Alþýðublaðið - 20.12.1973, Síða 6
APAKETTIR
OG
ANNAO FÓLK
önnur bók Sveins Ásgeirsson-.
ar um sérkennilegar og sann-
sögulegar persónur og mann-
Jeg uppátæki, auk hins fræga
apamáls í Tennesseeríki i
Bandarikjunum um uppruna
mannslns.
•
Fróðleg bók, fyndin og spaug-
söm.
Hln fyrri bók höfundar um svipað efnl, Svikahrappar og hrekkja-
lómar, seldist upp 1 fyrra.
Apakettlr og annað fólk er jóJabólt Islendinga, hvar í flokki
sem þeir standa.
SJÓMANNAIJTGÁFAIM
ÁRMtlLA 5 • SlMI 85200
AUGLÝSIÐ í ALÞYÐUBLAÐINU
AUGLÝSINGASÍMINN OKKAR ER 8-66-60
Helgi Sæmundsson skrifar um bækur
SIGLINGIN MIKLA
Jónas Guðmundsson: Kuld-
amper Absalon. Skáldsaga.
Hilmir. Reykjavik 1973.
Kuldamper Absalonber þvi vitni,
að Jónas Guðmundsson er slyngur
rithöfundur þó þetta sé fyrsta
skáldsaga hans. Hann teflir djarft
og ætlar sér mikinn hlut. Þetta
tekst honum að sumu leyti. Sagan
er frumleg og sérstæð og kemur
lesandanum skemmtilega á óvart.
Hinsvegar má deila um vinnubrögð
Jónasar og viðbúið er, að ýmsum
sjáist yfir aðalatriði sögunnar. Ég
skal reyna að gera litilsháttar
grein fyrir hvernig hún kemur mér
fyrir sjónir.
Kuldamper þessi Absalon er
koladallur gerður út einhvers st. i
Danmörku og greinir frá tveimur
siglingum hans um höfin. Hin fýrri
er Frakklandsferð en i hinni seinni
er kuldamperinn á leið til Mið-
Ameriku. Há gerist það, að Jens
Krog timburmaður andast i hafi.
Likinu er varpað fyrir borð. Sá at-
burður tekst fremur óhönduglega
frá sýningarsjónarmiði, en þó
kemst Jens Krog i sina stóru gröf
og er á himnum. Þar með endar
lifsreisa hans, en höfundur segir
hana i stórum dráttum, jafnhliða
Rjómaísterta -
eftirréttur
eða kaff ibrauð ?
Þér getið valið
Ef til vill vitið þér ekki, að yður býðst
12 manna Emmess isterta, sem er með tveim
tertubotnum úr kransakökudeigi. — Sú er þó
raunin. Annar botninn er undir ísnum, en. hinn
ofan á. isinn er með vanillubragði og ispraut-
aðri súkkulaðisósu. Tertan er þvi sannkallað
kaffibrauð, enda nefnum við hana kaffitertu.
Kaffitertan er fallega skreytt og kostar aðeins
450.00 krónur. Hver skammtur er þvi ekki dýr.
Reglulegar ístertur eru hins vegar bráð-
skemmtilegur eftirréttur, bæði bragðgóður og
fallegt borðskraut i senn. Þær henta vel við
ýmis tækifæri og eru nánast ómissandi í barna-
afmælum.
Rjóma-ístertur
kosta:
6 manna terta kr. 225.-
9 manna terta — 275,-
12 manna terta — 375.-
6 manna kaffiterta — 265.-
12 manna kaffiterta — 450.-
c<‘Emm
ess LbJ
sjóferðalýsingunumjens þessiKrog
fæddist i Suðurborg á Jótlandi.
Móöir hans vann fyrir sér með þvi
að selja bliðu sina hverjum er hafa
vildi, en dó frá syninum ungum.
Hann ólst svo upp i striðu og bliðu
hjá vandalausum, en komst
snemma á sjóinn og réðst uppkom-
inn á kuldamper Absalon. Og þá er
að vikja að öðru.
Jens Krog er engin aðalsöguhetja
i Kuldampcr Absalon. Kaunar seg-
ir meira frá honum en félögum
hans, en sonur vændiskonunnar i
Suðurborg er hér aðeins tákn. Kul
damper Absalon er sem sé skáld-
saga. Fyrir höfundinum vakir að
rifja upp aðra og meiri siglingu en
slarkferðir danska koladallsins.
