Alþýðublaðið - 29.09.1973, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 29.09.1973, Blaðsíða 3
Frá mönnum og málefnum Miklar húsraunir hafa oröið út af þremur byggingum i Reykjavik. Ein hefur þegar verið afgreidd með snöfurlegum fundi á Arnarhóli til verndar sólarlaginu og norðanáttinni og þeim kolaplátzum, sem kynnu að verða rannsóknarefni siðari tima mannvistarfræöina. Annarskonar húsraunir hafa oröið út af byggingu Sjálfstæðis- hússins nýja og hundaspital- anum, sem Halldór E. vildi ekki borga, og heldur ekki Birgir Isleifur, og mega þvi hundar borgarinnar haltir ganga enn um sinn. Þótt Reykjavik hafi löngum verið kallað höfuðeinvigi ihalds- ins i landinu, þá mun hið sama ihald hvergi hafa lent i öðrum eins húsnæðishrakningum og einmitt i Reykjavik. Eins og önnur samtök á ihaldið flokks- heimili viða um land, og flytur ekki þar nema á þrjátiu ára fresti. A undanförnum árum hafa staöið yfir stöðugir flutn- ingar þess I höfuðborginni. 1 einn tima hafði það aðsetur i Holstein við Austurvöll, i annan tima bjó það um sig i eins konar arnarhreiðri við Suðurgötu, unz húsið var oröið svo skellótt aö utan, sökum viðhaldsleysis, að það minnt á skáldaðan Kveldúlfstogara frá timabili Thors-ættarinnar áður en hún lenti i skáldskapargrillum. Þá var flúið þaðan og keypt Galta- fell af erfingjum Bjarna heitins Jónssonar, falleg bygging og mikil. Hófust þar kostnaðar- samar viðgerðir, en þær viröast ekki hafa dugað til þess umbúnaðar, sem ihaldið vill hafa um stefnu sina og forustu- menn. Var þvlbyrjað að efna til nýrrar byggingar i sönnum iþróttaanda, þvi menn voru gripnir á landsfundi og öðrum fundum og látnir skrifa upp á vixlaheldur en sleppa þeim viö fjárframlög til hinnar nýju byggingar. Urðu menn um siöir svo hræddir um sig, að þeir bók- staflega gægðust fyrir horn til að huga að fyrirsát Alberts Guö- mundssonar með vixlasúpuna, áður en þeir þorðu til mann- fagnaðar. Segja má ihaldinu til máls- bóta : þessu fjársöfnunaræöi, að ekki hefur brunnið hjá þeim eins og framsókn. Bruninn á Glaumbæ skildi framsókn eftir meö fullar hendur tryggingar- fjár, sem steypt hefur verið i steinbelg við Rauðarárstig, þótt annar hæfi aö byggja það hús og ætlaði það ekki undir áróðurs- maskínur framsóknar og flot- belgi hennar. Aftur á móti virðist ætla að ganga sorglega seint fyrir ihaldinu aö koma húsi sinu af grunni þrátt fyrir stórfellda vixlaútgáfu. Hers- höfðinginn Albert hefur kvatt menn mjög til að gefa vinnu við bygginguna, en það nær skammt, þótt ein og ein þing- kona flokksins stundi nagla- hreinsun á laugardögum. Húsraunir og harmagrátur Alberts vegna byggingarfram- kvæmdanna leiða hugann að þriðja byggingarvandanum i borginni. A döfinni hefur verið dýraspitali, sem merkur hunda- vinur erlendur tók upp hjá sjálfum sér að gefa hingað. Gjöfin hafði ekki fyrr borizt hingað til landsins en ýmsir óvinir dýra hófu andróöur gegn dýraspítalanum, og bentu á þá staðreynd, að viða vantaði sjúkrahús handa tvifætlingum, item læknishjálp á Hólma- vik'Ogviöar eins og alkunna er. Þetta hefur eölilega farið i taug- arnar á hundavinum, sem halda þvi fram að þeir eigi ekki aö sjá um almenna heilsugæzlu i landinu. Hafin var fjársöfnun vegna dýraspitalans. Hún gengur hægt eins og fjársafn- anir Þjóðviljans og stendur nú i fimmtiu og tveimur þúsundum króna. Nú, þegar Albert hefur komjzt að raun um að ihaldiö i bænum nennir ekki að vinna, og seint muni takast að reisa hús fyrir gjafadagsverk þess, væri ekki úr vegi fyrir hann að tengja málið við dýraspitalann. Með þvi að ætla dýraspitalanum plátz i kjallara hins nýja Sjálf- stæðishúss gæti hann innbyrt söfnunarféö, sem eflaust ætti éftir að aukast. Væri þá tryggt að upp