Alþýðublaðið - 07.12.1973, Síða 12
l§ dag spáir Veður-
stofan léttskýjuðu og 4-
6 stiga frosti i Reykja-
vík og nágrenni. I gær
var austan 4 vindstig í
Reykjavik og 5 stiga
frost. Mest frost á
landinu var i gær 14
stig/ á Sauðárkróki og
Grimsstöðum, en
minnst 1 stig á Stór-
höfða.
KRILIÐ
£/?6/ LEGUR Sflmm <bK!L yRT>/ ál/ÉPfí fELfí G/Ð TÓ/f/ftN LE EEÚftR
V
á
'&ÉKK BOR
FLJ07
KEVRH þflNN/ 1 & BÓifí
') pn'ftLm UR/NN
erill E/NK S T Lfí'T^ /L. L. /9
f)
VlRTI FjfcR ’odtTi
í 2
fídifí TfíUG Null
SOálK
INNLÁNSVIÐSKIPTil LEIÐ
TIL LÁNSVIÐSKIPTA
BÚNAÐARBANKI
ÍSLANDS
ir Heklugosið, heimsmeistara-
einviginu i skák, árið 1972, höfðu
þeir samband við mig enn og
báðu mig bæði að mynda og að-
stoða þeirra menn, sem yrðu
hér. Siðan má heita, að ég hafi
verið stöðugt að senda þeim
myndir fram á siðasta sumar,
þvi næst kom Vestmannaeyja-
gosið, og samtals sendi ég þeim
efni frá Eyjum, sem mundi
nægja til fjögurra tima sýning-
ar.”
„Hvað starfar þú núna, annað
en við kvikmyndun?
,,Ég vinn i Álverksmiðjunni i
Straumsvik viö tölsýslan i raf-
greiningardeild, — og vil taka
það fram, að öll þessi
kvikmyndun fer fram i fri-
stundum. En hvað framtiðina
varðar, þá langar mig að sjálf-
sögðu að snúa mér alveg að
kvikmyndagerð. Ég er að reyna
að skapa mér aðstöðu til að
vinna við þetta, — en það er
erfitt aðfáraút I svona lagað og
sleppa fastri vinnu,” sagði Jón
Axel að lokum.
„Ég tók upp á því
að láta
tvo kubba giftast”
Um hátiðirnar verður sýnd i
fyrsta sinn 1 sjónvarpinu .isl,
kvikmynd,ca. 8 minlöng , sem
tekin er með svonefndri
„animeringu” eða sömu tækni
og teiknimyndir. 1 þessari mynd
eru bara ekki notaðar teikn-
ingar heldur trékubbar, sem
teikna ýmist hús, tré, fólk eða
báta, eftir þvi hvernig þeim er
raöað upp. Höfundur myndar-
innar er ungur Reykvikingur,
Jón Axel Egils, og i tilefni af
þvi, að hann gekk nýlega frá
sölu á sýningarrétti myndar-
innar við sjónvarpið, hafði
Alþýðublaöið tal af honum I
gær. '
„Ég fékk hugmyndina að
þessari mynd eitt sinn fyrir
tveimur árum, þegar ég var að
horfa á yngri son minn, sem þá
var á fyrsta árinu, leika sérað
kubb," sagði Jón, þegar við
ræddum við hann. „Ég tók eftir
þvi, að hann fór að ýta kubbnum
á undan sér, — en hann datt
aldrei. Ég fór þá að fylgjast bet-
ur með, og þarna kviknaði hug-
myndin að þvi að nota svona
kubba i kvikmynd. Ég sagaði
niður kubba i nokkrum stærðum
og fór aö æfa mig að taka ýms
atriði, og byrjaði á þvi að taka
langt atriði, þar sem kubbarnir
voru hermenn, sem gengu
fylktu liði. Hreyfinguna fékk
ég með þvi að taka eina og
eina mynd i einu eins og
teiknimyndir, en hreyfa
kubbana á milli. — Nú, siðan
tók ég upp á þvi að láta tvo
kubba giftast, og það atriði
notaði ég svo i myndina. Smám,
saman tók ég fleiri og fleiri at-
riði, þar sem m.a. koma fram
tré, hús, hestur og skip,
auk fólksins, og eftir það fór ég
að vinna myndina. Það tók mig
heilt ár i fristundum, og rétt
fyrir jólin i fyrra bauð ég sjón-
varpinu hana. Þá var hinsvegar
of skammt til jóla, og þar sem
ég stefndi að þvi að fá myndina
sýnda, þá drógst að gera út um
kaupin þar til nú i haust.