Þetta er skáldsaga um siglinguna
miklu — lif mannsins i þessum
heimi, hvort heldur er á láði eða
legi. Sjórinn, sem kuldamper
Absalon plægir, táknar veraldar-
hafið, en koladallurinn ferjufjölina,
er Jens Krog gafst, og sjálfur er
hann fulltrúi vesalings manneskj-
unnar. Þannig færist bókin af frá-
sagnarstigi i upphæðir skáldskap-
ar. Hitt er annað mál með hvaða
vinnubrögðum Jónas Guðmunds-
son lyftir henni þangaö.
Miklu skiptir, að Jónas lætur sög-
una gerast um borð i erlendum far-
kosti. Þannig fjarlægir hann sögu-
sviðið islenskum viðhorfum, en
gæðir það framandlegum stað-
háttablæ, sem fer vel. Sama gildir
um þá ráðstöfun að láta Jens Krog
lifa og deyja, sem Dana en ekki ts-
lending. Hinsvegar auðveldar þetta
höfundinum sum atriði, sem eiga
að vera erfið. Samt virðast mann-
lýsingarnar nærri lagi, en þar efast
ég um, að Jens Krog beri hæst,
enda ætlar Jónas Guðmundsson
honum enganveginn að vera aðal-
söguhetju i gömlum og hefðbundn-
um skilningi. Umhverfislýsingarn-
ar eru sennilegf öllu snjallari. Les-
andinn kynnist harla náið þeim
stöðum, er fra greinir, og kann
fljótt prýðileg skil á kuldampern-
um og lifinu um borð. Þar veitist
skáldskapnum sú aðkenning veru-
leika, sem á skortir annarsstaðar i
sögunni. Þetta er sá farmennsku-
sannleikur, sem kemst sjaldan eða
aldrei til skila, af þvi að allir aðilar
blygðast sin fyrir hann. Einmitt
þess vegna er hann timabær og at-
hyglisverður. En Jónas lætur hann
hvergi breiðast alveg yfir dul sög-
unnar, sem er aðalatriði hennar.
Hún á að vera táknræn i allri ádeil-
unni, eins og henni er ætlað að rifja
upp mannræn og alvarleg sannindi,
þrátt fyrir allt skopið. Þetta verður
naumast útskýrt i stuttum ritdómi
enda visast, að það sé nokkuð ljóst
sérhverjum lesanda, sem gerir sér
grein fyrir hlutskipti sögunnar.
Jónas Guðmundsson er ritfær i
besta lagi, hugkvæmur, orðglaður
og opinskár. Kuldainper Absalon
nýtur þeirrar færni hans viða.
Hinsvegar ræðst höfundurinn i
hæpið stórræði með málfari sög-
unnar. Sumir munu halda, að þetta
sé varla mannamál, af þvi að það
er ekki tandurhrein islenska, eins
og kennd er i skólum eða lærist af
sveitalifsögum frá öldinni er leið.
Mér finnst Jónasi hinsvegar ærin
vorkunn i þessu efni. Hann hefði
naumast getað samið Kuldamper
AbsaUm.sem skáldverk öðruvisi en
á einhverskonar sjómannamáli.
Sagan reynist að þessu leyti eins og
hún er, af þvi að kuldamperinn var
danskur og Jens Krog lika. Orsökin
er þó einkum sú, að Jónas hefur lif-
að tilefni þessarar sögu af eigin
raun og frásögnum meðal danskra
farmanna eins og ráða má af fyrri
ritstörfum hans. Mér dettur ekki i
hug að hægt sé að hreinskrifa slika
sögu á islenskt gullaldarmál án
þess að stórskemma hana sem
skáldverk. Þessvegna sætti ég mig
viðmálfariðá Kuldamper Absalon,
þegar ég las söguna i handriti, þó
ég myndi auðvitað aldrei rita eins
sjálfur af þeirri einföldu ástæðu, að
ég get það ekki.
Hinu er ekki að leyna, að Jónas
Guðmundsson á eftir að semja fin-
gerða skáldsögu til að þóknast i-
haldssömum málhreinsunarmönn-
um og öðrum fagurkerum. En Kul-
damper Absalon'verður á meðan
og kannski miklu lengur á sinum
stað, sem skáldverk, eins og skip á
siglingu úti á rúmsjó.
EFTIRSOKNAVERT STARF
Þessi maður heitir Derek For-
syth og er sýnilcga i mjög
skemmtilegri atvinnu. Kaunar
er starfsheiti hans: forstöðu-
maður listadeildar Pirclli-hjól-
barðaverksmiðjanna og starf
hans er m.a. i þvi fólgið, að
velja myndir i Pirellidagatalið,
sem nii hcfur komið út i 10 ár.
