Alþýðublaðið - 15.09.1973, Page 1
SEX SKADABÚTAMÁL
VEGNA BVGGINGAGALLA
Sementsverksmiöju
rikisins hefur veriö stefnt
til réttargæslu i skaða-
bótamáli gegn bygg-
ingarfyrirtæki, vegna
galla á Ibúðum I fjölbýlis-
húsi i Hraunbænum.
Nýlega voru þingfest i
borgardómi i Reykjavik
sex mál, sem höföuö eru
gegn fyrirtæki þessu. í
stefnu segir, að fljótlega
hafi komið fram marg-
háttaöir gallar i þessu
SEMENTSVERKSMIÐJUNNI
STEFNT TIL RÉTTARGÆSLU
Laugardagur 15. sept. 1973 54. á™.
alþýðu
fjölbýlishúsi, en ibúðir
þær, sem hér um ræöir
voru seldar árið 1967.
Telja stefnendur, aö gall-
arnir stafi af ófullnægj-
andi verkstjórn og/eöa
gölluöu sementi, nema
hvort tveggja sé. Er þvi
taliö hugsanlegt, að
Smentsverksmiöja rikis-
ins kunni að vera meö-
ábyrg sökum þess, aö hún
hafi selt gallað sement til
verksins.
Dómkvaddir mats-
menn voru fengnir til
þess að meta hina marg-
háttuöu galla, viögerða-
kostnað og afnotamissi
vegna þeirra. Þá fór og
fram yfirmat i sama
skyni, en viö hvorugt
matiö var gerö könnun á
hugsanlega gölluöu
sementi. Bendir allt til
þess, aö nú komi til kasta
dómstólanna um það,
hvort Sementsverk-
smiöjan sé bótaskyld, ef
byggingagallar stafa af
þvi, að sementi frá henni
sé áfátt I gæöum og ekki
séö, hvern dilk þaö kann
aö draga á eftir sér.
Eins og kunnugt er,
hefur Jóhannes Bjarna-
son, verkfræðingur,
fyrrum starfsmaður
sementsverksmiöjunnar,
borið þaö á opinberum
vettvangi, að fyrirtækið
hafi haft I frammi vöru-
svik. Þvi hefur hins vegar
verið mótmælt af stjórn
Sementsverksmiöjunnar
ogm.a. látið aö þvi liggja,
aö huglægar ástæöur
fyrrverandi starfsmanns
séu meöverkandi i ásök-
um hans.
DAUÐINN
TEKUR
SÉR FAR
Ný framhaldssaga: ,/Dauðinn tekur
sér far" byrjar í sunnudagsblaði
Alþýðublaðsins nú um helgina. Saga
þessi, sem er sænsk að uppruna, hefur
farið sigurför á mörg tungumál sakir
spennu og snilldarheita i frásögninni.
AFSKIPTALEYSI
A SLYSSTAÐ
| - SJA
OPNU
I ÞORIR E» HINIB ÞÉGlAl
Hvaö lesiö þiö úr svipn-
um á þessari ungu
stúlku, lesendur góöir?
Eitthvaö hefur ljós-
myndarinn okkar séö
athyglisvert — hvaö það
er vitum við nú ekki ná-
kvæmlega. En hvað
sem öllum vangaveltum
liöur ER svipurinn at-
hyglisveröur, — hvort
sem ástæöan er herra-
maðurinn, sem strunsar
i burtu, — eða hún hefur
komiö auga á ljósmynd-
arann og er aö gefa hon-
um hýrt auga. Eöa hvað
finnst ykkur?
KOPAVOGSMALIÐ:
Bæjarstjornin
sagði stopp!
„Allir þeir kaup-
samningar, sem
Húsfell h/f hefur
gert við fólk að und-
anförnu um íbúða-
kaup i miðbæ Kópa-
vogs, hljóta að skoð-
ast markleysa, sam-
kvæmt samþykktum
bæjarstjórnar",
sagði Björgvin Sæ-
mundsson, bæjar-
stjóri í Kópavogi í
viðtali við blaðið í
gærkvöldi, eftir fund
bæjarst jórnar um
„ Kópavogsmálið",
sem Alþýðublaðið
skýrði fyrst frá og
hefur rakið undan-
farna daga.
Á fundinum var
fyrirtækinu Húsfelli
h/f algerlega útskúf-
að úr miðbæ Kópa-
vogs, en eins og
Alþ.bl. hefur skýrt
frá, var fyrirtækið
farið að selja íbúðir
þar, sem meira að
segja voru ósam-
þykktar með öllu.
Var tillaga þess
efnis að Húsfell
hefði enga heimild
til ráðstöfunar á
byggingarrétti í
miðbæ Kópavogs, né
til sölu á ibúðum
þar, einróma sam-
þykkt. Jafnframt
var einróma sam-
þykkt að bygginga-
fulltrúa Kópavogs
yrði falið að stöðva
allar framkvæmdir
Miðbæ jarf ra m-
kvæmda s/f, uns
fyrirtækið hefur
staðið við samning
sinn við Kópavogs-
bæ, en Húsfell var að
selja þær ibúðir sem
Miðbæ jarfram-
kvæmdir höfðu leyfi
til að byggja.
