Alþýðublaðið - 29.09.1973, Qupperneq 5
Alþýðublaðsútgáfan hf. Stjórnmála-
ritstjóri Sighvatur Björgvinsson.
Fréttastjóri Sigtryggur Sigtryggsson.
Ritstjórnarfulltrúi Bjarni Sigtryggs-
son. Ritstjóri og ábyrgðarmaður
Freysteinn Jóhannsson. Aðsetur rit-
stjórnar, Skipholti 19. Simi 86666. Af-
greiðsla: Hverfisgötu 8-10. Simi 14900.
Auglýsingar: Hverfisgötu 8-10. Sími
86660. Blaðaprent hf.
EIN SKOÐUN - EINN VILJI
Að höfðu samráði við utanrikismálanefnd Al-
þingis og að fengnu samþykki hennar hefur
rikisstjórn íslands nú tilkynnt bresku rikis-
stjórninni, að verði herskip og dráttarbátar
Breta ekki farnir út fyrir 50 milna mörkin fyrir
miðvikudaginn 3. október n.k. komi til fram-
kvæmda slit á stjórnmálasamskiptum við Breta
i samræmi við ályktun rikisstjórnarinnar frá 11.
september s.l.
Eins og sagt var hér að framán hafði rikis-
stjórnin samráð um þessa ákvörðun sina við ut-
anrikismálanefnd Alþingis og þá um leið full-
trúa stjórnarandstöðuflokkanna, sem þar eiga
sæti, áður en ákvörðunin var tekin og tilkynnt.
Þarna fór rikisstjórnin rétta boðleið með málið
og hefur nú horfið frá þvi ráði sinu, að ákveða
sig fyrst og tilkynna ákvörðun sina opinberlega
áður en samráðs væri leitað við utanrikismála-
nefndina eins og hún gerði varðandi samþykkt-
ina frá 11. september s.l. Þær starfsaðferðir
rikisstjórnarinnar gagnrýndi Alþýðublaðið
harðlega og það með réttu og er vissulega á-
stæða til þess að fagna þvi, að sú gagnrýni Al-
þýðublaðsins og annarra skuli hafa orðið til
þess, að rikisstjórnin hafi nú snúið við blaðinu
og beiti þeim sjálfsögðu starfsaðferðum að hafa
samráð við stjórnarandstöðuna um mikilvæg
aðriði landhelgismálsins áður en ákvörðun er
tekin og tilkynnt, en ekki eftir að það hefur verið
gert.
Afstaða Alþýðuflokksins til þessarar ákvörð-
unar er ótviræð og afdráttarlaus og kom skýr-
lega fram hjá Benedikt Gröndal, varaformanni
Alþýðuflokksins, i útvarpinu i gær, en hann
gegnir þessa dagana störfum i utanrikismála-
nefnd i stað Gylfa Þ. Gislasonar, sem er i opin-
berum erindagjörðum erlendis. Benedikt sagði
m.a.:
„Alþýðuflokkurinn hefur verið sammála
þeirri stefnu, að hætti Bretar ekki að valda
ásiglingum við varðskip okkar innan 50 miln-
anna, sé óhjákvæmilegt að slita stjórnmála-
samskiptum við þá. Þeir sinntu ekki þessari að-
vörun. Þess vegna hljótum við nú að stiga það
skref, sem rikisstjórnin hefur ákveðið með
samþykki utanrikismálanefndar Alþingis.”
Um aðgerðina sjálfa sagði Benedikt:
,,Slit á stjórnmálasamskiptum er sterk mót-
mælaaðgerð, sem mun vekja mikla athygli
Þessi aðgerð á þó ekki að trufla viðskipta- og
menningarsamstarf þjóðanna, nema Bretar
bregðist harkalega við á þvi sviði.”
Og enn sagði Benedikt Gröndal:
,,Eins og sakir standa tel ég hyggilegt af rikis-
stjórninni að láta ákvörðun sina ekki koma til
framkvæmda fyrr en á miðvikudag og gefa
Bretum þannig enn eitt tækifæri til þess að sýna
sáttvilja. Edward Heath, forsætisráðherra, á
næsta leikinn.”
Þannig er sem sagt viðhorf Alþýðuflokksins til
þeirrar ákvörðunar um slit á stjórnmálasam-
skiptum, sem Bretum hefir nú verið tilkynnt
um. Samráð var haft við Alþýðuflokkinn áður en
sú ákvörðun var tekin eins og er bæði sjálfsagt
ogeðlilegtog Alþýðuflokkurinn brást að sjálf-
sögðu við eins og hvatt er til i ályktun um land-
helgismálið, sem nýafstaðið kjördæmisþing
Alþýðuflokksins i Reykjavik samþykkti: hann
lagði áherslu á, að i málinu hefðu íslendingar
eina skoðun og einn vilja.
Sósíalska kosningabandalagið í Noregi
STOFNA ÞINGFLOKK
Ákveðið hefur verið, að þing-
menn þeir, sem kjörnir voru á
vegum Sósialska kosningasam-
bandsins i siðustu þingkosningum
i Noregi muni stofna með sér sér-
stakan þingflokk, en kosninga-
NEFND JAFN-
ADARMANNA
TIL CHILE
A sérstökum stjórnarfundi i
Alþjóðasambandi jafnaðar-
manna, sem haldinn var i
London s.l. laugardag, var
samþykkt að senda á vegum
sambandsins sérstaka nefnd
til Chile til þess að kynna sér
aöstæðurnar i landinu eftir
valdarán hersins. Nefndin
mun leggja af stað til Chile
innan viku.
