Alþýðublaðið - 30.11.1973, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 30.11.1973, Blaðsíða 12
alþýðu ii RTiTTil Æ/T/f/n/ÐÞfíú-s 'sri ~^K/? _____________Lr’tg /-'/r/L 7o//s/ H£/ÐUK /D£Rh/ N/RF /<,/- mo/ ÆFDU 9 SJÖ UtJRR L£6V FÆPI a'o 5/?m NU rnerr* SJ-oKz fíD/ □ V£ND N/ND /?u/V HOPP t-á/r D/ry*K SurtNfi *2£f”S ■ uPfFTT í 5 72>> v£/D/ /J/V'ír/? UTT rófnud 5j»' , u n \ 1 1 íslenska lægðin erillræmd um allan Veðrið á íslandi er illræmt meðal erlendra veöurfræöinga, og sin á milli tala þeir um ,,is- lensku lægðina”, sem ómögu- legt er að reikna út, sögðu þeir veðurfræðingar á Veðurstofu Is- lands, þegar þeir kynntu nýja húsnæðið á Golfskálahæðinni fyrir blaðamönnum i gær. Og þeir voru sammála um það, að erfiöara er að vera veðurfræð- ingur á fslandi en viðast hvar annars staðar á norðurhveli jarðar. Þrátl fyrir það, hvað erfitt er að vera veðurfræðingur á fs- landi staðhæfði Jónas Jakobs- son, að öryggi spánna þeirra sé ekki minna en annars staðar, — þær standist 70—80%, þótt reyndar hafi það ekki verið kannað nákvæmlega hér á landi. Markús A. Einarsson bælti þvi við, að stundum fari spárnar alveg i vaskinn, en þeir geti þó huggað sig við það, að það sama komi oft fyrir tölvu- spárnar, sem koma erlendis frá. Tilefni þess, að blaðamönnum var boðið að heimsækja Veður- stofuna i gær var, að hún er nú að fullu tekin til starfa i nýja húsinu, — og má segja, að það sé ekki vonum seinna. Það var nefnilega ákveðið i lögum um Veðurstofu fslands árið 1926, sex árum eftir að hún hóf starf- semi sina að Skólavörðustig 3, að reist skyldi húsnæði fyrir stofnunina, enda var þá þegar oröið þröngbýlt þar. t>etta á- kvæði var endurtekið litið breytt i nýjum lögum Bm Veðurstofuna árið 1958, en það var ekki fyrr en árið 1970, að hafist var handa við bygginguna, og byrjað var að flytja starfsemi Veðurstof- unnar þangað á s.l. vetri. Eftir að Hlynur Sigtryggsson, veðurstofustjóri, hafði rætt litil- lega um starfsemi Veðurstof- unnar var blaðamönnum boðið að skoða sig um og lita á, hvernig þeir vinna, sem daglega segja okkur hvernig veðrið er og hvernig það verður ,,næsta sól- arhring”. 1 fjarskiptadeildinni hittum við fyrir Geir Olafsson, sem er einn elsti starfsmaður stofnun- arinnar, byrjaði þar árið 1945, — inn og um leið einn af elstu starfs- mönnunum, 68 ára. Hans starf er að fylgjast með veðurskeyt- um, sem koma erlendis frá á fjarritum og senda til útlanda veðurskeyti Veðurstofu fslands, og ennfremur tekur hann við veðurtunglamy ndunum og tölvuspám. Hann sendir upplýs- ingar sinar til spádeildarinnar, sem vinnur úr þeim og gerir veðurkort, sem stuðst er við, þegar veðurspárnar eru gerðar. Spádeildin tekur að sjálfsögðu lika við veðurskeyti islensku veðurathuganastöðvanna og taka mið af þeim við gerð spánna. Jónas Jakobsson veðurfræð- ingur var á vakt á spádeildinni, þegar við litum þarna inn, og hann var einmitt að byrja á veðurkorti. Við spurðum hann að sjálfsögðu, hvað hann segði um veðrið næstu tvo sólarhring- ana, og eftir að hafa litið sem snöggvast á kortið fræddi hann okkur á þvi, að litilla breytinga sé að vænta. Austanáttin verður áfram, nokkuð svöl og þurrt alls staðar nema á annesjum fyrir norðan og austan, — þar verður smáhrið. Þá sagði hann það hugsanlegt, að einhver snjó- koma verði á Reykjanesskaga i dag. „Annars er þetta sifelld bar- átta við að finna það rétta”, sagði Jónas. ,,Og stundum eru veðurkortin, sem við fáum er- lendis frá heldur ónákvæm, og maður fær hálfgerða ótrú á sumum veðurstofunum. En þegar slikt gerist verðum við að brjóta heilann og vega og meta, hvað liklegast er að verði”. Þegar kortunum ber ekki saman reynir sem sagt á spá- mannshæfileika veðurfræðing- anna, ,,en það kemur að þvi, þegar ákveðnum aldri er náð, að þessir hæfileikar fara að dala”, sagði Jónas, ,,en ég vil nú ekki segja, að ég sé kominn á þann aldur, þótt það sé kannski vitleysa hjá mér”. En allir voru veðurfræðingarnir sammála um, að spá sé alltaf spá, og geti þeir einhverntimann sagt ná- kvæmlega til um veðrið sé ekki lengur um spádóma að ræða. A efri myndinni er Jónas Jakobsson veðurfræðingur að teikna spákort sólarhringings- ins, en áneðri myndinni eru verðurfræðingar og annað starfsfólk við fjarskiptatækin, sem taka við og senda veður- lýsingar, tölvuspár og gervi- tunglamyndir. Geir Ólafsson er fremst á myndinni. INNLÁNSVIÐSKIPTH LEIÐ LANSVIÐSKIPTÁ ^BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS KOPAYOGS APÓTEK Opifi öll kvöld til kl. 7 Laugardaga til kl. 2 kl. 1 og 3 SENDIBIL ASTÖÐIN Hf PIMM ó förnum vegi HelgiV. Helgason nemi: Nei, ég fer frekar litið i bió, varlaeinu sinni i viku, nema einhverjar góðar myndir séu. Ég vel mér nefnilega myndir. Auður Ottadóttir nemi: Nei, sjaldan. Það eru t.d. þrjár vikur siðan ég fór siðast. Annars fer ég með krökkunum, ef við ætl- um að sjá eitthvað sérstakt, annars ekki. Margrét Þórarinsdóttir nemi: Nei, ég hef ekki efni á þvi, en þegar ég fer, finnst mér gaman, og sjónvarpið hefur engin áhrif á hvort ég fer i bió eða ekki, þvi ég horfi svo litið á það. Jónina Einarsdóttirnemi:Égfer yfirleitt ekki oft i bió, en þó sé ég yfirleitt mánudagsmyndirnar. Ét er ekki fyrir hasarmyndir, og fer sjaldnar nú en áður i bió. Ferð þú oft í bíó? Kristbjörn Jónsson afgreiðslu- maður: Já, ég er biósjúkur og fer á margar myndir, og alls konar myndir, og hef yfirleitt gaman af. Ég fer heidur i bió en að horfa á sjónvarp.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.