risi endanlega sú Domus Canis, sem okkur hefur bráð- vantað um langa hrið. VITUS MOGGINN r I OFFSETT í næstu viku rennur upp sú stund að öll islensku dagblöðin verði offsetprentuð. Siðan Blaða- prent hf, tók til starfa, hefur Morgunblaðið eitt dagblaðanna verið prentað með gömlu blýaö- ferðinni, en i næstu viku fetar Mogginn i fótspor Alþ.bl, Timans, Þjóðviljans og Visis og tekur upp offsetprentun. Haraldur Sveinsson, fram- kvæmdastjóri Morgunblaðsins, sagði Alþ.bl. að ekki væri búið að fastákveða útkomudag fyrsta off- setblaðsins, en stefnt væri að degi i næstu viku. Flyst þá öll prentun blaösins i Skeifuna, en þar eru offsetvélarnar staðsettar. Blaðið verður fyrst um sinn 32 blaðsiður en á að stækka i 48 siður fyrir jól. Haraldur sagði að tafir á af- greiðslu prentvéla hefðu seinkað útkomu offsetblaösins. Fram til þessa hefur einungis Lesbók blaðsins og stundum iþróttablað verið prentað i offset. Þá hafa einstaka siður aöalblaösins veriö unnar i offset á undanförnum dögum, og þær prentaðar með gömlu aöferðinni. Hafa menn þar getað fengiö forsmekkinn af þvi hvernig Morgunblaðið litur út eftir breytinguna. HUSRAUNIR OG HARMAGRÁTUR ÞUKLARI TEKINN Lögreglan í Reykjavík handtók ungan mann í vikunni, en hann er upp- vis að því að þukla unga pilta til að svala kynhvöt sinni. Lögreglunni hafa borist nokkrar kærur út af þuklara víðsvegar um bæinn að undanförnu, og lýsing eins drengsins, sem fyrir honum varð, kom heim við lýsingu manns, sem áður hefur verið tekinn fyrir þukl, og hlotið dóm. Það stóð heima, mað- urinn játaði verknað sinn, og hefur nú verið úrskurð- aður i allt að 45 daga gæsluvarðhald og geð- rannsókn. Ekki sá á drengjunum eftir þukl mannsins, en einkum urðu fimm til sjö ; -a drengir fyrir barðinu^á honum. Fréttirnar færast fram Á mánudaginn verður breyting á kvöldfréttatima útvarpsins, fréttirnar færast fram um hálf- tima og veröa klukkan 18,30. Þetta fyrirkomulag mun veröa i þrjá mánuöi, eða fram til ára- móta, til reynslu. Þetta er gert að samþykkt útvarpsráðs. Rannsóknar- lögregla á Akureyri Bæjarfógetinn á Akur- eyri hefur sótt um leyfi til dómsmálaráðuneytisins að ráða sérstaka rann- sóknarlögregiumenn að embætti sínu, einn eða fleiri. Mál þetta er nú til at hugunar í ráðuneytinu. Sérstakir rannsóknar- lögreglumenn eru starfandi i Kópavogi, og Hafnarfirði auk höfuðborgarinnar. lalþyðuj aðiö Auglýsingasími Alþýðublaðsins er 86660 s? r---------------- ■ ■ ......... HORNIÐ Fangelsisbréf SHorninu hefur borist m bréf frá 19 ára gömlum p fanga i Síðumúla og $ fylgdi því athugasend frá Gunnari Guðmundssyni, |i yfirfangaverði. Gunnar 0 sagði i samtali við homið, í| að engin bréf fari inn eða út úr islenskum fang- elsum, án þess að yfir- lesi þau. Sagði sem skrifaði þetta bréf hefði valið að „fara heiðarlegu leiðina", eins og hann g; orðaði það, og skýra sér !i| frá því, að hann ætlaði að & skrifa Alþýðublaðinu !j£ bréf. Bætti Gunnar svo at- % hugasemd sinni um efni bréfsins aftan við bréf ■S fangans og þannig barst 1 ■& menn i& hann, að piltur sá I allt fyrir sér hvað gera skyldi við þetta hús. Eftir itarlega rannsókn um þetta mál var ákveðið, aö þetta hús yrði notaö til afplánunar stuttra dóma og til gæsluvarð- halds, og einnig sem kvenna- fangelsi. Þvi var farið að breyta húsinu til þess aö það yröi að einhverju leyti hæft til þess, en að minu áliti hefur þaö ekki tekist. Viö þessa breytingu voru sett borð i alla klefana, og þau rammlega boltuð föst við gólfið. Einnig var settur einn kollstóll i hvern klefa, og rúm, vandlega fest niður, svo þeim er ekki haggaö. 