Alþýðublaðið - 09.09.1973, Side 1

Alþýðublaðið - 09.09.1973, Side 1
OLÍUFURSTARNIR J IS- LENSKUM LANDBUNAÐI Það voru i hæsta máta skiljanleg viðbrögð Húsmæðra- félags Reykjavikur að mótmæla þvi að húsmæður á höfuð- borgarsvæðinu skuli vera látnar sitja á hakanum varðandi möguleika á að kaupa kjöt á gamla verðinu, þegar nægilegar birgðir kjöts eru sagðar til i landinu. „Kjötið er greitt niður af öll- um landsmönnum, ibúar höfuð- borgarsvæðisins eru stærstu skattgreiðendur landsins og um leið stærsti hluti neytenda. Það getur þvi ekki talizt einkamál landsbyggðarinnar að hafa nægar birgðir dilkakjöts á eldra Bjarni Sigtryggsson: UM HELGINA verðinu, á meðan ibúar höfuð- borgarsvæðisins búa við kjöt- skort”. Þannig segir i tilkynn- ingu framkvæmdanefndar Hús- mæðrafélagsins, þar sem þess er krafizt að þær umframbirgð- ir af dilkakjöti á gamla verðinu, sem i landinu eru, séu tafarlaust fluttar til höfuðborgarsvæðis- ins, — og samkvæmt þvi telur nefndin sumarslátrun vafa- sama. Það ætti vart að þurfa að bæta því við, að það kjöt, sem nú kemur á markaðinn um leið og sumarslátrun hefst, er næstum hundrað krönum dýrara hvert kiló, miðað við súpukjöt. Það vill svo til, að á hverju ári setjast ótal nefndir niður og reyna að komast til botns i þvi hvaða ráðstafanir gera þurfi til að framleiðendur landbúnaðar- afurða fái nóg fyrir sinn snúð. Þessar nefndir heita sexmanna- nefndir, harðærisnefndir og þar fram eftir götunum, og þær komast að jafnaði að ýmsum úrræðum, sem allar fela þó i sér einhvers konar skattlagningu. •Það er hækkað verð á hinni og þessari afurðategundinni, gjarnan öllum, — og það er gért ráð fyrir að selja svo og svo mikið magn af umframfram- leiðslunni til útlanda, og þá að sjálfsögðu undir kostnaðar- verði, þvi ella væru okkar ágætu afurðir ekki samkeppnisfærar. En enginn selur undir kostnaðarverði án þess að tapa, og þá er að sjálfsögðu seilzt i rikiskassann, — það er að segja vasa skattgreiðenda. Obbinn af þessum skattgreið- endum er fólkið, sem sjálft þarf að kaupa mjólk og kjöt, það fólk, sem skattlagt er eftir út- reikningi nefndanna til að fram- leiðandinn sé hólpinn. En hvenær i ósköpunum hefur skattgreiðandinn, sem kaupir kjötið og mjólkina, verið spurð- ur að þvi hvort hann vilji borga þetta verð? Siðast þegar örlaði á mótmælum húsmæðra gegn sihækkandi verðlagi land- búnaðarafurða, þá var þeim konum brigzlað um óþjóðholl- ustu, allt að þvi landráð. Staðreyndin er nefnilega sú, að forrráðamenn Framleiðslu- ráðs landbúnaðarins eru að verða eins og öliufurstarnir við Persaflóa. Bændasamtökin eru farin að lfkjast bandalagi ara- bisku oliurikjanna, sem sam- einuð neyta einokunaraðstöðu sinnar. Þvi miður er ekki hægt að kalla framferði þeirra neinu kurteislegra orði en yfirgang, — og það grátlega er, að ráða- menn virðast ekki hafa hugsað sér að gefa neytandanum kost á að rétta sinn hlut. Að visu eru furðu oft til skýr- ingar á óliklegustu hlutum. En hvaða skýring skyldi vera á þvi að þessar miklu birgðir dilka- kjöts, sem til eru úti á landi, megi ekki selja i Reykjavik? Sé sú skýring gefin, að fólkið á landsbyggðinni þurfi sjálft á þessu ódýra kjöti að halda, — þá flokkast það undir oliufursta- kenninguna. Þ.e.a.s. að þaö er i lagi að láta borgarbúann greiða fullt verð fyrir kjötið, þvi hann er notaður þegar á honum þarf að halda. En sú skýring er framleiðend- um og dreifingarfyrirtækjunum þeirra sizt til vegsauka. önnur hugsanleg skýring gæti verið til. Hliðstæð þvi þegar afurðalán hafa verið tekin út á óveiddan fisk. En það er náttúr- lega af og frá, að þarna geti ver- iö um að ræða birgðir pappirs- kjöts, — það er að segja kjöts, sem til er á skýrslum lánastofn- ana, — en hvergi finnanlegt i geymslum. Það er engin furða þótt hús- mæðurnar spyrji: Hvað er til ráða? Sunnudagur 9. september 1973

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.