— Jón Þórarinsson tók mér
mjög vel, þegar ég bauð honum
myndina, og hann vildi, að ég
gerði aðra mynd i iit svo ég
fengi meira út úr henni. Það
varð nú ekki af þvi, en á næsta
ári langar mig að gera aðra
svona kubbamynd með sömu
tækni, betri og full-
komnari, — og i lit.”
— „Hvað hefurðu átt lengi við
kvikmyndatökur?”
„Ég hef tekið á átta milli-
metra filmu i ein tiu ár, og þá
strax byrjaði ég að „animera”
texta á myndirnar. Og byrjaði
lika fljótlega að gera meira en
að taka myndirnar og sýna þær,
ég fékk áhuga á þvi að vinna
þær með klippingum —• og einu
sinni tók ég hálftima langa
leikna mynd á 8mm.
A 16 millimetrunum byrjaöi
ég eitthvað árið 1968 og tók þá
fáeinar auglýsingakvikmyndir.
Árið eftir fór ég ásamt nokkrum
félögum minum til Flateyjar,
þar sem við tókum heilmikiö
efni, en þvi miður hefur ekki
orðið úr þvi að fullgera þá
mynd. Svo mætti nefna, aö ég
tók mynd um hreinlæti i frysti-
húsum fyrir Fiskimálasjóð
*
A stóru myndinni er Jón
Axel, en til hliðar við hann
sjást nokkrir „leikenda” I
kubbamyndinni. A litlu mynd-
inni sjást leikendurnir betur:
Uann og hún standa undir tré.
undir stjórn Gests Þorgrims-
sonar árið 1970, og var hún sýnd
i sjónvarpinu i fyrravetur svo er
ég alltaf öðru hvoru að vinna við
auglýsingamyndir og hef m.a.
gert tvær teiknimyndir.
„Þú hefur lika átt við frétta-
myndatökur, — ert kvik-
myndatökumaður og frétta-
maður CBS News á tslandi.
, Hvernig komstu i samband við
þá stofnun?”
„Það byrjaði daginn sem
Hekla .gaus. Þá var mér boðið
að vera með i flugvél með
mönnum frá þessu ágæta blaði,
Alþýðublaðinu, i flug yfir eld-
stöðvarnar. Ég tók á 16 mm. lit-
filmu I þeirri ferð og fyrir til-
stuðlan Sigurðar Magnússonar,
fyrrverandi blaðafulltrúa Loft-
leiða, komst myndin til CBS
News i New York. Eftir það
höfðu þeir hjá CBS samband við
mig bréfleiðis öðru hvoru og
kynntu mér stofnunina, og ég
sendi þeim lika öðru hvoru smá
fréttamyndir. En þegar leið að
næsta stórviðburði á Islandi eft-
KÓPAVOGS APÓTEK
Opið öll kvöld til kl. 7
Laugardaga til kl. 2
Sunnudaga milli kl. 1 og 3
FIMM 6 f örnum vegi
Tekurðu mark á bókaumsögnum blaðarma?
N
Ingimar Jónsson, rafvirki: Ég
les þær ákaflega takmarkað,
enda fer ég meira eftir eigin
smekk i bókavali.
Geir Arnason, landfræöinemi:
Ég hefi mestan áhuga á nokkuð
takmörkuðu sviði bókmennta,
en satt að segja tek ég heldur
litið mark á gagnrýni blaðanna
og fer ekki eftir henni.
Guöjón Guömundsson, fyrrv.
borgarstarfsmaöur: Ég er nú
orðinn svo sjóndapur, að ég les
ekki mikið nú orðið. Aftur á
móti reyni ég að njóta sjónvarps
og útvarps.
Halldór Guöbjarnason, viö-
skipta f ræðingur og banka-
starfsmaður: Ég renni yfir þær,
en fer ekki eftir þeim. Bókavali
minu ræður miklu meira per-
sónulegt mat. Ég held að sjón-
varpið hafi i þessu efni talsverð
áhrif.
Gunnlaugur Helgason, sim-
virki: Nei. Ég er alveg harður á
algerlega persónulegu mati.