Alþýðublaðið - 16.10.1973, Side 1

Alþýðublaðið - 16.10.1973, Side 1
Nafnavíxl Þau leiðu mistök urðu I frétt blaðsins siðast- liðinn laugardag um lik- fund á Sauðárkróki, að sagt var að hinn látni hafi verið Skarphéðinn Eiríksson frá Djúpadal. Það var hins vegar Skarphéðinn Eiriksson frá Vatnshlið i Húna- vatnssýslu, sem lést. Alþýðublaðið biðst af- sökunar á þessum mistökum. Tekur bandaríska risa- fyrirtækið Good Year að sér framleiðslu á íslenskum nagladekkjum? Þriðjudagur 16. okt. 1973 2“ ,b' arg. Gjaldskrá Ríkisskip hækkar um 15% — hvað fá hinir? — Ég get ekkert sagt um hversu mikla gjaldskrár- hækkun Eimskipa- félagið fer fram á, en aftur á móti er öruggt/ að tölu- verðar verðhækk- anir eru framund- an, sagði óttar Möller, forstjóri Eimskipafélags ís- lands, í viðtali við fréttamann blaðs- insígær. — Við fór- um fram á 35% hækkun í fyrra, en fengum 15%. Á sama tíma hækk- aði gjaldskrá Skipaútgerðar rfk- isins um 20%. I f járlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar er gert ráð fyrir því, að gjaldskrá Skipaútgerðarinn- ar hækki um 15% frá og með næstu áramótum. FYRSTA LEIT Á FYRSTA DEGI Leit var hafin að rjúpnaskyttu eftir hádegi i gærdag, eða um 12 klukkustundum eftir að leyfi til rjúpnaveiða gekk i gildi. Voru nokkrir rjúpna- veiðimenn á ferð eftir há- degið og ákváðu þeir að hittast við bilinn um há- degi. Þegar maðurinn kom ekki fram, taldi sonur hans ekki annað þorandi en að hefja leit, VarTF-GNA send leitar °g búið að gera hjálparsveitum viðvart. Brátt sáu þyrluflug- mennirnir til hins týnda, og virtist allt i lagi. Var þá hætt við frekari leit. Stálvík smíöar annan skuttogara fyrir Siglfirðinga Bandaríska risa- fyrirtækið Godd Year, sem er stærsti hjólbarðaf ram- leiðandi í heimi, hef- ur nú keypt tvö nagladekk af Einari Einarssyni og er að kanna framleiðslu- möguleika á þessari nýjung. Nagladekk þau, sem Einar hefur fundið upp og gert, eru þannig út- búin að hægt er að draga naglana inn þegar ekki er þörf fyrir þá, en það ver götur sliti, sem er mjög kostnaðarsamt að gera við. Einar sagði i viðtali við blaðið i gær, hann væri nú búinn að tryggja sér einkaleyfi á þessari hug- mynd i Ameriku og Kanada, sænska dekkja- v'erksmiðjan Gislaved ynni nu að þvi að tryggja einkaleyfi á Norður- löndunum.og einnig væri verið að útvega þau i Japan, Þýzkalandi og , viðar. Af fjárlögum 1974 fékk Einar heimild fyrir þrem milljónum króna, til að tryggja einkaleyfi og vinna að fullkomnun upp- finningarinnar. Þa er örn Harðarson að gera kvikmynd um málið. Ekki gat Einar sagt um hvenær þessi dekk kæmust i fjöldafram- leiðslu, það vlti á hversu mikla áherslu Good Year verksmiðjurnar eða Gislaved i Sviþjóð legðu á það. Stefnir framkvæmdastjóri Tímans Alþýðublaðinu? I___ | 3. SÍÐA SKOLAFOLK I KÍNVERSKT MÖTUNEYTI Skólafólki i Reykjavik gefst nú kostur á að borða i kinversku mötuneyti i vetur, þvi Svavar veitingamaður i Hábæ hyggst bjóða þvi upp á ó- dýra rétti eða fast fæði , en til að létta aöeins á fæðiskostnaðinum, gefst skólafólkinu kostur á að vinna eitthvað i eld- húsinu, svo sem við upp- vask. Starfssemi þessi er i kinverska garðinum, bak við Hábæ, en þar er búiö að endurbæta hitakerfi o.fl. Getur skólafólkið keypt sér kort, en þannig fæst maturinn enn ódýr- ari.— VIÐ ÞURFUM ENGU AÐ KVÍÐA ÞÓ ARABAR HÆTTI AÐ SELJA OLÍUR TIL VESTURLANDA Það er engin ástæða til að kvíða bensín- eða olíu- skorti á íslandi næsta árið jafn vel þótt Arabar hætti olíusölu til Vestur- landa — og það eitt kemur ekki til með aðhafaáhrifá verð olíu og bensins hér, að þvi er Þórhallur Ásgeirsson sagði Þ Á átti sæti i nefnd þeirri, sem hefur nýlokið samningum við Sovétmenn um kaup á brennsluolíu og bensíni á næsta ári, og sagði hann tekist hafi að semja á sama grundvelli ogí fyrra. Sovét- menn vildu breyta samningunum þannig, að verð- sveiflur á frjálsum markaði hefðu áhrif á söluverð olíu og bensíns hingað. en íslenska sendi- nefndin ekki Ef Sovétmenn hefðu fengið vilja sinum framgengt, hefði getað orðið talsverður munur á verði einstakra olíu- og bensinfarma. Samíð var um kaup á 300 þúsund tonnum af gasoliu, 110 þúsund tonnum af fueloliu og 80 þúsund tonnum af bensíni. Miðað við núgildandi verðlag er heildarverðmæti samningsins rúm- lega tveir og hálfur milljarður. Lendum ekki í sveiflum hins frjálsa markaðdr 200 milljónir í æðstu stjórn Æðsta stjórn rikisins, embætti forseta íslands, Alþingi, rikisstjórn og hæstiréttur, kostar okkur á þvi herrans ári 1974 rétt tæpar 200 milljónir króna. Til embættis forseta Islands eiga að fara um ll,8milljónir króna, Alþingi kostar okkur tæpar 167 milljónir, rikis- stjórnin rösklega 10 milljónir og laun hæsta- réttardómaranna eru röskar 10,7 milljónir króna. Á föstudaginn samdi skipasmiðastöðin Stálvik i Garðahreppi um smiði skuttogara fyrir útgerðar- fyrirtækið Isafold á Siglufirði. Verður togarinn smiðaður eftir sömu teikningu og togarinn Stálvik, sem sama skipasmiðastöð gerði fyrir Þormóð Ramma hf á Siglufirði. Nú sem stendur vinnur Stálvik að smiði skuttog- araeftir sömu teikningu, fyrir útgerðarfyrirtæki á Grundarfirði. Skuttogari tsafoldar verður þvi sá þriöji éftir þessari tfcikningu, og jafnframt þriðji togarinn. srniðaður er innanlands.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.