Þá samþykkti stjórnar-
fundurinn harðorðar vitur á
þau öfl i Chile, sem stóðu að
valdaráninu og jafnframt lýsti
fundurinn þvi yfir, að
Alþjóðasamband jafnaðar-
manna myndi veita "félögum
vorum i Chile pólitiska, mann-
úðlega og fjárhagslega hjálp”
og þá einkum og sér i lagi
þeim, sem eru nú i útlegð eða
eru hundeltir af lögreglu og
her Chile.
I nefndinni, sem fer á veg-
um Alþjóðasambands
jafnaöarmanna til Chile til
þess að kynna sér aöstæður
þar, veröa fimm fulltrúar og
þeirra á meðal einn frá
jafnaöarmannaflokknum á
Norðurlöndum - sennilega
Svii.
Breski Verkamanna-
flokkurinn hefur harölega
mótmælt þvi, að breska rikis-
stjórnin skuli hafa viðurkennt
valdaránsstjórnina i Chile, en
rikisstjórn Heaths var meðal
þeirra fyrstu, sem slika viður-
kenningu sendi.
— Með þessu hefur rikis-
stjórn Bretlands stillt sér upp
við hliö ýmissa mestu aftur-
haldsstjórna i heimi, sagði
talsmaður breska Verka-
mannaflokksins.
sambandið var eins og kunnugt er
kosningabandalag þriggja sjálf-
stæðra stjórnmálaflokka og
—fylkinga: SF-flokksins, Komm-
únista og klofningsbrots úr
Verkamannaflokknum, sem kall-
ar sig Lýðræðissinnaða sósial-
ista-AIK (AIK er stytting á Ar-
bejdernes Informations Komitée
en það nefndust á sinum tima
samtök jafnaðarmanna og verka-
lýðssinna, sem störfuðu gegn að-
iid Noregs að EBE þegar þjóðar-
atkvæðagreiðslan um aðildina fór
fram. Flestir helstu framámanna
flokksins, sem voru i þessum
samtökum á sinum tima hættu
þátttöku i þeim þegar það var
orðið ljóst, að þau hygðust starfa
áfram sem sérstakt stjórnmála-
af 1, en nokkrir urðu þó þar eftir).
Finn Gustavsen, þáverandi for-
maður SF-flokksins var valinn
sem formaður hins nýja þing-
flokks og hætti hann þá um leið
sem formaður SF, en varafor-
maður hans, Stein Ornhöj, tók við
flokksformennskunni. Með
Gustavsen i stjórn þingflokksins
voru kjörin Berit As, sem er for-
maður Lýðræðissinnaðra sósial-
ista — AIK og Reidar T. Larsen,
formaður norska kommúnista-
flokksins.
Þá krafðist hinn nýstofnaði
þingflokkur þess að fá sæti i öllum
nefndum og ráðum norska Stór-
þingsins — þ.á.m. i utanrikis-
málanefnd og varnarmálanefnd,
en áður hafði jafnvel verið talið,
að þeir hefðu ekki áhuga á að fá
sæti i þessum tveimur nefndum.
Þá hefur þingflokkurinn einnig
krafist þess að fá formann einnar
þingnefndarinnar og hafa þeir sé-
stakan áhuga á að fá formennsk-
una i siglinga—- og fiskveiðinefnd
þingsins. Einnig hefur þingflokk-
urinn tilnefnt Torild Skard sem
fulltrúa sinn i forsætisnefnd Stór-
þingsins.
I samþykkt þessa fyrsta fundar
þingflokks Sósialska kosninga-
bandalagsins kom fram, að þing-
flokkurinn muni veita minni-
hlutastjórn Brattelis stuðning i
hverju einstöku máli fyrir sig eft-
ir þvi, sem ástæður leyfa. Hins
vegar leggur þingflokkurinn á-
herslu á, að hann muni halda fast
við þá stefnuskrá, sem flokkurinn
setti fram i kosningunum og ef
jafnaðarmenn vilji samvinnu, þá
verði þeir að taka tillit til þess.
27. ÞING S.U.J.
27. þing S.U.J. verður haldið i Sjálfstæðis-
húsinu á Akureyri um næstu helgi og verður
sett kl. 10 árdegis á laugardag. Dagskrá þings-
ins er i stórum dráttum þessi:
Fyrir hádegi á laugardag verður þingsetning
og kosning starfsmanna þingsins. Þá mun
skýrsla stjórnar verða flutt. Eftir hádegið
verða almennar umræður, nefndir kosnar og
þær taka til starfa.
Á sunnudag hefst þingfundur kl. 11 f.h. með
umræðum um sameiningarmálið. í hádeginu
flytur Gylfi Þ. Gislason formaður Alþýðu-
flokksins, ávarp. Að loknu hádegisverðarhléi
verða fyrir tekin álit starfsnefndar og álit
stjórnmálanefndar og þau rædd og afgreidd.
Um kvöldið verða þingslit.
Stjórnin
KJORDÆMAFUKDIR ALÞYDUFLOKKSINS
I REYKJANESKIÖRDÆMI
Þriðjudaginn 2. október n.k. kl. 20.30
Kjördæmisráð Alþýðuflokksins i Reykjaneskjördæmi efnir til kjör-
dæmisþings, sem haldið verður i félagsheimilinu Stapa i Ytri-Njarðvik
þriðjudaginn 2. október n.k. kl. 20,30. Kjördæmisþingið er jafnframt
aðalfundur kjördæmisráðsins.
V*’ , ‘ | -
!
Auk venjulegra aðalfundastarfa verður efnt til umræðna um stjórn-
málaviðhorfið. Framsögu i þeim umræðum hafa þeir GYLFI Þ.
GÍSLASON, JÓN ÁRMANN HÉÐINSSON og STEFÁN GUNNLAUGS-
SON.
STJÓRNIN
Laugardagur 29. september 1973
0