Alþýðublaðið - 09.09.1973, Síða 4
ÍÚR HEIMI TÍZKUNNAR
□
Glæsikonan:
A auglýsingarmynd má sjá
Párisarfyrirsætuna og vissa ilm-
vatnstegund.
□
Mömmuleg:
Florence Lafuma og þriggja ára
dóttir hennar Pascale, i innkaupa-
ferö.
□
Ungmeyjarleg:
Þær konur, sem lesa kvennablööin,
bera sig saman viö forsiöumyndina
af Florence Lafuma.
□
Opinská:
Florence Lafuma gerir sér vonir
um aö verða ,,Súper”-kvikmynda-
stjarna.
□
Verndarþurfi:
Þrátt fyrir sjálfstæöa atvinnu telur
hún sig hafa þörf fyrir eiginmann-
inn
Breytir
um andlit
Þegar Florence Lafuma fer í inn-
kaupaferð með Pascale dóttur
sinni, má lesa það úr svip og
augnatilliti flestra þeirra Parísar-
búa, sem verða á vegi hennar og
veita henni athygli, að eitthvað
kannist þeir við þessa ungu og fögru
konu. En svo bregður fyrir spurn og
vafa í svipnum — hvar hafa þeir séð
þetta fallega andlit áður? Var það í
einhverri kvikmynd, eða sáu þeir
hana sem sýningarstúlku í einhverri
tízkuverzlun? Jafnvel eftir að
andlitsmynd af henni hafði prýtt
forsíðu franska tímaritsins ,,Elle"
og „Paris Match" ekki alls fyrir
löngu, gat Florence Lafuma reikað
um götur Parísarborgar, án þess
nokkur bæri svo kennsl á hana, að
hann væri viss.
Þessi óþekkjanleiki er „Súper-
stjörnu frönsku forsíðufyrirsæt-
anna" óneitanlega mikill styrkur.
Hið fallega andlit hennar með sin-
um postulínsbláu augum, virðist að
því leyti svipað fögru landslagi, sem
breytir stöðugt svip við tilfærslu
Ijóss og skugga, að það tekur sífelld-
um breytingum fyrir mismunandi
meðhöndlun með venjulegum
fegurðarlyf jum. Hún getur þannig
tekið á sig svip og yfirbragð útivist-
ar- og íþróttastúlkunnar, sjálfstæðu
stúlkunnar, já, og kynæsandi stúlk-
unnar frammi fyrir Ijósmyndavél-
inni, og fer því þó f jærri, að þar með
séu öll gervi hennar talin, ef svo má
að orði komast. Og svo þegar hún
hefur hreinsað andlit sigg af snyrti-
lyf junum, þá birtist hún eins og hún
er í rauninni — hin fallega, stillilega
og vel upp alda stúlka, sem ber með
sér að hún er af góðu fólki komín.
Hin óþekkta stúlka, sem lesendum
„Elle", „Vogue" eða „Paris
Match" og „ Brigitte" f innst að vísu,
sem þeir kannist eitthvað við, án
þess þó að þeim detti í hug að það sé
sama stúlka og prýddi forsíður þess-
ara tímarita.
En jafnvel þó að þetta starf færi
henni sem svarar tólf þúsund ís-
lenzkum krónum á dag, er Florence
Lafuma ekki ánægð. Ljósmynda-
dísin ókunna vill gerast kvikmynda-
dís og afla sér frægðar á því sviði.
„Kvikmyndirnar veita manni tæki-
færi til að ná til fjöldans og vera
honum eitthvað. Á Ijósmyndinni er
maðurekki annaðen lífvana andlit,
hversu fallegt sem það svo kann að
vera".
Og það er ekki heldur langt síðan
að hún háði frumraun sína sem
verðandi kvikmyndadís á hvíta
tjaldinu í París. Nefnist kvikmynd-
Otivistarstúlkan:
Þaö fer henni síöur en svo illa aö
auka á tillitstöfrana meö ullarjakk-
anum.
IÓSKÖP VENJULEG STÚLKA
0
Sunnudagur 9. september 1973