Alþýðublaðið - 30.11.1973, Blaðsíða 11
Svlar voru haröir i vörninni, á þvi fengu þeir GIsli og Björgvin aö kenna, eins og myndin sýnir. AB—myndir: Friöþjófur.
Seinni leikurinn gegn Svíum
Loks markvarsla — en samt...
Hroöaleg mistök Islensku
varnarinnar kostuöu jafntefii i
landsleiknum við Svia i gær-
kvöld. Staðan var 12:12, og Svi-
ar sóttu á lokasekúndunum.
Sending misheppnaðist og
knötturinn var á leið út af vell-
inum. islensku ieikmennirnir
hlupu allir til og ætluðu aö varpa
inn. En viti menn, „gamla
kempan” Lenart Eriksson kom
ailt i einu á fljúgandi ferö, náöi
knettinum áöur en hann fór út-
af, brunaði framhjá staöri vörn
landans I horninu vinstra megin
og skoraði óverjandi framhjá
Ólafi Benediktssyni. Sviar höföu
unnið, 13:12, og cnn máttum við
naga handabökin yfir þvl aö
hafa tapaö fyrir lélegu sænsku
landsliöi. Það hefði svo sannar-
lega verið gaman hefði Ólafur
varið skot Eriksson i lokin, það
hefði orðið kórónan á frábæra
markvörslu hans allan leikinn
út i gegn. Hann var sannarlega
maður dagsins, og er mér til efs
að islenskur hafi i annan tíma
varið svo vel I landsleik.
Ef eitthvað var, þá haföi
sænska liðinu farið aftur frá þvi
það var hér i fyrri viku. Það
Dðnsku
draumasængumar
Terylene-fylling.
Falla ekki saman.
Hindra ekki útgufun.
Þola vélaþvott.
Taka ekki raka.
Margir litir og mynstur.
Sængurverð kr. 2875 — 4500 — 5800 — 6000.
Koddar verð kr. 1570.
Ungbarnasængur kr. 1850.
Ungbarnakoddar kr. 610.
SÆNGURVERAEFNI í FJÖLBREYTTU ÚRVALI:
Opið til kl. 10
Vörumarkaðurinnhf.
ÁRMÚLA 1A, SIMI 8 6112, REYKJAVÍK.
86113
sem bjargaði Sviunum hrein-
lega var afturkoma Lennarts
Erikssons i liðið. Hann var i al-
gjörum sérflokki, ásamt mark-
verðinum Lars Karlsson. Hann
byggði upp spil Svianna og skor-
aði flest mörk þeirra, á sinn ró-
lega og lúmska hátt. Hann hefur
lika reynslu sem fáir aðrir gátu
státað sig af, 110 landsleiki.
Reynslan kom honum að gagni
þegar hann lék á islensku vörn-
ina i lokin.
Já það er vissulega sárgræti-
legt að þurfa að tapa fyrir Svi-
unum nú, og óheppni okkar ein-
stök að i bæði skiptin skyldi
vanta tvo okkar bestu menn,
Geir Hallsteinsson og Ólaf Jóns-
son. Með þá i liðinu, hefðum við
unnið leikinn með fimm marka
mun. Eins og i fyrri leiknum var
landslið okkar ekki sannfær-
andi. Ólafur markvörður var
þar i sérflokki, var i markinu
allan timann og varði 19 skot,
þar af 11 linuskot, 7 langskot og
eitt vitakast. Þetta er stórkost-
Iegur árangur. Þá átti Gisli
Blöndal nokkuð gott „come
back”, og Viðar var allt annar
maður frá fyrri leiknum. Axel
skaut mikið, en nýting hans var
ekki góö. Agúst Svavarsson var
sama og ekkert notaður. Linu-
mennirnir brugðust, einkum
þeir Gunnsteinn og Björgvin.
Má Gunnsteinn fara að vara sig,
landsliðssætið fer að verða valt
ef hann tekur sig ekki á. Hörður
Sigmarsson var litið áberandi,
sömuleiðis Auðunn, sem virtist
meiddur. Sigurbergur var
drjúgur i vörn, og Vilberg kom
þokkalega út úr sinum fyrsta
leik. t heild var vörnin þokka-
leg, enda ekki dónalegt að hafa
mann eins og Ólaf að baki sér.
Mörk tslands: Axel 5 (2 viti),
Viðar 4, Gisli 3.
Hjá Svium var Lennart Eriks-
son i sérflokki útileikmannanna
með sex mörk. Þá var Larsson
markvörður mjög góður, og Bo
Andersson (nr. 3) vakti athygli
fyrir góða boltameðferð. Ann-
ars er lið Svianna i heild greini-
lega það slakasta sem þeir hafa
teflt fram lengi.
t heiid gekk leikurinn þannig
fyrir sig, að tsland komst i 4:0,
enda frammistaða Svianna
þannig fyrstu minúturnar slik,
að helst hefði mátt halda að þeir
hefðu drukkið allar bjórbirgðir
USA. Þeirra fyrsta mark kom
ekki fyrr en á 14. min. En þvi
miður tókst ekki að nýta þessa
góðu byrjun. t hálfleik var stað-
an 7:6, en Sviar höfðu yfirleitt
frumkvæðið i s.h. Og hvilik von-
brigði að ná ekki einu sinni jafn-
tefli.
Dómarar voru frá Vestur-
Þýskalandi, og dæmdu þeir
yfirleitt mjög vel. Hefðu dómar-
ar okkar ýmislegt mátt af þeim
læra, frekar en dönsku klaufun-
um, sem voru hér um daginn.
SS
Gunnsteinn stekkur inn I horninu, en skot hans var variö I þetta
sinn.
Iþróttir
AAALFOT
Aldrei fallegri
efni en nú
Úrvals
klæðskerar
Einnig
LAGERFÖT
llltinta
KJÖRGARÐI
Föstudagur 30. nóvember 1973.
o