfirgefa völlinn. Eftir að Eyjamenn voru orðnir 10 sóttu þeir mun meira og kepptust við að misnota tæki- færin, timinn rann útá þá, stigin tvö fóru til heimamanna. —HJ. Það vakti nokkra athygli á Akranesi á laugardaginn þegar Tómasi Pálssyni, framherja IBV, var visað af velli af dóm- aranum llinrik Lárussyni, þvi allir sáu að dómarinn rétti gult spjald að Tómasi, sem hingað til hefur verið talið jafngilda bókun. Tómasi hefur aldrei fyrr á hans leikferli verið visað af velli og raunar aldrei bókaður heldur. Um atvikið sagði Tómas i stuttu viðtali við Alþýðublaðið: „Við vorum að kljást um bolt- ann þegar Skagamaðurinn rak olnbogann af afli i bakið á mér. Þetta var ekki i fyrsta skiptið i leiknum sem hann gerði þetta, en aldrei var neitt dæmt. Þarna missti ég augnablik taumhaldi á skapi minu og rak fram fótinn. Auðvitað braut ég þarna af mér og varð þvi ckkert hissa þegar dómarinn sýndi mér gult spjaid og skrifaði mig niður, en siðan visaði hann mér útaf”. „Við vorum klaufar að tapa þessum leik, hefðum átt að skora 4-5 mörk eftir tækifærum, cn svona er nú knatt- spyrnan”. —HJ. TEITUR EKKI UT Teitur Þórðarson mun ekki fara mcð islenzka kanttspyrnulandslið- inu lil llollands seinna i þessum mánuði, en eins og kunnugt er hefur Teitur verið i islenzka landsliðshópnum i undanförnum ieikjum og komið þar inná, þótt ekki hafi hann unnið sér fast sæti. Um sama leyti og landsliðið keppir i Hollandi, verður meistara- flokkur Akraness á ferð i Danmörku. Káus Teitur frekar að fara i þá ferð, og var það samþykkt af Knattspyrnusambandinu. -SS. Myndiua hér til hliðar tók Smarsi af leik Breiðabliks og Fram á laugardaginn. Neðri myndin er af Óla B. Jónssyni þjálfara. Óli B. hættur ,,Ég er hættur að þjálfa Breiðablik, cnda var ég aldrei ráðinn ncma i þrjár vikur. Ég veit ekki betur en Júgóslavinn Mile taki við liðinu aftur", sagði Óli B. Jónsson er Alþ.bl ræddi við hann i gær. — Tclurðu að Breiðablik eigi möguleika á þvi að sleppa við fall í 2. deild? ,,Það er alltaf von á meðan mannskapurinn trúir á það. Kn mér fannst sem margir leik- manna hafi gcfið upp vonina fyrir löngu siðan. Það er ekki' nægilegur áhugi hjá strákunum, og þeir hafa mætt illa á æfingar". — Hvað um leikinn við Fram? „Sá leikur hefði eins getað farið okkur i hag, þvi mér fannst rangstöðulykt af markinu. En ég deili ekki um það, linu- vörðurinn var i betri aðstöðu cn ég”. Óli sagðist ekki áforma að taka aö sér þjálfun að nýju, liann vildi helzt draga sig alveg i hlé —SS. BLIKARNIR ALVEG A YZTU NÖF Nú má telja svo til öruggt að Breiðablik falli i 2. deiid að ári. Liðið á enn möguleika á að hanga uppi, en þeir eru orönir mjög litlir eftir tapið gegn Fram á Melavellinum á laugardaginn. Lokatölurnar urðu 2:1 betra liðinu i hag, cn svo virtist sem Blikarnir ætluðu að slá islands- meisturunum við i siðari iiálf- leik. Þá sóttu þeir mun meira, eða allt þar til Fram náði að skora frekar óvænt. Eftir það voru úrslit leiksins ráðin. 0—1:25. min. Brotið var á Elmari Geirssyni á vitateigs- horni. Guðgeir Leifsson tók spyrnuna, gaf á Asgeir Eliasson sem skoraði með lausri spyrnu af vitateig. Þarna var vörn Blikanna illa á verði. 1—1:45. inin. Blikarnir jafna aðeins sekúndubroti áður en flautað var til hálfleiks. Ólafur Friðriksson sendi knöttinn fyrir markið frá hægri, Heiðar Breið- fjörð skaut þrumuskoti sem Þorbergur fékk ekki ráðið viö. 1—2:61. min. Guðgeir gaf langa sendingu fram völlin á Jón Pétursson. Af Jóni barst knötturinn til Eggerts Stein- grimssonar, sem lék að marki og skoraði. Þarna vildu margir meina að Eggert hefði verið rangstæður, en hvorki linu- vörður né dómari gerðu athuga- semd. Eftir þetta var leikurinn endanlega unninn. Blikarnir höfðu fram að þessu leikið nokkuð vel, og haft i fullu tré við Islandsmeistarana. En þó virðist vanta neistann i liðið. Varnirnar sterkari hluti lið- anna. Enginn áberandi beztur - SS. Þriðjudagur 14. ágúst 1973.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.