Inn á fundinn kom
bréf frá Miðbæjar-
framkvæmdum, þar
sem farið var fram á
að fyrirtækinu yrði
heimilað að fram-
selja Húsfelli bygg-
ingarrétt sinn í mið-
bæ Kópavogs. Þessu
hafnaði bæjarstjórn
algerlega.
Þá samþykkti bæj-
arstjórn einnig til-
lögu þess efnis, að
bæjarráði yrði falið
að athuga nánar að-
stöðu og rétt Mið-
bæjarframkvæmda
til bygginga á mið-
bæjarsvæðinu,
vegna þessa máls.
Að lokum sagði
Björgvin Sæmunds-
son bæjarstjóri að
þetta væri „eitthvert
vfðtækasta leiðinda-
mál", sem upp hefði
komið í Kópavogi i
sinni stjórnartíð.
Enda er þarna um á
annað hundrað íbúð-
irað ræða, og mikið i
húfi fyrir bæjarfé-
lagið að rétt og vel
yrði að öllum fram-
kvæmdum staðið".
Rússneskur
sendiráðs-
bíll valt
hjá Kleifar-
vatni
Rannsóknarlögreglan
i Hafnarfiröi haföi
fréttir af þvi I gær, aö
fyrir um þaö bil viku
hafi rússneskur sendi-
ráösbill af Volgu gerö
oltiö- á Krisuvikurvegi,
skammt frá Kleifar-
vatni. Sveinn Björns-
son, rannsóknarlög-
reglumaöur, sagöi viö
Alþýöublaöiö I gær, aö
reynt hafi veriö aö fá
uppgefiö hjá trygginga-
félagi rússneska sendi-
ráösins, Sjóvátrygg-
ingum, hvenær billinn
valt, en forráöamenn
félagsins neituöu aö
veita þær upplýsingar.
Rannsóknarlög-
reglunni tókst aö fá
upplýsingar um þaö, á
hvaöa verkstæöi billinn
er, og fóru menn þangaö
til aö lita á hann. Aö
sögn Sveins var búiö aö
loka verkstæöinu, þegar
lögreglan kom þangaö,
en einhver var þó við.
Neitaöi sá að hleypa lög
reglunni inn á verk-
stæöið en gaf þó þær
upplýsingar, aö daginn
eftir að billinn kom
.þangað hafi Rússarnir
komið og hirt allt laus-
legt úr bilnum.
Þess má geta, að sér
fræöingar telja, aö
radiótækin, sem fundist
hafa á botni Kleifar-
vatns hafi aðeins legið
þar I fáa daga.
Hvergi
fyrir 7
Sjö ára börn i Garða-
hreppi eru i bili útilokuö
frá skólagöngu, þar sem
ekkert rúm er fyrir þau í
skólanum. Þau mættu til
skólasetningar eins og
önnur börn, og reyndist
þá engin skólastofa á
lausu fyrir þau, en skóla-
stjórinn hugöist leysa
vandamálið meö þvi aö
visa þeim í leikfimi-
salinn. Kennararnir sam-
þykktu þá ráöstöfun útaf
fyrir sig, en sögðust þó
ekki mundu kenna fyrr en
endurbætur hafa veriö
geröar á honum, þ.e. sett
I hann skilrúm, töflur og
loftræsting. Var þá ekki
um annað aö ræða en
senda sjöára börnin heim
með þau skilaboð til for-
eldranna, aö ekkert pláss
væri fyrir þau I skól-
anum.
fannst pláss
ára börnin
Siðan þetta geröist
hefur skólastjórinn, Vil-
bergur Júliusson, reynt
aö leysa málin. Hann
gekká fund hrepps-
nefndarinnar og baö um
aö fá aö breyta leikfimi-
salnum, sem reyndar var
upphaflega ætlaður sem
kennslustofur. Meirhluti
hreppsnefndar reyndist
andvígur þeirri ráðstöfun
á þeirri forsendu, aö þá
yröi leikfimi að leggjast
niöur og unglingar i
Garðahreppi missa
aöstöðu sina til iþrótta-
iðkana i vetur.
Siöan fór hreppsnefndin
fram á að menntamála-
ráöuneytiö léti gera út-
tekt á skólahúsnæöinu.
Þaö hefur veriö gert, en
reyndist ekki unnt aö fá
niðurstööurnar þar eö
ráöuneytiö á eftir aö
fjalla um þær.
Vilbergur Júliusson,
skólastjóri, sagöi við
Alþýöublaöiö i gær, aö
raunveruiega vanti
skólánn tvær til þrjár
kennslustofur, auk
aöstööu til aö kenna söng.
Hann sagöist hafa gert
spá um fjölgun nemenda
sl. vor, og var þá sýnt, að
skólinn gæti ekki tekiö viö
öllum nemendunum i
haust. Hann lét hrepps-
nefndinni niðurstöðurnar
i té fyrir þremur
mánuöum, en ekkert
hefur verið gert.
Ofan á allt saman er
svo von á 34 börnum frá
Vestmannaeyjum, en von
er á færanlegri kennslu-
stofu fyrir þau seinna i
haust, og mæta þau ekki í
skólann fyrr en gengiö
hefur verið frá henni.