Alþýðublaðið - 09.10.1973, Blaðsíða 10
IR vann Stúdenta
ÍR hefur misst
hálft liðið
ÍR—ÍS 84-78 (45-35)
IR-liöiö hefur oröiö að sjá á eftir nokkrum af bestu mönnum
liðsins undanfarin ár, Agnar Friöriksson og Birgir Jakobsson eru
hættir körfuknattleik, Einar Sigfússon hefur skipt um félag, og
óvist er meö Anton Bjarnason, en liöiö hefur fengið Jón Indriöason
aftur isínar raðir, en Jón lék með IS i fyrra.
Stúdentarnir hafa misst Stefán Hallgrimsson yfir til KR, og
Jón Indriðason yfir til ÍR, en þeim hefur borist góður liðsauki þar
sem Þorleifur Björnsson frá Akureyri er, og þegar Þorleifur er
kominn i nægilega æfingu styrkir hann liðið án efa mikið.
Það voru stúdentar sem geröu fyrstu körfu leiksins, en ÍR jafnar
og kemst yfir 7:2, áður en ÍS skorar næst, ÍR-ingar höfðu síðan
forystuna til leiksloka, en ekki munaði þó alltaf miklu á liðunum,
t.d. 13:9, 21:15, 33:27 og i siðari hálfleik, 70:62, 76:68 og i leikslok
84:78 eða aðeins 6 stiga munur, en úrslitin teljast nokkuð
sanngjörn.
Kristinn Jörundsson fyrirliði og besti maður IR-liðsins var
kominn með 4 villur i fyrri hálfleik, og er óvist hvernig leikurinn
hefði endað hefði hann fengið fimmtu villuna i upphafi siðari hálf-
leiks.
Útlit er fyrir mjög spennandi Islandsmót i vetur, þvi liðin eru
mun jafnari nú en áður, leikmenn virðast óvenju sprækir miðað
við það aö keppnistimabilið er að byrja.
Albert Guðmundsson er að verða besti maður IS-liðsins, i
þessum leik var hann bestur ásamt Steini Sveinssyni.
Hjá 1R bar mest á Kristni Jörundssyni, en Jón Indriðason og
Kolbeinn Kristinsson áttu einnig góðan dag.
Stigin: 1R: Jón og Kristinn 22 hvort og Kolbeinn 15. IS- Albert 21,
Steinn 16og Ingi Stefansson 15. Vitaskot: tR: 18:8. 1S: 27:15.
—PK
STAÐAN
Staðan er nú þessi i
Reykjavikurmótinu I körfu-
knattleik. Næstu leikir eru 15.
október.
Kristinn Jörundsson skorar
glæsilega körfu fyrir ÍR I
leiknum við Stúdenta. Myndina
tók hinn óviöjafnanlegi
þúsundþjalasmiður Dóri
Dórason.
KR
1R
Vaiur
Armann
1S
220 140:128 4st.
1 1 0 84:78 2st.
2 1 1 145:133 2st.
1 0 1 70:72 Ost.
202 143:171 Ost.
KR strax í efsta sæti
UL vann 1
A laugardaginn var háður
leikur til heiðurs Alberti
Guðmundssyni fimmtugum,.
milli núverandi unglinga-
landsliðs og Faxaflóaliðsins
svonefnda. Unglingarnir unnu
1:0, og skoraöi Hálfdán
örlygsson markiö. Leikið var
á Melavellinum.
Reykjavlkurmótið f körfu-
knattleik hófst á föstudaginn og
voru ieiknir fjórir ieikir um
helgina. Voru þeir yfirleitt jafn-
ir og spennandi, og gefa fyrir-
heit um gott og tvfsýnt keppnis-
timabil körfuknattleiksmanna.
Pétur Kristjánsson mun eins og
undanfarin ár skrifa um körfu-
knattleik f blaðið, og birtast hér
fyrstu umsagnir hans. Frásögn
af leik KR og Armanns biður til
morguns.
KR—Valur
68:58 (26:29)
Þetta var ,hörkuspennandi
leikur, allan timann skiptust lið-
in á um forystuna, voru Vals-
menn heldur skarpari fyrri
hluta leiksins, en þegar fór að
siga á seinni hlutann sóttu KR-
ingar sig án þess þó að gull-
tryggja sigurinn, um úrslitin
varð ekki séð fyrr en á siðustu
mínútu.