Ilér cr hann umsetinn fögrum
konum, er prýtt liafa ýinsar
fyrri útgáfur dagatalsins.
Falskur franskur greifi
með 100 búsund falska
dollara í fórum sínum
handtekinn í Kaunmannahöfn
Kaupmannahöfn. — Lögreglan I
Kaupmannahöfn handtók i lok
októbermánaðar s.l. 43 ára gainl-
an lUlending, sem heldur þvi
fram að liann sé franskur greifi.
Koinst þar með upp um eitt
stærsta mál falsaðra peninga-
seðla, sem lögreglan hefur upp-
götvað frá striðslokum.
MaiVur þessi.var nýlega kominn
á aðaljárnbrautarstöðina 1 ivaup-
mannahöfn er lögreglan handtók
hann. í ferðatösku hafði liann
meðferðis 100 þúsund falsaða
baiulariska dollara, er allir voru i
100 dollara seðlum. — Maðurinn
kveðst koma frá Marokkó og var
handtekinn skönimu eftir að hann
hafði beðið um að fá tiu 100 doll-
ara fölskum seðlum skipt i
danska peninga. Var það i útibúi
Verslunarbankans á brautarstöð-
inni.
Þegar maðurinn sneri sér til
starfsfólksins i bankaútibúinu
þótti þvi seðlarnir grunsamlegir.
einkum vegna pappirsgerðarinn-
ar og pappírsþykktarinnar.
Kvaddi það þvi lögregl. á vcttv.
ineð hinni mestu levnd. og var
maðurinn siðan handtekinn fáum
minútum siðar.-’kom þá jafn-
framt i Ijós, að i ferðatösku hafði
hann meðferðis 00 þúsund fals-
aðra dollara til viðbótar. „Mér
var ógnað. ég var þvingaður til
þess arna”, segir maðurinn nú.
„Maður nokkur i Paris neyddi
mig til að taka þessa seðla nieð til
Danmerkur og skipta þciin þar.”
Boðskanur levnilegustu mvndar ársins:
Bandaríski herinn stóð
að baki morðinu á
John F. Kennedy forseta
W0TEL mLEIÐIR
Veitingabúð og sundlaug
verða opin yfir
hátíðarnar
sem hér segir:
VEITINGABÚÐ
Þorláksmessa 23. desember:
05:00 — 22:30.
Aðfangadagur 24. desember:
05:00 — 20:00
Jóladagur 25. desember:
09:00 — 21:00
2. jóladagur 26 desember:
05:00 — 21:00.
Gamlársdagur 31. desember:
05:00 — 21:00.
Nýársdagur 1. janúar:
09:00 — 21:00.
SUNDLAUG
Þorláksmessa 23 desember:
08:00 — 1 1:00.
16:00 — 19:30.
Aðfangadagur 24. desember:
08:00 — 1 1:00
Jóladagur 25 desember
1 5:00 — 1 7:00.
2. jóladagur 26 desember:
08:00 — 1 1:00.
1 6:00 — 1 9:30.
Gamlársdagur 31 desember:
08:00 — 14:00.
Nýársdagur l .janúar:
08:00 — 14:00.
Hótel LoftleiSir óskar öllum
viðskiptavinum sínum
gleðilegra jóla og farsæls nýárs
og þakkar ánægjuleg viðskipti.
Hópar innan bandarisku striðs-
vélarinnar og oliuiðnaðarins
stóðu að baki morðinu á John F.
Kennedy forseta, fyrir um 10 ár-
um siðan, hinn 22. nóvember 1963,
eftir þvi sem leynilegasta mynd
ársins vill vera láta. Nefndist hún
„Executive Action” eða ,,Að-
gerðin F'orseti” og leika þei Burt
Lancaster og Robert Ryan aðal-
hlutverkin. Hefur taka hennar
fariðfram meðmestu leynd undir
vopnaðri vernd. Hefur frumein-
taki hennar nú verið komiö fyrir
til geymslu i bankahvelfingu svo
útilokað sé að hún verði eyðilögð.
Hún hefur nú verið sýnd fulltrú-
um fjölmiðla i Hollywood og kom-
ust þá aðeins fáir útvaldir að,
enda var ströngustu öryggisráð-
I stafana gætt.
Kvikmyndasagan er blanda af
hugarórum og raunveruleika.
