Alþýðublaðið - 20.12.1973, Side 10

Alþýðublaðið - 20.12.1973, Side 10
Churchill fyrir framan þinghúsið Spencer-Churchill barónessa afhjúpaði fyrir skömmu högg- mynd af hinum heimsfræga og dáða eiginmanni sinum, Winston Churchill, fyrrum forsætisráð- herra Bretlands. Stendur styttan framan við þing- húsið i Lundúnum. Myndin sýnir þær frú Churchill og drottninguna ásamt fleira „fyrirfólki” við afhjúpunina. í mörgum löndum er vatnið eins og kunnugt er slæmt og þvi hefur mikið aukist út- flutningur á vatni frá öðrum löndum eins og t.d. Noregi. Vatnið er þó talið bæði dýrt og óhollt, en sem dæmi um, hvað það kostar má nefna norskt vatn, sem selt er i Þýskalandi — 2 litrar á 1,70 þýskt mark. Nýlega fór fram könnun i Þýskalandi á tólf tegundum af fersku vatni og aðeins ein tegundin slapp vel og var talin gott neysluvatn. Þaö er þó staðreynd, sem ekki er unnt aö ganga fram hjá, að venjulegt drykkjarvatn verður slfellt verra og minna af þvi. t Vestur-byskalandi eru fyrir hendi árlega 16 milljarðar kúbik- metrar af neðanjarðarvatni og 38 mill- jarðar kúbikmetrar af yfirborðsvatni, en aöeins þarf 15 milljaröar til árlegrar not- kunar. Eftir 30 ár segja visindamenn að notkunin verði 27 milljaröar kúbikmetra og sifellt minnkar vatnsboröiö. Sifellt fell- ur meira og meira af regni á steinsteypu og malbik. Gert er ráð fyrir þvi.að við . endaðan áttunda tug þessarar aldar neyöist menn til að fá meiri hluta vatns úr fljótum og vötnum, en bæði fljót og vötn eru oröin mjög menguð af iðnaöarfyrir- tækjum og verksmiöjum.enda er sifellt leitaö ákafar aö hreinsuriartækjum. Griskt máltæki segir, að vatnið sé gulls- virði.Kaupmaður frá Oberhunden fylgdi þessu ráði. Það var þurrkur i Duisberg og hann fór niður i kjallara og fyllti fimm litra flöskur með þvi að skrúfa frá krana' og seldi þær i Duisberg fyrir 1,20 þýsk mörk. Heilbrigðismálanefndin bannaöi söluna, þvi aö i vatninu fundust hættulegir geriar. FERSKT VATN FYRIR 20 MILLJÓN DALI. Bandarikjamenn kaupa hreint vatn á flöskum eins og mjólk. Aðeins eitt útibú Coca-Cola i Los Angeles keypti hreint vatn fyrir 20 milljónir dala eitt áriö. Drykkjarvatn i býskalandi má ekki innihalda meira en 100 sýkla per milli- litra, þvi að aðeins þá er engin hætta á smitun. Neysluvatnið er hreinsað með klór og i gosdrykki er bætt kolsýru til aö draga úr keimnum. Það er enginn vafi á þvi, aö þetta gamla vandamál svo margra landa er eitt af þeim vandamálum.sem verður aö leysa sem allra fyrst og'bæta neysluvatnið að mun með þvi að draga úr mengun. upp- að Bæði heildsalar og verslanir selja hreint sprettuvatn á fernum og flöskum, sem á vera betra en neysluvatnið heima fyrir, en nú hefur þetta verið kannað í Þýska- landi og árangurinn varð neikvæður. Hesthússbruninn Dýrt og auk þess óhollt Ekki farið eftir settum reglum Við byggingu hesthúsanna i Viðidal, sem kviknaöi i aðfara- nótt sunnudagsins, hafði ekki verið farið eftir byggingarsam- þykkt varöandi tvö atriöi, og að sögn Rúnars Bjarnasonar, slökkviliðsstjór^ hefur þrá- sinnis verið farið fram á, að úr þvi yrði bætt. Siðast i september sendi eldvarnaeftirlitiö eigend- um hesthúsanna bréf þar sem veittur var siðasti frestur áður en leyfi borgarráðs yröi fengið til að banna notkun húsanna. Það.sem um ræöir er, að sam- kvæmt byggingasamþykktinni mátti ekki nota i hesthúsunum eldfima einangrun, og eldfastar hurðir áttu að vera milli hest- húsanna sjálfra og hlöðunnar. Hvorugu þessara skilyrða var framfylgt, og sagði Rúnar Bjarnason, aö þarna sé um að ræða brot á öllum lögum. Hug- myndin var, að eldvarnaeftir- litið gerði úttekt á húsunum fyrir áramót. Niðurstöður rannsóknarlög- reglunnar um eldsupptök liggja ekki fyrir, en ljóst er, að eidur- inn kom upp i einu hesthúsanna, og enginn eldur fór i hlöðuna. Hinsvegar læsti eldurinn sig i einangrun i veggjum, en hún er úr plasti og veldur gifurlega miklum reyk. Komst eldurinn i tvö hús, og fórust þrjú hross, en öll önnur hross i þessum húsum urðu fyrir miklum áverkum af völdum reyksins. Þótt ekki sé fullvist, hvernig eldurinn átti upptök sin, er vitað, að skömmu áður en menn urðu varir við hann var verið að vinna að þvi með logsuðutæki aö þiða vatnsleiðslu, sem frosið hafði i. Fimmtudagur 20. desember 1973.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.