KR tók forystu i leiknum 3:1
en Valur hefur jafnað stuttu siö-
ar 5:5, og síðan tók Valur foryst-
una 7:5, KR jafnar 7:7 en þá
skora Valsmenn næstu 6 stig
13:7 fyrir Val, og siðar 19:10 og
21:13, og héldu forystunni út
háifieikinn.
Valsmenn byrja seinni hálf-
leikinn vel og komast I 37:28, en
ennþá kemur góður kafli hjá KR
og skora þeir næstu 10 stig og
komast yfir 38:37, en Valur fer
aftur yfir 41:40 og 50:45 og útlit-
ið gott hjá Valsmönnum, en
næstu 11 stig leiksins eru eign
KR og og staöan 56:50 þeim i vil.
Lokamfnúturnar voru svo
æsispennandi. Valur minnkar
bilið i aðeins 2 stig 58:56 fyrir
KR og allt á suðupunkti, en KR
gerir næstu þrjár körfur 64:56
sigurinn loksins tryggður, KR
gerði svo 4 stig gegn 2 loka-
minútuna og sigrar með 10 stiga
mun.
KR lék með sitt sterkasta lið
nema hvaö Hjört Hansson
vantaði, en hann er meiddur
Stigahæstir: KR: Kolbeinn 24,
Birgir 17 og Guttormur 12.
Valur: Þórir 19, Kári 14 og
Torfi Magnússon 11.
Vitaskotsnýting: KR: 16:8.
Valur 14:4. -PK
A laugardaginn lét einn
þekktasti kappakstursmaður
heimsins lifið i keppni i
Bandarikjunum. Þetta var
Francois Cevert, 29 ára
gamall, franskur að þjóðerni.
Hann var þriðji stigahæsti
kappakstursmaðurinn i sumar
i keppninni um heims-
meistaratitlinn, aðeins Jackie
Stewartog Emerson Fittipaldi
voru hærri að stigum.
Slysið átti sér stað i Grand
Prix móti i Bandarikjunum
um helgina. Bíll Cevert fór á
grindverk á mikilli ferð, og
iést hapn samstundis. Cevert
ók Tyrell-Ford bifreið, eða
samskonar og Jackie Stewart.
Cevert er fjórði félagi
Stewarts sem lætur lífið á
örfáum árum, og þetta sfðasta
slys verður án efa til þess að
Stewart hættir að taka þátt i
kappakstri.
Cevert var mikið
glæsimenni, eins og vel sést á
þessari óvenjulegu mynd, og
mjög eftirsóttur, þvi hann var
piparsveinn alla ævi.
Valur vann Stúdenta
MIKIL HARKA
Valur-ÍS 87:65 (33:34)
Stúdentarnir voru mun ákveðnari í upphafi leiksins og tóku þeir
forystuna 8:2, en Valur jafnar stuttu slðar 14:14, en eftir það leiddi
1S ávallt Ifyrri hálfleik, þótt munurinn yrði aldrei mikill.
1 byrjun siðari hálfleiks var eins og allur vindur væri úr
stúdentaliðinu, og Valur kemst.yfir og gerir leikinn að yfirburða
sigri sinum, ekki bætti það úr skák fyrir 1S að einum besta manni
þeirra Steini Sveinssyni fyrirliða var visað af leikvelli fyrir 5
villur.
Dómgæslan i leiknum var i slakara lagi, og virtust mistök
dómaranna koma meira niöur á 1S, en ekki geta leikmenn liðsins
þó skellt skuldinni á dómarana, heldur virðist liðið ekki komið i
nægilega góða æfingu. Hið unga lið Vals lofar góðu fyrir veturinn,
Þórir Magnússon besti maður liðsins siðustu árin, var að þessu
sinni besti maður vallarins, og væri liðið varla liklegt til
stórafreka án hans.
Hjá 1S vantaði Frits Heineman, en hann er stjórnandinn i sam-
spili liðsins, og háöi það liðinu mikið i þessum leik að hann var
ekki með, annars er t.d. Bjarni Gunnar Sveinsson i mjög lltilli
æfingu enn sem komiö er, Albert Guðmundsson var i sérflokki hjá
liðinu i þessum leik.
Stigahæstir: Valur: Þórir 38,Torfil5og Kári 12.
ÍS: Albert 28 og Bjarni 14.
Vitaskot: Valur: 19:10. 1S: 20:9. —PK
0'
Þriðjudagur 9. október 1973.