Gengur hún m.a. út á það, að
hernaðaryfirvöld og nokkrir oliu-
jöfrar hafi leigt þrjár leyniskytt-
ur til að framkvæma morðið,
jafnframt þvi, sem Le Harvey
Oswald yrði gerður að hinum
opinbera morðingja. — Niður-
staða hinnar opinberu Warren-
rannsóknanefndar var að sönnu
LOÐNUSALA
Japanskt fyrirtæki hefur samið
við islensk fyrirtæki um kaup á
50,000 kössum af niðursoðinni
loönu, að verðmæti 130 milljónir
króna.
Þetta er næst stærsti samning-
ur sem gerður hefur verið við er-
lendan aðila um kaup á islensku
lagmeti, en 1972 var samið við So-
vétmenn um kaup á gaffalbitum,
60,000 kössum.
Það er Norðurstjarnan h.f. og
K. Jónsson og Co sem framleiða
upp i japanska samninginn.
einnig á þann veg, að Oswald hafi
einn verið morðingi forsetans. 1
megindráttum fylgir myndin bók
Mark Lane um morðið, en i henni
er fullyrt, að Torsetinn hafi orðið
fórnardýr samsæris.
alþýðu| ER
BLAÐIÐ
I
ÞITT
Askriftarsiminn er
86666
KULDASKÓR
VINTERST0VLETTER
Lkit' Chcmw tr luKioptt' vmit'rsfuvlciffr. Dt-rtor cr
ilc 100 ‘*t> vdnrileOf. ojf du er lr>n pa berta scfv i 'iliipst'fttrt'
Nar Ueí er kaldl holdr r C bt rro.v deg vanrt. Chem>*: Kt
ncntlig fórtrt mwl vamt. fykk Arctic-jK'ls
Og tenk pá slitcstyrkeit. Dcf er titgett somnur
«mt revrter, injjen váler sotn Utvnvr UiHHiinlef hvhovcr
du tkkc ttnkf pa. Tork av mcd iuktig klm og d>m
Cherrox er líke pcite. Ou lár dvm for hele farttiííco.
Hddtgvtit.
SKOSALAN, Laugavegi 1
Fíknlyfjaneysla er ekki lengur í tísku í Danmörku
— hins vegar
á hún
ríkan þátt í auknum glæpum og því er talið nauðsynlegt að herða ákvæði refsilöggjafarinnar.
Kaupmaiiiiahöfn. - - - Það er
ekki lengur „fint”, ekki lengur
I tisku að vera fiknilvfjaneyt-
andi i Danmörku. Sú lið er lið-
ín þegar rithöfundaklika. er
taldi sig vera vinstrisinnaöa,
settist á tröppur Menntamála-
ráðuneytisins til að vekja á sér
athygli. segir I.D. Kasmuss-
sen héraðsdómari i grein i
Politiken i byrjun nóvember-
mánaðar sl. Verða hér rakin
nokkur alriði greinar hans.
Rasmussen segir, að vissu-
lega sé það sem betur fer rétt,
að fiknilyfjaneysla sem far-
sótt sé á undanhaldi. Engu að
siður sé ljóst. að hún hafi fest
djúpar rætur meðal þeirra
þjóðfélagshópa, er teljast hafa
orðið undir i baráttu sam-
keppnisþjóðfélagsins, við
megum ekki gleyma þvi, að
þrátt fyrir allar tryggingar og
félagslegar ráðstafanir býr
enn mikill fjöldi manna við
neyð.
Héraðsdómarinn leggur til,
að þyngdar veröi refsingarnar
fyrir glæpi i tengslum við
fiknilyfjaneyslu. Við verö-
umuð láta okkur skiljast, segir
hann, að fiknilyfin eru sam-
fara inn i landið þeirri gerð
glæpamanna, er við höfum
ekki þekkt til skamms tima.
Hér er um að ræða hina vel-
skipulögðu en hunsku nýtingu
alþjóðlegrar glæpastarfsemi á
mannlegri neyð og volæði, til
söfnunar milljónagróða. Mér
er það gjörsamlega óskiljan-
legt, að refsiákvæöin skuli
ekki þyngd i 12-16 ^ra fangelsi
fyrir slika glæpastarfsemi.
NÝJAR SENDINGAR
Enskir karlmannaskór úr leðri með háum hæl.
Karlmannainniskór úr ekta leðri svartir og brúnir.
ttalskir telpnaskór mjög fallegir.
Stórt úrval af karlmannaskóm
frá kr. 1150.00 til kr. 1495.00 parið.
Vinnu-og kuldaskór karlmanna úr rúskinni 995.000 kr. parið.
Skóbúð Austurbæjar
Laugavegi 100
Fimmtudagur 20. desember 1973.
Fimmtudagur 20. desember 1973.