1 þessum rúmum eru allgóðar, bólstraðar dýnur, ásamt höfuðpúöa, en þær einu um- f; blaðinu | slagi: (i „Herra ritstjóri. '4 Mig langar, að eftirfarandi komi fram um þessa stofnun, þ frá sjónarhóli afpgánunar- tfi. fanga, er hér dvelur, um þennan staö, sem á að kallast fangelsi, ^ eins og flestir vita var þetta g, hús i upphafi byggt með þaö fyrir augum að hafa hér ein- ái ungis næturgistingu fyrir ölvaða ® menn. En með tilkomu nýju lög- jg reglustöðvarinnar og fanga- ^ geymslunnar þar fyrir þá ölvuðu varð þetta hús verkefnis- 4jj laust. Þá fóru þeir herrar, sem þ um þessi mál fjalla, að velta þvi eru þær bestu, sem ég hefi séð i islensku fangelsi hingað til. Klefar þessir eru mjög litlir, og þvi ekki æskilegir til þess að loka fanga inni i þeim 21 1/2 tima á sólarhring, þar sem menn veröa all oft slæmir á taugum i svona einangrun. 1 þessum klefum er eitt ljós, beint fyrir ofan hurðina, og er all- slæmt aö lesa við það. Auk þess er ekki hægt að kveikja á þvi né slökkva án þess að hringja á fangavörð og biðja hann um þaö, þvi ljósrofinn er fyrir framan hurðina, en fyrir henni eru þrir lásar, svo það er aug- ljóst, að ekki getur viðkomandi fangi slökkt né kveikt. Skapar þetta fyrirkomulag þvi fanga- vörðunum allmikla snúninga, sem annars væru óþarfir, þvi að aðeins eru tveir á vakt i einu. Tveir gangar eru i þessu fang- elsi, annar fyrir kvenfólk og hinn, sem er með helmingi fleiri klefum, fyrir karlmenn. Fyrir enda þessara ganga eru voldugar járngrindur með læstum huröum, svo ógerlegt er, að fangarnir komist saman. Ekki fyrir löngu kom mynd i Visi af einum klefa hérna, og á iienni sást, að skápur er i klef- ahum. Þessi klefi er i kvenna- álmunni, en engir skápar eru i karlmannaálmunni. Þó er hægt aö geyma föt frammi á varð- stofu. Með þessu fyrirkomulagi, sem nú er hér, finnst mér, aö verið sé að heilaþvo þá ógæfu- sömu menn, sem hér lenda, en sist að veriö sé að byggja þá upp til þess aö geta byrjað nýtt og jafnvel betra lif, en það skilst mér aö sé ætlunin með þvi að dæma menn til fangavistar. Loftræstikerfi hússins er þannig, að smá göt eru á lofti hvers klefa, og er allmikið suð af þessu, en það er mjög tauga- trekkjandi fyrir þá, sem eru lokaöir inni i þessum kompum. Ég hef dvalið i öllum fangelsum þeim, er Sakadómur Reykjavikur hefur yfir að ráða þá rúmu 300 daga, sem ég hef afplánað, og nú finnst.mér , að virðingu minni sé allmisboðið hér með þessari einangrun (en það er að vera lokaður inni i 21 1/2 tima á sólarhring) er refsi- fangar þurfa að koma til lækninga úr öörum fangelsum Kerfisins. Með þessum skrifum er ég ekki að ráðast á fangaverði né umráöamenn fangelsins hér aö Siðumúla 18. UPPKAST AÐ ORBÓTUM Væri ekki hægt að koma þvi i kring, að fangar fengju að vera meira á ganginum fyrir innan járngrindurnar? Þá gætu þeir talaö saman, spilað og stytt sér þannig stundir. Þá heföu þeir greiöan aðgang að salernum án þess að þurfa að hringja á fangavörð. Við þessar litlu breytingar mundi að minu áliti skapast meiri ró, og samband fangans annars vegar og gæslumanns hinsvegar. Meö þökk fyrir væntanlega birtingu, Samúel Oddgeirsson.” Athugasemd yfirfanga- varöar: 1. „Þar sem talað er um meira frjálsræði á göngum fang- elsisins hef ég þegar gert tilraun með það. Það á svo eftir að sýna sig, hvernig það gefst. 2. Annars var innilokun i klef- um 21 1/2 tima á sólarhring sá sami og er i Hegningar- húsinu við Skólavörðustig. 3. Þetta er rétt með ljósin, en ég hef þegar gert ráðstaf- anir til úrbóta. 4. Þaö er rétt, aö allmikiö suð er i hitablásaranum, en hér er um lofthitun að ræða, en úr þvi er ekki hægt að bæta. 5. Asökunum um heilaþvott á mönnum, sem hér dvelja, visa ég algjörlega á bug. Virðingarfyllst, Gunnar Guðmundsson.” O Laugardagur 29. september 1973

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.